Tíminn - 24.10.1990, Blaðsíða 9
8 Tíminn
Miðvikudaqur 24. október 1990
Miðvikudagur 24. október 1990
Tíminn £
*
Utgefendur eru nú í óða önn að leggja síðustu hönd á útgáfu jólabókanna og eins og venjulega kennir þar ýmissa grasa:
Afnám virðisaukans virðist
ekki
Jólabókaflóðið
Jólabækurnar eru nú flestar að verða til-
búnar og þrátt fyrir misjafna afkomu á
síðasta ári er engan bilbug á bókaútgef-
endum að finna og ætla flestir að vera
með svipaðan fjölda titla og í fyrra. Bóka-
forlögum hefur hins vegar eitthvað fækk-
að og því mætti búast við að heildartitla-
fjöldinn yrði eitthvað minni og lauslega
áætlað má búast við hátt í 400 titlum í
jólabókaflóðinu í ár. Blaðamaður Tímans
ræddi við forsvarsmenn helstu forlag-
anna og voru flestir á því að þrátt fyrir
hækkanir á prenttöxtum myndu þeir
halda sama verði og var um síðustu jól og
þar sem búið væri að afnema virðisauka-
skattinn mætti búast við um 20% lækk-
un á bókunum frá því sem var um síð-
ustu jól.
Almenna bókafélagið
Almenna bókafélagið gefur út fyrir jólin
bækurnar Rauðir dagar, sem er skáldsaga
eftir Einar Má Guðmundsson, Spegillinn
hefur ekkert ímyndunarafl sem er ljóða-
bók eftir Kristján Kristjánsson, Kvæði
‘90, ljóðabók eftir Kristján Karlsson, Sér-
stæð sakamál, íslensk og norræn, Jó-
hanna S. Sigþórsdóttir skráði og þýddi,
íslenska kynlífsbókin eftir Óttar Guð-
mundsson lækni, íslenskir hermenn, þar
sem Sæmundur Guðvinsson ræðir við ís-
lendinga, hérlendis og erlendis, sem
gegnt hafa herþjónustu, Meira skólaskop,
Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Sigurjóns-
son segja gamansögur úr skólastofunni,
Skuggamir í fjallinu eftir Iðunni Steins-
dóttur og Á baðkari til Betlehem eftir
Sigurð G. Valgeirsson og Sveinbjörn I.
Baldvinsson. Þá eru komnar út bækurnar
Vökunótt fuglsins, þar sem tveir af okkar
mestu listamönnum, þeir Tómas Guð-
mundsson og Jóhannes Kjarval, segja
Matthíasi Johannessen hug sinn, Einfar-
ar í íslenskri myndlist eftir Aðalstein Ing-
ólfsson, Líkamstjáning eftir Allan Pease,
Galina, endurminningar söngkonunnar
Galina Vishnevskaja, Blóðugur blekking-
arleikur, þar sem yfirforingi rúmensku
öryggislögreglunnar afhjúpar spillingu,
og Njósnarinn sem kom inn úr kuldan-
um eftir John le Carré.
Forlagið
Forlagið gefur út fjögur íslensk skáld-
verk. Það eru skáldsögurnar Meðan nótt-
in líður eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur og
Nautnastuldir eftir Rúnar Helga Vignis-
son, Sögur úr Skuggahverfinu eftir Ólaf
Gunnarsson og Ijóðabókin Ljóð námu
völd eftir Sigurð Pálsson. Aðrar frum-
samdar bækur eru Sól í Norðurmýri sem
er saga Magnúsar Þórs Jónssonar, Megas-
ar, skráð af Þórunni Valdimarsdóttur, Ég
hef lifað mér til gamans, ævisaga Björns
á Löngumýri, skráð af Gylfa Gröndal, Af
fiskum og flugum, veiðisaga og vanga-
veltur eftir Kristján Gíslason, Neistar frá
sömu sól, samtöl við fimm íslendinga um
dulræn málefni eftir Svanhildi Konráðs-
dóttur, Rokksaga íslands 1955-90, frá
Sigga Johnnie til Sykurmolanna eftir
Gest Guðmundsson, Eftir kenjum kokks-
ins sem er matreiðslubók eftir Rúnar
Marvinsson. Forlagið gefur út tvær þýdd-
ar skáldsögur, Blóðbrúðkaup eftir Yann
Queffélec í þýðingu Guðrúnar Finnboga-
dóttur og Marta Quest eftir Doris Lessing
í þýðingu Birgis Sigurðssonar. Þá gefur
Forlagið út bókina Friður-Kærleikur-
Lækning eftir Bernie S. Siegel. Bókin
fjallar um samskipti líkama og sálar og
leiðina til sjálfslækningar. Helga Guð-
mundsdóttir þýddi. Af barna- og ung-
lingabókum má nefna Ég elska þig sem
eru frásagnir af æskuástum eftir þjóð-
kunna íslenska höfunda og Axlabönd og
bláberjasaft, barnabók eftir Sigrúnu Eld-
járn.
