Tíminn - 02.11.1990, Qupperneq 14
14 Tíminn
Föstudagur2. nóvember 1990
Reykjavík
Skoðanakönnun fulltrúaráðs framsóknarfélaganna I Reykjavík um val á
frambjóðendum Framsóknarflokksins I Reykjavlk fyrir næstu kosningar til
Alþingis fer fram dagana 10. og 11. nóvember nk. Kjörnefnd auglýsir hér
með eftir framboöum í skoðanakönnunina.
Frambjóðendur geta þeir einir orðið sem hafa kjörgengi til Alþingis og eru
skráöir flokksmenn Framsóknarflokksins eða lýsa yfir að þeir fylgi stefnu-
skrá hans.
Framboðsfrestur ertil 1. nóvember 1990.
Kjömefnd getur að framboðsfresti liönum bætl við fólki í framboð í skoð-
anakönnunina.
I kjörnefnd eiga sæti Jón Sveinsson formaður, Steinþór Þorsteinsson,
Helgi S. Guömundsson, Sigrún Sturiudóttir og Anna Kristinsdóttir.
Framboðum skal skila skriflega til formanns kjömefndar, Jóns Sveinsson-
ar, Heiöarási 8, 110 Reykjavik. Sími 75639.
Kjörnefnd.
Kjördæmisþing
framsóknarmanna
á Reykjanesi
verður haldið sunnudaginn 4. nóvember nk. i Veitingahúsinu Glóðinni,
Hafnarstræti 62, Keflavík, kl. 10.00.
Stjórnin.
21. flokksþing
Framsóknarflokksins
21. flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið á Hótel
Sögu, Reykjavík, dagana 16.-18. nóvember 1990. Um rétt til setu á flokks-
þingi segir i lögum flokksins eftirfarandi:
7. grein.
Á flokksþingi framsóknarmanna eiga sæti kjörnir fulltrúar flokksfélaga.
Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa á flokksþinOg fyrir
hverja byrjaða þrjá tugi félagsmanna. Fulltrúar skulu þó aldrei vera færri en
1 fyrir hvert sveitarfélag á félagssvæðinu. Jafnmargir varamenn skulu
kjörnir.
8. grein.
Á flokksþinginu eiga einnig sæti miðstjóm, framkvæmdastjórn, þingflokkur,
formenn flokksfélaga og stjórnir LFK, SUF og kjördæmissambanda.
Dagskrá þingsins verður auglýst síðar.
Framsóknarfiokkurinn.
Frá SUF.
„Flag í fóstur44
Ákveðin hefur verið skemmti- og skoðunarferð Sambands ungra fram-
sóknarmanna að .Steingrimsþúfu" 3. nóvember nk. ef næg þátttaka næst.
Fariö veröur með rútu frá BSl kl. 14.00. Á leiðinni til baka verður komið við
á hótelinu á Selfossi.
Þeir sem hafa áhuga á að koma með eru vinsamlega beðnir um að hafa
samband viö skrifstofu Framsóknarflokksins, i siðasta lagi föstudaginn 2.
nóv. ( slma: 674580 og láta skrá sig. Öllu ungu framsóknarfólki er heimil
þátttaka. Þátttökugjald eráætlaö 1500 kr. á mann.
Framkvæmdastjórn.
Selfoss og nágrenni
Fjögurra kvölda keppni
Félagsvist verður spiluð að Eyrarvegi 15, þriöjudagana 30. okt., 6. nóv.,
13. nóv. og 20. nóv. kl. 20.30.
Kvöldverðlaun - Heildarverölaun
Fólk má missa úr eitt kvöld án þess að verða af heildarverölaununum.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss
Ámesingar
Hin árlega félagsvist Framsóknarfélags Ámessýslu hefst föstudaginn 2.
nóvember kl. 21.00 I Aratungu, föstudaginn 9. nóvember I Þjórsárveri og
lýkur 23. nóvember að Flúöum.
Aðalvinningur, ferð fyrir tvo að verðmæti 80.000,-
Allir velkomnir. Stjómin.
Keflavík — Opin skrifstofa
Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opið alla virka daga
milli kl. 17 og 18.
Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guðbjörg Ingimundardóttir, verð-
urá staönum. Simi 92-11070.
Framsóknarfélögin
Létt spjall |||í
álaugardegi
Kosning á flokksþing - Borgarmál
Framsóknarfélag Reykjavlkur efnir til fundar laugardaginn 3. nóv. nk. kl.
10.30 að Höfðabakka 9.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á flokksþing.
2. Borgarmál. Framsaga Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi.
Framsóknarfélag Reykjavikur
Suöuriand
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Slminn er 22547.
Félagar eru hvattir til að lita inn.
I/ O C O
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmasambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi, er opin
mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Slmi 43222.
K.F.R.
Listasafn íslands:
Yfirlits-
sýningu
Svavars
að Ijúka
Yfirlitssýningu á verkum Svavars Guðnason-
ar í Listasafni íslands lýkur á sunnudaginn, 4.
nóvember.
Þessi sýning, sem nú fer að ljúka, er fyrsta yf-
irlitssýning á verkum Svavars í 30 ár og sjald-
gæft tækifæri til að sjá verk þessa frumkvöð-
uls íslenskrar abstraktlistar. Á sýningunni eru
verk frá öllum tímabilum á feríi Svavars, það
elsta frá 1930 en það yngsta frá 1975-80.
í tilkynningu frá Listasafninu er bent á að
hér sé um stórviðburð að ræða og á sýning-
unni megi sjá fjölda af verkum Svavars sem
koma sjaldan eða aldrei fyrir almenningssjón-
ir.
Þegar hafa um 10.200 manns séð sýninguna,
sem telst mjög góð aðsókn.
Listasafn íslands er opið alla daga nema
mánudaga frá kl 12-18 og er aðgangur ókeyp-
is.
í fúgustíl, mynd frá 1941
fí ' f fi
/'M 1 Hjf \
Félag bókagerðarmanna:
Afmælis-
hátíð
í dag, föstudaginn 2. nóvem-
ber, eru tíu ár liðin frá því
bókagerðarfélögin þrjú samein-
uðust í Félag bókagerðar-
manna.
Af því tilefni verður opið hús í
félagsheimilinu Hverfisgötu 21
Jazz- og dixielandhljómsveit
bókagerðarmanna á æfingu í fé-
lagsheimilinu.
frá kl. 18-20 þar sem bornar
verða fram kaffiveitingar, en
síðan mun Jazz- og dixieland-
hljómsveit FBM, sem eingöngu
er skipuð bókagerðarmönnum,
halda tónleika í Danshúsinu í
Glæsibæ frá kl. 21-23. Að því
loknu mun hljómsveit hússins
leika með söngvurunum Ragn-
ari Bjarnasyni og Ellý Vil-
hjáims.