Tíminn - 18.01.1991, Blaðsíða 8
:;x:X' j
''i
: ,i
mmm
..
.
S>nam7jsýh
Wfcral-3fyiíu/c
~ M-Si
Jtawctfuttai
rtqLBiroHT
MMarapfiafi .
\ TJmnt Qusubah
-“/£&/} Jtas aj KhufqZ
híitr al Afiyfjub
AL o
8 Tíminn
Föstudagur 17. janúar 1991
Föstudagur 17. janúar 1991
Það var klukkan 23:30 sem bandamenn
undir forystu Bandaríkjamanna hófu
hernaðaraðgerðina „Eyðimerkurstorm-
ur“ til að frelsa Kúvæt undan írökum.
Þessi íyrsta árás stóð yfir í þrjár klukku-
stundir. Það voru Bandaríkin, Bretland,
Frakkland, Saudi-Arabía og hluti kú-
væska hersins sem tóku þátt í fyrstu
árásinni sem þótti takast með afbrigðum
vel. Tókst að eyðileggja helstu hernaðar-
skotmörk í írak og Kúvæt og hefur
íraski herinn ekki getað veitt mikla mót-
stöðu.
ísraelski herinn fékk að vita um árásina
með klukkustundar fyrirvara til að hann
gæti búið sig undir hugsanlega gagnárás
íraka á ísrael strax á eftir árás banda-
manna. En bandamenn virtust hafa
eyðilagt flestöil SCUD-flugskeytin sem
írakar höfðu hótað að skjóta á ísrael.
ísraelski herinn skipaði almenningi
samt að halda sig innan dyra því hættan
á flugskeytaárás íraka væri enn fyrir
hendi. Árásin var gerð úr lofti og af sjó.
Sprengju- og orrustuflugvélar gerðu
árás úr lofti og um 100 Tomahawk stýri-
flaugum var skotið frá herskipum af fló-
anum en með þeim er hægt að hæfa
skotmark með 30 m óvissu. Pentagon
sagði að um hundrað herstöðvar íraska
hersins hefðu verið gerðar óvirkar. Þ.á
m. voru mörg flugskeyti sem frakar
höfðu hótað að skjóta á Israel.
Svo virðist sem árásin hafi komið frök-
um á óvart því lítil sem engin mótspyrna
var veitt. Sérþjálfaðar sveitir íraska hers-
ins, sem hafa mikla bardagareynslu úr
stríðinu við írani, gátu þó beitt stór-
skotaárás og skotið nokkrum flugskeyt-
um á olíuhreinsistöð í Saudi-Arabíu sem
staðsett er nálægt landamærum Kúvæts
en þau ullu litlu tjóni. Bandamenn náðu
að trufla ratsjárkerfi flauganna að
mestu. Hreinsistöðin er enn á fullum af-
köstum. Einnig komust nokkrar flugvél-
ar íraka á loft en þær voru allar skotnar
niður af vélum bandamanna.
írakar sögðust hafa grandað 14 flugvél-
um bandamanna en frá Pentagon bárust
þær upplýsingar að einungis ein F-18
orrustuvél bandaríska hersins og ein
Tornato sprengjuflugvél breska hersins
hefðu farist.
Bardögum haldið áfram
John Major, forsætisráðherra Breta,
sagði í gær að átökum yrði haldið stöð-
ugt áfram en ef írakar gerðu sig líklega
til að fara frá Kúvæt yrði árásum hætt og
þeim gefinn kostur á að fara án frekari
árása.
Klukkan 6:35 að íslenskum tíma til-
kynnti fréttamaður CNN sjónvarps-
stöðvarinnar að bandamenn hefðu hafið
aðra árás á Bagdad. Hann sagði einnig að
sögulegar minjar, sem eru geysimiklar, í
Bagdad hefðu ekki orðið fyrir skemmd-
um.
Árásarþyrlur bandamanna eyðilögðu
síðan seinna um daginn stórskotalið ír-
aka sem gerði árás á olíuhreinsistöð
Saudi-Araba skammt undan kúvæsku
landamærunum að sögn olíuráðamanna
í Saudi-Arabíu. Að þeirra sögn var árásin
nauðsynleg til að eyða þeirri hættu sem
hreinsunarstöðinni stafaði af írökum.
Mannfall hjá írökum hefur verið tölu-
vert en lítið sem ekkert hjá bandamönn-
um. Fréttir bárust af hundruðum
íraskra flóttamanna í íran og Jórdaníu.