Fróði
Bóka- og blaðaútgáfan Fróði hf. mun
gefa út rúmlega tuttugu bækur fyrir jól-
in. Þetta eru bækurnar Völundarhúsið,
sem er Reykjavíkurskáldsaga eftir Baldur
Gunnarsson, Þegar böndin bresta, skáld-
saga eftir Arnmund Backman, Tár, bros
og takkaskór, unglingaskáldsaga eftir
Þorgrím Þráinsson, Fimmtíu flogin ár II.
bindi atvinnuflugssögu íslendinga eftir
Steinar J. Lúðvíksson og Svein Sæ-
mundsson, Bætt heilsa-betra líf, eftir Jón
Óttar Ragnarsson, Úrvalsréttir Gestgjaf-
ans, matreiðslubók eftir írisi Erlingsdótt-
ur, HM í knattspyrnu eftir Sigmund
Steinarsson blaðamann, Mannraunir eft-
ir Sighvat Blöndahl, Lífsstríðið, ævisaga
Margrétar Róbertsdóttur, skráð af Eiríki
Jónssyni fréttamanni, í einu höggi, skáld-
saga eftir Ómar Ragnarsson fréttamann,
Leyndardómar laxveiðanna eftir Ólaf Jó-
hannsson fréttamann, Hvernig lesa á árs-
reikninga fyrirtækja eftir Árna Vilhjálms-
son og Stefán Svavarsson, Vatnaveiði-
handbókin eftir Guðmund Guðjónsson,
Stebbi fer í flugvél, smábarnabók eftir
Hope Millington, myndskreytt af Gunn-
laugi Johnson, Vaxandi vængir eftir Þor-
stein Antonsson, Borgararnir eftir Ásgeir
Hannes Eiríksson, þar er fjallað um upp-
gang og hrun Borgaraflokksins, Stanga-
veiðiárbókin 1990 eftir Gunnar Bender
og Guðmund Guðjónsson, Duld (á ensku
The Shining) eftir Stephen King í þýð-
ingu Karls Birgissonar, Ekki er allt sem
sýnist, skáldsaga eftir Jeffrey Archer í ís-
Ienskri þýðingu Björns Jónssonar og Val-
kyrjur og varkvendi eftir Margaret Nic-
holas í íslenskri þýðingu Atla Magnús-
sonar og fjallar bókin um ýmsar sögu-
frægar kvenpersónur.
Hörpuútgáfan
Hörpuútgáfan á Akranesi gefur út 12
bækur um þessi jól. Meðal annars má
nefna bókina Bændur á hvunndagsföt-
um, 2. bindi, en höfundur er Helgi
Bjarnason blaðamaður. Á síðasta ári kom
út fyrra bindi með sama nafni. Hér er á
ferðinni opinská viðtalsbók við bændur,
sem segja frá fjölbreyttu lífshlaupi sínu.
Rætt er við Einar E. Gíslason á Syðra-
Skörðugili í Skagafirði, Benedikt Hjalta-
son á Hrafnagili í Eyjafirði, Örn Einars-
son í Silfurtúni í Hrunamannahreppi,
Björn H. Karlsson á Smáhömrum í
Steingrímsfirði og Guðmund Lárusson í
Stekkum í Flóa. Þá gefur Hörpuútgáfan
út bókina Þá hló þingheimur eftir Árna
Johnsen og skopteiknarann Sigmund Jó-
hannsson. Bókin er skemmtiefni í máli
og myndum og í henni eru skopsögur,
vísur og gamanbragir um þingmenn, eft-
ir þá og tengda þeim á ýmsa vegu. Hörpu-
útgáfan gefur einnig út bækurnar Gull-
korn dagsins, sem eru fleyg orð og erindi,
eitt fyrir hvern dag ársins, valin af Ólafi
Hauki Árnasyni og myndskreytt af Bjarna
Jónssyni listmálara, Um fjöll og dali,
ljóðabók eftir Sigríði Beinteinsdóttur frá
Grafardal í Borgarfirði og Afmælisdagar
með stjörnuspám eftir Amy Engilberts.
