Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 4

Tíminn - 29.11.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 29. nóvember 1990 ÚTLÖND - , , .... , ,, Nýr forsætisráöherra Bretlands, arftaki Margaret Thatcher: JOHN MAJOR, HVER ER HANN EIGINLEGA? John Major, sem verður næsti forsætisráðherra Breta eftir að hafa sigrað í formannskosningum breska íhalds- flokksins, hefur farið óhefðbundna leið upp metorða- stigann í breskri pólitík. Hann er yngsti forsætisráð- herra Bretlands á þessari öld. Major er ekki kominn af þekktu fólki. Faðir hans var sirkuslista- maður. Þrátt fyrir lítilfjörlegan uppruna hefur Major ekki látið það aftra sér á framabrautinni. Hann er ákveðinn og skýr og hefur barist gegn stéttaskiptingu. Þótt Major hafi verið vel þekktur í heimi viðskiptanna fyrir verk sín sem aðstoðarráðherra fjármála- ráðuneytisins, kom hann ekki fyrir sjónir almennings fyrr en í júlí 1989, þegar Margaret Thatcher gerði hann óvænt að utanríkisráð- herra í stjórn sinni. Þremur mánuðum seinna var hann gerður að fjármálaráðherra. Sem fjármálaráðherra ávann Maj- or sér virðingu fyrir að beita sér af mikilli hörku gegn verðbólgunni og sjálfstæðar skoðanir sínar gagnvart sameiningu Evrópu. Major hefur allt öðruvísi bak- grunn en almennt hefur tíðkast hjá forvstumönnum breska íhalds- flokksins. Þeir hafa yfirleitt komið úr hópi landeigenda, fjármála- manna eða aðals og verið vel menntaðir. Major er eins og áður sagði sonur sirkuslistamanns. Hann hætti í skóla 16 ára gamall og vann fyrst sem byggingaverka- Gorbachev getur ekki tekið við Nóbelsverðlaunum Mikhail Gorbachev getur ekki mætt á Nóbelsverðlaunaafhending- una sem fram fer þann 10. desember í Ósló, vegna annríkis heima fyrir. Vonast er til að Nóbelsstofnunin virði stöðu Gorbachevs og fresti at- höfninni. Að sögn Tassfréttastof- unnar hefur Gorbachev sent stofn- uninni og forsætisráðherrum Nor- egs og Svíþjóðar bréf þar sem hann skýrir frá ákvörðun sinni. Yfirmaður Nóbelsstofnunarinnar sagði að það væri erfitt að fresta at- höfninni. Það væri löng hefð fyrir því að hafa hana 10. desember, sem væri einmitt sá dagur er Alfred Nób- el andaðist. Algengt hefur verið að nóbelsverð- launahafar úr Austur- Evrópu geti ekki tekið við verðlaununum. Þann- ig hafa Andrei Sakharov og Lech Walesa báðir sent konur sínar til að taka á móti verðlaununum fyrir sína hönd. maður. Síðan hóf hann störf sem bankastarfsmaður og vann sig upp í bankakerfinu og gekk í íhalds- flokkinn. Major komst inn á þing árið 1979, sama ár og Margaret Thatcher varð forsætisráðherra. Hann fékkst við minniháttar verkefni í stjórnmál- unum allt þar til Thatcher gerði hann að aðstoðarráðherra í fjár- málaráðuneytinu. Þar var megin- verkefni hans að hafa hemil á eyðslu annarra ráðherra. Sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum, mun Major hafa þrýst á Thatcher á þessum tíma að fá sér aukin völd. Margir bjuggust við að Thatcher mundi hafa Major í nýrri ríkis- stjórn sinni í júlí 1989, en fæstir bjuggust við að hann yrði gerður að utanríkisráðherra eins og raun- in varð. Major gekk illa að fóta sig í utan- ríkisráðuneytinu og þegar Lawson sagði af sér sem fjármálaráðherra í október 1989, tók Major við emb- ætti hans, lítt öfundsverður því mikill tekjuhalli og óðaverðbólga var á þessum tíma. Fyrsta fjárlaga- frumvarp hans kom í mars á þessu ári. Hann sagði að tilgangur þess væri að stemma stigu við verð- bólgu og fá landsmenn til að spara. Major giftist Normu Major árið 1970. Þau eiga tvö börn, son og dóttur. Á myndinni er nýi forsætisráðherrann, John Major, og kona hans, Norma Major. Ofveiói EBE-landa á fiskistofnum Andrei Lukanov, forsætisráðherra Búlgaríu: Reynir aö mynda bráðabirgðastjórn Forsætisráðherra Búlgaríu, Andrei Lukanov, reyndi að mynda bráða- birgðastjórn í gær eftir að opinbera fréttastofan BTA sagði að hann væri í þann mund að segja af sér. Luk- anov sagði við blaðamenn að við- ræður væru í gangi milli sósíalista- flokksins og annarra pólitískra afla um að mynda bráðabirgðastjórn