Tíminn - 01.11.1990, Side 19

Tíminn - 01.11.1990, Side 19
Fimmtudagur 1. nóvember 1990 Tíminn 19 Handknattleikur: Handknattleikur: BREIDDIN MEIRI — hjá Víkingum sem unnu Stjörnuna 22-23 Knattspyma: Naumt hjá Þjóðverjum Heimsmeistarar Þjóðverja unnu nauman sigur á Lúxemborgurum í 5. riðli undankeppni Evrópumóts lands- liða í Lúxemborg í gærkvöld. Jiirgen Klinsmann, Uwe Bein og Rudi Völler komu Þjóðveijum í 0-3 í fyrri hálfleik, en í þeim síðari minnkuðu Jean-Paul Girres og Roby Langers muninn fyrir heimamcnn. f Aþenu unnu Grikkir léttan sigur á Möltu 4-0 í 6. riðli EM. f Búdapest unnu Ungverjar 4-2 sigur á Kýpur og munaði þar mestu um að Kýpurbúar fengu dæmdar á sig tvær vítaspymur í leiknum. Júgóslavar unnu léttan 4-1 sigur á Austurríkismönnum í Belgrað. Darko Pancev skoraði þrennu fyrir Júgóslav- íu og Sercko Katanec gerði eitt. Andre- as Ogris hafði komið Austumkis- mönnum yfir á 15. mín., en það dugði skammL Víkingar eru enn taplausir í efsta sæti 1. deildar karla í handknattleik. f gærkvöld unnu þeir 22-23 sigur á Stjörnunni í Garðabæ og var sigur Víkinga mun öruggari en tölurnar gefa til kynna. í leikhléi var staðan jöfn 11-11. Víkingar höfðu undirtökin lengst af, en Stjörnumenn voru sjaldan langt undan. Um miðjan síðari hálf- leik var jafnt 16-16, en Víkingar náðu síðan 5 marka forystu 17-22. Undir lokin fengu varamenn Víkinga að spreyta sig og Stjörnumenn minnkuðu muninn. Breiddin í Víkingsliðinu er mikil um þessar mundir og er það einn helsti styrkur liðsins. Mörkin Stjarnan: Magnús S. 5, Haf- steinn 5, Sigurður 4, Patrekur 4, Hilmar 2 og Axel 2. Víkingur: Dagur 5, Bjarki 5, Trufan 4/1, Hilmar 3, Árni 1 og Karl 1. Á Hlíðarenda gerðu Valsmenn og KR- ingar 21-21 jafntefli í gærkvöld BL Bocciafatlaöra: Silfurverðlaun í sveitakeppni Um síðustu helgi fór fram í Upp- sölum í Svíþjóð Norðurlandameist- aramót fatlaðra í boccia. Sex ís- lenskir keppendur tóku þátt í mót- inu. Keppt var bæði í einstaklings- og sveitakeppni. Eftirtaldir keppendur voru valdir til þátttöku í mótinu: Sigurrós Karlsdóttir ÍFA, Elvar Thorarensen ÍFA, íris Gunnarsdóttir Snerpu, Árni S. Gylfason Ösp, Kristín Jónsdóttir Ösp og Hjalti Eiðsson ÍFR. í sveitakeppni kepptu íslensku sveitirnar í flokki 3 og 4, en keppt var í fjórum flokkum eftir stigi fötl- unar. Bestum árangri fslendinganna náðu Sigurrós, Árni Sævar og Krist- ín í sveitakeppni í flokki 3, en sú sveit hlaut silfurverðlaun á mótinu. Danir sigruðu í flokknum, en Svíar sigruðu í flokki 4. Ieinstaklingskeppninni komust ís- lensku keppendurnir ekki í úrslit, en keppni í boccia er orðin hörð og spennandi og krefst mikillar ná- kvæmni. BL Knattspyrna: Bandaríkjamaður til Sheffield Wednesday Enn einn landsliðsmaður Banda- ríkjanna í knattspyrnu hefur gert samning við evrópskt lið. í gær gerði John Harkes samning við enska 2. deildar liðið Sheffield Wednesday. Harkes mun leika með Wednesday liðinu til loka keppnis- tímabilsins sem lánsmaður frá bandaríska knattspyrnusamband- inu. Harkes, sem er 23 ára gamall, hefur leikið 37 landsleiki fyrir Bandaríkin. Hann er 9. landsliðs- maður Bandaríkjanna sem gert hefur samning við evrópskt lið eft- ir að HM á Ítalíu lauk.