Tíminn - 25.10.1990, Page 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 25. öktóber 1990 *
21.flokksþing ||i|
Framsóknarflokksins MM
21. flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið á Hótel
Sögu, Reykjavik, dagana 16.-18. nóvember 1990. Um rétt til setu á flokks-
þingi segir I lögum flokksins eftirfarandi:
7. grein.
Á flokksþingi framsóknarmanna eiga sæti kjörnir fulltrúar flokksfélaga.
Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa á fiokksþinOg fyrir
hverja byrjaða þrjá tugi félagsmanna. Fulltrúar skulu þó aldrei vera færri en
1 fyrir hvert sveitarfélag á félagssvæðinu. Jafnmargir varamenn skulu
kjörnir.
8. grein.
Áflokksþinginu eiga einnig sæti miðstjórn, framkvæmdastjórn, þingflokkur,
formenn flokksfélaga og stjórnir LFK, SUF og kjördæmissambanda.
Dagskrá þingsins verður auglýst slöar.
Framsóknarflokkurinn.
IMJ
Steingrímur
Hermannsson
Kjördæmisþing
framsóknarmanna
á Norðurlandi vestra
veröur haldið ( Félagsheimilinu á Blönduósi 27. og 28. október nk.
Dagskrá:
Laugardaginn 27. október
Kl. 13.00 Þingsetning og kosning starfsmanna.
Kl. 13.10 Skýrslur stjórnar K.F.N.V. og Einherja, umræður
og afgreiðsla reikninga.
Kl. 14.00 Sérmál þingsins. Uppbygging ferðamannaþjónustu
á landsbyggðinni, framsögum. Valgeir Þorvaldsson,
bóndi á Vatni.
Kl. 14.45 Frjálsar umræður.
Kl. 15.30 Kaffihlé.
Kl. 16.00 Umræður, framhald.
Kl. 17.00 Framboðsmál.
Kl. 18.00 Kosning nefnda og nefndastörf.
Kl. 20.30 Kvöldverður á Hótel Blönduós og kvöldskemmtun.
Sunnudagur 28. október
Kl. 10.00 Nefndarstörf.
Kl. 11.00 Nefndir skila áliti, umræður og afgreiðsla nefndaálita.
Kl. 12.30 Matarhlé.
Kl. 13.30 Ávarp gesta. Sif Friðleifsdóttir frá S.U.F.
Bjamey Bjarnadóttir frá L.F.K.
Kl. 13.45 Stjórnmálaviðhorfiö, Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra.
Kl. 14.45 Frjálsar umræður.
Kl. 15.30 Kaffihlé.
Kl. 16.00 Framhald umræðna.
Kl. 16.40 Umræður og afgreiðsla nefndaálita, framhald.
Kl. 17.20 Kosningar.
Kl. 17.50 Önnur mál.
Kl. 18.10 Þingslit.
Stjórnin.
Reykjanes
Skrífstofa kjördæmasambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi, er opin
mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Slmi 43222.
K.F.R.
Noröurland vestra
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Norðurtandi vestra verður haldið á
Blönduósi dagana 27. og 28. október.
Þingið hefst kl. 13,00 laugardaginn 27. október.
Dagskrá nánar auglýst siðar.
Stjórn KFNV
Keflavík — Opin skrifstofa
Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opið alla virka daga
milli kl. 17 og 18.
Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guðbjörg Ingimundardóttir, verö-
ur á staðnum. Simi 92-11070.
Framsóknarféiögin
lllj
Steingrímur
Jóhann
Aðalfundur
Framsóknarfélags Njarðvíkur
verður haldinn I Framsóknarhúsi Keflavíkur miðvikudaginn 31. október kl.
21.00.
Fundarefnl: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Kosning fulltrúa á flokksþing.
Á fundinn mæta Steingrlmur Hemiannsson og Jóhann Einvarðsson.
Félagsmenn mætum vel á fundinn.
Stjórnin.
UKI
Steingrímur
Hermannsson
Kjördæmisþing
framsóknarfélaganna
á Suöurlandi
31. þing K.S.F.S., haldið að Hvoli, Hvolsvelli, 26. og 27. október 1990.
Dagskrá:
Föstudagur 26. okt
Kl. 20.00 Þingsetning, kjömir starfsmenn þingsins.
Kl. 20.15 Stjómmálaviöhorfið. Steingrimur Hermannsson
forsætisráðherra. Umræður og fyrirspumir.
Álit kjörbréfanefndar. Fyrri umferð skoðanakönnunar.
Tillögur lagöar fram.
Laugardagur 27. okt.
Kl. 10.00 Skýrsla stjórnar. Skýrsla Þjóðólfs. Umræöurog afgreiðsla.
Afgreiðsla mála. Stjómmálaályktun.
Kl. 12.00 Hádegisveröur.
Kl. 13.00 Seinni umferð skoðanakönnunar. Flokksstarfið í kjördæminu
fram að kosningum.
Kl. 16.00 Kosningar. Álit framboðsnefndar. Önnur mál.
