Tíminn - 29.11.1990, Síða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 29. nóvember 1990
Aukin þjónusta samþykkt á aðalfundi Félags sérleyfishafa:
Hraðheimsendingarþjónusla
og þjónusta um borð í lútum
Á aðalfundi Félags sérleyfishafa, sem haldinn var á Húsavík nú
fyrir stuttu, var m.a. fjallað um að taka upp nýja þjónustu við al-
menning, sem kölluð er „express“-heimsendingarþjónusta.
Gunnar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri félagsins og forstjóri BSÍ,
sagði að félagið væri að byrja að
skipuleggja þessa þjónustu. Hún
væri hugsuð þannig að ef einhver
þarf að senda pakka, t.d frá Akur-
eyri til Reykjavíkur, þá myndi við-
komandi hringja í umferðarmið-
stöðina á Akureyri og óska eftir því
að pakkinn yrði sendur „express",
eða með hraði, til Reykjavíkur.
Leigubfll kæmi þá og sækti pakk-
ann og kæmi honum á umferðar-
miðstöðina þar sem pakkinn yrði
sendur strax með rútu til Reykja-
víkur. Þar tæki leigubfll við hon-
um og æki honum til viðtakanda.
Hugmyndin að þessari þjónustu er
að sögn Gunnars sótt til Finn-
lands, þar sem svipuð þjónusta iyr-
irfinnst. Fleiri nýjungar voru
ræddar á fundinum, eins og þjón-
usta um borð í sérleyfisbflum og
sérstakt átak í kynningarmálum
sérleyfishafa.
Harkaleg gagnrýni kom fram á
fundinum á nýlega reglugerð um
merki fyrir skólabifreiðar og telur
félagið reglugerðina á engan hátt
samrýmast íslenskum aðstæðum.
Reglugerð þessi heitir „Um merki
á skólabflum" nr. 279/1989 og er
sett af Dómsmálaráðuneytinu.
Gunnar sagði að þegar reglugerð
þessi var samin, hefði ekkert sam-
ráð verið haft við Félag sérleyfis-
hafa. Nú, þegar hún ætti að taka
gildi, sæist fyrst hve miklir gallar
væru á henni. Reglugerðin væri
samin upp úr sambærilegum er-
lendum reglum og væri t.d. gert
ráð fyrir sérstökum merkjum sem
skrúfuð yrðu föst á bflana. Sagði
Gunnar að íslenskar aðstæður
væru allt aðrar en erlendis og að
félagið sæi ekki tilganginn í því að
merkja bflana eins og jólatré. Allir
þeir bflar sem notaðir eru í skóla-
akstur eru einnig notaðir í hvers
konar aðra starfsemi og heppilegra
væri að nota einhverskonar með-
færilegri merkingar sem auðvelt
væri að koma fyrir og taka af bflun-
um þar sem taka þyrfti merkin af
þegar bíllinn færi í annan akstur
en skólaakstur.
Þá var einnig gagnrýnd á fundin-
um reglugerð um gerð og búnað
ökutækja, en þar eru teknar upp
reglur frá Norðurlöndum sem
henta mjög illa við íslenskar að-
stæður, að sögn Gunnars. Bætti
hann við að sumar af þessum regl-
um sköpuðu hreinlega slysahættu.
Táldi Gunnar að allt of lítið væri
haft samráð við sérleyfishafa, er
reglugerðir er tengdust þeim og
þeirra starfsemi væru settar.
Mikil fjölgun íslenskra farþega
með sérleyfisbflum var á síðasta
ári, eða um 7% á Iandinu öllu. Er
það breyting frá undanförnum ár-
um. Vildi Gunnar meina að marg-
ar ástæður lægju að baki þessari
farþegafjölgun. Sagði hann að
menn væru farnir að átta sig á því
hvað kostaði að reka einkabflinn
og að ferðir með sérleyfishöfum
gætu sparað bifreiðaeigendum þó
nokkurt fé í stað þess að nota eigin
bifreiðar í allar ferðir út á land. Þá
sagði hann það staðreynd að menn
nota rútuna meira þegar erfiðir
vetur ganga yfir. Þá sagði Gunnar
að verðlagsþróun hefði verið þann-
ig að hlutfallslega ódýrara væri að
ferðast með rútu-en öðrum farar-
tækjum, t.d. væru flugferðir mun
dýrari.
Veruleg fjölgun hefúr einnig ver-
ið á erlendum farþegum sérleyfis-
bifreiða.
Ágúst Hafberg, sem verið hefur
formaður Félags sérleyfishafa und-
anfarin 20 ár, baðst undan endur-
kjöri á fundinum. Var honum
þökkuð farsæl forusta fyrir Félagi
sérleyfishafa. Nýr formaður var
kjörinn Þorvarður Guðjónsson
-khg.
Fjármagnskostnaður
við Baldur 145 milljónir
Fjármagnskostnaður vegna
smíði Breiðafjarðarferjunnar
Baldurs nam tæpum 145 millj-
ónum króna. Heildarkostnaður
vegna smíði bátsins er orðinn
rúmar 414 milljónir króna, en
henni er enn ekki fulllokið. Þetta
kom fram í svari samgönguráð-
herra við fyrirspurn Eiðs Guðna-
sonar alþingismanns um kostnað
við smíði Baldurs.
Sjálfur smíðakostnaðurinn er
orðinn tæpar 257 milljónir króna.