Þýddar bækur eru m.a. Ástin og stjörnu-
merkin eftir Jonathan Sternfield og fjórar
nýjar bækur eftir höfundana Jack Higg-
ins, Duncan Kyle, Bodil Forsberg og Er-
ling Poulsen.
ísafold
Bókaútgáfan ísafold gefur út fjórar bæk-
ur fyrir jólin. Barnabókina Þegar stórt er
spurt ... eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur,
sem er sjálfstætt framhald af bókinni Þið
hefðuð átt að trúa mér, sem kom út fyrir
síðustu jól. Leó E. Löve hefur skrifað aðra
bók en fyrir síðustu jól kom út spennu-
sagan Mannrán. Nýja bókin ber vinnu-
heitið Mútur og er spennusaga en jafn-
framt grimm þjóðfélagsádeila. ísafold
gefur einnig út smásagnasafnið Endur-
fundir eftir Erlend Jónsson og bókina
Hernámið-Hin hliðin eftir Louis E. Mars-
hall. Höfundur bókarinnar er bandarísk-
ur lögfræðingur sem var í hernámsliði
Bandaríkjamanna á fslandi á stríðsárun-
um. í bókinni lýsir hann kynnum sínum
af landi og þjóð og skýrir hina hliðina á
hernáminu, meðal annars „ástandið" frá
sjónarhorni hermanns sem eignaðist
óskilgetið barn með íslenskri stúlku. Ás-
laug Ragnars þýddi og bjó til prentunar.
Mál og menning
Bókaútgáfan Mál og menning gefur út
um 60 bækur fyrir næstu jól. Um er að
ræða 30 bækur fyrir fullorðna og annað
eins fyrir yngri kynslóðina. Af íslenskum
skáldverkum má nefna Svefnhjólið sem
er skáldsaga eftir Gyrði Elíasson, Hella,
skáldsaga eftir Hallgrím Helgason,
myndlistar- og útvarpsmann, Vegurinn
upp á fjallið sem eru smásögur eftir Jak-
obínu Sigurðardóttur, skáldsaga eftir
Pétur Gunnarsson verður gefin út en
ekki er búið að ákveða hver titill hennar
verður og bókin Mýrarenglar falla sem
eru smásögur eftir Sigfús Bjartmarsson
sem getið hefur sér gott orð sem ljóð-
skáld. Sex ljóðabækur verða gefnar út,
Sannstæður eftir Geirlaug Magnússon,
Blint í sjóinn eftir Guðlaug Arason, Einn
dag enn eftir Kristján Árnason, Bláþráður
eftir Lindu Vilhjálmsdóttur, Skuggar
vindsins eftir Stefán Sigurkarlsson og
Bak við hafið eftir Jónas Guðlaugsson
sem gefin er út í samráði við bókaútgáf-
una Flugur. Af þýddum skáldverkum má
nefna smásögur eftir Isabel Allende, Eva
Luna segir frá, Karamasov bræðurnir I
eftir Fjodor Dostójevskí, Grísku harm-
leikirnir í þýðingu Helga Hálfdánarsonar,
Ódauðleikinn, ný skáldsaga eftir Milan
Kundera, Þjófurinn eftir Göran
Tunström og Dreyrahiminn eftir Her-
björgu Wassmo. Þá gefur Mál og menn-
ing út fjórar Syrtlur sem er nýr flokkur
heimsbókmennta í vönduðum kiljum. Af
öðrum verkum má nefna ævisögu Bubba
Morthens, skráða af Silju Aðalsteinsdótt-
ur, fslenskt vættatal eftir Árna Björnsson,
Ljóshærða villidýrið eftir Arthúr Björg-
vin Bollason, Á íslendingaslóðum í Kaup-
mannahöfn eftir Björn Th. Björnsson,
Perlur í náttúru íslands eftir Guðmund P.
