Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 29. nóvember 1990 Tíminn 5 Horfur eru á að nýtt fólk verði í forystu fyrir framsóknarmönnum á Vesturlandi: Alexander Stefánsson hættir þingmennsku Alexander Stefánsson, alþingismaður Framsóknarflokksins í Vest- urlandskjördæmi, hefur ákveðið að hætta þingmennsku í vor. Hann tilkynnti þessa ákvörðun sína á fundi með framsóknarmönnum á Snæfelisnesi, sem haldinn var á Lýsuhóli í fyrrakvöld. Alexander sagðist hafa tekið þessa ákvörðun fyrir nokkru síðan. Ástæð- urnar sagði hann vera persónulegar. Hann tók fram að hann hefði tekið ákvörðunina í sátt við framsóknar- menn á Vesturlandi. „Ég hef á mín- um þingmannsferli notið óskoraðs trausts og er því mjög sáttur við þá ákvörðun mína að vera ekki í kjöri í næstu kosningum. Ég hef verið þingmaður í rúm tólf ár og tel að þetta sé rétti tíminn til að draga mig út úr erilssömu en ánægjulegu starfi," sagði Alexander. Ákvörðun Alexanders kom sumum stuðningsmönnum hans á óvart og skoruðu margir á hann að halda áfram. Alexander sagðist þakka það traust sem honum hefur verið sýnt fyrr og síðar, en sagði að ákvörðun Ingibjörg Pálmadóttir, forseti bæj- arstjómar Akraness. Ingibjörg sækist ákveðið eftir fýrsta sætínu á framboðslista Framsóknar- flokks í Vesturlandskjördæmi. Davíð Aðalsteinsson skipaði ann- að sætið á lista framsóknar- manna við síðustu kosningar. Hann sækist eftir efsta sætínu, nú þegar Alexander dregur sig í hlé. sinni yrði ekki haggað. Alexander hefur verið alþingismað- ur Vestlendinga síðan 1978. Áður hafði hann gegnt fjölmörgum trún- aðarstörfum í Ólafsvík, var m.a. í sveitarstjórn í tólf ár. Álexander var félagsmálaráðherra 1983-1987 og er nú varaformaður fjárveitinganefnd- ar. Næstkomandi sunnudag, 2. desem- ber, verður haldið aukakjördæmis- þing í Vesturlandskjördæmi að Hótel Borgarnesi. Á þinginu verða kjömir efstu menn á framboðslista flokksins í næstu kosningum. Kosningarétt hafa aðal- og varamenn á kjördæm- isþingi. Fjögur hafa þegar formlega tilkynnt að þau gefi kost á sér: Davíð Aðalsteinsson bóndi, Ingibjörg Pálmadóttir forseti bæjarstjórar Akraness, Ragnar Þorgeirsson nemi og Sigurður Þórólfsson bóndi. Búist er við að fleiri tilkynni framboð á næstu dögum. Óvíst er hver hreppir efsta sæti list- ans. Ingibjörg Pálmadóttir sækist ákveðið eftir fyrsta sætinu. Fylgi Framsóknarflokksins á Akranesi hef- ur vaxið mikið á síðustu árum og þess vegna telja margir eðlilegt að nýr þingmaður flokksins komi úr röðum Akurnesinga. Davíð Aðal- steinsson, sem skipaði annað sæti listans í síðustu kosningum, sækist einnig eftir efsta sætinu og það sama gerir Sigurður Þórólfsson, sem skip- aði fjórða sætið í síðustu kosning- um. Framsóknarflokkurinn hefur átt tvo þingmenn í Vesturlandskjör- munaði um 30 atkvæðum að annar dæmi síðan 1959. í síðustu kosningu maður á lista næði kjöri. -EÓ Alexander Stefánsson alþingismaður. Áfengisvarnarráð: Fimmta hver flaska viðbót Áfengissala hefur aukist um 21,09% ef miðað er við árið 1988, síðasta „bjórlausa" árið, segir í fréttatil- kynningu frá Áfengisvarnarráði. Einnig segir að þetta sé að gerast á sama tíma og Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunir) hvetur Evrópuþjóðir til að draga úr áfengisneyslu um fjórðung til aldamóta. Áfengisvarnarráð vill vekja athygli á þessu, því venjulega er stuðst við árið á undan, eða nú árið 1989, til viðmiðunar þegar aukning á áfeng- issölu þessa árs er skoðuð. En áfeng- issala ÁTVR jókst um tæpan fjórð- ung í fyrra. Áfengisvarnarráð bendir á að áfeng- issala hafi minnkað milli áranna 1987 og 1988 og þá hafi bjór ekki verið leyfður. —GEÓ Fasteignamat ríkisins: íbúðir 28% dýrari í Rvík en á Akureyri Verulegur verðmunur var á íbúðar- húsnæði í Reyltjavík, borið saman við önnur svæði á landinu á seinni ársheimingi 1989. íbúðaverð á Akureyri kemst næst Reykjavíkurverði, enda þótt verð- hlutfallið hafi farið lækkandi frá 1987, þegar söluverð íbúða á Akur- eyri var 79,8% miðað við verð á fer- metra í Reykjavík. En söluverð íbúða á Akureyri er nú um 72% miðað við söluverð á fermetra í íbúðum í Reykjavík og söluverð íbúða á Suðurnesjum um 70,2% af Reykjavíkursöluverði. En fermetr- inn kostar um kr. 60.697 í Reykja- vík, kr. 43.720 á Akureyri og kr. 42.590 á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í fréttabréfi Fasteignamats rík- isins nýverið. Einnig kemur fram í fréttabréfinu að þróunin á sölu íbúðarhúsnæðis á Akureyri og Suðurnesjum á seinni árshelmingi 1989 sýnir að fermetra- verð í húsnæði á Ákureyri hækkaði minna en sem nam hækkun láns- kjaravísitölu á tímabilinu, gagn- stætt því sem átti sér stað á Suður- nesjum. Eftir hinar miklu raun- verðshækkanir á Akureyri 1987, náðist jafnvægi á markaðnum 1988 sem hélst allt árið 1989. —GEÓ Teikning af nýju bátahöfninni í Grímsey. Ný bátahöfn í Grímsey Síðastliðinn þriðjudag var form- lega tekin í notkun ný bátahöfn í Grímsey, að viðstöddum sam- gönguráðherra, þingmönnum Norðurlandskjördæmis eystra, hafnarmálastjóra, starfsmönnum ístaks hf. og heimamönnum. Með smábátahöfninni verða kafla- skil í sögu íslenskrar hafnargerðar, því að með tilkomu nýju bátahafn- arinnar þurfa Grímseyingar ekki lengur að geyma báta sína við ból úti á legu, en geta þess í stað lagt þeim við bryggju. Nýja bátahöfnin er innan við gömlu bryggjuna. Gerður var 140 metra langur grjót- garður til að skýla nýju höfninni og fóru í hann um 13 þúsund rúm- metrar af grjóti. Dýpka þurfti um fimmþúsund fermetra svæði innan við garðinn og var það gert með sprengingum, því klöpp er á öllu hafnarstæðinu. Smíðuð var 40 metra löng trébryggja innan við garðinn og 12 metra langri flot- bryggju komið fyrir. Heildarkostn- aður við gerð bryggjunnar er um 83 milljónir og er hann um 20% lægri en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. —SE

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.