Tíminn - 29.11.1990, Page 1
Seyðfirðingar æskja þess að Austfirðing-
ar fái full yfirráð yfir virkjunum sínum:
Á fundi framkvæmdaráös
Sambands sveitarféiaga á
Austurlandi í dag verður fjall-
að um tillögu sem bæjarstjóm
Seyðisfjarðar hefur sam-
þykkt. I henni er skorað á
SSA að hefja hið fýrsta við-
ræður við stjómvöld um
stofnun nýs orkufýrirtækis í
eigu austfirskra sveitarfélaga
og ríkissjóðs. Þorvaldur Jó-
hannsson, bæjarstjórí á
Seyðisfirði, segir að kveikjan
að þessari tillögu sé sú, að nú
þegar loks hilli undir virkjun
Jökulsár á Fljótsdal, þá sé
jafnframt verið að taka
ákvörðun um að flytja orkuna
frá virkjuninni til álvers á suð-
vesturhominu án þess að
Austfirðingar fái nokkum
skapaðan hlut um það að
segja.
• Opnan
Timamynd: Ami BJama
sætið á Vesturlandi
í: