Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 18

Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 18
18 Tíminn Fimmtudagur 29. nóvember 1990 Kambódía: Hafa Bretar og Bandaríkja- menn veitt Rauðum khmerum hernaðaraðstoð? John Pilger, stríðsfréttaritari á ferð og flugi og álit- inn svartur sauður hjá breskum ráðamönnum hefur nú verið kærður fyrir meiðyrði eftir að hann lét að því liggja í sjónvarpsheimildamynd að breska ríkis- stjómin hafi með leynd veitt skæruliðum Rauðu khmeranna í Kambódíu aðstoð. Lögfræðingar tveggja Breta, sem lýst er í myndinni sem hemaðarráðgjöfum, hafa lagt fram stefnu á hendur Pilger og framleiðendum myndarínnar. Þeir hafa líka varað Ann Clwyd, þingmann Verkamanna- flokksins, við því að þeir muni kæra hana ef hún nafngreinir mennina. En Pilger lætur ekki bilbug á sér finna og ætlar að beijast gegn þessum fyrirætl- unum og halda áfram eftirgrennslunum sínum varðandi þetta mál. Grimmd Rauðu khmeranna vel þekkt Breska ríkisstjórnin hefur aldr- ei viðurkennt að hún hafi átt minnsta þátt í að aðstoða kamb- ódska skæruliða. Það er engu að síður vitað að sérsveitir hersins hafa verið tveim kambódskum skæruliðahópum, sem börðust við hlið Rauðu khmeranna, inn- an handar. í fyrra var í grófum dráttum sagt frá hlutdeild Breta í Jane’s Defence Weekly. En Pil- ger gengur lengra í heimilda- mynd sinni, Kambódía: Svikin og fullyrðir að breskar og banda- rískar sérsveitir hafi veitt Rauðu khmerunum hernaðaraðstoð sérstaklega. Ásökunin er sprengifim, þegar haft er í huga ruddalegt mann- orð Rauðu khmeranna, sem drápu um tvær milljónir manna þau þrjú ár sem þeir réðu lögum og lofum í Kambódíu undir for- ystu Pols Pots, eftir að þeir rudd- ust til valda 1975. Pilger var fyrsti fréttamaðurinn sem skýrði frá þjóðarmorðinu og grimmd Rauðu khmeranna var rækilega auglýst í kvikmyndinni „The Kil- ling Fields". Pilger hefur gert fjölmargar heimildamyndir um stríð í þriðja heims löndum. Hann heldur því fram að njósnarar MI6 í Bangkok samræmi aðstoðina við Rauðu khmerana, þ.á m. þjálfun í að leggja jarðsprengjur fyrir óvin- ina. Sprengjurnar hafa valdið falli fjölmargra óbreyttra borg- ara. Hann segir breskar og banda- rískar sérsveitir hafa þjálfað Rauðu khmerana í búðum í frumskógunum á landamærum Kambódíu og Tælands. Pilger sagði í dagblaðsgrein að Bfetar hefðu fengið beiðni frá bapda- rískum yfirvöldum um að að- stoða við þjálfunina. „Enginn flugufótur fyrir þessum staðhæfingum“ Bresk yfirvöld hafa ákaft neitað því að hafa haft hin minnstu tengsl við Rauðu khmerana. Douglas Hurd utanríkisráðherra segir að ekki sé hinn minnsti flugufótur fyrir þessum staðhæf- ingum. „Breska ríkisstjórnin hefur aldrei veitt Rauðu khmer- unum aðstoð af neinu tagi og mun aldrei gera það,“ segir hann og bætir því við að fullyrðingar Pilgers hafi ekki verið studdar neinum almennilegum sönnun- um. Heimildamyndin sem fjaðrafok- inu veldur nú er sú fjórða um Kambódíu sem Pilger hefur gert, en hann hefur barist fyrir því að beina athyglinni að þeim þján- ingum sem saklaus fórnarlömb verða að líða vegna stríðsins sem þrjár skæruliðahreyfingar hafa háð til að steypa stjórn Huns Sen sem Víetnamar styðja. Síðasta heimildamyndin, sem sýnd var rétt í þann mund sem Kambódía var að fikra sig í frið- arátt eftir 12 ára bardaga, gaf breskum þingmönnum ástæðu til að leggja fram fýrirspurnir um hernaðarleg afskipti á þess- um slóðum. Hverjir eru Bretarnir tveir? Clwyd kemur fram í myndinni og lýsir því þegar hún hitti tvo Breta í Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu, í fyrra. Nöfn þeirra voru á gestalista kambódsku rík- isstjórnarinnar og þeir skráðir sem fulltrúar breska varnar- málaráðuneytisins. Clwyd segir að þeir hafi sagt sér að þeir væru „í fríi“. Hurd segir Bretana tvo hafa verið í Phnom Penh í boði Hanoi- stofnunarinnar sem ann- ast alþjóðleg samskipti, í þeim tilgangi að fylgjast með brott- flutningi herliðs Víetnama