Tíminn - 20.12.1990, Blaðsíða 3
JÓLABLAÐ 1990
Tíminn 3
Græningjar féngu engan þing-
mann þrátt fýrír margvísleg kosn-
ingamál, sem reyndar hafa mörg
hver veríö tekin upp af hinum
flokkunum. Nú hvöttu þeirtd. her-
menn bandamanna við Persaflóa
til að koma til síns heima áður en
til blóðsúthellinga komi.
„Þjóðveijar eiga sér
nú enga óvini,“
segir Helmut Kohl
Kosningarnar voru í reyndinni
bara endapunktur á hraðri og
mikilli atburðarás, sem aðeins
hefur staðið í rúmt ár, til sam-
einingar Þýskalands. Allt frá því
múrinn „hrundi“ 9. nóvember
1989 hefur gengið ótrúlega
hratt og vel að hrinda samein-
ingunni í framkvæmd. Og
Helmut Kohl hefur sýnt á sér
nýja og óvænta hlið í öllum
þeim framkvæmdum. Þessi 130
kílóa þungi og tæpra tveggja
metra hái maður var lengi vel
hafður að háði og spotti vegna
klaufalegrar framkomu og um-
mæla. Frægt var þegar hann
líkti Gorbatsjov við Göbbels og
eins hljóp hann á sig þegar
hann ætlaði ekki að viðurkenna
landamærin við Pólland við Od-
er-Neisse-línuna svokölluðu.
En skyndilega kom nýr og
breyttur Helmut Kohl fram á
sjónarsviðið. Hann var fljótur
að taka við sér þegar blasti við
að nú gæfist tækifæri til að
sameina ríkið sem hafði verið
klofið í 40 ár. Og nú sýndi hann
líka að honum var vel lagið að
semja við forystumenn annarra
ríkja svo að öllum líkaði. Enda
vill hann að skýrt komi fram að
Þjóðverjar eigi sér nú enga
óvini og þessi stórkostlegu um-
skipti í sögu Þýskalands komi
ekki í kjölfar ófriðar, eins og
aðrar stórbreytingar í sögu
landsins hafa gert. Helmut
Á AÐVENTUIÞÝSKALANDI:
Fyrstu kosn-
ingar í sam-
einuðu land-
inu í 58 ár
Sunnudaginn 2. desember sl.
gengu Þjóðverjar að kjörborð-
inu um gjörvallt landið, þar
sem áður var Vestur- og Aust-
ur-Þýskaland, og er það í fyrsta
sinn síðan 1932 að kosningar
eru haldnar í sameinuðu
Þýskalandi. Þeir sem síðast
kusu í sameinuðu landinu og
höfðu nýfengið kosningarétt,
en þá var aldursmarkið 20 ár,
eru því nú orðnir um áttrætt.
Eins og við var búist fór
Helmut Kohl kanslari og
flokkur hans, Kristilegir
demókratar, með sigur af
hólmi í kosningunum nú og ef
eitthvað var var sigur hans
stærri en spáð hafði verið. Með
sárt ennið sátu hins vegar sósí-
aldemókratar og kanslaraefni
þeirra, Oskar Lafontaine, sem
ekki alls fýrir löngu hafði þótt
sigurstranglegur og flokkur
hans haft sigur í hverjum fylk-
iskosningunum af öðrum. En
Oskar Lafontaine bar ekki
gæfu til að skynja hvers konar
tilfinningamál þessar kosning-
ar voru, hreint ekki pólitískar,
og almenningur kærði sig ekk-
ert um að hlusta á sífellt nöld-
ur um að allt tilstandið væri
óhugnanlega dýrt og hefði
gengið alltof hratt fyrir sig.
Annar sigurvegari kosning-
anna var Hans-Dietrich Gen-
scher og flokkur hans Frjáls-
lyndir demókratar, sem hlaut
nú 11% fylgi í landinu öllu og
munaði þar ekki síst um at-
kvæðin úr austurhlutanum, en
sjálfur er Genscher upprunn-
inn þaðan, frá Halle. Sár sín
sleikja hins vegar Græningjar í
vesturhluta landsins sem
auðnaðist ekki að ná þeim 5%
atkvæða sem skilyrði er til að
koma manni á þing, þeir fengu
4,8%. Og slitrurnar af gamla
austur-þýska kommúnista-
flokknum SED, sem nú kallast
PDS, riðu ekki feitum hesti frá
kosningunum í vesturhlutan-
um.
Á bak við gamla ráðhúsið í Bonn leyndist fjölsóttur jólamarkaður.