Tíminn - 09.02.1991, Side 3
Laugardagur 9. febrúar 1991
HELGIN
11
bát sínum í átt til hans. En er hann
sá hann hélt hann bera manninn
vera þjóf og ræningja, sem hefði
strokið þangað og hótaði að hengja
hann í hæsta gálga.
Þá kunni auminginn ekki annað
ráð en að segja: „Þetta væri illt verk
af þér, því að snemma í morgun var
ég jafn góður fiskimaður og þú. En
net mín fóru öll í sjóinn ásamt fé-
lögum mínum og mér bjargaði
guðsnáðin ein úr hafsins nauð.
Láttu mig vera vesalan þjón þinn
sakir Maríu drottningar." Fiskimað-
urinn varð hinn ánægðasti og leyfði
honum að stíga á skipsfjöl. Þá gekk
beri maðurinn að runni nokkrum
og sleit af honum laufgrein til að
hylja blygðan sína, því að hann átti
ekki önnur föt.
Strax og hann var kominn um
borð mælti ís fiskimaður við hann:
„Þú stærir þig af því að vera fiski-
maður eins og ég, en slíkan hef ég
ekki séð hér um slóðir í 72 ár. En ef
þú ekki fyllir bátinn af fiski, kasta ég
þér beint í hafsins djúp“. Þá hóf
hinn ungi Aurvandill konungur
hvíta hönd sína til síns himneska
föður og bað um hjálp og varpaði
netum sínum í sjóinn í nafni föður,
sonar og heilags anda, svo að hann
fyllti bátinn strax með þeirra hjálp,
hinna tólf postula og einkum
Sankti Péturs í Rómaborg. Þegar
meistari ís, Fiskimaður, Her og Vís
sá þetta, þá hrópaði hann: „Hafa
skaltu þakkir fyrir að fiska svo vel
með höndum þínum."
Eftir þetta héldu þeir með afla sinn
til hafnar heima hjá fiskimannin-
um. Þar gaf á að líta: Sjö dýrlegir
turnar gnæfðu yfir borginni og
voru þeir vel við hæfi kóngsins í
Rómaborg. í borg þessari hafði
meistari Is 800 fiskimenn til þjón-
ustu og urðu þeir allir að hlíta vilja
hans. Á borgarmúrnum stóðu sjö
ambáttir fiskimannskonunnar,
klæddar silki og dýru líni. Þegar
þær sáu komumann hrópuðu þær
til hans: „Velkominn ís; hver er beri
maðurinn sem ég sé standandi á
skipi þínu? Vissulega er þar stroku-
þjófur eða ræningi á ferð og ætlar
hann sér líka að ræna okkur.“ En
meistari ís skipaði þeim að haga sér
betur: „Hann er okkar einkaþjónn
og er ráðinn til þjónustu undir eins,
því að hann kann að draga bein úr
sjó. Víst hef ég verið fiskimaður í 72
ár, þó vildi ég gjarnan læra fiskveið-
ar afhonum."
Því næst tók meistari ís til við að
afferma skipið, voru þar í allt fjögur
þúsund og fimm hundruð fiskar, og
fór hann að gera að þeim og var
hinn kátasti. En þegar hann var að
skera stóran hvalfisk fann hann grá-
feld í maga hans og hélt hann að
gráfeldurinn hefði áður verið á
herðum hertoga eða greifa, en ræn-
ingi nokkur hefði drepið hann síðan
og varpað út á víðan sjó, þar sem
hvalurinn hefði gleypt hann með
húð og hári. Kona fiskimannsins
sagði honum að fleygja gráfeldi
strax aftur í sjóinn, en ís vildi alls
ekki láta hann fyrir minna en fimm
skildinga úr skíru gulli. Beri mað-
urinn bað fiskimanninn um gráfeld,
en fiskimaður mælti: „Ég hlusta
ekki á þig nema þú borgir andvirði
hans og þjónir mér sem hermaður."
Þá þjónaði Aurvandill fiskimannin-
um í sex vikur, þar til upp rann
Tómasardagur. Þá mælti meistari ís
við konu sína: ,Á þessi aumingi að
vera allsber hjá okkur á hátíðinni?
Ég held að við ættum að kaupa
handa honum föt og klæða hann
fyrir Guðs skuld.“ Þau keyptu á
hann buxur fyrir þrjá peninga, eina
leðurskó og eina sjómannaskyrtu
fyrir sex og hálfan pening; en aldrei
fékk beri maðurinn gráfeldinn.
