Tíminn - 05.03.1991, Qupperneq 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 5. mars 1991
KVIKMYNDIR IIMIIIMIII inÁfAlé - ' m ú
fljlUieK
Menn og köngulær
Arachnophobia ★★★
Aðalhlutverk: Jeff Daniels (Ragtime,
Purple Rose of Cairo), Harley Jane Kozac
(When Harry Met Sally, Parenthood),
John Goodman (Sea of Love, Always, Ra-
ising Arizona).
Leikstjóri: Frank Marshall.
Framleiðandi: Steven Spielberg.
Sýnd í Bíóhöllinni.
Bönnuð innan 14 ára.
Margir þekkja það að vera hræddir
við köngulær og mun þetta vera ein
algengasta taugaveiklun sem fyrir-
finnst hjá mannkyninu nú á dög-
um. Þessar litlu áttfættu verur sem
búa í hverju skúmi og skoti, hrella
húsmæður um allan bæ, eru flestar
eins meinlausar og mest getur orð-
ið. Bíóhöllin býður nú upp á
spennumynd af bestu gerð sem
fékk mig til að svitna og endur-
skoða afstöðu mína til þessara
skepna. Sagan segir frá leiðangri
inn í frumskóga Venesúela sem hef-
ur það markmið að safna saman
sýnishornum af alls kyns skordýr-
um til nánari rannsóknar. Þarna
finnst áður óþekkt köngulóarteg-
und sem fyrir slysni kemst alla leið
inn í smábæ í Kaliforníu og hrellir
þar íbúa. Ross Jennings (Jeff Dani-
els) er nýfluttur ásamt fjölskyldu
sinni þangað og hefur í hyggju að
taka við starfi gamla bæjarlæknis-
ins, en spilin snúast í höndum hans
og annað og erfiðara starf bíður
hans.
Steven Spielberg er framleiðandi
myndarinnar, hans gæðastimpill
svífur yfir vötnum og munar um
minna. Til þess að hún yrði raun-
verulegri skapaði hann þvílíkar
sviðsmyndir að Ieitun er á öðru
eins og nefni ég dæmi um það
fossafall sem er það tignarlegasta
sem ég hef augum litið. Frank
Marshall hefur skapað mjög
skemmtilega mynd og segist hann
sjálfur hafa tileinkað sér stemmn-
Fræknir
félagar
Memphis Belle ★★★
Aöalhlutverk: Matthew Modine (Pacific
Heights), Eric Stoltz (Mask, Some Kind
of Wonderful), Sean Astin (Staying
Together), Billy Zane (Dead Calm).
Leikstjóri: Michael Caton-Jones.
Framleióandi: David Puttnam.
Sýnd í Bíóborginni.
Bíóborgin sýnir myndina Memp-
his Belle og ekki verður annað sagt
en að hún hafi komið mér
skemmtilega á óvart. Þarna er sagt
frá áhöfn á B- 17 flugvélinni
Memphis Belle, sem saman stend-
ur af ungum, hugdjörfum ævin-
týramönnum sem eru um það bil
að verða þeir bestu í hópi banda-
manna. Þegar ég settist niður,
bjóst ég við enn einni Top Gun eft-
irhermunni, en mér til mikillar
ánægju var það víðs fjarri. Þetta er
fyrst og fremst saga sem segir frá
félögum og vinum þar sem staða
einstaklingsins innan hersins er í
brennidepli. Ádeilan er aldrei langt
undan og þegar myndin hefur
runnið sitt skeið vaknar óneitan-
lega upp sú gamalgróna spurning
hver sé tilgangurinn með þessu
öllu og hví menn heyja stríð.
Myndin sjálf nær hápunkti þegar
áhöfnin er send í sinn síðasta leið-
angur sem í leiðinni er sá hættu-
mesti, en þá sögu er ekki vert að
rekja meira að sinni. Memphis
Belle er byggð á raunverulegum at-
burðum úr lífi Williams Wyler sem
gegndi herþjónustu í liði banda-
manna í síðari heimsstyrjöldinni.