Ólafsson og Þeir máluðu bæinn rauðan -
bókin um Norðfjörð eftir Helga Guð-
mundsson. Af barna- og unglingabókum
má nefna Mundu mig! Ég man þig! eftir
Andrés Indriðason og Markús Árelíus eft-
ir Helga Guðmundsson.
Prenthúsið
Prenthúsið gefur út fjórar bækur. Það
eru bækurnar Þjóðarsáttin eftir Sigmund
en þar verður birt úrval teikninga Sig-
munds í Morgunblaðinu síðastliðin ár og
er þetta 9. Sigmunds-bókin sem Prent-
húsið gefur út, Myndbönd 1991 - Mynd-
bandahandbók heimilanna er yfirlitsrit
rúmlega 2000 kvikmynda sem fást á
myndböndum, áreiðanlegar umsagnir
um þær og helstu upplýsingar, Arnaldur
Indriðason og Sæbjörn Valdimarsson eru
höfundar bókarinnar og gefa þeir mynd-
unum stjörnur. Þá endurútgefur Prent-
húsið teikningabók Halldórs Péturssonar
sem gefin var út fyrir 10 árum og hefur
verið ófáanleg í mörg ár. Við erum ekki
ein er bók eftir Margit Sandemo, höfund
ísfólksins, en þar er fjallað um verndar-
anda úr öðrum heimi sem fylgja mann-
verum í gegnum vist þeirra á jörðinni.
Höfundur segir frá eigin reynslu, auk
þess sem hún birtir frásagnir fjölda ann-
arra.
Reykholt
Reykholt gefur út tvær veglegar bækur
fyrir jólin. Kveðja mín til Reykjavíkur er
listaverkabók með litprentuðum mynd-
um af um 50 málverkum Sigfúsar Hall-
dórssonar. Texti bókarinnar er eftir Jónas
Jónasson útvarpsmann og bókinni fylgir
14 laga hljómplata með lögum Sigfúsar í
flutningi ýmissa listamanna. Þá gefur
Reykholt út bókina Fram fyrir skjöldu
sem er ævisaga Hermanns Jónassonar,
Indriði G. Þorsteinsson hefur ritað ævi-
sögu Hermanns Jónassonar, fyrrum for-
sætisráðherra.
Setberg
Setberg gefur út á annan tug bóka fyrir
þessi jól. Meðal annars verður gefin út
bók eftir Antti Tuuri og heitir hún Til
Ameríku. Antti Tuuri hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs 1985. Þetta er
þriðja bókin sem Setberg gefur út eftir
þennan höfund en hinar tvær eru Dagur í
Austurbotni og Vetrarstríðið, þýðandi er
Njörður P. Njarðvík. Setberg gefur út
aðra bók eftir verðlaunahöfund og er það
bókin Míramar eftir egypska höfundinn
Nagib Mahfúz en hann hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels 1988 og er einn kunn-
asti og áhrifamesti höfundur sem ritað
Eftir
Stefán
Eiríksson
hefur á arabíska tungu. Míramar er nafn
á gistihúsi í Karíó og er þetta er önnur
bókin sem Setberg gefur út eftir Mahfúz
en í fyrra kom út bókin Blindgata í Kaíró.
Bókin er eins og hin fyrri þýdd af Sigurði
A. Magnússyni. Setberg gefur út ástar-
sögu eftir Danielle Steel, hina áttundu í
röðinni, og heitir hún Ástarorð. Þýðandi
er Skúli Jensson. Bókin Spil og spádómar
kemur einnig út fyrir jólin og er hún í
stóru broti og prýdd fjölda mynda. Þýð-
andi er Óskar Ingimarsson. Þá kemur út
bókin Ævibrot sem eru endurminningar
dr. Gunnlaugs Þórðarsonar, þar sem flétt-
að er saman frásögnum af honum og fjöl-
skyldu hans, ætt og uppruna og ýmsum
málum. Þá gefur Setberg út bók sem að
heitir Á Landakoti og hana skrifar Bjarni
Jónsson læknir. Eins og nafnið gefur til
kynna fjallar bókin um Landakot, um
lækna sem störfuðu þar, ýmsa atburði
sem þar hafa átt sér stað ásamt sögu spít-
alans. Hana prýðir mikill fjöldi mynda.
Setberg gefur einnig út átta litprentaðar
barnabækur með myndum og texta.
