Tíminn - 27.11.1990, Qupperneq 2

Tíminn - 27.11.1990, Qupperneq 2
2 Tíminn Þriðjudagur 27. nóvember 1990 Bórtdinn í Skaftárhreppi á batavegi. Skotmaðurinn játar og er laus ur gæsluvarðhaldi: Fylliríisfálm en ekki ætlunarverk Bóndino sem varö fyrir skoti s.l. laugardagskvöid aö Landbroti í Skaftárhreppi er á batavegi. Maður sem fannst sofandi á næsta bæ, með 22 kalibera riffil sér við hlið, hefur játað á sig verimað- inn, en þó er talið Ijóst að skotið hafi ekki verið ætlað bóndanum og því um slysaskot að ræða. Þessi voöaverknaöur átti sér stað um ki. 7:30 á laugardagskvöldið. Bóndinn, sem er 74 ára gamall, varð fyrir skoti er hann stóð fyrir utan fiósdymar á hlaðinu hjá sér, en hann hafði verið þar inni við störf ásamt syni sínum. Er hann stóð þar fann hann mikið högg á bakið og hélt fyrst að um þursabit væri að ræöa og kallaði á son sinn sér til hjálpar. Þá kom í ljós að um skotsár var að ræða, en skotið hafði farið í gegnum vinstri upp- handlegg og inn f síðuna. Sonur- inn hringdi á lækni og lögregiuna um kl. átta, og þegar læknirinn kom á staðinn kallaði hann strax á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Er þyrian kom var maðurinn strax fluttur á Borgarspítalann í Reykjavík þar sem gerð var á hon- ura aðgerð. Hann er nú talinn á batavegi. Samkvæmt upplýsingum frá iög- reglunni í Vfk, var strax Ijóst hvaðan skotið kom, eða úr átt frá næsta bæ sem er um 250 metra frá. Lögreglan fór þangað og kom þá í Ijós að húsráðendur voru ekki staddir heima, en í stað þelrra fannst sofandi maður með 22 kaiibera riffll við hliðina á sér. Maðurinn býr f sýsiunni. Hann mun hafa verið töluvert ölvaður þegar að honum var komiö, en hann var sendur til Reykjavíkur til yfirheyrslu. Hann hefur áður komið við sögu lögreglunnar, en ekki fyrir brot af þessu tagl. Hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins fengust þær upplýsingar að mað* urinn hafi játað að hafa verið að skjóta með rifflinum á umrædd- um tíma. Þó var nokkuð erfitt að staðfesta ástæður skotsins, því hann hafi verið þó nokkuö ölvað- ur, en það þykir víst að um slysa- skot hafi verið að ræða að því leytl að maðurinn virðist ekki hafa ætl- að að skjóta á bóndann. Maðurinn hafði ekki leyfi til að nota skot- vopnið, en skotvopn af þessu tagi geta verið stórhættuleg á svona stuttu færi. —GEÓ Annað sætið autt hjá framsóknarmönnum? Sérstæð fjáröflunarleið unglinga: Guðmundur hefur áhuga á BB-lista Guðmundur G. Þórarinsson alþing- ismaður hefur formlega hafnað því að taka annað sætið á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík, en hann lenti í því sæti í skoðana- könnun í fuiltrúaráði framsóknarfé- laganna fyrr í þessum mánuði. Stjórn fulltrúaráðsins er enn með þetta mál til umfjöllunar. Guðmund- ur segist enn halda í þá von að könn- unin verði ógilt. Hann segist hins vegar hafa nokkurn áhuga á því að bjóða fram BB-lista í Reykjavík. Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra reyndi í gær að miðla mál- um í deilunni, en án áþreifanlegs ár- angurs. Guðmundur og fleiri fram- sóknarmenn gengu á hans fund. For- sætisráðherra var tregur til að segja mikið um árangur fundanna. „Því miður virðist þetta mál illleysanlegt," sagði Steingrímur. -EÓ Gerviskátar selja merki Alþýðuflokkur Vesturlandi: Eiður í 1. sæti Eiður Guðnason alþingismaður var kosinn bindandi kosningu í fyrsta sæti á framboðslista Alþýðuflokks- ins á Vesturlandi á laugardaginn. Kosið var í opnu prófkjöri. Eiður hlaut 344 atkvæði í fyrsta sæti, 279 atkvæði í annað sætið eða alls 623 atkvæði. í öðru sæti varð Gísli Einarsson, yfirverkstjóri og formaður bæjar- ráðs Akraness. Hann hlaut einnig bindandi kosningu og fékk 307 at- kvæði í fyrsta sæti og 187 atkvæði í annað sætið en 494 atkvæði alls. Sveinn Hálfdánarson, innheimtu- stjóri Kaupfélags Borgfirðinga, varð í þriðja sæti með 159 atkvæði í fyrsta sæti og 236 atkvæði í annað sæti, eða 395 atkvæði alls. Sveinn Þór Elíasson, yfirkennari í Ólafsvík, varð í fjórða sæti, með 135 atkvæði í fyrsta sæti, 241 atkvæöi í annað sæti, eða alls 376 atvæði. Alls um níuhundruð og sextíu manns kusu í þessu prófkjöri og telst það góð þátttaka. í fyrra kusu um sjö hundruð manns. Prófkjörið var opið öllum kjósendum sem ekki eru flokksbundnir í öðrum stjórn- málaflokkum né gegna fyrir þá trún- aðarstörfum. —GEÓ „Það kom hér hópur ungra drengja eftir að skuggsýnt var orðiö og hringdi dyrabjöllunni. Þeir voru mjög ýtnir og hávaða- samir og nánast skipuðu mér að kaupa skátamerki og