Tíminn - 14.12.1990, Síða 1
■■
Hefur boðað fijálslyndi og framfarír í sjö tugi ára
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990 - 242. TBL. 74. ÁRG. - VERÐ [ LAUSASÖLU KR. 100,
Lithaugar vilja samninga við Sovét í Reykjavík undir forsæti íslendings:
Landsbergis biður
íslendinga ásjár
Vytautas Landsbergis, forseti Lithauga-
lands, hafði símasamband við íslensk
stjómvöid fýrr í vikunni og bað þau
ásjár, þar sem hann óttast nú að Sovét-
ríkin muni senn láta sverfa til stáls gagn-
vart Eystrasaltsríkjunum. Steingrímur
Hermannsson staðfesti þetta í gær-
kvöldi og sagði jafríframt að málið yrði á
dagskrá ríkisstjómarfundar nú í dag.
Landsbergis óskaði eftir því við forsæt-
isráðherra að íslenska ríkisstjómin
áréttaði fýrrí stuðningsyfiiiýsingar við
sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna
og byði jafnframt Reykjavík sem vett-
vang fýrír viðræður milli þeirra og Sovét-
manna þar sem hátt settur íslenskur
embættismaður yrði hugsanlega sátta-
semjarí. Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði í gærkvöldi að hér
værí um neyðarkall að ræða og að allt
stefndi nú í að Sovétmenn hyggist láta
kné fýlgja kviði og beittu jafnvel hervaldi
gegn Eystrasaltslöndunum. Ef það
gerðist væm allir draumar um nýja sam-
skiptahætti milli Evrópuþjóða brostnir.
• Blaðsíða 5
Bæjarfélag segir sig úr Samtökum sunnlenskra sveítarfélaga:
Vestmannaeyingar
fjarlægjast landið?
Blaðsíða 5
Landsbergis og
Steingrímur
Hermannsson
forsætisráð-
herra saman á
íslandi fyrr í
vetur. Lands-
bergis óttast
nú að Sovét-
menn láti brátt
sverfa til stáls
gagnvart landi
hans. Þeir
munu beita
efríahagsþvingu
num og jafrível
hervaldi, verði
sjálfstæðisyfiriýs
ing Lithauga
ekki dregin til
baka.
Tímamynd: Pjetur