Skjaldborg
Skjaldborg gefur út rúmlega 30 titla fyr-
ir þessi jól. Forsetar lýðveldisins er geysi-
lega vönduð bók sem fjallar eins og nafn-
ið gefur til kynna um þá fjóra forseta sem
íslendingar hafa átt. Höfundar hennar
eru Bjarni Guðmarsson og Hrafn Jökuls-
son. Eins og allir knattspyrnuáhuga-
menn vita kemur árbókin íslensk knatt-
spyrna 1990 út fyrir þessi jól og eins og
áður er það Víðir Sigurðsson sem skráir.
Árbók hestamanna, Hestar og menn,
kemur út í svipuðu sniði og verið hefur,
og eru það Þorgeir Guðlaugsson og Guð-
mundur Jónsson sem skráðu. Þá gefur
Skjaldborg út barnabók eftir Atla Vigfús-
son sem heitir Hænsnin á Hóli, nýja bók
eftir Agöthu Christie sem heitir Morðið á
prestsetrinu, nýja bók eftir Birgittu H.
Halldórsdóttur sem er sakamálasaga og
heitir Myrkraverk í miðbænum, ung-
lingabók eftir nýjan höfund, Bjarna Dags-
son, sem heitir Ólétt af hans völdum. Ön-
undur Björnsson og Ásgeir Guðmunds-
son hafa verið að vinna að bók sem kem-
ur til með að heita Með kveðju frá Sankti
Bernharðshundinum Halldóri og undir-
titillinn verður íslendingar í þjónustu
þriðja ríkisins en þetta verk hefur verið
lengi í smíðum. Eftir Mary Angelo kemur
bókin Æviminningar blökkukonu og er
þetta fjórða bókin eftir hana, 2. bindi
Pelle Sigursæla kemur út en samtals
verður um fjögur bindi að ræða. Eftir
einn vinsælasta spennuhöfund í heimi,
Mary Higgins Clark, kemur ný bók, ný
bók í bókaflokknum Betri helmingurinn
kemur út en þar er talað við konur
þekktra manna í þjóðfélaginu, en þar
verður m.a. talað við Helgu, konu Ómars
Ragnarssonar, Sigríði, konu Hjartar Eld-
járns Þórarinssonar á Tjörn í Svarfaðar-
dal, og Unni, konu séra Pálma Matthías-
sonar. Einnig verður gefin út stór og veg-
leg bók sem er alfræðibók um spádóma
og spásagnalist. Gissur Ó. Erlingsson
þýddi með aðstoð ýmissa íslenskra spá-
fræðimanna. Björn Eiríksson hjá Skjald-
borg sagði að þau væru með eina bók í
viðbót en ekki væri tímabært að gefa upp
hvert væri innihald hennar og yrði hún
eitt af þeirra trompum á jólabókamark-
aðnum, líkt og Sendiherrafrúin í fyrra.
Skuggsjá
Skuggsjá gefur út níu bækur fyrir jól-
in. Gaman og alvara er minningabók
Péturs Eggerz, fyrrverandi sendiherra. í
bókinni segir hann frá lífshlaupi sínu og
starfi. Bíldudalskóngurinn er athafna-
saga Péturs J. Thorsteinssonar, sem
ásamt Thor Jensen var mestur athafna-
manna í sjávarútvegi á sínum tíma. Pét-
ur kom til Bíldudals ungur að árum og
fjárvana að einu íbúðarhúsi og einni
jagt í nausti, en engum íbúa. Þegar
hann fór frá staðnum voru húsin orðin
50, íbúarnir 300 og skúturnar 20. Höf-
undur er Ásgeir Jakobsson. Kennari á
faraldsfæti er þáttasafn Auðuns Braga
Sveinssonar, þar sem hann segir frá 35
ára kennarastarfi sínu í öllum hlutum
landsins. Sonur sólar hefur að geyma
nokkrar ritgerðir Ævars Kvaran og
greinar, sem flestar fjalla um dulræn
efni og er Ævar fyrir löngu orðinn
kunnur fyrir skrif sín um dulræn mál-
efni. Skuggsjá gefur út þrjár nýjar bæk-
ur í bókaflokknum Rauðu ástarsögurn-
ar en það eru bækurnar Fórnfús móðir
eftir Else-Marie Nohr, Hamingjuhjartað
eftir Evu Steen og í dag hefst lífið eftir
Erik Nerlöe. Einnig koma út nýjar
skáldsögur eftir Barböru Cartland og
Theresu Charles.