Kl. 18.00 Þingslit.
Kl. 20.00 Kvöldverður og skemmtun.
Aöalfundur fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna
í Keflavík
verður haldinn laugardaginn 27. október nk. kl. 14.00.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Borgarnes - Nærsveitir
Spilum félagsvist i Félagsbæ föstudaginn 26. okt. kl. 20.30. Allir velkomn-
ir.
Framsóknarféiag Borgamess.
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547.
Félagar eru hvattir til að líta inn.
K.S.F.S.
Framsóknarfólk Suöurlandi
31. Kjördæmisþing framsóknarmanna á Suðurlandi verður haldið dagana
26. og 27. október nk. á Hvoli, Hvolsvelli.
Þingið hefst kl. 20.00 föstudagskvöld.
Dagskráauglýst siðar. Stjóm K.S.F.S.
Kjördæmisþing
á Austurlandi
D0
Þing Kjördæmissambands framsóknarmanna á Austuriandi verður haldið
í Valaskjálf á Egilsstöðum föstudaginn 26. og laugardaginn 27. október
næstkomandi.
Þingið hefst klukkan 20.00 á föstudagskvöld með skýrslum um starfsemi
liðins árs og umræðum um stjómmálaviðhorfið.
Steingrímur Hermannsson, forsætísráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins, ávarpar þingið á laugardagsmorgun.
Aukaþing verður haldið eftir hádegi á laugardag, og þar verður frambjóð-
endum eftir forval á Austurlandi raðað i sæti á framboöslista.
Á laugardagskvöld 27. október verður haldin árshátíð Kjördæmisam-
bandsins og verður hún i Valaskjálf.
Athygli er vakin á þvl að á aukakjördæmisþing eiga félögin rétt á þrefaldri
fulltrúatölu.
Skoðanakönnun
á Vestfjörðum
Dtl
Eftirtaldir hafa gefið kost á sér ( skoðanakönnun á vegum
framsóknarmanna á Vestfjörðum um röðun á framboðslista flokksins fyrir
alþingiskosningar 1991.
Isafirði
Hrauni, Ingjaldssandi
Hólmavik
Reykjavík
Isafirði
Bildudal
Reykholtsdal
Isafirði
Brjánslæk
Bolungarvík
Guðni Ásmundsson
Guðmundur Hagalinsson
Katrln Marisdóttir
Kristinn Halldórsson
Magdalena Siguröardóttir
Magnús Björnsson
Ólafur Þ. Þóröarson
Pétur Bjarnason
Ragnar Guðmundsson
Sveinn Bernódusson
Skoðanakönnunin fer fram I öllum félögum framsóknarmanna i
kjördæminu dagana 27.-31. okt. nk. Þátttöku i skoöanakönnuninni hafa
allir félagsmenn samkv. félagatali 9. sept. 1990 sem öðlast hafa kjörgengi
15. mai 1991.
Það er ákvörðun nefndarinnar að stjóm hvers félags sjái um og beri ábyrgð
á atkvæðagreiöslunni á hverjum stað fyrir sig.
Merkja skal við lágmark 5 manns með tölustöfum 1-5.
Allar nánari upplýsingar gefa:
Einar Hreinsson
Kristjana Sigurðardóttir
Einar Haröarson
Sigriður Káradóttir
Sigurgeir Magnússon
Guöbrandur Björnsson
slmi 4062 eða 3413
slmi3794
slmi 7772
simi 7362
sfmi 1113 og 1320
sfmi 95-13331
Framboðsnefnd.
Kópavogur
Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna (
Kópavogi verður haldinn mánudaginn 29. október
nk. að Hamraborg 5 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra ræðir stjórnmálaviðhorfið.
Stjómin.
Steingrímur
Hermannsson
Amesingar
Hin áriega félagsvist Framsóknarfélags Árnessýslu hefst föstudaginn 2.
nóvember kl. 21.00 í Aratungu, föstudaginn 9. nóvember I Þjórsárveri og
lýkur 23. nóvember að Flúðum.
Aðalvinningur, ferð fyrir tvo að verðmæti 80.000,-
Allir velkomnir. Stjómin.
Frá SUF
Þriðji fundur framkvæmdastjórnar SUF verður haldinn fimmtudaginn 25.
október nk. kl. 17:30 á skrifstofu Framsóknarflokksins að Höföabakka 9.
Formaður.
Hafnarfjörður
Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna I Hafnarfirði verður haldinn
mánudaginn 29. október kl. 20.30 að Hverfisgötu 25, Hafnarfirði.
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Undirbúningur fyrir kjördæmisþing er haldið verður sunnudaginn
4. nóvember.
3. Undirbúningur fyrir flokksþing er haldið verður 16.-18. nóvember
4. Vetrarstarfið.
5. Önnur mál.
Stjórnin.
LESENDUR SKRIFA
Að hlýða röddu samviskunnar
Gott á sá, sem ekki þarf að berjast
við sjálfsásökun.
„Hugsunarlaus og himinglaður"
getur hann gengið ókvíðinn allar
stundir því engar hann angra hugar-
raunir er hljótast af vondum verk-
um.
Langvarandi sjálfsásökun (sam-
viskubit) er öllum þrautum
þyngri. Það þekkir sá einn er sjálf-
ur reynir.
Óhæfuverk stór eða smá eru stund-
um unnin í hugsunarleysi, og eru
varla munuð fyrr en að löngum tíma
liðnum, jafnvel svo að árum nemi.
En svo kemur samviskan að lokum
og rifjar upp hinn liðna atburð, og
eftir það gefur hún ekki grið:
„Eitt einasta syndar augnablik,
sd agnar-punkturinn smár,
oft lengist í ævilangt eymdarstrik
sem iðrun oss vekur og tár. “
(Stgr.Th.)
Eftir þetta stendur hinn leiði at-
burður manninum fyrir hugskots-
sjónum. Sífellt minnir samviskan á
hið illa sem maðurinn gerði, sífellt
nagar hún sál hans, veldur honum
angri, hugarkvöl, iðrun.
En þessi stöðugu óþægindi, sem
samviskan veldur honum, verða þó
til þess, að hann forðast að gera nein
þau verk, er valdið gætu hugarangri.
Hann reynir að breyta sem réttast,
koma fram við menn og málleysingja
þannig, að ekki valdi hann þeim sárs-
auka á neinn hátt. Samviskan stuðlar
þannig að bættu hugarfari hans, vek-
ur honum nýjar kenndir í brjósti,
glæðir hjá honum ást til alls og allra,
blæs honum í brjóst lotningu fyrir
Iífinu, gerir hann þannig að betri
manni en hann áður var. Því nú er
samviskan vöknuð. Hún er á verði og
gefur manninum sínar aðvaranir,
hvenær sem hann er að því kominn
að gera eitthvað það, sem brýtur
gegn tilgangi lífsins, eða gegn ætlun-
arverki hans í lífinu.
Og þrátt fyrir öll þau óþægindi,
sem samviskan veldur manninum,
þá verður hún samt til að lyfta
honum á hærra stig en áður, nær
birtu og yl æðri veralda, þar sem
góðvildin ríkir og ást til alls. Því
samviskan er rödd guðs í brjósti
mannsins og leitast við að breyta
innræti hans úr kærleiksleysi í
góðvild. Koma samviskunnar inn í
líf manns er því hin mesta gæfa, og
vissulega að ofan send frá hinum
æðsta krafti.
„Eitt augnablik helgað af himinsins náð
oss hefja til farsældar má,
svo gjörvöll vor framtíð ergeislum stráð
og gæfan ei víkur oss frá. “
(Stgr. Th.)
Samviskan leiðir til sigurs yfir ill-
um tilhneigingum sem á hugann
leita. Hún er hin æðsta leiðar-
stjarna. Sá sem styðst við leiðsögn
hennar, og ber gæfu til að heyra að-
varandi rödd hennar æ og ávallt, er
vel settur í lífinu, með hennar hjálp
er hægt að vinna hina mestu sigra,
andlega séð.
„Eins augnabliks sigur, sé ákvörðun rétt,
oss eilífðar hnossi fær gætt. “
(Stgr. Th.)
Og því aðeins næst sá sigur, að
samviskan, hin óbrigðula rödd æðri
veralda sé með í för og yfirgefi okk-
ur aldrei. Gæta verður þess vel að
víkja henni ekki úr leið, þótt stund-
um kunni okkur að virðast svo, sem
hún standi í vegi fyrir einhverri
ákvörðun, sem við tökum. Brjótum
hana aldrei á bak aftur, ryðjum
henni aldrei úr vegi, því það geti
valdið okkur óbætanlegum skaða,
því að
„eins augnabliks tjón, það er annað en létt,
vart eilífðin getur það bætt. “
(Stgr. Th.)
Við erum oft svo hvatvís, hugsum
lítt um þær afleiðingar, sem hlotist
gætu af óyfirvegaðri ákvörðun. Og
hér á ég einkum við það tjón, sem
við sjálf kunnum að bíða á sálu okk-
ar vegna langvarandi sjálfsásökunar,
sem okkar mun bíða vegna rangrar
breytni. Sú sjálfsásökun getur orðið
svo þungbær, að okkur finnist, sem
aldrei munum við geta við hana
losnað, hvorki hér í lífi, eða jafnvel í
framlífi.
Að gera mun á réttu og röngu er
hin mesta nauðsyn. Gjalda þarf var-
huga við þeim röddum í eigin barmi
sem hvetja tii ills. Þær eru oft svo
háværar. En að Ijá eyra hinni þýðu
rödd samviskunnar, þótt oft sé Iág-
mælt, fylgir hamingja og hin sanna
farsæld. Hlustum því eftir þeirri
röddu, hún ein leiðir til sigurs á ill-
um hvötum, og lyftir sálinni upp til
æðri birtu.
Ingvar Agnarsson.