Tíminn - 17.10.1990, Side 13

Tíminn - 17.10.1990, Side 13
\r Miðvikudagur 17. október 1990 Tíminn 13 Reykingarofn Til sölu stór AFORS reykingarofn. Hentar sér- lega vel til reykingar á öllum tegundum fiskjar. Tekur allt að 1200 kg í einu. Ofninum fylgja 4 vagnar ásamt öllum grindum. Þeir sem áhuga hafa, vinsamlegast hafið sam- band (að kvöldlagi) í síma 75618 Karl eða 79105 Óskar. LEKUR : ER HEDDIÐ BLOKKIN? SPRUNGIÐ? Viðgerðir á öllum heddum og blokkum. Plönum hedd og blokkir — rennum ventla. Eigum oft skiptihedd í ýmsar geröir bifreiða. Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum — járnsmíði. Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110 Innilegar þakkir langar mig að flytja öllum þeim er minntust afmælis míns 2. október s.l. með nærveru sinni, kveðjum ýmiss konar, gjöfum og sæmdarvottum. Þvílík samúð bregður bjarma á veg og er ómælanleg öldruðum manni og verður aðeins þökkuð. Verið öll blessuð og sæl. Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli Sjáum um erfisdrykkjur RISIÐ Borgartúni 32 Upplýsingar í síma 29670 Kransar, krossar, kistu- skreytingar, samúÖarvendir og samúöarskreytingar. Sendum um allt land á opnunartíma frá kl. 10-21 alla daga vikunnar. Miklubraut 68 ‘B*13630 t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Amfríðar Gestsdóttur frá Mel, Þykkvabæ síðast á Dalbraut 23 Haraldur Elíasson Lilja Þorbjamardóttir fsak Þorbjamarson Skarphéðinn Haraldsson Guðmundur Haraldsson Rannveig Haraldsdóttir Kolbrún Haraldsdóttir bamaböm og bamabamaböm. Jón Erlendsson Helga Guðjónsdóttir Eyrún Óskarsdóttir Magnús fvar Þorvaldsson t Astkær eiginmaður minn Valur Amþórsson verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 19. október kl. 13.30. Þið sem viljiö minnast hans vinsamlegast iátið liknar- félögin njóta þess. Sigríður Ólafsdóttir. Það hlýtur að vera einkennileg tilfinning að rétta rúnnstykkin frá Bandaríkjunum til Kanada við morgun- veröarborðið. Hún er í Kanada Hann í BNA Orkustuldur í stórum stíl Bærinn Estcourt er sérstakur að því leyti að hann er bæði í Banda- ríkjunum og Kanada og sum húsin skiptast á milli ríkjanna. Þegar hjónin Gemene og Edmond Levesque setjast að matborði sínu er annað þeirra í Kanada og hitt í Bandaríkjunum og þegar þau fara að sofa á kvöldin er hugur þeirra og hjarta í Bandaríkjunum en fæt- urnir í Kanada. íbúar bæjarins eru 925 að tölu og bærinn er að hluta til í Quebec í Kanada og að hluta í Maine í Bandaríkjunum. Þessi undarlega staða kom upp árið 1956 þegar landmælingamenn drógu landa- mæralínuna þvert í gegnum hús við aðalgötu bæjarins og í gegnum fótboltavöllinn. Þetta er eini bær- inn við landamærin sem svona er ástatt um. íbúarnir taka þessu yfirleitt vel en þetta getur þó haft ýmis vandamál í för með sér. Til dæmis hefur sú staða komið upp að maður hefur skotið elg þegar hann var staddur í Kanada og þurft að fara til Banda- ríkjanna til að sækja hann og það er bannað að flytja kjöt milli ríkj- anna nema með sérstöku leyfi. Hús Trudel fiölskyldunnar er í Kanada en bflskúrinn er í Banda- ríkjunum. Þau eru með frystikistu í bflskúrnum, en nú hefur þeim Courtland Allen er einn af fjöl- mörgum heimilisleysingjum í New York borg. Hann býr í kassa utan af ísskáp í undirgöngum skammt frá byggingu Sameinuðu þjóðanna. tekur dregur Allen stól, sjónvarpið sitt og eldunar- tæki að næsta ljósastaur, opnar á honum lúgu og stingur í samband. Og innan stundar situr hann í makindum og horfir á fréttirnar á meðan kvöldmaturinn mallar á hitaplötu. Og þetta kostar hann ekki neitt! Að sögn Allens er hann fjarri því að vera einn um að nota sér þessa sérstöku leið til orkustuldar. Hann segir fjölmarga heimilisleysingja gera þetta, en þar að auki iðnaðar- menn og kvikmyndatökuhópa. „Ef að er gáð má sjá þetta gerast á öðru hverju götuhorni," segir hann. Allen hefur verið atvinnulaus og í sjö ár. Hann er þó ekki betlari heldur hefur lifibrauð sitt af því að selja bækur og tímarit sem hann í öskutunnum. Þar fann hann reyndar líka brauðristina sína og sjónvarpið. Hann segir það vera minnsta mál í heimi að næla sér í raforku með þessum hætti. Það þurfi aðeins blýant eða prjón til að opna lúguna og þá blasi við þriggja gata inn- stunga sem hreinlega standi öllum til boða. Lögreglan í hverfinu segist að- spurð líta framhjá þessu athæfi hans þótt strangt til tekið sé það ólöglegt. „Þetta er ábyrgur og góð- ur þjóðfélagsþegn sem hefur átt erfitt um dagana." Allen segir að brauðristin sín og sjónvarpið eyði svo litlu rafmagni að varla sé orð á gerandi. En kveðst aftur á móti geta lifað í fimm ár á þeirri upphæð sem sé stolið frá ríkinu með þessum hætti daglega. Courtland Allen hefur komið sér notalega fýrir á gangstéttinni og horfir á fréttimar á meðan hann eldar kvöldmatbm. f einum fótboltaleik hlaupa bömin í Estcourt margsinnis milli ríkjanna tveggja. verið tilkynnt að þeim sé óheimilt að sækja mat í frystikistuna í Bandaríkjunum og fara með hann heim til sín í Kanada! Þar sem eina sjúkrahús bæjarins er í Kanada eru öll börn bæjarins fædd þar, en þau geta valið hvar þau vilja hafa ríkisfang er þau eld- ast. Tollvörðurinn á staðnum hefur þurft að fást við hin einkennileg- ustu vandamál, en segir: „Við höf- um lært að fara ekki of stíft eftir reglunum hér, annars gæti ekki nokkur maður lifað hér eðlilegu lífi.“

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.