Hönnunar- og reksturskostnaður
er 12,4 milljónir og fjármagns-
kostnaður og annar lántöku-
kostnaður 145 milljónir. Þar af er
stimpilgjald, lántökugjald og
annar opinber kostnaður við ián-
töku um 14 milljónir. Gengis-
munur er rúm 58,6 milljónir
króna.
í fyrirspurn Eiðs er spurt hvort
ráðherra telji eðlilegt að sami að-
ili annist útboð, hönnun, eftirlit
og umboðsstörf fyrir flokkunarfé-
lag. í svar ráðherra kemur fram
að eðlilegt sé að saman fari hönn-
un og útboð. Einnig að eðlilegt sé
að sami aðili leggi mat á tilboð,
vegna þess að mesta þekking á
verkefninu á þeim tíma er hjá
honum. Hins vegar segir í svarinu
að eðlilegt sé að óháður aðili ann-
ist eftirlitsstörf með verkefnum
eins og smíði ferju.
Skipasmíðastöðin Þorgeir og
Ellert hf. á Akranesi smíðaði
Breiðafjarðarferjuna.
-EÓ
Breiðafjarðarferjan Baldur.
Kennsla fyrir konur
frá fjarlægum löndum
Starfshópur, sem félagsmálaráð-
herra fól að fjalla um málefni
kvenna frá fjarlægum menningar-
svæðum, hefur lokið störfum.
Starfshópurinn var sammála um að
höfuðáherslu bæri að leggja á tvö
atriði til aöstoðar konunum. 1.
Fræðslu um íslenskt samfélag ann-
Fyrstu aukatónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á þessu starfs-
ári verða haldnir í Háskólabíói í
kvöld kl. 20.00. Þessir tónleikar
koma í stað áskriftartónleika, sem
fella þurfti niður í apríl í fyrra af
óviðráðanlegum ástæðum.
Á efnisskránni eru þrjú verk: í
minningu Benjamíns Brittens eftir
Arvo Párt, Söngvarar dauðans eftir
Modest Mussorgsí og Sinfónía nr.
13, Babi Jar, eftir Dmitri Sjostako-
vits. Auk hljómsveitarinnar taka
bassasöngvarar úr Karlakórnum
ars vegar með útgáfu bæklings og
hins vegar með námskeiðum. 2. ís-
lenskukennslu.
Starfshópurinn hefur þegar samið
bækling og fjallar hann í aðalatrið-
um um: Ríkisborgararétt, atvinnu-
leyfi, almannatryggingar, félags-
þjónustu, heilbrigðismál, skólamál
Fóstbræðrum og Karlakór Reykja-
víkur ásamt 10 breskum bassa-
söngvurum þátt í flutningi 13. sin-
fóníu Sjostakovits. Einsöngvari
verður danski söngvarinn Aage
Haugland og kórstjóri er Peter
Locke. Hljómsveitarstjóri á tónleik-
unum verður Eistlendingurinn Eri
Klas.
Áskrifendur síðasta starfsárs hafa
fengið miða á tónleikana senda
heim til sín. Einnig eru miðar seldir
á skrifstofu hljómsveitarinnar í Há-
skólabíó og í miðasölunni við upp-
og skattamál auk fleiri atriða. Bæk-
lingurinn mun á næstunni koma út
í enskri þýðingu, en síðan koma út á
tælensku og kínversku.
Lögð er áhersla á að efla íslensku-
kennslu fyrir útlendinga og hefur
menntamálaráðuneytið þegar styrkt
námskeið í íslensku fyrir útiend-
inga. Þar hefur verið reiknaður út
kostnaður fyrir slíka kennslu. Talið
er að þörf sé á að halda 5-7 nám-
skeið. Starfshópurinn telur að fylgja
þurfi eftir bæklingnum með nám-
skeiðum. Rauði kross íslands hefur í
hyggju að standa fyrir námskeiðum
fyrir útlendinga, einkum af fjarlæg-
um menningarsvæðum. Markmiðið
með því er að gera erlendum borg-
urum kleift að aðlagast íslensku
þjóðfélagi og gerast virkir þátttak-
endur. khg
Sinfóníuhljómsveit íslands:
TÓNLEIKAR í KVÖLD
Ólafur Ragnar Grímsson oddviti sendinefndar PGA:
Áskorun um bann
við tilraunum
með kjarnavopn
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra afhcnti sl. þriðjudag ásamt
scndinefnd þingmannasamtakanna PGA staðgengli breska forsætisráð-
herrans áskorun um að banna tilraunir með kjarnavopn. Á mánudag
hafði nefndin afhent Mikhall Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna, sams-
konar áskorun. Ólafur Ragnar er oddviti þessarar sendinefndar og f gær
átti hún að afhenda Bush Bandaríkjaforseta áskorunina, en Ólafur gat
ekki tekið þátt í því, þar sem hann hélt heimleiðis í fyrrakvöld.
Tvö þúsund þingmenn í nær fimmtíu löndum hafa skrifað undir
áskorunina, og þar á meðal um helmingur íslcnskra þingmanna. Þing-
mannasamtökin PGA hafa beitt sér mjög fyrir friðar- og afvopnunar-
málum á síðasta áratug. Meðal heistu verkefna samtakanna hefur verið
að bcrjast fyrir því að samþykkt verði algert bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn. Um þessi mál verður haldin alþjóðaráðstefna 118 ríkja
í New York í janúar, og þar rædd tillaga um algert tilraunabann.
khg.