sem tæki völdin. Podkrepa, óháðu verkalýðssamtök- in, sögðu að næstum 20% þjóðar- innar væru í verkfalli, en að sögn stjórnvalda er talan nærri 1% Um 25 þúsund manns hópuðust saman í miðborg Sofíu og kröfðust þess að Lukanov segði af sér. Fréttastofan BTA hafði eftir Zhelyu Zhelev forseta að samkomulag um bráðabirgðastjórn yrði birt seinna um daginn (í gær). Ekki höfðu frekari fréttir borist af þessu máli þegar blaðið fór í prent- un. Liberia: Samiö um Leiðtogi skæruliða í Líberíu, Charles Taylor, samþykkti skyndi- lega vopnahlé í gær á fundi Vestur- Afríkuríkja, eftir að borgarastríð hafði geisað í landinu í 11 mánuði. Vopnahléssamningurinn felur í sér tveggja sólarhringa viðræður milli forseta hinna 16 þjóða sem mynda Efnahagsbandalag Vestur-Afríku- vopnahlé ríkja (ECOWAS) og skæruliða. „Þetta eru tímamót. Það var ein- róma samþykki fyrir ECOWAS-frið- aráætluninni fyrir Líberíu og undir- ritun yfirlýsingarinnar," sagði for- seti Gambíu, Dawda Jawara, sem er núverandi stjórnarformaður ECO- WAS. Framkvæmdanefhd EBE sagði í gær að ríki sem ættu aðild að EBE þyrftu að minnka flota sinn um nærri helm- ing ef takast ætti að bjarga fiskistofn- unum sem hefðu verið ofveiddir í fjölda ára. „Það er alvarlegt ójafnvægi milii stærðar EB-flotans og fiskistofnanna ... Veiðigeta flotans er um 40% of mik- il,“ sagði Manuel Marin, sjávarútvegs- ráðherra EB, á blaðamannafundi. Marin sagði að fulltrúarnir í nefnd- inni hefðu gert áætlun sem miðaði að því að hamla veiði á veikum stofnum meira en þegar hefúr verið gert og faekka skipum. í áætluninni kemur fram að núver- andi kvótakerfi þjóða EB eru ekki nógu ströng. „Sumir stofnar hafa nánast verið eyðilagðir," sagði Marin og bætti við að mestur niðurskurður yrði að koma á svæðum eins og Norðursjó, þar sem ofveiði hefði verið hvað mest. Fulltrúar Danmerkur og Þýskalands sögðust sammála auknum niður- skurði, en ekki eins og hann kæmi fram í áætluninni. Þessi tvö ríki munu koma einna verst út úr niðurskurðin- um. FRÉTTAYFIRLIT London - John Major tók við af Margaret Thatcher sem forsæt- isráðherra Breta. Hann lofaði að beíta sér fyrir opnu þjóðfélagi sem virti einstaklingsfrelsi og gæfi Bretum forystuhlutverk í sköpun nýrrar Evrópu. Hann sagðlst ekki ætla að vera elns harður og Thatcher I viðræðun- um um sameiningu Evrópu. London - John Major tilnefndi i gær Michael Heseltine til að gegna stöðu umhverfismálaráð- herra. Douglas Hurd verður áfram utanríkismálaráðherra í hinni nýju ríkisstjórn. Sameinuðu þjóðimar - Búist er við að Bandarlkin fái heimild Öryggisráðs Sþ til að beita her- valdi gegn írökum í Kúvæt. Talið er að atkvæðagreiðsla um málið fari fram á fimmtudag. Baghdad - Irakar eru Banda- ríkjamönnum reiðir fyrir að flytja tillögu um úrslitakosti gegn þeim hjá Öryggisráðinu og segjast munu sniðganga sérhver tíma- mork. Alsír - Irakar hafa samþykkt að sleppa öllum belglskum glslum vegna áskorana frá Alsír. Talið eraðyfir30 belglskirgíslarséu I frak og Kúvæt Baghdad - Irakar ítrekuðu að sovéskum verkamönnum yrði leyft að fara frá (rak um leið og þeir hefðu uppfyllt gerða samn- inga. Jerúsalem - Að sögn Palest- ínumanna stakk Arabi og særði sænska hjúkrunarkonu á Gaza- svæöinu til að hefna fyrir afskipti erlendra ríkja af Persaflóadeii- unni. London - Búist er við að Bret- land taki að nýju upp stjórnmála- samband viö Sýrland, en Bretar slitu stjómmálasambandinu fyrir fjórum árum á þeim forsendum að Sýrlendingar stæðu á bak við hryðjuverk. Beijing - Klnverska stjórnin ætl- ar að halda réttarhöld yfir meint- um forystumönnum í lýðræðis- legu byltingunni sem reynd var i fyrra, fullviss um að stöðugleiki haldist í landinu og engar hefnd- araðgerðir af hálfu vestrænna ríkisstjórna, að sögn stjórnarer- indreka. Tokyo - Richard Branson, millj- ónamæringur og stjórnarfor- maður Virgin Atlantic Airways, og sænski ioftbelgsfarinn Per Lindstrand ætla að reyna aftur í desember að verða fyrstir til að fara yfir Kyrrahafið í loftbeig.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.