Tíminn - 02.11.1990, Blaðsíða 13
Föstudagur 2. nóvember 1990
Tíminn 13
Jarðir til sölu
Eftirtaldarjaröireru til sölu:
1. Þóreyjarnúpur, Kirkjuhvammshreppi,
V-Húnavatnssýslu.
2. Birkiland (Vestraland IV), Öxarfjarðar-
hreppi, N-Þingeyjarsýslu.
3. Miðfjarðarnes I og III, Skeggjastaða-
hreppi, N-Múlasýslu.
Nánari upplýsingar veittar hjá Stofnlána-
deild landbúnaðarins, Laugavegi 120,
Reykjavík. Sími 25444.
Stofnlánadeild landbúnaðaríns.
FEIAG
ELDEI
BORGARA
Opið hús að Hverfisgötu 105
Félagsvist að Hverfisgötu 105 föstudaginn 2.
nóvembernk. kl. 14.00.
Frá og með 12. nóvember verður minni salurinn
opinn mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga frá kl. 13.30 til 17.00.
Frjáls starfsemi.
OTvAFSVIKURLÆKNISHERAÐ
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á hentugu hús-
næði fyrir heilsugæslulækni. Um er að ræða ein-
býlishús, par- og/eða raðhús, u.þ.b. 160-200m2
að stærð að meðtalinni bílageymslu.
Tilboð óskast send eignadeild fjármálaráðu-
neytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 12.
nóvember 1990
Fasteignaeigendur sem áður hafa sent upplýs-
ingar af sama tilefni þurfa ekki að gera það aftur.
Fjármálaráðuneytið, 31. október 1990
með útibú allt í kringum
landið, gerir þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bíla eriendis
interRent
Europcar
BÍLALEIGA
VETRARHJÓLBARÐAR
Nýir
fólksbílahjólbarðar
HANKOOK frá Kóreu
Gæðahjólbarðar á mjög
lágu verði frá kr. 3.180,-
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar: 91-30501 og 91-84844
Whitney
vill mann
Whitney Houston er nú búin að fá
sig fullsadda af þeim sögusögnum
sem gengið hafa um að hún sé
lesbísk og standi í ástarsambandi
við einkaritara sinn og vinkonu til
margra ára, Robyn Crawford.
Whitney hefur reynt að Ieiða
þennan orðróm hjá sér en nú hef-
ur hann haft slæm áhrif á einkalíf
hennar. Hún segir engan mann
þora að bjóða sér út vegna þessa og
tók því af skarið og lýsti því yfir að
hún hafi áhuga á karlmönnum en
ekki konum og hennar æðsta ósk
sé að eignast eiginmann og fjöl-
skyldu eins og aðrar konur. WhMney Houston ásamt æskuvinkonu sinni Robyn Crawford
Shawn Bates fýrír framan húsið þar sem hann firamdl þá hetjudáð að bjarga ellefu manns frá bráðum
bana.
16 ára gömul hetja:
Bjargar 11 manns úr
brennandi húsi
Shawn Bates vaknaði klukkan
rúmlega tvö aðfaranótt 19. sept-
ember sl. við vælið í reykskynjar-
anum í gistiheimilinu sem móðir
hans rekur. íbúar gistiheimilisin
eru aðailega aldrað fólk og Shawn
vissi að það var ekki fært um að
koma sér út úr húsinu á eigin
spýtur.
Hann rauk því fram og sá þá strax
hvar gamall maður sat og var að
kveikja í pípunni sinni en sófinn
sem hann sat á var í ljósum log-
um. Shawn rauk til gamla manns-
ins og sagði honum að kviknað
væri í húsinu. Sá gamli virtist
enga grein gera sér fyrir hvernig
komið væri og heimtaði að vera
látinn í friði og stimpaðist við á
meðan Shawn kom honum út úr
húsinu.
Húsið var úr timbri og eldurinn
átti því greiða leið um það allt.
Shawn óð hvað eftir annað inn í
húsið, en þar voru 15 manns.
Honum tókst að koma ellefu
þeirra út. Sumir höfðu misst með-
vitund vegna reyksins og þá bar
hann út. Hann fór ellefu sinnum
Fylkisstjóri Alabama veitir Shawn Bates heiðursskjal fýrir afrekið.
inn í húsið og bjargaði jafnmörg-
um íbúum þess.
Þegar hann fór inn í tólfta skiptið
var eldurinn orðinn það mikill að
hann varð að snúa við í forstof-
unni. Hann reyndi þó fyrst að
skríða eftir gólfinu en þá var gólf-
teppið farið að loga þannig að sá
möguleiki var úr sögunni.
Hann kvaðst allan tímann hafa
hugsað um það eitt að halda ró
sinni því hann vissi að hann var
eina vonin sem gamla fólkið átti
um að sleppa lifandi.
Fylkisstjóri Alabamafylkis, þar
sem Shawn býr, veitti honum sér-
stakt heiðursskjal fyrir afrekið og
slökkviliðsstjóri bæjarins sagðist
aldrei fyrr hafa orðið vitni að því-
líkri hetjudáð.
SPEGILL