Af þeim sökum varð hann hryggur
í lund, fór einförum og reif hár sitt:
,/Ei! Ég vildi helst fórna öllu sem ég
hef týnt,“ kveinaði hann, „ef ég
fengi hátíðaklæði eins og aðrir
heiðarlegir menn, svo að ég geti
gengið um meðal manna."
Máría drottning sá aumur á hon-
um, því að hún hjálpar í nauðum og
sendi honum með Guðs hjálp þrjá-
tíu silfurpeninga með Gabriel engli,
en Júdas hafði einu sinni svikið
Drottin fyrir þetta fé. Engillinn
huggaði hann með þessum orðum:
„Þú skalt ekki efast um riddara þína,
sem drukknuðu í úthafinu. Því Guð
var sjálfur leiðtogi þeirra á leiðinni
til himnaríkis. Kauptu gráfeldinn
fyrir þessa peninga, því að Guð bar
hann í píslum sínum. Því að í hon-
um ert þú betur varinn en í stál-
brynju, svo að ekki bítur á þig sverð.
Fimmtán fólkvíg muntu standast í
feldi þessum, eins og þú hefur þegar
staðist eitt.“ Þá gladdist Aurvandill
mjög. Hann hljóp áleiðis til mark-
aðarins með silfursjóðinn, en á
markaðinum var gráfeldur boðinn
til sölu. ís var sá eini sem bauð
fimm skildinga í hann sem lægsta
verð og væri bara einn skildingur
fölsk mynt færi feldurinn aldrei á
líkama þess manns. En hvað skeði?
Fyrir kraftaverk Guðs molnaði feld-
urinn í sundur, þegar menn snertu
hann, rétt eins og hann væri allur
rotinn, og þegar Is sá að feldurinn
var svona lélegur þá gaf hann Aur-
vandli hann fyrir þrjátíu silfurpen-
inga. En Aurvandill hafði vart snert
feldinn er feldurinn varð að spán-
nýju klæði, sem nýlega hafði verið
ofið. Þá mælti meistari ís: „Þú hefur
nú fengið góðan feld, nú verður þú
að vinna fyrir honum hjá mér og
konu meistara þíns.“ Þessu hét Aur-
vandill en óskaði samtímis eftir leyfi
svo hann kæmist til hinnar helgu
grafar. ís veitti honum umbeðið
leyfi og gaf honum skotsilfur til far-
arinnar og gaf honum í viðbót
tvennar nýjar buxur. Og kona fiski-
mannsins gaf honum ekki aðeins
þrjá gullpeninga heldur bað hann
líka um að fyrirgefa sér misgjörð
sfna gagnvart honum er hún fyrst
sá hann standandi á skipinu. Hún
ályktaði sem svo: „Vegna velgengni
þinnar hlýtur þú að vera hertogi í
ættlandi þínu.“ En Aurvandill svar-
aði henni: „Frú mín! Guð fyrirgefi
yður allar yðar syndir. Vér munum
sjá um að ávinna vernd hans."
Með þessum orðum kvaddi Aur-
vandill meistara sinn og frú ís, konu
fiskimannsins."
Reykjavík 1. nóvember 1989
Kolbeinn Þorleifsson
íih ik%t min
L-™*' wt*t%a />ir,
QKJiSfcte jb"mi , w:
■
Auglýsingablað um hátíð kyrtilsins í Trier einhvem tíma á 17. öld.
HELGARFERÐIR í JANÚAR FEBRÚAR OG MARS
Skemmtiskrepp um helgi,
kostar ekki mikið...
...með Flugleiðum.
Verðlagið er vinsælasta lagið í Glasgow. Verslanir með fjölbreytt vöruúrvai.
Veitingastaðir og skemmtilegar uppákomur á hverju götuhorni.
Glasgow er fyrir þá sem vilja njóta lífsins, spara og versla
þar sem verðið kemur á óvart.
LAUGARDAGUR TIL ÞRIÐJUDAGS
HOSPITALITYINN
TVEIR í HERB. KR. 27.680 Á MANN
, • ' • • ■ •. ’ l
I FLUGLEIÐIR
I5 Þjónusta alla leið
Söluskrifstofur Flugleiða:
Lækjarqötu 2, Hótel Esju oa Krinqlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á sömskrifstofum FÍugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum
Frimerki frá hátíð kyrtilsins í Trier.