Tíminn - 14.12.1990, Side 15
Föstudagur 14. desember 1990
Tíminn 15
IÞROTTIR
Körfu knattlei ku r:
IR-INGAR RAKU
DOUGLAS SHOUSE
— Björn Steffensen og Ragnar Torfason á ný í herbúðir ÍR-liðsins
„Það var samdóma álit stjómar,
þjálfara og leikmanna að láta
hann fara og ieita eftir öðrum er-
lendum leikmanni," sagði stjóm-
armaður í körfuknattleiksdeild
ÍR sem Tíminn ræddi við í gær.
„Shouse var ekki rétti maðurinn
fyrir þetta lið. Hann skoraði mik-
ið, en féll samt ekki nógu vel inn í
leik liðsins."
ÍR-ingar eru í sambandi við
Tommy Lee, sem lék með liðinu í
fyrra, og á næstu dögum kemur í
Ijós hvort hann getur fengið sig
lausan úr vinnu og leikið með lið-
inu eftir áramótin. Fleiri leik-
menn eru þó inni í myndinni, ef
Lee á ekki heimangengt
Mikill liðsstyrkur hefur bæst ÍR-
ingum, því tveir fyrrum leikmenn
liðsins, þeir Bjöm Steffensen og
Ragnar Torfason, hafa snúið heim
á leið. Bjöm hefur leikið með KR-
ingum það sem af er vetri, en ekki
náð að sýna hvað í honum býr.
Ragnar lék með Víkverja í fyrra,
en hefur ekkert leikið í vetur.
Ragnar verður löglegur með ÍR í
fyrsta leik liðsins eftir áramót,
gegn Njarðvíkingum 6. janúar, en
Bjöm verður ekki löglegur fyrr en
í leiknum gegn Snæfelli 17. janú-
ar. Sá leikur er mjög mikilvægur,
því fallbarátta deildarinnar mun
væntanlega verða milli þessara
-tveggja liða. BL
Bjöm Steffénsen.
Ragnar Torfason.
Albert Óskarsson úr Keflavík skoraði 18 stig í sínum öðrum landsleik í
gær er fsland vann Möltu með 50 stiga mun.
Tímamynd: Pjetur
Körfuknattleikur — Smáþjóðaleikar:
50 STIGA SIGUR
FráJóhanncsi Sveinssyni í Canliff:
íslenska landsliðið í körfuknattleik
tók leikmenn Möltu heldur betur í
gegn á Smáþjóðaleikunum í Cardiff í
Wales í gær. Islenska liðið sigraði með
50 stiga mun 114-64.
Sterkur vamarleikur íslenska liðsins
var ein aðalástæðan fyrir því hve stór
sigurinn var. Til marks um það má
nefna að Malta skoraði sín fyrstu stig
þegar 5 mín. voru liðnar af leiknum, og
um miðjan fyrri hálfleik vár staðan 26-
4 fyrir ísland. Munurinn hélt áfram að
aukast fram að hléi, en þá var staðan
51-22.
í síðari hálfleik fengu allir leikmenn
íslenska liðsins að spreyta sig, en það
breytti engu og munurinn óx enn.
Lokatölur voru eins og áður segir 114-
64.
Stigin: Magnús Matthíasson 19, Albert
Óskarsson 18, Pálmar Sigurðsson 15,
Sigurður Ingimundarson 15, Pétur
Guðmundsson 12, Jón Amar Ingvars-
son 10, Jóhannes Sveinsson 9, Jón Kr.
Gíslason 6, ívar Ásgrímsson 4, Teitur
Örlygsson 4, og Friðrik Ragnarsson 2.
Auk þess að vera stigahæstur í ís-
lenska liðinu tók Magnús mikið af frá-
köstum og Pétur Guðmundsson átti
frábæran leik í vöminni. Vamarleikur
íslenska liðsins small mjög vel saman
og lofar góðu uppá framhaldið.
í fyrrakvöld léku Malta og Wales og
leikar fóru svo að Malta sigraði 75-59. í
hinum riðlinum eru Lúxemborg og ír-
land með sterkustu liðin. í kvöld mæt-
ir íslenska liðið Walesbúum. JS/BL
íslenskar getraunir:
TENINGURINN í AÐALHLUTVERKI
og enginn náði 12 réttum
Mikið óveður gekk yfir Bretland á
laugardaginn og fresta varð mörg-
um leikjum í ensku knattspymunni.
Af þeim sökum varð að grípa til get-
raunateningsins góða til að fá botn í
úrslitaröðina á getraunaseðli 49.
leikviku.
Leik nr. 1 milli Aston Villa og Manc-
hester City var frestað, teningurinn
sagði X; einnig leik nr. 7 milli Nott-
ingham Forest og Liverpool, tening-
urinn sýndi X; sömuleiðis var leik nr.
