Tíminn - 05.03.1991, Síða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 5. mars 1991
IHúsnæðisnefnd
______Hafnarfjarðar
Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir um-
sóknum um félagslegar íbúðir í Hafnarfirði.
Um er að ræða:
1. Félagslegar eignaríbúðir (sbr. eldri lög um
verkamannabústaði).
2. Kaupleiguíbúðir
a) Félagslegar kaupleiguíbúðir.
b) Almennar kaupleiguíbúðir.
3. Endursöluíbúðir byggðar skv. eldri lögum.
Þeir einir koma til greina varðandi félagslegar
eignaríbúðir og félagslegar kaupleiguíbúðir sem
uppfylla eftirtalin skilyrði:
1. Eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign.
2. Hafa haft meðaltekjur síðustu þrjú árin sem
eru undir tekjumörkum sem húsnæðismála-
stjórn ákvarðar.
3. Sýna fram á greiðslugetu og við það er miðað
að greiðslubyrði lána fari ekki yfir þriðjung af
tekjum.
Réttur til almennra kaupleiguíbúða er ekki bund-
inn tekjumörkum en tekið er tillit til húsnæðisað-
stæðna og fjölskyldustærðar.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
húsnæðisnefndar, Strandgötu 11, 3. hæð, sem
einnig veitir nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. og ber að
skila umsóknum á skrifstofuna fyrir þann tíma.
Vakin er athygli á því að eldri umsóknir þarf að
endurnýja, annars falla þær úr gildi.
Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar
Strandgötu 11,3. hæð
Sími 651300.
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 w
Dælur: 130-1800 l/mín
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Simi 91-674000
(Robiri))'
Rafstöðvar
OG
dælur
FRÁ
SUBARU
ðaM-
■J0T
Revkjavík: 91-686915
Akurevri: 96-21715
Borgarnes: 93-71618
ísatjorður: 94-3574
Blönduúv. 95-24350
Sauðárkrókur: 95-35828
Egilsstaöir: 97-11623
Vopnafjörður: 97-31145
Höfn í Hornaf.: 97-81303
ÓDÝRIR
HKLGARPAKKAR
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Traustir hlekkir
í sveiganlegri keðju
hringinn í krtngum landið
Bíliikiga með útibú
aili i kringurn tandift,
gera |iér möguiegt að leigja bíl
á cinum stað
og skila honuni á öðrum.
Nvjustu
MITSUBISHI
bílarnir alltaf lit taks
Þjóðaratkvæðagreiðslan í Eistlandi og Lettlandi:
Stér meirihluti
vill sjálfstæði
Kröfuganga sjálfstæöissinna í Litháen.
Mikill meirihluti íbúa Eistlands og
Lettlands er fylgjandi sjálfstæði
lýðveldanna, samkvæmt skoðana-
könnunum sem fram fóru í lýðveld-
unum um helgina. Sovésk stjóm-
völd höfðu haldið því fram að lítill
hluti íbúanna styddi sjálfstæðisvið-
leitni stjómvalda lýðveldanna, en
niðurstaðan úr skoðanakönnunum
sýnir hið gagnstæða.
í Eistlandi var 83% þátttaka í skoð-
anakönnuninni og 78% greiddu at-
kvæði með sjálfstæði lýðveldisins.
í Lettlandi var 88% þátttaka og
73% sögðust fylgjandi sjálfstæði.
Eistlendingar eru rétt rúmlega
60% allra íbúa Eistlands og í Lett-
landi eru ekki nema rétt rúmlega
50% þjóðarinnar Lettar og er stuðn-
ingurinn við sjálfstæði lýðveldanna
miðað við það enn glæsilegri.
„Þetta er sögulegur dagur fyrir
Eistland," sagði forseti lýðveldisins,
Arnold Ruutel, við fréttamenn eftir
að niðurstaða könnunarinnar var
ljós. „Þetta er stórt skref í aðalbar-
áttu okkar — sjálfstæðibaráttunni,"
bætti forsetinn við. Hann sagði að
könnunin sýndi að fullur stuðning-
ur væri við ríkisstjórnina.
Embættismenn í Lettlandi sögðu
að niðurstaða skoðanakönnunar-
innar sýndi að mjög stór hluti Letta
og talsverður híuti Rússa í Lettlandi
vildu sjálfstæði. Anatolijs Gor-
bunovs, forseti Lettlands, sagði að
þetta styrkti sjálfstæðisbaráttuna og
setti þrýsting á stjórnina í Moskvu
um að breyta stefnu sinni gagnvart
sjálfstæðisviðleitni Eystrasaltslýð-
veldanna.
Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti
lýsti svipaða skoðanakönnun, sem
fram fór í Litháen í febrúar, ólög-
lega. Hann segir að lýðveldin verði
að fara að sovéskum lögum í baráttu
sinni fyrir sjálfstæði.
Reuter-SÞJ
Samkomulag næst um friðarskilmála:
SADDAM AÐ MISSA
STJÓRN Á LANDINU
íslömsku byltingarsamtökin (SA-
IRI), sem viíja koma Saddam Hus-
sein íraksforseta frá völdum, höfðu í
gær náð sex borgum í suðurhluta ír-
aks á sitt vald, að sögn talsmanns
samtakanna, en nokkrar hersveitir
Lýðveldishersins (úrvalssveitir
íraska hersins) börðust á móti upp-
reisnarmönnum. Liðsmenn samtak-
anna eru sjítar, róttækir múslimar,
en þeir eru fjölmennir í Suður-írak.
Samtökin eru hliðholl írönum sem
flestir eru sjítar. Súnnítar, sem ekki
eru eins róttækir og sjítar, eru ráð-
andi stétt í írak. Saddam íraksforseti
er m.a. súnníti. Meðal þeirra borga,
sem sjítar ráða nú yfir, er Basra, sem
er önnur stærsta borg íraks og
skammt frá landamærum íraks og
írans. Þeir hafa drepið borgarstjóra
og lögreglustjóra borgarinnar. Þeir
ráða einnig yfir borgunum AI Am-
arah, Samawah, Nasiriyah, Di-
waniyah og A1 Kut. Heil hersveit
Lýðveldishersins gafst upp fyrir
uppreisnarmönnum í borginni AI
Amarah í gær, en borgin er 160 km
norðvestur af Basra.
Harðir bardagar voru í gær milli
uppreisnarmanna og hluta Lýðveld-
ishersins. Margir íiaskir hermenn
höfðu gengið til liðs við íslömsku
byltingarsamtökin, sem höfðu í gær
eyðilagt um 100 skriðdreka Lýðveld-
ishersins, en mannfall var mikið og
skriðdrekarnir skutu á fólk, sagði yf-
irmaður byltingarsamtakanna, Mo-
hammed Bager al-Hakim. Hakim
hvatti Kúrda, s’em eru fjölmennir f
Norður-írak og hafa barist fyrir sjálf-
stæði sínu í fjölmörg ár, að mynda
aðrar vígstöðvar fyrir norðan Bagd-
ad til að létta sjítum baráttuna í
suðri. lálsmaður íslömsku bylting-
arsamtakanna í Damaskus, Bayan
Jabr, sagði að skæruliðar Kúrda
hefðu náð borginni Sulaymaniyah í
norðurhluta landsins á sitt vald.
Borgin er um 250 km norðaustur af
Bagdad.
Fjarskiptakerfi íraka er nú í rúst og
íraksher er veikburða og mjög erfitt
er fyrir stjórnvöld að bregðast við
byltingum.
Uppreisnin í suðurhluta íraks hófst
á laugardag. Uppreisnarmenn opn-
uðu öll fangelsi og Sri Lanka- búar,
sem höfðu verið fangar í Basra og
flúðu til Kúvæts, sögðu að uppreisn-
in hefði hafist í Basra. „Þeir vilja
vera eins og franir," sagði einn
þeirra.
Friðarskilmálar
samþykktir
Hershöfðingjar bandamanna og ír-
aka hittust í Safwan-héraðinu á
sunnudag til að ræða um friðarskil-
málana sem bandamenn settu írök-
um. Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti á laugardagskvöld
skilyrði bandamanna. A fundinum í
Safwan samþykktu írösku hershöfð-
ingjarnir öll skilyrðin og seinna á
sunnudeginum samþykktu írösk
stjórnvöld formlega öll skilyrðin fyr-
ir Sameinuðu þjóðunum.
Meðal skilyrða bandamanna er
frelsun stríðsfanga. írakar slepptu í
gær tíu stríðsföngum — sex Banda-
ríkjamönnum, þremur Bretum og
einum ítala. Einn Bandaríkjamann-
anna var kvenmaður, sá eini sem
handtekinn var í átökunum. Búist
var við að stríðsfangarnir kæmu til
Jórdaníu seint í gær. í gær lýstu
bandamenn því yfir að þeir mundu
sleppa 300 íröskum stríðsföngum á
þriðjudag. Bandamenn segjast hafa
60-70 þúsund íraska stríðsfanga, en
þeir telja að frakar hafi um 40 þús-
und stríðsfanga og flestir þeirra séu
kúvæskir borgarar.
Reuter-SÞJ