Tíminn - 28.11.1990, Qupperneq 7

Tíminn - 28.11.1990, Qupperneq 7
Miðvikudagur 28. nóvember 1990 Tíminn 7 ■ VETTVANGUR Smáum sjóðum þarf að skipta í mörg verkefni Ágætu hátíðargestir! Árið 1930 var merkisár í íslands- sögunni. Þá héldu íslendingar upp á 1000 ára afmæli Alþingis með stærstu og glæsilegustu útihátíð, sem fram til þess hafði verið hald- in hér á landi. Sama ár hófu starf- semi sína tvær merkar stofnanir á vegum ríkisins, annars vegar Rík- isútvarpið og hins vegar Ríkisspít- alarnir, því 20. desember það ár tók Landspítalinn til starfa í ný- byggingu sem tekið hafði 5 ár að reisa og fyrsti sjúklingurinn var lagður inn á sjúkrahúsið. Landspítalinn varð frá fyrstu byrj- un ein helsta heilbrigðisstofnun hér á landi. Þar fengu prófessorar í læknisfræði starfsaðstöðu, þannig að spítalinn varð strax aðal- kennsluspítali fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga og síðar fyrir annað sérmenntað starfslið í heil- brigðisþjónustu. Fyrir tíma Landspítalans hafði ríkið hafið rekstur nokkurra stofn- ana: Kleppsspítala árið 1907, Víf- ilsstaðaspítaia sem ríkið yfirtók ár- ið 1916 og Kristneshælis sem stofnað var árið 1927. Sameiginleg yfirstjórn þessara spítala, „stjórnarnefndin", tók til starfa í ársbyrjun 1935, samkvæmt lögum frá 1933, en í þeim lögum segir m.a.: „Það er verkefni nefnd- arinnar að skipuleggja rekstur þessara stofnana og samræma hann, þeim til hagsbóta, og koma á samvinnu á milli þeirra, eftir því sem hagkvæmt þykir.“ Mér virðist þessi lagatexti eiga allvel við enn í dag, því nauðsyn- legt er fámennri þjóð, sem gerir miklar kröfur og vill njóta velferð- arkerfis af fullkomnustu gerð, að nýta stofnanir, tæki og fé eins vel og kostur er. Þegar Landspítalinn var byggður gerðu menn ráð fyrir því að þar væri byggt til langs tíma, enda voru íbúar Reykjavíkur þá innan við 30 þúsund, og þótt spítalinn héti Landspítali voru komin sjúkrahús á nokkrum stöðum úti á landi sem sinntu ýmsum sjúkra- húsverkefnum, jafnvel í meira mæli en síðar varð. Spítalinn var ekki orðinn 15 ára þegar augljóst var að hann var allt of lítill, því þær gífurlegu framfar- ir í læknisfræði, sem hófust á styrjaldarárunum og hafa staðið óslitið síðan, kölluðu á meira hús- rými fyrir ný og breytt verkefni. Menn komust fljótlega að raun um það á Landspítalanum, eins og í öllurn sjúkrastofnunum, að sí- felld framþróun er nauðsynleg. Síðari byggingasaga Landspítal- ans hefst rétt eftir 1945 og þeirri sögu er ekki lokið. Sést raunar ekki fyrir endann á henni enn, því hugurinn fer miklu hraðar en höndin í þessu efni sem mörgum öðrum og verkefnin framundan munu vafalaust endast okkur mörg ár í viðbót, þótt vel sé á hald- ið, og sífellt blasa við ný viðfangs- efni. Allir eru sammála um að alltaf gangi of hægt og að góð málefni og aðkallandi framkvæmdir bíði, þannig að ekki sé hægt að hefja ný verkefni og nýja starfsemi nógu fljótt. Nú um nokkurra ára bil hefur kostnaður við heilbrigðisþjónustu verið stærsti einstaki útgjaldaliður á fjárlögum íslenska ríkisins og út- gjaldaaukning í heilbrigðisþjón- ustu hefur raunar verið umtals- og viðfangsefni, ekki aðeins hér á landi, heldur meðal allra vest- rænna þjóða síðasta áratuginn. Á þessum áratug höfum við aukið útgjöld til heilbrigðismála sem hlutfall af vergri landsframleiðslu úr 6,6% í 8,5%, og eru nú Svíar einir Norðurlandaþjóða með hærra hlutfall en íslendingar. í þjóðfélagsumræðunni að und- anförnu hefur nokkuð borið á harðri andstöðu við aukna skatt- heimtu, en jafnframt kröfum um aukin útgjöíd til heilbrigðismála. Þetta stangast að sjálfsögðu á. Ég tel hvorki líklegt að heilbrigðis- málin fái mikið stærri hlut lands- framleiðslunnar, nema til komi verulega aukinn hagvöxtur, né að samstaða náist um viðbótarskatta. Það er því nauðsynlegt fyrir okk- ur að horfast í augu við þá stað- reynd að við verðum að nýta sem allra best þá fjármuni sem í dag renna til heilbrigðismálanna og skipta verkefnum á milli stofnana af sem mestri hagkvæmni. Á þann hátt einan getum við veitt þeim sjúku þá bestu þjónustu sem völ er á — en sumum finnst þeir stund- um gleymast í umræðunni. Hér verða allir að leggjast á eitt og Guðmundur Bjamason heilbrigðisráðherra — Ávarp heilbrigðisráðherra á árs- fundi Ríkisspítalanna laugardaginn 24.11. 