Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 20

Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300 ■ ■ . - ■■■ • ■ ; .. . ■■ ..: RÍKISSKIP NÚTIMA FLUTNINGAR Holnarhusmu v Tryggvogotu. S 28822 SAMVINNUBANKINN Í BYGGÐUM LANDSINS i \ NORD- AUSTURLAND AKTU EKKI ÚT í ÓVISSUNA. AKTUÁ Ingvar Helgason hf. Sævartiöfða 2 Sími 91-674000 m ríniinn FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990 Stjóm fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík ræddi um framboðsmál flokksins í kjördæminu á fundi sínum í gær: Akvörðun um sérframboó Guðmundar G. eftir jól Stjórn fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík samþykkti á fundi sínum í gær, að ósk Guðmundar G. Þórarinssonar um BB-lista fyrir næstu alþingiskosningar verði afgreidd á fundi fulltrúaráðsins. Helgi S. Guðmundsson, formaður stjómarinn- ar, sagðist reikna með að sá fundur verði ekki haldinn fyrr en eft- ir áramót. Jafnframt gekk stjómin frá skipun uppstillinganefnd- ar sem hraða skal vinnu við gerð framboðslista í Reykjavík vegna komandi kosninga. > Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður raeðir við Maðamarm Tímans um niðurstöðu StjÓmarfÚlltrÚaráöSÍns í gær. Tmamynd:AmiBjama Stjórn fulltrúaráðsins tók fyrir bréflega ósk frá Guðmundi G. Þór- arinssyni alþingismanni, þess efnis að lagt verði fyrir fund í fúlltrúaráð- inu að hann fái listabókstafinn BB fyrir næstu alþingiskosningar. Jafn- framt þessu sagðist Guðmundur vera reiðubúinn til að draga kæru sína til baka um ógildingu skoðana- könnunar sem fram fór 10.-11. nóv- ember s.l. „Stjórn fulltrúaráðsins telur ekki óeðlilegt að fulltrúaráðs- fúndur taki afstöðu til slíks erindis, enda ekki á valdi stjómar að fjalla um það. Með þessari afgreiðslu Íítur stjórn fulltrúaráðsins svo á að kær- an hafi verið dregin til baka. Telst skoðanakönnunin fúllgild," segir í fréttatilkynningu frá stjóm fulltrúa- ráðsins. í álitsgerð sem stjómin sendi frá sér vegna kæm og kröfu Guðmund- ar um ógildingu skoðanakönnunar flokksins í Reykjavík segir m.a. að framkvæmd skoðanakönnunarinn- ar hafi farið í einu og öllu eftir sam- þykkt fulltrúaráðsins frá 17. októ- ber s.I. „Jafnframt telur stjómin að eðlilega hafi verið staðið að gerð kjörskrár og vandað til undirbún- ings og framkvæmdar kosninganna eins og frekast var unnt.“ Varðandi grun um að kosið hafi verið fyrir fólk sem ekki mætti á kjörstað segir, að aðeins hafi verið bent á einn aðila í því sambandi og harmar stjórnin að það skuli hafa gerst. „Það er mat stjómar fulltrúa- ráðsins að þetta eina tilvik sé alls ekki nægilegt til þess að ógilda skoðanakönnunina, enda úrslitin ótvíræð og að öðm leyti óumdeild. Þá hafa engar athugasemdir komið fram af hálfu annarra frambjóðenda varðandi undirbúning, framkvæmd og niðurstöðu könnunarinnar." í álitsgerðinni segir að lokum: „Stjórn fulltrúaráðsins telur deilur og ósætti um framboðsmál flokks- ins í Reykjavík afar óheppileg fyrir flokksstarfið og flokkinn í heild. Stjórnin hvetur því frambjóðendur í skoðanakönnuninni og stuðnings- menn þeirra til að vinna saman að baráttumálum og stefhu Framsókn- arflokksins. Með því verður góður árangur flokksins best tryggður." „Mér virðist að stjórnin hafi fallist á þá málsmeðferð sem ég lagði til í mínu bréfi, þ.e.a.s. að ég dragi kær- una til baka gegn því að á fulltrúa- ráðsfúndi verði tekin fyrir beiðni mín um BB-lista við næstu alþing- iskosningar í Reykjavík," sagði Guð- mundur í samtali við Tímann í gær. „Þannig að deilunum um prófkjörið er þar með lokið af minni hálfu, enda standi stjórnin við sitt um að halda þennan fund.