Tíminn - 07.11.1990, Page 16
AKTU EKKI UT
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
Ingvar
Helgason hf,
Sævarhöfða 2
Sími 91-674000
Tíminn
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER1990
Almannavarnir ríkisins hafa aðvarað almannavarnarnefndir á Suðurnesj-
um vegna skjálftahrinunnar á Reykjaneshryggnum. Guðjón Petersen:
Æfing enn á dagskrá
þó að alvaran gæti
breytt þeim áformum
Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins, sagði
að þeir hefðu fylgst stansiaust með og verið í stöðugu sambandi við
vísindamenn vegna jarðhræringana út af Reykjanestá. Þar að auki
hefðu þeir aðvarað almannavarnarnefndirnar á Suðumesjum við
hugsanlegum náttúruhamförum. Þar væru í gildi ákveðnar neyðar-
áætlanir sem yrðu virkjaðar ef ástæða þætti til.
Til stendur, óháð látunum núna, að
halda í lok mánaðarins 10 daga als-
herjar æfingu við náttúruhamförum
á Reykjanesi og sagði Guðjón að hún
yrði haldin nema alvaran tæki hana
af þeim. Hann sagði að það væri
meiningin að sviðsetja á Reykjanes-
fjallgarðinum atburði af þeirri
stærðargráðu, að þeir hefðu áhrif á
öryggi og ýmsa þætti daglegs lífs á
höfuðborgarsvæðinu og á öllum
Suðurnesjunum. Guðjón sagði að
æfa ætti stjórnendur, t.d. sveita-
stjórnirnar á svæðunum og björg-
unarfélögin og tilgangurinn væri
m.a. sá að samhæfa aðgerðir.
Guðjón sagði að í raun væri þetta
ekki spurningin um það hvort þessi
hrina bærist á land heldur miklu
frekar hvenær. Hann sagði að
spennuútleysning á einum stað
vegna landreksins eins og nú sé að
gerast á Reykjaneshryggnum hljóti
að auka spennu annarsstaðar sem
þurfi að leysast út og jafnast. Ógern-
ingur væri að spá um hvenær það
yrði, það gæti verið um að ræða
daga, vikur, mánuði eða ár. Guðjón
benti einnig á að hrinan gæti einnig
borist frá landinu og farið þannig í
hina áttina.
Ragnar Stefánsson, jarðskjálfta-
fræðingur, sagði að þeir þekktu ekki
orsakasamhengi á milli jarðskjálfta
en þeir vissu að gliðnunarhreyfing á
í nýrri skýrslu frá Vegagerð rikis-
ins um vegtengingu um utanverð-
an HvalfjÖrð kemur fram að sam-
kvæmt arðsemisútreikningum er
hagkvæmt að gera göng undir
fjörðinn. Tvær leiðir eru taldar
einna líklegastar, en það eru svo-
kallaðar Kiðafelisleið og Hnausa-
einum stað yki líkur á gliðnunar-
hreyfingum á öðrum stað. „Hitt er
annað mál það eru nokkuð oft gliðn-
unarhreyfingar úti á hryggnum og
það er ekki alltaf sem við sjáum sam-
band þarna á milli“, sagði Ragnar.
Hann sagði að best væri að orða
þetta þannig að gliðnunarhreyfing á
mið- Atlantshafshryggnum í kring-
um landið yki nokkuð líkur á gliðn-
unarhreyfingu á íslandi án þess að
það væri hægt að sjá beint samband
þar á milli.
skerslefð, og eru þessar lefðfr sýnu
arðbærari en brúargerð eða botn-
stokkur. Hagkvæmasta lefðfn er
Kiðafellsleiðin sem felur í sér jarð-
göng frá Kiðafeili í Kjós yfir að
Galtarvík í Skilmannahreppi.
Kostnaðaráætlun fyrir þá leið og
aðliggjandi vegi hljóðar upp á
—SE
Hvalfjörður:
JARÐGONG ERU
ARÐBÆR KOSTUR
Hór má sjá hvemig jarögöng kæmu yfir Hvaffiörð samkvæmt
Hnausaskersleið og Kiðafellsleið.
rúraa 4 miUjarða og teist gefa Botngöng eða brú eru eingöngu
töluverða arðsemi. Næsthag- talin koma tii greina á Kiðafelis-
kvæmasta Íeiðin er samkvæmt leið en útreikningar benda ekki tii
þessari úttekt Hnausaskersleiðin að þeir valkostir séu hagkvæmari
sem iiggur yfir fjörðinn frá Tíðar- en ofangreind jarðgöng.
Tap „arðbærasta“ fyrirtækis
ríkisins orðið 226 milljónir
„Niðurstaðan er hins vegar aug-
ljós, flugstöð Leifs Eiríkssonar er
eitt arðbærasta íýrirtæki ríkisins“.