___BL Enski deildarbikarinn: Palace í vanda Crystal Palace lenti í miklu basli við 3. deildar lið Leyton Orient í fyrri leik liðanna í 3. umferð ensku deildarbikarkeppninnar í knatt- spyrnu í fyrrakvöld. Liðin skildu jöfn 0- 0. Úrslitin í fyrrakvöld urðu annars þessi: Crystal Palace-Leyton Orient.0-0 Ipswich-Southampton ........0-2 Manchester City-Ársenal.....1-2 Middlesborough-Norwich.......2-0 Sheffield United-Everton ...2-1 Tottenham-Bradford..........2-1 í 2. deild gerðu Notts County og Charlton 2-2 jafntefli í fyrrakvöld. Júgóslavía: Dinamo Zagreb fær nýtt nafn Júgóslavneska knattspyrnufélagið Dinamo Zagreb mun breyta um nafn þann 12. nóvember nk. Nýja nafnið er Króatía Zagreb, en Za- greb er höfuðborg Króatíuhluta Júgóslavíu. í apríl sl. voru frjálsar kosningar í Króatíu og þar með var kommúnískt þjóðskipulag af- lagt. Dinamo nafnið þykir því tímaskekkja, en liðið mun leika undir gamla nafninu til loka yfir- standandi keppnistímabils. Körfuknattleikur: Naumt hjá Rauðu stjörnunni Evrópukeppni félagsliða í körfu- knattleik stendur nú sem hæst. í fyrrakvöld voru leiknir síðari leikirnir í 2. umferð keppninnar. Eftirtalin úrslit liggja fyrir: Lahden Lahti frá Finnlandi sigr- aði Ovarense frá Portúgal 77-75 í Finnlandi, en Ovarense sigraði þó samanlagt 161-154. Rauða stjarnan frá Belgrad í Júgóslavíu sigraði Pasabahce frá TYrklandi, 86-76, í Belgrd og komst áfram á einu stigi saman- lagt 171-170. PAOK Salonika Grikklandi sigr- aði Sunderland frá Englandi, 97- 85, á heimavelli og sigraði sam- anlagt 193- 174. Cai Zaragoza frá Spáni sigraði Steiner Bayreuth frá Þýskalandi 101- 90 og komst áfram á 195- 180 samanlögðu skori. Dynamo Moskva sigraði Dozsa Kormend frá Ungverjalandi 113- 72 og samanlagt 199-146. Hapoel Galil frá ísrael sigraði Slask Wroclaw frá Póllandi 118- 95 og samaniagt 227-179. BL SKIPSTJORINN HELT SKUTUNNIA FLOTI Enn og aftur var það skipstjóri FH- skútunnar, þjálfarinn Þorgils Óttar Mathiesen, sem hélt henni á floti, að þessu sinni með því að skora jöfnun- armaridð í leik á móti ÍBV á síðustu sekúndum leiksins. Köflóttum leik liðanna í VÍS keppninni í handbolta í gærkvöldi lyktaði með jafntefli, 27- 27. Eftir að jafnræði hafði ríkt með lið- unum í byrjun, náði ÍBV yfirhöndinni og um miðjan fyrri hálfleik voru þeir komnir með 4 marka forskot FH-ing- ar náðu að saxa á það forskot í síðari hluta fýrri hálfleiks og í hálfleik var staðan 13-14, ÍBV í vil. Nokkuð um- deilt atvik gerðist, þegar rúmlega ein mínúta var eftir af fyrri hálfleik. FH- ingar náðu boltanum, þegar þeir voru í vöm, og sendu langa sendingu fram völlinn. Sigmar Þröstur Óskarsson, markvörður Eyjamanna, náði að grípa boltann fyrir utan punktalínu en missti hann aftur fyrir sig. Þar var kominn FH- ingurinn Hálfdán Þórð- arson, sem greip boltann og ætlaði að senda hann rétta boðleið. Skipti þá engum togum að Sigmar greip um háls Hálfdáns, þar sem hann stóð fyrir aftan hann, og kippti honum í gólfið. Gunnlaugur Hjálmarsson dómari, sem stóð nánast á milli piltanna, sýndi Sigmari umsvifalaust rauða spjaldið, sem var hárréttur dómur. í byrjun síðari hálfleiks mættu FH- ingar frískir til Ieiks. Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður þeirra, sýndi á fyrstu 10 mínútum síðari hálf- leiks allar sínar bestu hliðar og náðu FH-ingar að komast 3 mörkum yfir. Eyjamenn náðu fljótlega að jafna og komast yfir, en FH-ingar náðu að halda jöfnu, eins og áður sagði, með jöfnunarmarki þjálfarans á síðustu sekúndunum. Þrátt fyrir að tvo sterka menn vantaði í FH-liðið náðu þeir nokkuð oft að sýna góð tilþrif og var það heist Guð- jón Árnason sem sá um það, en hann skoraði 8 mörk, þar af tvö úr vítum. Yngri mennimir í liðinu sýndu einnig góða takta. Óskar Helgason átti ágæt- an dag og skoraði 7 mörk, þar af tvö úr vítaköstum. Hálfdán Þórðarson lék vel í vörninni og Knútur Sigurðsson sýndi að hann er efnilegur. Þorgils Óttar skoraði 5 mörk, öll á mikilvæg- um augnablikum. Guðmundur Hrafnkelsson sýndi á köflum mjög góða markvörslu. Gylfi Birgisson skoraði 10 mörk fyrir Eýjamenn og áttu FH-ingar fá svör við stórleik hans. Sigurður Gunnarsson var öflugur og skoraði 7 mörk. Jó- hann Pétursson og Sigurður Friðriks- son skoruðu 4 mörk hver. Ingólfur Arnarson kom í markið, þegar Sigmar fékk rauða spjaldið, og var árangur hans viðunandi. Sigmar hafði varið vel fram að því er hann var rekinn út af. Dómarar leiksins vom Gunnlaugur Hjálmarsson og Óli Ólsen og vom þeir skeleggir og eftirtektarsamir. Þó gætti ósamræmis í dómum hjá þeim. —SE Enski deildarbikarinn: Fyrsf a tap Liverpool Liverpool tapaði sínum fyrsta leik á keppnistímabilinu í gærkvöld á Old TVafford í Manchester í fyrri leik 3. umferðar deildarbikarkeppninnar. Manchester United sigraði 3-1. Úrslitin í gærkvöld uröu annars þessi: Aston Villa-Millwall..................2-0 Chelsea-Portsmouth....................0-0 Coventry-Hull.........................3-0 Derby-Sunderland......................6-0 Leeds-Oldham .........................2-0 Manchester United-Liverpool .........3-1 Oxford-West Ham.......................2-1 Plymouth-Nottingham Forest............1-2 QPR-Blackburn ........................2-1 Sheffield Wednesday-Swindon...........0-0 BL 1. september -15. nóvember Athygli gjaldenda skal vakin á því að yfir- standandi uppgjörstímabil virðisauka- skatts er 15 dögum lengra en venjulega. Tímabilið erfrá 1. septembertil 15. nóv- ember en gjalddaginn er óbreyttur, þ.e. 5. desember. Síðastatímabil ársins verður jafnframt 15 dögum styttra. Það hefst 16. nóvember og lýkur 31. des- ember. Tekur til þeirra sem hafa tveggja mánaða skil Lenging tímabilsins tekur til þeirra sem hafa almenn uppgjörstímabil, þ.e. tveggja mánaða skil. Þeir sem hafa skemmra eða lengra uppgjörstímabil falla ekki hér undir. Uppgjörstímabil endurgreiðslna sam- kvæmt sérákvæðum reglugerða verða óbreytt. Sérstakt uppgjörstímabil -aðeins árið 1990 Sérregla þessi er einungis bundin við árið 1990. Meginreglan er áfram sú að hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir. Uppgjör Athygli skal vakin á því að fullnaðarupp- gjör virðisaukaskatts skal fara fram fyrir tímabilið. Þannig skal skattreikningum vegna virðisaukaskatts lokað 15. nóv- ember í stað 31. október. ^ggre'

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.