Tíminn - 21.12.1990, Síða 5
Föstudagur 21. desember 1990
Tíminn 5
Hallinn á fjárlögum
verður 3,9 milljarðar
Horfur eru á að fjárlög fyrir komandi ár verði afgreidd með 3,9
milljarða króna halla. Þetta er niðurstaðan eftir tíð fundahöld hjá
stjómarliðum þar sem tekist var á um fjárveitingar til fjárfrekra
málaflokka. Síðasti hnúturinn til að vera hnýttur varðaði húsnæðis-
málin. Sæst var á tillögu forsætisráðherra, sem gerði ráð fyrir 200
milljón króna framlagi í Byggingarsjóð verkamanna, 600 milljónir
verði teknar að láni til bygginga 500 leiguíbúða og að skipuð verði
nefnd til að skoða með hvaða hætti húsnæðiskerfið frá 1986 verði
lagt niður.
Fjármálaráðherra og félagsmála-
ráðherra toguðust á í þessu máli.
Fjármálaráðherra vildi láta 150
milljónir í Byggingarsjóð verka-
manna, en Jóhanna krafðist 250
milljóna. Forsaetisráðherra fór því
bil beggja. Jóhanna sagði í gær að
hún væri mjög sátt við þá niður-
stöðu sem fékkst í málinu. Til Bygg-
ingarsjóðs verkamanna fara 900
milljónir á næsta ári, en upphaflega
var miðað við 700 milljónir.
Fjárveitinganefnd lagði fram loka-
breytingatillögur sínar við þriðju
umræðu um fjárlagafrumvarpið í
gær. Þar er gert ráð fyrir að veitt
verði 100 milljónum til endurbóta á
forsetasetrinu á Bessastöðum. Fram-
lag til Þjóðleikhússins er hækkað úr
192 milljónum í 227 milljónir og
140 milljónum er veitt til endurbóta
á húsinu. Til Þjóðarbókhlöðu er gert
ráð fyrir að veita 145 milljónum, en
miðað var við 100 milljónir í upphaf-
legu frumvarpi. Leikfélag Akureyrar
fær 18 milljónir í stað 15 og íslenska
óperan 25 milljónir í stað 14,4. Lið-
urinn jarðræktar- og búfjárframlög
er hækkaður úr 190 milljónum í
225. í Framkvæmdasjóð aldraðra
renna 370 milljónir, en gert var ráð
fyrir 240 milljónum í upphaflegu
frumvarpi. Hafnarmál fá verulega
viðbót, en til þeirra fara 508 milljón-
ir í stað 315 milljóna. Þá er framlag
til Lánasjóðs íslenskra námsmanna
skorið niður um 200 milljónir og
þangað fara 1.730 milljónir.
í upphaflegu fjárlagafrumvarpi var
gert ráð fyrir að hallinn á ríkissjóði
yrði 3,7 milljarðar. Fjárveitinga-
nefnd lagði fram tillögur við aðra
umræðu sem hækkuðu hallann um
860 milljónir og voru þó ýmis mál
óleyst. Þau hafa nú verið leyst með
einum eða öðrum hætti. í nýjustu
áætlunum er gert ráð fyrir að tekjur
ríkissjóðs verði hærri en áður var
talið. Reiknað er með að tekjuskatt-
ur gefi af sér meiri tekjur, einkum
vegna betri afkomu fyrirtækja og
aukins bifreiðainnflutnings. Gert er
ráð fyrir að tekjur af virðisaukaskatti
verði meiri en upphaflegar áætlanir
gerðu ráð fyrir. Skýringin á þessu er
að reiknað er með meiri uppsveiflu í
þjóðfélaginu en upphaflega var
reiknað með. Þá verður meira tekið
að láni en gert var ráð fyrir í fyrstu
tillögum. Frumvarp til lánsfjárlaga
gerir ráð fyrir að ríkissjóður taki að
láni 14.140 milljarða á næsta ári.
-EÓ
Kaldrifjaðir markaðshyggjumenn með tölvur í hjartastað að taka völdin?