Nú þegar bandamenn hafa náð algerum
yfirburðum í lofti þá telja flestir hernað-
arsérfræðingar að næsta skref banda-
manna verði að láta landherinn sækja
fram. Talsverðir herflutningar áttu sér
stað í gær í átt að landamærum Kúvæt
og töldu menn það merki um að innrás
landhersins væri á næsta leiti.
írakar bönnuðu bandarísku sjónvarps-
stöðinni CNN að senda béint frá írak og
takmarkaði það nokkuð fréttaflutning
frá svæðinu. Einnig höfðu árásir banda-
manna eyðilagt fjarskiptakerfi í frak að
miklum hluta og gerði það fréttmönn-
um erfitt um vik.
Yfirlýsingar
stjómmálamanna
George Bush, forseti Bandaríkjanna,
talaði við þjóðina í sjónvarpi klukkan
tvö, tveimur og hálfum tíma eftir að
„Eyðimerkurstormurinn" hófst. Hann
hét að frelsa Kúvæt og eyðileggja her ír-
aka. Dich Cheney, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, og Colin Powell, yfir-
maður bandaríska herráðsins, vöruðu
við of mikilli bjartsýni þó að byrjunin
lofaði góðu. „Ég held að það sé mjög
mikilvægt að muna ... að þetta er aðeins
upphafið á aðgerð sem gæti tekið langan
tíma,“ sagði Cheney.
Saddam Hussein, forseti íraks, virtist
reiður og ákveðinn að sjá þegar hann
talaði til írösku þjóðarinnar í sjónvarpi.
Skilaboð frá honum til Bush voru lesin í
útvarpinu í Bagdad og var hann brattur
sem fyrr. „Þú hélst að írak mundi láta
undan hótunum. Farðu með heri þína
og bandamanna þinna í burtu. Það er
eina leiðin fyrir þig,“ sagði í skilaboðun-
um.
írakar brugðust við árásinni með því að
fjölga í her sínum. f útvarpinu í Baghdad
var tilkynning lesin frá varnarmálaráðu-
neytinuumaðþeirsemfæddirværu‘54, Hann sagði að 4. egypska bryndreka-
‘55, og ‘56 ættu að skrá sig í herinn. „Við sveitin hefði tekið á móti liðhlaupunum.
munum kenna Ameríkönum og banda- Á hádegi í gær ákváðu ítalir og Hol-
mönnum beirra Iexíu,“ sagði í tilkynn- lendingar að taka þátt í átökunum en
ingunni. Áhafnir 50 íraskra skriðdreka Bretar og Frakkar voru einu þjóðirnar í
ákváðu að gefast upp strax í gær að sögn Vestur-Evrópu sem hófu átökin með
yfirmanns egypska hersins á svæðinu. bandamönnum.
Qalib Bacpjj-
Sovétríkin reyna enn
að stilla til friðar
Sovétmenn Iýstu yfir fullum stuðningi
við „Eyðimerkurstorminn“ en lögðu
áherslu á að aðgerðin ætti einungis að
miðast við að frelsa Kúvæt en ekki
herja á frak. Þeir voru enn í gær að
reyna að sannfæra íraka um að gefa eft-
ir og draga herlið sitt frá Kúvæt. „Það
er nauðsynlegt að ljúka þessum hern-
aðarátökum eins fljótt og hægt er. Við
erum í sambandi við Saddam Hussein
og við munum halda áfram að reyna að
sannfæra hann um að gera það sem við
teljum rétt því við teljum að það sé
undir honum komið að binda enda á
þessi hernaðarátök,“ sagði aðstoðarut-
anríkisráðherrann, Alexander Bel-
onogov.
Vegna Persaflóastríðsins hafa allar her-
deildir sovéska hersins í suðurhluta Sov-
étríkjanna verið settar í fulla viðbragðs-
stöðu að sögn eins sovésks hershöfð-
ingja í gær en landamæri Sovéríkjanna
eru í aðeins 250 km fjarlægð frá írösku
landamærunum. „Við fylgjumst vel með
gangi mála á Persaflóasvæðinu,“ bætti
hann við.
Japanski forsætisráðherrann, Toshiki
Kaifu, lýsti yfir fullum stuðningi Jap-
ana við árásina og sagði að Japanir
ætluðu að veita meira fé til að bæta
fyrir tjónið sem hlytist af stríðinu. Jap-
anir hafa ákveðið að veita tveim millj-
örðum dollara til hernaðarrekstrarins
og öðrum tveim til að draga úr áhrif-
um sem stríðið hefur og mun hafa á
efnahag ríkjanna við Persaflóa. Þá
lýstu fleiri ríki yfir að þau styddu að-
gerðirnar.