1990 vinna saman: yfirvöld, stjórnendur og starfsfólk. Mér er Ijóst að þeir sem svona tala eru ekki líklegir til að afla sér sér- stakra vinsælda né fá nöfn sín skráð gylltu letri á spjöld sögunn- ar, — það hefur umræðan að und- anförnu einnig leitt í Ijós. Hlutverk heilbrigðisyfirvalda á hverjum tíma er að reyna að gera sér grein lyrir því hvaða verkefni eiga að hafa forgang og Ieita sam- komulags um það við hina ýmsu hagsmunaaðila. Smáum sjóðum verður að skipta til margra verk- efna á ári hverju. Mér er alveg ljóst að það er brýn nauðsyn fyrir Landspítala og fyrir spítalaþjónustuna í landinu öllu, að lokið verði við byggingu K- byggingar spítalans sem allra fyrst og að sæmilegur framkvæmda- hraði haldist við þau verkefni sem síðan eru á áætlun hjá stjórnend- um Ríkisspítala. Að þessu mun ég reyna að vinna eftir því sem mér er unnt, og þó við höfum orðið að hægja nokkuð á ferðinni um sinn vil ég minna á að við erum stöðugt að ná nýjum áföngum og íslensk heilbrigðisþjónusta er stöðugt að taka að sér ný viðfangsefni og ger- ir það með miklum ágætum. Þar hefur Landspítalinn að sjálfsögðu haft forgöngu og ber ekki síst að þakka það hæfu og vel menntuðu starfsfólki sem stendur sig með mikilli prýði, oft við erfiðar að- stæður. Tækjabúnaður í sjúkrahúsum nútímans er dýr og aldrei er hægt að verða við öllum þeim óskum sem fram eru bornar á því sviði. Þegar spítalinn varð 50 ára var það ákvörðun ríkisstjórnarinnar þá- verandi að minnast þeirra tíma- móta með því að tilkynna að keypt yrði tölvusneiðmyndatæki til þess að bæta aðstöðu til sjúkdóms- greiningar. Fyrir 10 árum var þetta stór ákvörðun um kaup á dýru tæki og ekki gert ráð fyrir nema einu slíku og að sjálfsögðu á Landspítala. Miklar framfarir og ör tækniþróun hafa á tiltölulega skömmum tfma breytt þeim viðhorfum og nú er engin röntgendeild fullbúin nema með sneiðmyndatæki. Eins og fyrir 10 árum tel ég rétt að undirstrika nauðsyn þess að Landspítalinn sé búinn þeim bestu tækjum sem völ er á og svo fljótt sem við treystum okkur til að nýta þá tækni. í fjárlögum ársins í ár er heimild til að kanna og leita samninga um kaup á segulómunartæki fyrir Rík- isspítalana. Þau mál hafa verið til athugunar hjá Stjórnarnefnd og Innkaupastofnun ríkisins og nú liggur fyrir hvað í boði er á því sviði. Mér er það mikil ánægja að geta tilkynnt hér að ríkisstjórnin hefur ákveðið að minnast þessara tíma- móta í sögu spítalans, 60 ára af- mælisins, með því að heimila kaup á segulómunartæki fyrir spítalann og er gert ráð fyrir að það verði komið í not snemma á næsta ári. Um leið og ég færi öllum starfs- mönnum og stjórnendum Land- spítalans hamingjuóskir á afmæl- inu þakka ég öllum starfsmönn- um, núverandi og fyrrverandi, fyr- ir þeirra ágætu störf og bið blessunar því starfi sem hér er unnið. Gunnar Dal: Uppruni mannsins Fyrsta stóra stríðið var baráttan um yfirráðin yfir hellinum. Hell- arnir voru notaðir af dýrum, sem voru miklu stærri, sterkari og við- bragðsfljótari en maðurinn. Sagt er að einhver fyrstu merki þess, að maðurinn hafi notað eld, hafi fundist hjá homo erectus. Hann lærir fyrst að nota hann og við- halda, en löngu síðar að kveikja hann. Með eldinn að vopni vinnur maðurinn sinn fyrsta stóra sigur. Hann gat hrakið stóru dýrin úr hellinum og lagt hann undir sig. Eldurinn hélt síðan þessum hættulegu óvinum í hæfilegri fjar- lægð. Og hann gat notað eldinn til að hita upp og til að steikja kjötið. Hann notaði eldinn líka við áhaldagerð sína, t.d. til að herða odda á vopnum úr viði. Ekki vitum við hvar og hvenær maðurinn byrjar að tala. D. Pilbeam telur lík- legt, í bók sinni Human Origin and Evolution (1987), að homo erectus og jafnvel homo habilis- hafi talað. Allar lífverur nota eitt- hvert mál: tíðnimál, litamál, efna- mál, merkjamál, en hluti af því er svokallað