Fólk umvöipum rekið
eftir 50 ára afmælið
„Það verður að koma í veg fyrir að
sú ómanneskjulega stefna, sem
nokkur fyrirtæki hafa tekið upp að
undanfömu, fái að festa rætur bér á
landi. Miklu skiptír að manneskju-
legir stjómarhættir séu viðhafðir í
fyrirtækjum, þar sem starfsreynsla
og þjónusta í þágu fyrirtækjanna er
metín að verðleikum en kaldrifjaðir
markaðshyggjumenn með tölvur í
hjartastað fái ekki að festa rætur".
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur
vakti máls á nýju og mjög vaxandi
vandamáli á sambandsstjórnarfundi
ASÍ. Sagði hann það færast mjög í
vöxt að ungir Iangskólagengnir en
reynslulitlir menn taki við stjómun
fyrirtækja og reki þá oft úr starfi þá,
sem reynsluna hafa, séu þeir komnir
á miðjan aldur, en ráði í þeirra stað
ungt og reynslulítið fólk.
„Það er mikið umhugsunarefni fyr-
ir alla, hvort þetta er sú stefna sem
fyrirtæki eru að fara inn á. Eru
vinnuveitendur að sveigja rekstur
fyrirtækja inn á þá braut að allt
standi og falli með því að starfsfólkið
sé allt undir 50 ára aldri?“. Magnús
sagði hér um mjög stórt mál að
ræða, sem komi öllum við, en sé alls
ekkert einkamál þeirra sem stjóma
fyrirtækjunum hverju sinni.
Hversu víðtækt þetta vandamál er
orðið sagðist Magnús engar upplýs-
ingar liggja fyrir um. En þar sem
hann þekki best til, þ.e. á viðskipta-
og þjónustusviðinu hafi þessa vanda-
máls orðið mjög greinilega vart á
síðustu misserum. Nýleg dæmi væm
um að við endurskipulagningu eða
sammna fyrirtækja hafi tugum
manna sem unnið höfðu langan
tíma, sumir allt að þrem áratugum
hjá sömu fyrirtækjunum, verið sagt
upp störfum á sama tíma og ungt
fólk sem nýbyrjað var að vinna hélt
sínum störfum. Það verði sömuleiðis
sjaldgæfara að menn, sem hafa unn-
ið sig upp í starfi, taki við stjóm fyr-
irtækja.
Magnús þekkir m.a. dæmi um fólk,
sem áður átti kost á betur Iaunuðum
störfum hjá öðmm en hafnaði þeim
vegna tryggðar við fyrirtækið, sem
það hafði unnið hjá í áraraðir eða
áratugi. Sú tryggð sé nú launuð með
brottrekstri vegna þess að aldur
þessa fólks passaði ekki inn í hinn
nýja stjórnunarstíl þeirra ungu lang-
skólagengnu.
Þessu fólki hafi reynst mjög erfitt að
fá vinnu. Og erfiðleikar þess séu
mjög miklir ekki aðeins fjárhagslega
heldur fylgi þessu einnig sálræn
vandamáí og í mikil niðurlæging í
mörgum tilfellum. Vitnar Magnús
þar m.a. til reynslu starfsmanna-
stjóra stórra fyrirtækja. í atvinnu-
umsóknum geri þessir menn m.a.s.
ekki lengur neinar kröfur um laun,
þ.e. skili þeim reit auðum í flestum
tilfellum. Magnús segir heilu fjöl-
skyldurnar niðurbrotnar eftir þessa
reynslu.
„Það verður að hefja almenna um-
ræðu í landinu um þessi mál og
skapa með því almenningsálit, sem
fordæmir þetta ómanneskjulega við-
horf og megnar að kveða það niður.
Það eru grundvallarréttindi hvers
manns að fá að vinna. Það ættu allir
að skilja, ekki síst þeir sem yngri eru
og notið hafa langrar skólagöngu
sem kostuð er að skattpeningum
hins vinnandi manns“, segir Magnús
L. Sveinsson. - HEI
Sparisjóöirnir og Búnaöarbanki ákváðu vaxtahækkun í gær:
Landsbanki hækkar ekki
Bankaráð Búnaðarbankans tók í „í fyrsta lagi eigum við hérna anum. Þó það þurfi e.t.v ekki að
gær ákvörðun þess efnis að hækka bréf frá því í þjóðarsáttinni þar hafamikiaráhyggjurafþvíáþess-
nafnvextí af óverðtryggðum fjár- sem aðilar vinnumarkaðarins og ari stundu, vegna þess að afkom-
skuldbindingum um 1% að með- bankamir komust að þeirri niður- an er sæmileg í Búnaðarbankan-
altali. í sparisjóðunum var ákveð- stöðu sameiginiega að sjá'til þess um, þá verður að hafa í huga að
ið að gera stíkt bið sama. Banka- að vaxtaákvarðanir síðast á árínu afkoman er míklu lakari í ár beld-
ráð Landsbankans hefur frestað muni verða miðaðar við að ávöxt- ur en hún var í fyrra,“ segir
ákvörðuninni þar til á milli jóla og un verðtryggðra og óverðfayggða Guðni.
