Tíminn - 01.11.1990, Side 2
C rw;ín riC'*’ ' svn.-. 'Vi v
* • *2 •Tmninn............................................... Fimmtudagur 1. növember 1990
Fleiri og fleiri sjá gjaldeyristekjumöguleika í ósvikinni náttúruafurð:
ÚTUT FYRIR STÓR-
ÚTFLUTNING VATNS
Mikill áhugi virðist vera á útflutningi á drykkjarvatni frá íslandi og
eru nú þrír aðilar komnir nokkuð á veg með undirbúningsvinnu.
Það eru Búðahreppur í samvinnu við svissneskt fyrirtæki, nokkrír
aðilar í Reykjavík, og einstaklingar og fyrírtæki á Sauðárkróki í
samvinnu við Byggðastofnun. Þegar flytja AKVA á Akureyri út vatn
og einnig Sól hf. í Reykjavík, sem flytur út kolsýrt vatn.
Búðahreppur hefur undirritað
samning við svissneskt fjármögnun-
arfyrirtæki um markaðssetningu og
rekstur á vatnspökkunarfyrirtæki.
Um er að ræða rammasamning, sem
felur það í sér að svissneska fyrir-
tækið tryggir sér vatnstökurétt í Fá-
skrúðsfirði og gerir síðan athuganir
á hagkvæmni slíkrar framleiðslu. Á
grundvelli þeirra verða síðan teknar
ákvarðanir um hvort slíkt fyrirtæki
skuli stofnsett.
Lars Gunnarsson, oddviti Búða-
hrepps, sagði í samtali við Tímann,
að hreppurinn þurfi, samkvæmt
samningnum, að sjá um hafnar-
framkvæmdir og hugsanlega vatns-
lögn frá vatnstökustaðnum að höfn-
inni, sem kostar um 25 milljónir.
Reiknað er með að kostnaður við
hafnarframkvæmdir fyrir 50 þúsund
tonna skip, eins og fyrirtækið fer
fram á, verði á bilinu 140 til 240
milljónir.
í samningnum er kveðið á um að
fyrirtækið hafi um 3 ár til undirbún-
ingsvinnu. „Þeir segja jafnframt að
það sé allt eins líklegt að það taki
ekki nema 6 mánuði. Ef af því verð-
ur, þá gæti verksmiðjan verið komin
upp eftir 3 ár,“ sagði Lars. Hann
sagði fyrirtækið hafa áhuga á að fá
ríkið eða einhvern íslenskan aðila
inn í fyrirtækið með um 10% hluta-
fé. Að öðru leyti ætlar fyrirtækið að
reka vatnspökkunina sjálft, en
áskilja sér þann rétt að selja hana
þriðja aðila. Slíkt fyrirtæki mun
bæta við 10-15 störfum, miðað við
lágmarks nýtingu, fyrir utan alla þá
þjónustu sem fyrirtækið kallar á.
Hér er því um að ræða mikla lyfti-
stöng fyrir sveitarfélag eins og
Búðahrepp.
Þá ráögerir Vatnsveita Reykjavíkur
nú að bora eftir köldu vatni, sem er
sérstaklega ætlað til útflutnings. Er
það gert í samvinnu við Vífilfell hf.
og Hagkaup og er áætlað að hefja
framkvæmdir fljótlega. „Við höfum
verið að skoða þetta mál mjög lengi,
en því hefur aldrei verið fylgt eftir
fyrr en núna. Við erum að huga að
því þessa dagana að hefja fram-
kvæmdir," sagði Jón G. Óskarsson,
yfirverkfræðingur Vatnsveitu
Reykjavíkur, í samtali við Tímann.
Vatnsveitan ráðgerir að bora eftir
vatninu í Húsafellsbruna, sem er of-
an við Heiðmörk, en hún er mikið
úrkomusvæði og einnig svæðið þar
fyrir ofan. Mikið vatn er því þarna til
staðar. Hlutur Vatnsveitunnar er um
20% í þessu fyrirtæki. Jón sagði að
ýmsar ráðstafanir hafi verið gerðar í
sambandi við markaðsöflun. „Það er
búið að gera ýmsar ráðstafanir og
vatnsveitustjórinn er nú erlendis,
m.a. í þessum tilgangi."
Sauðkrækingar hafa í nokkur ár
verið orðaðir við vatnsútflutning.
Nú virðast vera blikur á lofti þar á
bæ, því Byggðastofnun hefur sam-
þykkt að taka þátt í undirbúningsfé-
lagi um framleiðslu og útflutning á
vatni frá Sauðárkróki.
Að sögn Snorra Björns Sigurðsson,
bæjarstjóra á Sauðárkróki, hafa
margir haft áhuga fyrir slíkum út-
flutningi og nú vilja menn kanna
það til þrautar. „Þetta er í framhaldi
af því, að fyrir ári síðan var settur í
gang hópur til að vinna að þessu á
vegum bæjarins, Byggðastofnunar
Iðnaðarráðuneytis og Iðnlánasjóðs.
Niðurstaðan var sú, að óska eftir
þátttöku Byggðastofnunar um
áframhald málsins."
Byggðastofnun mun vera tilbúin til
að leggja um 20% í slíkt undirbún-
ingsfélag og sagði Snorri að heima-
aðilar myndu útvega restina. -hs.
Jarðskjálftahrina suð-
vestur af Reykjanesi:
Eldgos er
hugsanlegt
Talsverð jarðskjálftahrina geng-
ur nú yfír á sjávarbotni um
160-180 km suðvestur af
Reykjanestá, en skjálftamir
hófust snemma morguns í
fyrradag.
Að sðgn Ragnars Stefánsson-
ar, jarðskjálftafræðings á Veð-
urstofunni, er um dæmigerða
skjálftahrinu að ræða sem
tengd er kvikuhreyfíngum. f
slíkum hrinum væri alltaf
spuming um hvort kvikan næði
að brjóta sér leið upp á yflrborð-
ið og gos hæfíst.
„Við höfum engar spurair haft
af slíku nú, enda er það oft svo
að kvikuhreyfíngar ná ekki upp
á yfirborðið. Skjálftamir nú eru
hins vegar talsvert stórir og
margir þcirra á bilinu 4,5-4,8
stig á Richterkvarða."
Þar sem skjálftamir eiga upp-
tök sín er hafdýpi um hálfur
kflómetri, Neðansjávargoss yrði
því, í fyrstu að minnsta kostl,
vart á þann hátt að ioftbólur
tækju að birtast á yfirborði sjáv-
ar á stóru svæði. Engar tilkynn-
ingar höfðu í gærkvöld borist
um slfkt. Væri um lítið gos að
ræða, myndu slikar loftbólur
dreifast mjÖg, þannig að erfltt
yrði að slá nokkru föstu um gos
eðaekkigos. -sá
Leyfisumsókn fyrir
gömlu bessaleyfi?
Fjármálaráðuneytið og forsætis-
ráðuneytið eru um þessar mundir
að sækja um leyfi fyrir fjarstýrðum
hliðum á bifreiðastæðum sínum
hjá byggingamefnd, en hlið hafa
verið fyrir þessum stæðum í yfír 10
ár.
Nýleg byggingareglugerð kveður á
um að þeir aðilar, sem hafa slíkan
búnað á sínum lóðum, verði að
sækja um leyfi. Samkvæmt heimild-
um Tímans, voru þessi hlið sett upp
við bifreiðastæði umræddra ráðu-
neyta í fullu samráði við borgaryfir-
vöíd á sínum tíma, en nú verða þeir
að sækja um sérstök leyfi til að upp-
fylla skilyrði byggingareglugerðar.
—GEÓ
Sjávarútvegsráðuneytið gefur út reglugerð
um heildarafla helstu botnfisktecjunda:
AFLAKVOTI
Sjávarútvegráðuneytið hefur gefíð
út reglugerð um leyfðan heildarafla
á helstu botnfísktegundum fyrstu
átta mánuði næsta árs, eða tímabil-
ið frá 1. janúar til 1. september
1991. Leyfður heildarafli miðast
við óslægðan físk með haus og er
hann sem hér segir:
1. þorskur 245 þúsund lestir
2. ýsa 40 þúsund lestir
3. ufsi 65 þúsund lestir
4. karfi 55 þúsund lestir
5. grálúða 30 þúsund lestir
6. skarkoli 7 þúsund Iestir
Um næstu áramót taka gildi ný lög
um stjórn fiskveiða.
Samkvæmt þeim skal fiskveiðiárið
framvegis miðast við tímabilið frá 1.
september ár hvert til 31. ágúst á
næsta ári, en hingað til hefur verið
miðað við almanaksárið í þessu
sambandi. Því nær reglugerð sú,
sem nú tekur gildi, yfir fyrstu 8
mánuði ársins 1991, en þá verður ný
ákvörðun tekin um heildarafla á
tímabilinu 1. september 1991 til 31.
ágúst 1992.