Prétt um 226 milijóna uppsafnað-
an greiðsluhalia á Flugstöðinni
okkar s.l. tvö og hálft ár kemur lík-
lega eins og köld vatnsgusa fram-
an í þjóð sem færð voru áður-
greindar „gleðifréttir" fyrir aðeins
tæplega þrem árum síðan. En þar
er um að ræða orðrétta tilvitnun
úr stórri og mikilli skýrslu sem
byggingamefnd flugstöðvarinnar
sendi frá sér um jólaleytið 1987 í
kjölfar einhverra leiðinda af hendi
Ríkisendurskoðunar. Með tilvísun
í ijárlagafrumvarp 1988 segir
byggingamefnd síðan: „Standa
leigugreiðslur einar nú undir
greiðsium vaxta og afborgana á ár-
inu 1988“.
Ný skýrsla Jóns Baldvins Hanni-
balssonar utanríkisráðherra flytur
Alþingi nú þær fréttir að 62 millj-
óna greiðsluhalli hafi verið á Flug-
stöðinni árið 1988, rúmlega 108
milljón króna halli árið 1989 og
rúmlega 56 milljóna halli fyrstu sjö
mánuði þessa árs, eða samtals um
226 milljóna greiðsluhalli á aðeins
tveim og hálfu ári.
Fleiri en byggingarnefnd voru
bjartsýnir í byrjun. í áðurnefndu
fjárlagafrumvarpi
fyrir 1988 eru rekstrartekjur Flug-
stöðvarinnar áætlaðar 207 milljón-
ir, en rekstrarkostnaður aðeins 178
milljónir, hvar af 126 milljónir fari
til greiðslu vaxta.
En hér virðist einhver hafa reikn-
að skakkt, eða hvað?
í Ríkisreikningi eftir þetta ár kem-
ur í ljós að tekjurnar fóru vel fram
úr áætlun og urðu 229 milljónir.
Fjármagnskostnaðurinn varð aftur
á móti 84 milljónum hærri en
áætlað var, eða 210 milljónir, og
annar rekstrarkostnaður 81 millj-
ón í stað 52 milljóna í fjárlagafrum-
varpi. Beinn rekstrar- og vaxta-
kostnaður varð yfir 60 milljónir kr.
Eftir reiknað endurmat og verð-
breytingar varð niðurstaða Rikis-
bókhalds hins vegar sú að Flug-
stöðin hafi árið 1988 verið rekin
með 228 milljóna króna halla í stað
29 milljóna áætlaðs hagnaðar í
fjárlögum ársins.
Ráðamenn virtust þó ekki láta
þessi leiðindi á sig fá, því í fjárlaga-
frumvarpi fyrir 1989 segir svo m.a.:
„Flugstöðinni er ætlað að standa
undir eigin rekstrar- og fjármagns-
kostnaði". Heildartekjur eru þar
áætlaðar 271 milljón, en gjöldin
heldur lægri, eða 263 milljónir
hvar af vextir eru reiknaðir 183
milljónir króna. Ríkisreikning fyrir
þetta ár hefur Tíminn ekki. En ut-
anríkisráðherra upplýsir nú um
108 milljóna greiðsluhalla þetta ár,
sem þýðir þá a.m.k. 116 milljóna
króna reikningsskekkju.
Nú virðist mönnum loks hafa
brugðið í brún. Því í fjárlagafrum-
varpi fyrir yfirstandandi ár (1990)
segir m.a.:
„Ljóst er að tekjustofnar flug-
stöövarinnar nægja ekki til að
standa straum af rekstrarkostnaði
hennar. Miðað við þá tekjustofna
sem Flugstöðin hefur er áætluð
fjárvöntun 88,5 milljónir á næsta
ári“. í frumvarpinu eru heildar-
gjöld Flugstöðvarinnar áætluð 555
milljónir á þessu ári, sem er meira
en tvöföldun frá fjárlögum síðasta
árs. Þar af eru vextirnir einir reikn-
aðir 328 milljónir króna. Tekjurnar
eru áætlaðar 376 milljónir á árinu,
eða ekki svo langt umfram vextina
eina. Fjárlögin virðast aldrei hafa
komist nær raunveruleika Flug-
stöðvarinnar heldur en á þessu ári.
í júlílok voru tekjurnar komnar í
196 milljónir og gjöldin í 253 millj-
ónir, sem er raunar hlutfallslega
heldur minna tap en fjárlög ársins
áætluðu. Vaxtakostnaður var kom-
inn í 186 milljónir í júlílok, sem
einnig virðist standast nokkuð á
við áætlun fjárlaga.
í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið
1991 er aftur viðurkennt að tekju-
stofnar Flugstöðvarinnar muni
ekki standa undir gjöldum. Þrátt
fyrir áætlaða 50 milljóna kr. lækk-
un vaxtakostnaðar, vegna lækkun-
ar á gengi bandaríkjadals er hallinn
áætlaður 74 milljónir árið 1991. í
frumvarpinu segir síðan m.a.:
„Ekki er fyrirsjáanlegt að gjöld fyr-
irtækisins lækki þegar fram í sækir.
Þvert á móti mun kostnaður
hækka þegar afborganir af áhvíl-
andi lánum hefjast."
Yfirvöld frestuðu nefnilega öllum
afborgunum til ársins 1995. Á því
ári er íslendingum loks ætlað að
fara að borga eitthvað af Flugstöð-
inni sinni og síðan áfram jafnt og
þétt næstu 25 árin. Árið 2020 get-
um við því gert okkur von um að
eiga loksins Flugstöð Leifs heppna.
- HEI