8 frestað, en það var leikur Sheffield
United og Derby, upp kom merkið 1.
Þá var leik nr. 12 milli Leicester og
Oldham frestað og upp kom X.
Úrslitaröðin var því þessi: XI1, XXI,
XIX, ÍXX.
Enginn náði 12 réttum, enda skipt-
ing merkjanna óvenjuleg eða 5- 7-0.
Aðeins 8 voru með 11 rétta, en hver
þeirra fékk í sinn hlut 26.515 kr. Þá
vom 119 með 10 rétta og vinningur-
inn fyrir hverja röð var 1.782 kr.
Upphæðin sem flyst yflr á 1. vinning
um næstu helgi er 424.730 kr.
Þegar aðeins 1 vika er eftir af hóp-
leik getrauna, hefur hópurinn
TROMPASINN forystu í haustleikn-
um með 111 stig. Næstur kemur
BOND með 109, ÖSS hefur 107 og
MAGIC-TIPP og SÆ-2 hafa 106 stig.
Fylkir var efst í áheitunum um síð-
ustu helgi, eins og svo oft áður. Fram
var þó ekki langt undan. Önnur félög
á topp 10-listanum vom þessi, í
réttri röð: Valur, ÍA, Þróttur, KR,
ÍBK, Selfoss, Þór og Haukar.
Alþýðublaðið náði langbestum ár-
angri fjölmiðlanna í síðustu viku, var
með 8 rétta þegar aðrir miðlar voru
með 2-5 rétta. Þar með skaust blaðið
upp í 3. sætið, hefur 93 stig, en
keppnina leiða RÚV og Morgunblað-
ið með 94 stig. DV hefur 91 stig,
Bylgjan 89, Stöð 2 og Dagur 87,
Tíminn 83, Þjóðviljinn 79 og Lukku-
Iína 77 stig. Aðeins ein vika er eftir af
fjölmiðlakeppninni og mikil spenna
er því í loftinu.
Leikur helgarinnar hjá Ríkissjón-
varpinu er leikur Manchester City og
Tottenham á Main Road í Manchest-
er. Leikurinn hefst kl. 15.00, en sölu-
kerfi Getrauna lokar kl. 14.55.
BL
Knattspyma:
Itölsku liðin
komust áfram
Velgengni ítalskra knattspyrnu-
liða á Evrópumótunum í knatt-
spyrnu er ekki á enda. í fyrra-
kvöld komust öll fjögur ítölsku
liðin, sem leika í UEFA-keppn-
inni, áfram í 8-liða úrslit. í fyrra
léku einmitt tvö ítölsk lið til úr-
sjita í keppninni.
Úrslitin í fyrrakvöld urðu þessi:
Inter Milan og Partizan Belgrad
frá Júgóslavíu gerðu 1-1 jafntefli
í Belgrad, en það kom ekki að
sök, því Inter vann samanlagt 4-
1.
Roma komst áfram með því að
sigra Bordeaux 0-2 á útivelli.
Samanlögð úrslit urðu 0-7.
Atalanta slóg Köln út með 1-0
sigri á heimavelli. Atalanta vann
samanlagt 2-1.
Bologna vann 3-0 sigur á Adm-
iral Wacker frá Austurríki og
komst áfram 6-5 eftir víta-
spyrnukeppni.
Anderlecht frá Belgíu sló Bor-
ussia Dortmund frá Þýskalandi
út, þrátt fyrir 2-1 tap á útivelli.
Jafnt varð samanlagt, 2-2, en
útimarkið kom Anderlecht
áfram.
Hollenska liðið Vitesse Arnhem
er úr leik í keppninni eftir 1-4
samanlagt tap fyrir Sporting
Lissabon frá Portúgal.
Þar með er ekkert þýskt lið eft-
ir í keppninni, en auk ítölsku
liðanna fjögurra komust Brönd-
by frá Danmörku, Torpedo Mos-
kva frá Sovétríkjunum, Sporting
Lissabon frá Portúgal og And-
erlecht frá Belgíu áfram í 8-liða
úrslit. BL
Körfuknattleikur:
Lakers-tap í
framlengingu
Los Angeles Lakers töpuðu fyr-
ir Dallas Mavericks 97-112 í
framlengdum leik f Forum-höll-
inni í LA í fyrrinótt. Þar með
tapaði Lakers sínum fyrsta leik í
lengri tfma.