frá Kambódíu í september sl. Annar Bretanna er skráður á lista hersins, sem útgefinn er 1990, sem höfuðsmaður. Yfir- maður hans segir nú að hann „sé ekki lengur í hernum". Mennirnir tveir sögðu Clwyd að þeir væru fulltrúar óháðrar stofnunar, sem safnar saman hugmyndum um varnarmál. Stofnunin neitar þessu en segir annan mannanna eitt sinn hafa unnið stjórnunarstörf á vegum hennar. Liðsmenn Rauðu khmeranna halda sér stöðugt í góðrí bardagaþjálf- un, m.a. með aðstoð Breta og Bandaríkjamanna, segir breski frétta- maðurínn John Pilger. Pilger er orðinn fimmtugur en ekki á því að láta deigan síga. Nú er hann kominn í stríð við bresk stjómvöld vegna fullyrð- inga sinna um aðild þeirra að hemaðarþjálfun Rauðra khmera. Fullyrðingamar setur hann fram í nýrri heimildamynd. Hefð að svara ekki slíkum spurningum i Hermálaráðuneytið neitar líka að Bretar hafi veitf Rauðu khmerunum aðstoð, en bætir við að hvað varði aðstoð við aðra hernaðarlega hópa hafi lengi verið venja að svara ekki spurn- ingum. Leynd hefur lengi hvflt yfir því hvaða hernaðarlegu hlutverki Bretar gegna í Kambódíu. Vitað er að það hefur falið í sér her- þjálfun tveggja skæruliðahópa sem berjast gegn ríkisstjórn Huns Sen, þ.e. hóps Norodoms Sihanouks og Þjóðlega frelsis- hersins. Þeir hafa barist við hlið skæru- liða Rauðu khmeranna, sem eru þessara hópa langsterkastir. En sannanir liggja fyrir um að þegar til kastanna kemur er greiningin milli þessara hópa óskýr, sama hvaða stefnu fylgt er í aðstoð- inni. Stríðsmenn Rauðu khmer- anna hafa trúlega notið góðs af hernaðaraðstoð Breta og Amer- íkana, jafnvel þó að ekki sé nema óbeint. Þrátt fyrir þjálfun Vesturlanda- manna hefur frammistaða minni hópanna í orrustum valdið von- brigðum, sé miðað við góðan framgang Rauðu khmeranna. Álitið er að þjálfun bresku sér- sveitanna á kambódskum skæru- liðum hafi byrjað 1985 og lögð af í fyrra, þegar Víetnamar fóru að draga sig út úr Kambódíu. Það var tilraun í smáum stíl sem hófst á þeim tíma þegar stefna Bandaríkjanna gegn Víetnam var ósveigjanleg. Yfirvöld í Moskvu stóðu að baki Víetnömum og Kínverjar studdu Rauðu khmer- ana. Pilger hélt því fram að enn héldi þessi aðstoð áfram, jafnvel þó að þátttakendurnir væru ekki lengur í þjónustu bresku sér- sveitanna. í fyrra lagði William Waldegra- ve, aðstoðarutanríkisráðherra, fram það sem þingmenn Verka- mannaflokksins kalla þögula játningu um að sérsveitirnar væru blandaðar í stríðið í Kamb- ódíu þegar hann sagði „Við höf- um aldrei nokkurn tíma svarað einu eða neinu um hlutverk sér- sveitanna — hvorki með neii eða jái“. Rauðu khmerarnir teknir með í friðaráætlun Sþ. í heimildamynd Pilgers felst óþægileg áminning um að 15 árum eftir fjöldamorðin sem urðu Rauðu khmerunum til alþjóðlegrar van- sæmdar, eru þeir enn valdamiklir í valdatogstreitunni í Kambódíu og með pólitíska framtíð, sem Bretar og fleirí meðlimir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hafa tryggt í viðleitni sinni til að koma saman friðaráætlun. í áætluninni felst hlutverk til handa Rauðum khmerum við að stýra hlutlausri Kambódíu, fram- tíðarsýn sem vekur gagnrýnendum hroll. „Sættir í Kambódíu án Rauðu khmeranna er eins og Hamlet án Danaprins," var samlíking eins embættismanns. í áætlun Samein- uðu þjóðanna felst viðurkenning á því að ekki er mögulegt að hrófla við Rauðu khmerunum og að þeir njóti jafnvel einhvers stuðnings. Jafnvel þótt svo megi vera gæti orðið erfitt að framfýlgja áætlun- inni. Stórbardagar hafa aftur brot- ist út í Kambódíu og stríðandi fylk- ingar leitast viö að styrkja pólitíska stöðu sína með því að sýna hernað- arklærnar, áður en komið er á vopnahléi. Deilt er um hver eigi að veita forstöðu bráðabirgðastjórn í Kambódíu, sem kölluð hefur verið ,/Eðsta þjóðarráðið". En vaxandi bardagar gætu stofnað í hættu frið- arráðstefnu um Kambódíu sem á að fara fram í París í desember.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.