“ Aðspurður um hvenær bæri að halda þennan fund, taldi Guðmundur að hann yrði haldinn innan tíðar, en benti þó á að stjórnin þyrfti sinn tíma til undir- búnings. Guðmundur sagðist gera sér vonir um að fúlltrúaráðið samþykki ósk hans um BB-lista. „Ég held að það sé langbesta leiðin fyrir flokkinn í Reykjavík, úr því sem komið er. Það er ljóst að flokkurinn er klofrnn í herðar niður vegna þessa prófkjörs og hvernig það fór fram og eina leiðin til að sameina stuðnings- menn flokksins í Reykjavík er að bjóða fram tvo lista." Finnur Ingólfsson sagðist vera mjög ánægður með niðurstöðu stjórnarinnar. Hún væri að hans mati afdráttarlaus og öllum ásökun- um á hendur honum hafnað. „Ég ákvað það, þegar deilan um niður- stöðu skoðanakönnunarinnar kom upp, að tjá mig ekki um málið á meðan réttkjömir aðilar fjölluðu um það. Nú er dómur þeirra fallinn og það stendur ekki steinn yfir steini af þeim ásökunum sem Guð- mundur G. Þórarinsson hafði uppi á mig. í Ijós kom, að á síðustu stundu óskaði hann eftir að draga kæruna til baka, til þess að dómurinn sem nú er fallinn kæmi ekki fram. Það sem er langánægjulegast í þessu öllu saman er að niðurstaða stjóm- ar fulltrúaráðsins er einróma og sýnir að samstaða er um þetta mál. Því vakna vonir um að fuil samstaða geti vaknað um eitt sameiginlegt framboð framsóknarmanna í Reykjavík, enda hvetur stjómin okkur frambjóðendur til að vinna saman að baráttumálum og stefnu Framsóknarflokksins í Reykjavík." Helgi S. Guðmundsson sagði stjórnina ekki hafa rætt um hvenær boðað yrði til fundar í fulltrúaráð- inu vegna þessa máls. „Við verðum að hugleiða það, en ég á ekki von á því að hann verði fyrir jól héðan af. En við munum fara á fulla ferð með að stilla upp og það var gengið frá uppstillinganefndinni í gær og nú förum við að stefna í kosningar." -hs. 2000 FJOLSKYLDUR í HÚSNÆÐISHRAKI Eitthvað hefur borið á því að eigendur verkamannaíbúða leigi þær út, en það mun vera ólöglegt nema með sérstöku leyfi frá stjórn verkamannabústaða. En lítið hefur verið gert til að hindra slíkt hingað til. Eitthvað mun vera um að þessar íbúðir séu jafnvel leigðar mjög hátt, en mikill húsnæðisskortur er á fé- lagslegu húsnæði eins og fram hefur komið, m.a. á nýafstöðnum sam- bandsstjórnarfundi ASÍ. Grétar J. Guðmundsson, aðstoðar- maður félagsmálaráðherra, tjáði Tímanum í gær að líklega væru um 4% af verkamannaíbúðum á al- mennum leigumarkaði án leyfis. Tíminn hefur vitneskju um nokkur slík dæmi. í einu tilfeíli er um mjög háa leigu að ræða — þriggja her- bergja íbúð sem leigð er út á yfir fimmtíu þúsund kr. á mánuði. Grét- ar sagði að í nýjum húsnæðislögum frá síðastliðnu vori væru ströng við- urlög við brotum af þessu tagi og nú sé reynt að stemma stigu við þess- um brotum. Skortur á félagslegu húsnæði kem- ur niður á láglaunafólki, eins og fram kemur í tillögu sem samþykkt var á sambandsstjórnarfundi ASÍ. I þeirri tillögu segir að fjölmargar fjölskyldur þurfi að búa við okur- leigu til að hafa þak yfir höfuðið og að algengt dæmi um leigu á höfuð- borgarsvæðinu sé að þriggja her- bergja íbúð sé leigð fyrir 40-65 þús- und krónur á mánuði. í skýrslu nefndar, sem félagsmála- ráðherra skipaði til að kanna þörf á félagslegu húsnæði og skilaði áliti s.l. vor, kom fram að vöntun á hús- næði væri það alvarleg að til verði að koma sérstakt byggingarátak til að bæta ástandið. Fyrrnefnd tillaga á sambandsstjórnarfundi ASÍ var lögð fram af Sigurði T. Sigurðssyni, for- manni verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði. Hann sagði í samtali við Tímann í gær að ástandið væri siíkt að yfir 2000 fjölskyldur biðu eftir fé- Iagslegu húsnæði á höfuðborgar- svæðinu. „Þetta fólk er í misjafnlega erfiðri aðstöðu. Dæmi eru til um fjölskyldur sem eru tvístraðar milli bæjarfélaga og búa þar hjá vinum eða ættingjum. Ég þekki eitt dæmi um einstæða móður með tvö börn sem hefur flutt 13 sinnum á sein- ustu 5 árum," sagði Sigurður. Sigurður sagði einnig að hér væri verið að skapa fyrirframvandamál, sérstaklega þegar börn ættu í hlut; vandamál sem gætu haft hinar öm- urlegustu afleiðingar. —GEÓ Harðir árekstrar Allharður árekstur varð í gær- kvöld á mótum Njarðargötu og Hringbrautar í Reykjavík. Um- ferðarljós stýra umferð um gatna- mótin, svo að annar hvor ökumað- urinn virðist hafa farið yfir á rauðu. Slys urðu ekki á fólki, en bflamir eru báðir stórskemmdir. Þá varð harður árekstur seinni- hluta gærdagsins á Akureyri á mótum Hlíðarbrautar og Austur- síðu. Báðir bflamir skemmdust talsvert en meiðsli á fólki urðu ekki nema lítilsháttar. Tímamynd: Ámi Bjama

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.