—GEÓ
Kvóta mótmælt
á Vestfjörðum
j Bæjarstjóra Isaljarðar hefur sent
frá sér tillögu þar sem mótmælt er
að kvótatakmarkanir verði settar á
steinbít sem veiddur er á línu, eins
og kemur fram í drögum um reglu-
gerð um veiðar í atvinnuskyni fyrir
tímabilið 1. janúar til 31. ágúst
1991.
í tillögunni kemur fram að þegar
kvótakerfið var tekið upp árið 1984,
hafi steinbítsveiðar verið kvóta-
bundnar, en hafi verið fallið frá því
árið eftir, þar sem þessi fiskistofn var
ekki fullnýttur og því mæltu fiski-
fræðileg rök ekki með því að sóknin
í hann yrði takmörkuð.
Er þetta ástand óbreytt og telur
bæjarstjórnin því ástæðulaust að
takmarka veiðarnar nú og segir að
„svona ákvarðanir við stjórn veið-
anna kippa stoðum undan útgerð
heilla byggðarlaga, sem byggjast að
stórum hluta á nýtingu þessa stofns
á ákveðnum árstíma". —GEÓ
Sigríður Kjaran með þjóðleg myndverk sín.
Tlmamynd: Aml Bjama
ÞJÓÐLEGAR BRÚÐUR
í ÞJÓÐMINJASAFNI
Næstkomandi laugardag, kl. 14:00,
verður opnuð sýning á verkum Sig-
ríðar Kjaran í Þjóðminjasafninu.
Verkin eru brúður sem sýna m.a.
íslenska lifnaðar- og atvinnuhætti
fyrr á öldum.
Sigríður Kjaran er fædd í Reykjavík
9. febrúar 1919. Hún hefur stundað
nám við skúlptúrdeild Myndlistar-
skólans í Reykjavík og í listaskólum
í Noregi og á Spáni. Öll verk Sigrið-
ar á þessari sýningu eru unnin á síð-
ustu 5 árum.
Brúðurnar eru unnar að mestu í
leir og eru sýndar við leik og störf
upp til sjávar og sveita, við tóvinnu,
æðarvarp, við mjaltir og heyannir
ásamt fleiru. Einnig eru brúður sem
íklæddar eru hefðbundnum íslensk-
um þjóðbúningum, svo sem peysu-
fötum, faldbúningi og upphlut. Ein
brúðanna er íklædd íslenskum
brúðarbúningi frá um 1800, en sá
búningur er varðveittur í sinni upp-
runalegu mynd í safni Viktoríu og
Alberts í London. Brúðurnar eru
með hrífur í hönd við heyvinnu, við
þvottasnúrur að hengja til þerris,
við tóvinnu, svo eitthvað sé nefnt
sem sýnir lifnaðarhætti fólksins
ljóslifandi.
Brúðurnar eru mjög nákvæmlega
unnar. „Þetta eru allt vinir mínir og
ég hugsa mér fólkið alveg eins og
það væri lifandi fólk að störfum.
Fyrir mér eru þetta ekki brúður
heldur lifandi fólk," segir Sigríður.
Hún vinnur alla búninga og flesta
fylgihluti þeirra sjálf. „Ég bý til körf-
urnar, ég móta í leirinn, ég prjóna
og sauma allt, ég fer í gamlar bækur
og kynni mér útlit fatnaðar og muna
frá þessum tíma.“
Sýningin er sérstaklega hönnuð
með börn í huga, því hún gefur afar
rétta mynd af lifnaðarháttum ís-
lendinga áður fyrr, einnig eru skýr-
ingar á störfum fólksins fyrir neðan
hverja mynd, sem auðveldar börn-
unum skilning á þeim. „Til þess að
sem flestir krakkar komi hingað, hef
ég ókeypis á sýninguna og það er
tekið alveg dásamlega á móti þeim
hér á Þjóðminjasafninu, alveg eins
og ég hefði helst óskað mér,“ segir
Sigríður.
Allir búningar og fylgihlutir brúð-
anna eru, eins og áður sagði, hann-
aðir sérstaklega af Sigríði sjálfri,
nema kvensilfrið sem er smíðað af
Dóru Jónsdóttur gullsmið, innan-
stokksmunir og amboð sem smíðuð
eru af Andrési B. Helgasyni, bónda
og smið, og hrífur sem Kristján Sig-
urðsson módelsmiður gerði.
Þóra Kristjánsdóttir listfræðingur
stjórnaði uppsetningu sýningarinn-
ar.
Sýningin mun standa yfir í næstu 3
mánuði, jafnvel lengur. Opnunar-
tími er sá sami og hjá Þjóðminja-
safninu eða sunnudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og laugardaga kl.
11.00-16.00.
—GEÓ