Að sögn hemaðarsérfræðinga
mun næsta skref bandamanna
í frelsun Kúvæts vera innrás
landhersins i landið.
Talsverðir herflutningar áttu
sér stað til landamæra Kúvæts
í gær og töldu menn það
fýrírboða um að innrásin
værí á næsta leiti.
veifuðu fána furstadæmisins. „Þetta
eru dálítil vonbrigði en samt góðar
fréttir. Þetta eru vonbrigði vegna þess
að við vildum friðsamlega lausn. En
hann (Saddam Hussein) tók heimsku-
Iega ákvörðun og valdi stríð. Hann
mun taka afleiðingunum og verða
brotinn á bak aftur,“ sagði einn íbúa
Kúvæt.
Hundruð manna í Berlin mótmæltu
stríðinu á götum borgarinnar og mót-
mæli brutust út í fleiri borgum í Þýska-
landi. í Bandaríkjunum var almenning-
ur ýmist með eða á móti eins og gengur.
í New York var skrifstofuhúsnæði
bandaríska hersins atað rauðri máln-
ingu og friðarmerki máluð á rúðurnar.
Yfir hundrað mótmælendur voru hand-
teknir í Los Angeles og virtist fólkið hafa
fengið móðursýkiskast vegna stríðsins.
Margir grétu. Hins vegar voru íbúar í
Washington yfirleitt ánægðir með at-
burðina og þar heyrðust orðatiltæki eins
og „Við mölum þá“ og „Látum þá hafa
það“.
Gott útlit með olíuna
Hagfræðingar eru bjartsýnir á að olíu-
verð eigi eftir að lækka og stríðið eigi
ekki eftir að hleypa olíuverði upp með
hræðilegum afleiðingum fyrir efnahag
þeirra þjóða sem eru háðar olíuinnflutn-
ingi. Bjartsýni þeirra má rekja til árang-
urs bandamanna í upphafi Persaflóa-
stríðsins.
Tunnan hefur á seinustu dögum rokkað
á milli 25 og 35 dollara og var spáð að
hún gæti farið upp í 100 dollara ef Persa-
flóastríðið færi á versta veg. Vonir
manna hafa nú aukist eftir fyrstu niður-
stöður átakanna um að bandamenn nái
að klára stríðið á örfáum dögum og olíu-
lindirnar verði ekki fyrir miklum
skemmdum. Þessar vonir urðu til þess
að olíuverð lækkaði víðast hvar f heim-
inum í gær. M.a. lækkaði verðið úr 33 í
20 dollara í Evrópu sem er mesta lækk-
un frá upphafi. Ef úr rætist að banda-
menn nái að klára stríðið á nokkrum
dögum án þess að olíulindirnar skaðist
að ráði þá spá menn að heimsmarkaðs-
verð á tunnunni fari niður í 15 dollara
vegna offramboðs í fyrstu en hækki svo
upp í 20 dollara þegar stöðugleika er
náð.
Reuter-SÞJ
fcUÁádid
f 'JcxfxxncDx,
r^*Subb{yah
7 •b(a*han
Mismunandi
skoðanir almennings
Eftir að Ijóst var að bandamenn hefðu
hafið frelsun Kúvæts fögnuðu Kúvætbú-
ar, veifuðu fána furstadæmisins og döns-
uðu af kæti á meðan margir andstæð-
ingar stríðs víðs vegar um heiminn
grétu og mótmæltu.
Að sögn sendiherra Kúvæts í Frakk-
landi þá ríkti mikil gleði í Kúvæt þrátt
fyrir að menn hefðu frekar kosið frið-
samlega lausn. í Kairó í Egyptalandi,
þar sem margir Kúvætbúar dvelja,
þustu þeir dansandi út á göturnar og
^ná’^madí
áfalAbduUuh
^ Jta's-al-Qidct/ah
_ ° Qörawh
Saxid
KJutwrhfufaUa^/
nvjA \ ;■ W
A U D y/
Bush hefur lýst yfir ánægju
sinni með árangurfyrstu að-
gerða bandamanna.
Saddam hefur haft í hótunum
við Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra þrátt fyrir veika
stöðu íraska hersins.