sögðust vera að safna fé til þess að kom- ast í einhverjar vetrarbúðir,“ sagði eldri kona f Breiðholti. Það kom hins vegar í Ijós að „skátarnir" sem hér um ræðir sigldu undir fölsku flaggi, því að þegar konan fór að skoða merkið sem hún hafði keypt stóð á því ár- taiið 1986. Drengirnir munu hafa gengið í allmörg hús í Breiðholti og boðið fram umrædd merki og fleiri munu hafa áttað sig á að ekki var allt með felldu með þessa merkjasölu. Helgi Eiríksson hjá Framsóknarmenn á Reykjanesi: Steingrímur í 1. sætinu Steingrímur Hermannsson, forsæt- isráðherra og formaður Framsóknar- flokksins, fékk nær einróma kosn- ingu, eða rétt tæp 98% atkvæöa, í 1. sæti framboðslista flokksins í Reykjaneskjördæmi á kjördæmis- þingi sem fram fór í Festi í Grindavík um helgina. Steingrímur skipaði einnig fyrsta sætið á listanum fyrir sfðustu kosningar. Sömu menn og fyrir síðustu kosn- ingar skipa annað og þriðja sæti list- ans, þeir Jóhann Einvarðsson alþm. sem fékk tæp 74% atkvæða á þinginu í annað sætið og Níels Ámi Lund sem fékk tæp 57% í þriðja sætið. f næstu sætu voru kosin þau Elín Jóhanns- dóttir, Guðrún Alda Harðardóttir, Sveinbjöm Eyjólfsson, og Guðrún Hjörleifsdóttir, en kosning þeirra var ekki bindandi. Sérstakri kjörnefnd var á þinginu fal- ið að ganga endanlega ffá listanum. Skátasambandi Reykjavíkur sagði í gær að engin merkjasala eða fjársöfnun færi fram hjá skátum um þessar mundir. Hann sagði að umrædd merki hefðu verið af- ;angs eftir merkjasölu árið 1986. kynningu á starfsemi skátanna í Kringlunni fyrir nokkru hefðu þessi merki og önnur afgangs- merki verið gefin fólki, þ.e.a.s. eitt merki hverjum einstaklingi. Að líkindum hefði þeim merkjum sem drengirnir buðu til sölu um helgina verið stoliö við það tæki- færi. Helgi sagði að af hálfu skáta hefði verið haft samband við lög- regluna og hún beðin að rannsaka málið. —sá Níels Ámi Lund. Timburhúsmálið á Vesturgötunni í Reykjavík. Jón Ingi Ragnarsson, eigandi lóðarinnar: ENGIN KRAFA VERIÐ GERÐ ENN UM AÐ HÚSIÐ VÍKI Jón Ingi Ragnarsson málarameist- ari segir það rangt sem fram kom í Tímanum á laugardag að hann hafi krafist þess að hjón á Vesturgötu 28 í Reykjavík fjarlægðu gamalt timburhús sem stendur þar á lóð- inni. Engin slík tiikynning hafi verið send þeim hjónum, hvorki frá honum né borgaryfirvöldum. Eins og fram kom íblaðinu á laug- ardag stendur umrætt timburhús, sem hjónin Sigurður Gissurarson og Ragnheiður Árnadóttir eiga, á lóð sem þau eiga ekki. Eigandi lóð- arinnar, Jón Ingi Ragnarsson, hefur hins vegar haft uppi áform um að nýta lóðina, enda þarf hann að greiða af henni tilskilin gjöld. Segir hann að lóðin hafi verið keypt um leið og steinhús sem timburhúsið er áfast við og tilgangur þeirra kaupa hafi verið að fara út í bygg- ingaframkvæmdir og breytingar sem miðuðust við að nýta lóðina undir timburhúsinu. Að sögn Jóns Inga hefur skipulagsnefnd þegar samþykkt teikningar af húsi á lóð- inni og það hafi fyrst verið við af- greiðslu málsins í borgarráði sem menn hafi farið að velta fyrir sér hvort borgin ætti að kaupa þessa lóð vegna ástæðna sem tengjast húsafriðun. Jón Ingi segir að engin krafa hafi komið fram um að húsið yrði riflð eða fjarlægt, vegna þess einfaldlega að málið hafí aldrei komist á það stig. Hitt væri Ijóst og hafi alla tíð verið Ijóst að timbur- húsið væri lóðarlaust og íbúar timburhússins hefðu undir hönd- um undirskrifað og stimplað afsal fyrir húsinu þar sem tekið er fram að það sé lóðarlaust og eigi að fara innan þriggja mánaða frá því að byggingarleyfi er veitt á lóðinni. Það hafi því legið fyrir frá því 1951 að húsið gæti þurft að víkja hvenær sem væri. Jón Ingi sagði að íbúar hússins eða lögfræðingur þeirra hafi aldrei minnst á það við sig að kaupa lóðina undir húsinu og í þeim takmörkuðu samskiptum sem hann hafi átt við þetta fólk hafi aldrei verið dregið í efa að timbur- húsið væri lóðarlaust. Aðspurður um þá fullyrðingu lögmanns þeirra hjóna í Tímanum á laugardag að dómur hafi gengið sem heimilaði að timburhúsið stæði á lóðinni sagði Jón Ingi að sá dómur hafi hvergi komið fram og ef hann væri til, sem hann raunar efaðist um, væru allir pappírar um lóðina og byggingar á henni rangir, því ekkert kæmi fram á þeim um slíkar kvaðir. Jón Ingi sagði að nú stæðu yfír við- ræður milli hans og borgarinnar um það hvort borgin leysti til sín lóðina og tæplega færi borgin út í viðræður um slíkt, ef vafi væri á því hver ætti þessa lóð.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.