Úrslitin í fyrrinótt urðu annars
þessi:
Boston Celtics-Milw. Bu.129-111
Philadelphia-Houst Rockets ...100-108
CharlotteHomets-SASpurs..81- 92
Miami Heat-Atlanta Hawks...93-118
Cleveland Cav.-LA Clippers.90-100
LA Lakers-Dallas Maver. frl.97-112
Seattle Supers.-Indiana Pacers 99- 90
Evrópukeppnin:
Barcelona vann
Barcelona frá Spáni sigraði
Bayer Leverkusen 93-100 í Le-
verkusen í Evrópukeppni
meistaraliða í körfuknattleik í
fyrrakvöld. Leikurinn var í
fyrstu umferð 8-liða úrslita
keppninnar, en þar leika allir
við alla, heima og heiman.
BL
1 MERKIÐ I VIÐ 12 LEIKI 8. des. 1990 Viltu gera uppkastað 1 þinnispá?
I.Arsenal-Wimbledon □ \T\rxjT\
2. Coventry-Manc. United o E0H]
3. Derby County-Chelsea □ rnr>nm
4. Manch. City-Tottenham (Sjónvarpað) ö I 1 II x |[~2l
5. Q.P.R.-Notth. Forest □ edsh
6. Southampton-Aston Villa omsm
7. Sunderiand-Norwic City □ mmm
8. Blackburn-Brístol City ommm
9. Brighton-Barnsley ommm
10. Oldham-Wolves eq msm
11. Sheff. Wed-lpswich Town mmmm
12. West Ham-Middlesbro ee mmm
13. Ekkiígangi að sinni eb mmm
J o ■ ■ 0 z i ■p L Z £ I h cc 3 O o II s CC jg G S 1 CD II N 1 .A Z | i 3 : Sl l SAI HTA \\ LS 1
i 1 lx I 2 |
11 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
2 1 2 1 2 X 1 2 1 X ) ( 4 3 3
3 1 1 X 2 2 2 1 X X ) < 3 4 3
4 X X 2 X X 1 X X X ) ( 1 8 1
5 1 2 2 2 1 2 1 1 X 5 1 4
6 1 1 2 1 1 1 1 1 1 9 0 1
7 1 X X X 1 X 2 1 X < 3 6 1
8 1 1 2 1 2 X X X 1 5 3 2
9 1 1 X X X 1 1 1 1 2 6 3 1
10 1 1 X 1 1 1 2 2 1 7 1 2
11 1 1 X 1 1 1 2 2 1 7 1 2
12 1 1 X 1 1 1 1 >1 1 9 1 0
13
STAÐAN í 1. DEILD
Liverpool ..15 12 2 1 32-12 37
Arsenal ..1611 5 0 31- 7 36
Tottenham ... ..16 8 6 2 30-17 30
Crystal Pal.... ..16 8 6 2 25-17 30
Leeds ..16 7 6 3 26-17 27
Wimbledon . ..16 6 6 4 25-21 24
Man. United ..16 6 6 4 21-18 24
Man. City .... ..15 5 8 2 24-21 23
Chelsea ..16 6 5 5 24-26 23
Norwich ..16 6 2 8 21-27 20
Luton ..16 5 5 6 19-26 20
Nott. Forest ..15 4 6 5 20-21 18
Aston Villa... ..15 4 5 6 16-1717
Derby ..15 4 4 7 12-22 16
Everton ...16 3 6 7 19-21 15
Sunderland . ..16 3 6 7 19-24 15
Southampton 16 4 3 9 21-31 15
Coventry ..16 3 4 8 13-20 13
QPR ..16 3 3 10 20-32 12
Sheffield Utd. .15 0 411 7-28 4
STAÐAN í 2. DEiLD
West Ham....20 13 7 0 33-12 46
Oldham......19 12 5 2 38-18 41
Sheffield Wed. ..19 10 7 2 38-20 37
Middlesboro.19 11 3 5 36-16 36
Wolves ........19 7 8 4 29-20 29
Millwall........19 7 7 5 30-22 28
Notts County ...19 7 6 6 27-24 27
Bamsley........19 6 8 5 28-21 26
Ipswich........20 6 8 6 25-30 26
Bristol Rov....18 7 4 7 25-23 25
PortVale.......19 7 4 8 30-30 25
Bristol City...18 7 4 7 27-29 25
Brighton.......18 7 4 7 29-38 25
WBA.............19 5 7 7 25-28 22
Swindon ......20 5 7 8 25-30 22
Blackburn......20 6 4 10 24-30 22
Plymouth.......20 5 7 8 22-30 22
Newcastle ....18 5 6 7 20-22 21
Hull .........20 5 6 9 33-49 21
Leicester......19 6 3 10 29-45 21
Charlton........19 5 5 9 24-29 20
Portsmouth......20 5 5 10 23-33 20
Oxford.........19 4 7 8 29-38 19
Watford........20 3 6 11 16-28 15