nýárs. útlána verði sem jöfnust yfir ár- Guöni telur að umræðan sé kom-
Með þessari hækkun eru Búnað- ið,“ segir Guðni. „í ofanálag vil ég in á villigötur og þeir sem hafi
arbankinn og sparisjóðirnir segja það, að hér er ekki um al- verið að ásaka bankana hafi reynt
komnir með svipaða vaxtatölu og menna vaxtahækkun að ræða eins að láta líta út eins og þetta væri
íslandsbankinn, sem hækkaði og ýmsir iáta liggja að. Hér er ver- fjandskapur við fólkið og að hér
vexti hjá sér fyrir u.þ.b. mánuði ið að hækka nafnvextí, eða hand- væri á ferðinni almenn vaxta-
síðan. Sú hækkun mættí mikiili stýrða vextí, á mikium minnihiuta hækkun. Hann áréttar að svo sé
andstÖðu hjá aðiium vinnumark- á fjármagnlnu.“ ekki. Guðni seglr hins vegar að
aðarins og þá aðallega Dagsbrún Guðni bendir á að 80-85% af það sé mjög mikilvægt markmið
og Verkamannasambandinu. Að sparifé í bankakerfinu sé verð- að ná niður og iækka vextína. „En
sögn Guðna Ágústssonar, for- tryggt og vísitölumar komi sjálf- mikilvægast er að Íækka raunvexti
manns bankaráðs Búnaðarbank- krafa inn í það með verðbólgu- og þar ættí bankakerfið og ríkis-
ans, ætti þessi hækkun Búnaðar- vextina. stjómin að taka höndum saman,
bankans ekki að valda slikum úlfa- „Þegar svo stór hiuti af spari- því það er það sem myndi skipta
þyt Hann segir að umræðan sem fénu er verðtryggður, en ekki mestu máii fyrir fyrirtækin og
hefur skapast undanfarið sé byggð nema um 60% af útlánunum get- fólldð,“
á misskilningi. ur myndast mikili haiii hjá bank- GS/BG
Á myndinni sést Gunnar Amarson, hnykkir, aö störfúm.
Félag kírópraktora:
HNYKKIR FÆR
LEYFISBRÉF
Gunnari Arnarsyni var veitt leyfis-
bréf nr. 2 hinn 18. september s.l., út-
gefið af Heilbrigðis- og Trygginga-
málaráðuneytinu, til að starfa sem
hnykkir/kíróproktor hér á landi.
Leyfisbréf þetta er gefið út sam-
kvæmt reglugerð nr. 60, 23. janúar
1990 um menntun, réttindi og
skyldur hnykkja.
Starfsvið kírópraktors fellst aðal-
lega í greiningu og meðferð á kvill-
um í stoðkerfi líkamanns, svo sem
háls-, herða-, höfuð og mjóbaks-
verkja.
Gunnar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund árið
1984 og stundaði síðan nám við Há-
skóla íslands í einn vetur. Nám í kír-
ópraktík stundaði hann við Anglo
European College of Chiropractic,
Bournemouth, Englandi frá 1985 til
1989. Að loknu námi í Bour-
nemouth stundaði Gunnar 12 mán-
aða verknám á kírópraktorstofu
Tryggva Jónassonar en starfar nú
ásamt Katrínu Sveinsdóttur að
Borgartúni 18, Reykjavík.
khg.
Sjóslysið á ísafjarðardjúpi:
Mennirnir
enn týndir
Leit að mönnunum tveimur er
týndust af bátnum Hauk ÍS-195 frá
Bolungarvík á þriðjudag hafði ekki
borið árangur í gærkvöldi. Fjörur
voru gengnar og þyrla leitaði á ísa-
fjarðardjúpi. Haldið verður áfram að
leita næstu daga. GS.