líkamsmál, sem menn og dýr nota. Fimmta málið, tákn- mál, notar maðurinn einn. Þessi hæfileiki gerir manninn einstæð- an. Bæði dýr og menn nota merki, en maðurinn einn notar tákn, öðru nafni orð, á skipulegan hátt. Vegna þessa hæfileika varð það, sem við nú köllum menningu, til. Menn skilja sig ekki greinilega frá öpum fyrr en þeir fara að nota skipulega „symbol" eða tákn. Apar t.d. geta túlkað huglægar kenndir og skilið viss nöfn. Menn nota orð sem vísa til hlutveruleika og hug- mynda, og þessi orð eru mynduð í samræmi við ákveðna orðskipun- arfræði. í fyrstu hafa menn sjálf- sagt notað hljóð og merki eins og dýrin, en raunveruleg menning hófst, þegar maðurinn fór að nota tákn á skipulegan hátt. Málið í þessari merkingu er upphaf allrar menningar. Það hófst að einhverju leyti þegar maðurinn fór að gera áhöld. Allar hugmyndir okkar um þróun málsins á fyrstu ármilljón- um mannsins eru auðvitað skáld- skapur. En skáldskapur er misgóð- ur. Hann er því betri sem hann er sannari. Og það er góður skáld- skapur að segja, að maðurinn hafi fyrst orðið mælskur, þegar hann settist í hóp kringum eld. Þegar menn sitja við eld eftir veiðiferð dagsins, þurfa menn að ræða sam- an. Veiðimönnum liggur alltaf mikið á hjarta eftir unnin afrek og þeir hafa sterka þörf fyrir að segja 4. grein frá þeim. Menn segja við eldinn fyrstu innblásnu söguna um dýrið sem þeir felldu, og ný heimsmynd verður til, heimsmynd skáldsins, heimsmynd listamannsins. Það er ekki nóg að segja söguna, það verður líka að gera mynd af dýr- inu. Og sögurnar gleymdust, en myndirnar geymdust. — Og menn sitja líka þegjandi við eld- inn. Nýjar tilfinningar, dulúð og hugmyndir vakna hjá mönnum, sem sitja við eld og horfa í logana. Tengslin milli eldsins, sem logar á arninum, og sólarinnar eru ekki langsótt. Eldurinn er andstæða myrkursins. Sólin er heilög. Eld- urinn verður helgidómur og hug- mynd um annan loga, loga lífsins í brjósti mannsins, kviknar. Og önnur heimsmynd er í fæðingu, heimsmynd trúmannsins. Með þessu er ekki verið að gefa í skyn að trúin verði til við að horfa í eld eða vegna óttans við dimma af- kima hellisins. í mínum huga er trúin veruleiki, innsti veruleiki alls lífs og allrar sköpunar. Ég er aðeins að viðra gamla kenningu Platós og annarra hughyggju- manna um að vissar ytri aðstæður geti vakið hugboð um þennan innri veruleika. En sjálfsagt er langur vegur frá homo erectus til Platós. Homo erectus var fyrst og fremst veiðimaður. Hann var orðinn vel vopnaður, bjó sér til alls konar steináhöld og áhöld og vopn úr hjartarhorni og viði. Og hann not- aði handöxi, sem upphaflega var notuð í Saharaskóginum, sem var gróskumikill á regntímabilum. í lok fornsteinaldar kom langvar- andi þurrkatímabil, sem breytti Sahara í eyðimörk, og axarmenn- ing, sem tengist skóglendi, hvarf af þessum svæðum. Frá Afríku barst handöxin til Evrópu. Hún barst einnig til Egyptalands og þaðan til Asíu. Með þessum vopnum gat homo erectus fellt stór dýr, ekki aðeins dádýr, antilópur og sauð- kindur, heldur einnig fíla, vísunda, villihesta og villisvín, jafnvel tígr- isdýr, birni og hlébarða. En til að fella þessi skæðu dýr nægja hon- um ekki vopnin ein. Til að veiða þau í fallgryfjur eða hrinda þeim fram af klettum verða menn að geta myndað samvirkan hóp. Til að mynda samvirkan hóp þurfa menn að geta talað, notað tákn og hlut- læg orð. Orðið gerir manninn sér- stæðan, hann einn notar tákn, ekki bara merki. Og málið skapar samfélag. Þegar maðurinn er orð- inn samfélagsvera, getur hann sigrað dýr, sem eru honum marg- falt sterkari: Þegar menn ráðast á tígrisdýr koma önnur tígrisdýr því yfirleitt ekki til hjálpar. Tígrisdýrið er ekki samfélagsvera í þessum skilningi. Þegar tígrisdýr ræðst á mann snýst allur hópurinn til varnar. Sumir mannfræðingar hallast að því, að homo erectus hafi íyrstur stigið á ótvíræðan hátt yfir landamæri siðmenningarinn- ar: Hann notar eld, hann talar mál sem byggist á táknum og hann myndar virkan samfélagshóp þó að iítill sé.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.