Váka Helgafell
Vaka Helgafell gefur út á þriðja tug bóka
fyrir þessi jól. Þeir gefa út nýstárlega al-
fræðiárbók um málefni líðandi stundar
hér á landi. Hluti bókarinnar er frétta-
annáll en meginuppistaðan er um þrjú
hundruð efnisþættir settir fram í stíl nú-
tímalegra alfræðibóka flokkaðir eftir
uppsláttarorðum í stafrófsröð. Bókin
heitir íslensk samtíð 1991 og er væntan-
leg á markað í lok nóvembermánaðar.
Hún á að verða landsmönnum handhæg
og notadrjúg uppflettibók á næsta ári en
efnið mun einnig hafa margvíslegt gildi
þegar tímar líða. Á vegum Vöku Helga-
fells hefur verið unnið að þessu útgáfu-
verkefni í allmörg ár og miklu fé varið til
undirbúnings. Á annan tug manna hafa
lagt hönd á plóginn og er ritstjóri verks-
ins Vilhelm G. Kristinsson fréttamaður.
Ætlunin er að íslensk samtíð 1991 marki
upphaf nýs bókaflokks og að ein bók
komi út árlega héðan í frá.
Öm og Örlygur
íslenska alfræðibókin sem Örn og Ör-
lygur gefur út er veglegasta jólabókin í ár
og reyndar stærsta og dýrasta verk sem
gefið hefur verið út á íslenska tungu. ís-
lenska alfræðibókin er þriggja binda stór-
virki, nær 1900 blaðsíður. Uppflettiorð og
lykilorð eru um 40.000, auk 5000 Ijós-
mynda, teikninga, korta og taflna sem
auka upplýsingagildið. Verkið er allt lit-
prentað. Við gerð alfræðiorðabókarinnar
var leitað til nær hundrað sérfræðinga á
hinum ýmsu sviðum til að gera verkið
sem áreiðanlegast. Auk þess unnu allt að
15 manns í ritstjórn í rúm þrjú ár. Bókin
Horfnir starfshættir og leiftur frá liðnum
öldum eftir Guðmund Þorsteinsson kem-
ur út aftur, en hún kom fyrst út 1975. Þá
voru engar myndir í bókinni en í nýju út-
gáfunni verður gífurlegur fjöldi ljós-
mynda er sýna hina horfnu starfshætti.
Meðal annarra bóka er Bernskan, svip-
myndir úr leik og starfi íslenskra barna,
eftir Símon Jóhannesson og Bryndísi
Sverrisdóttur, Uppfinningabókin, Það
hálfa væri nóg, lífssaga Þórarins Týrfings-
sonar, yfirlæknis SÁA, skráð af Guðrúnu
Guðlaugsdóttur blaðamanni, Áran -
orkublik mannsins — form, Iitir og áhrif
eftir Birgit Stephensen í þýðingu Esterar
Vagnsdóttur, Heilun eftir Anne Sophie
Jörgensen og Jörgen Höver Ovesen í þýð-
ingu Úlfs Ragnarssonar læknis, Ævisaga
Margrétar Danadrottningar í þýðingu
Þuríðar Kristjánsdóttur prófessors,
Mannlíf í Aðalvík og fleiri minningabrot
eftir Gunnar Friðriksson, Minningar úr
Mýrdal eftir Eyjólf Guðmundsson, bónda
og rithöfund á Hvoli í Mýrdal, Eilífðar-
trúin mín eftir Helen Keller í þýðingu
Sveins Ólafssonar, Grín og gamanmál,
léttmeti fyrir alla, jafnt glaðlynda sem
þunglynda, safnað hefur Guðjón Ingi Ei-
ríksson, Skip vonarinnar, ljóðabók eftir
Guðrúnu Guðlaugsdóttur blaðamann og
rithöfund og í úlfakreppu, spennusaga
eftir Colin Forbes. Af barnabókum Arnar
og Örlygs má nefna Tjúlli eftir Halla og
Inga, Barnagælur eftir Jóhönnu Stein-
grímsdóttur og Varenka eftir Bernadettu
í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur.
I 1 1111 i