Tíminn - 02.11.1990, Side 15
Föstudagur 2. lióvémber 1990
Tíminn 15
i:- LTÓYVLL3:
„Martröðin“ mætt til Islands!
Það verður heldur betur tekið
á því á morgun í Reiðhöllinni í
Víðidal, þegar 6 af sterkustu
’ mönnum heims reyna með sér
í kraftakeppninni Kraftur ‘90.
Keppnin er í senn einstaklings- og
liðakeppni. Fyrir íslands- hönd
keppa þeir Hjalti Úrsus Arnason og
Magnús Ver Magnússon, fyrír Brét-
land keppa þeir Adrian Smith og
Jamie Reeus og fyrir Bandaríkin
keppa Bill Kazmaier og O.D. Wil-
son.
O.D. Wilson, eða „Martröðin" eins
og hann er kallaður, er tveir metrar
á hæð og yfir 200 kg á þyngd. Hann
er margfaldur heimsmeistari í
krftlyftingum. Bill Kazmaier og
Jamie Reeus hafa báðir hampað tit-
ilinum sterkasti maður heims.
Keppnisgreinar eru 25 kg stein-
kast, lýsistunnuhleðsla, hjólböru-
akstur, rafgeymalyfta, krafthleðsla,
sekkjadráttur og hlaup og tré-
Keppnistímabilið í NBA-
deildinni hefst í dag:
Phoenix og
Utah mætast
í Tokyo
í dag hefst keppnistímabilið í
bandarísku NBA-atvinnumanna-
deildinni í körfuknattleik. Tólf leik-
ir eru á dagskrá í fyrstu umferð sem
leikin er aðfaranótt laugardags að
ísl. tíma.
í Metropolitan höllinni í Tokyo í
Japan mætast Phoenix Suns og Útah
Jazz, liðin mætast öðru sinni á
morgun, laugardag. Er þetta í fyrsta
sinn sem bandarísk atvinnumanna-
lið leika utan Bandaríkjanna leiki á
sínu reglulega keppnistímabili.
Keppnistímabilið í NBA-deiIdinni
er bæði langt og strangt. Leikið
verður án hléa til 21. apríl. Eftir það
tekur við úrslitakeppni 16 liða, en
alls leika 27 lið í deildinni.
Engin ný lið bætast í hópinn í ár, en
sú breyting hefur verið gerð á riðla-
skipan að Orlando Magic, sem lék í
miðriðli austurdeildarinnar á síð-
asta keppnistímabili, hefur skipti við
Charlotte Hornets sem lék í mið-
vesturriðli vesturdeildarinnar. BL
Isienskar getraunir:
Tvær beinar
útsendingar
íslenskir sjóvarpsáhorfendur fá
heldur betur innsýn í ensku knatt-
spymuna um helgina, því tvær
beinar útsendingar yerða á dagskrá
Ríkissjónvarpsins. Á laugardag kl.
15.00 verður leikur Chelsea og As-
ton Villa sýndur, en á sunnudag eru
það Tottenham og Liverpool sem
eigast við. Sá leikur hefst einnig kl.
15.00.
Þrefaldi potturinn í íslenskum get-
raunum gekk út sl. laugardag. Það
var hópurinn FJARKARNIR á Siglu-
firði sem hreppti hnossið.
BOND-hópurinn hefur örugga for-
ystu í HAUSTLEIK ‘90, hefur 86 stig.
Næstir koma hóparnir MAGIC-TIPP
og 2x6 með 82 stig.
Morgunblaðið leiðir fjölmiðla-
keppnina, hefur 60 stig. Tíminn hef-
ur 54 stig.
Bretar hafa breytt klukkunni hjá
sér yfir á vetrartíma og því seinkar
lokun sölukerfis íslenskra getrauna
til kl. 14.55.
Vegna þrengsla á íþróttasíðunni í
dag er ekki hægt að birta fjölmiðla-
spána né stöðurnar í 1. og 2. deild.
Spá Tímans er þessi: 22X, 12X, 111,
22X. BL
drumbalyfta.
Skyldi þeim Hjalta og Magnúsi
takast að vinna enn einn sigurinn á
þessum köppum eða fara gestirnir
með sigur af hólmi?
Keppnin hefst kl. 17.00 á morgun
laugardag í Reiðhöllinni í Víðidal.
BL
Opnub hafa verib ný bílastæbi vib
Alþingisreit meb abkomu frá Tjarnargötu.
Gjaldskylda alla virka daqa frá kl. 07:30 til 18:30. Frítt er á kvöldin og
um helgar. Gjald fyrir lyrstu klukkustund er 30 krónur og
10 krónur lyrir hverjar byrjaðar 12 mínútur eftir það.
]. Komiö aö bílastæöi.
Ytið á hnapp við innkeyrsluhlibið,
takið vib miða og geymib.
2. Bílinn sóttur.
Gengið ab mibaaflesara.
Setjio miðann í mibaraufina,
uppsett gjald greitt,þú
færb mibann aftur.
3. Ekib frá bílastæbi.
Akib af stæbi ab útaksturshlibi.
Setjib mibann í mibaraufina,
hlibib opnast.
Þú hefur 10 mínútur til þess ab aka út. Ef lengri tími líður frá greiðslu miða,
opnast úthlið ekki og borqa þarf meira. Sé vibdvöl á stæbi skemmri en 5 mínútur
þarf ekki að setja miba í miðaaflesara
ábur en ekib er af stæbinu.
Ath.
Þó frítt sé á stæbib , á kvöldin og um helgar, þarf samt að setja miba í mibaaflesara og
þá birtist "0 kr." á skjá og þú færb mibann aftur, sem gilair fyrir útaksturshlib.
Á reitum merktir A eru 60 gjaldskyld bílastæbi til almennra nota alla virka daga
frá kl. 07:30 til 18:30. Reitur B er sérstaklega merktur Alþingi.
Reitir merktir A eru hins vegar opnir almenningi
á kvöldin og um helgar og þá er frítt í stæbin.
BILASTÆpASJOÐUR
REYKJAVIKUR
SKULATUNI 2.
SÍMAR: 21242 OG 18720
BILANAVAKT, SÍMI 27311, UTAN VINNUTÍMA.