Fjörutíu árum seinna ákvað dóttir
hans að gera kvikmynd eftir dag-
bók hans og fékk til liðs við sig
David Puttnam til þess að fram-
leiða hana. Michael Caton-Jones,
leikstjóra myndarinnar, tekst hér
mjög vel upp, rétt eins og í nýlegri
inguna sem Alfred Hitchcock náði
að skapa með myndum á borð við
Vertigo og The Birds. Marshall
tekst þarna að skapa spennumynd
sem í raun er ekki bara spennu-
mynd þar sem allt snýst um eitt-
hvert visst atriði, heldur tekst hon-
um að búa til sjálfstæða mynd inn-
an spennumyndarinnar sem segir
frá lækni sem er í atvinnuleit og
samskiptum hans við nágranna og
nýja vini. Aðdáendur jafnt spennu-
sem hryllingsmynda fá þarna mynd
sem fer ótroðnar slóðir og tekst að
magna upp þann stigvaxandi
skjálfta sem krafist er. Jeff Daniels
fer með hlutverk læknisins sem
þjáist af köngulóarhræðslu og tekst
það prýðisvel. Vert er að geta að
John Goodman leikur meindýra-
eyði sem á í baráttu við ógnvaldinn
og er oft spaugilegt að fylgjastrneð
hans aðferðum. ÁHK.
ARACHNOPHÖBIA
Úr öskunni í eldinn
Look Who’s Talking Too ★
Aöalhlutverk: John TVavolta (The Ex-
perts, Greasc, BIow out), Kirstie Alley,
Lome Sussman, Megan Milner.
Leikstjóri: Amy Heckeriing.
Framleiðandi: Jonathan D. Krane.
Sýnd í Stjömubíó.
Þegar gera á framhaldsmynd eru
nokkrir hlutir sem þarf að hyggja að
áður en hafist er handa. í fyrsta lagi
er oft betra að fyrri myndin hafi
gengið sæmilega og að efnisþráður-
inn bjóði upp á að spunnið sé áfram,
ásamt nýrri persónusköpun þar
sem ný viðhorf koma fram. Þegar
tekið hefur verið ákvörðun um að
gera framhald af Pottormi í pabba-
leit hafa ýmis atriði verið grand-
skoðuð og reynt að skjóta inn nýj-
um persónum til þess að færa líf í
myndina. Einu virðast framleiðend-
ur myndarinnar þó alveg hafa
gleymt og er það ekki ómerkari
hlutur heldur en sjálfur söguþráð-
urinn, sem hingað til hefur verið
bráðnauðsynlegur til þess að gera
bíómynd sem horfandi er á. Nú þeg-
ar til sögunnar er komið, hefur
fjölgað í fjölskyldunni og litla syst-
irin Julie er komin til sögunnar og
virðist hafa það eitt fyrir stafni að
hrella stóra bróður sem áður hafði
verið aðalpersóna fyrri myndarinn-
ar. En lítið annað er hægt að segja
um hvað myndin fjallar, því sögu-
þráður er varla til staðar, eins og áð-
ur var sagt. Myndin er í alla staði
leiðinleg og það eina sem vekur kát-
ínu er lífsgleði Julie sem Roseanne
Barr talar fyrir. Travolta, sem hefur
heldur verið að færast upp á við síð-
ustu ár eftir margra ára dvöl í eymd
atvinnuleysis, leikur hér persónu
sem hann skóp í fyrri myndinni, en
lítið fer fyrir leik, því hans tilgangur
er ekki fullmótaður frekar en ann-
arra leikara, sem minna mig helst á
fólk sem ekkert hefur fyrir stafni.
Vonandi vex metnaður Amy Hec-
kerling og komi í veg fyrir að hann
sendi frá sér annað hroðaverk eins
og þetta. ÁHK.
mynd hans Scandal. Hann vinnur
þannig með sögulega atburði að
þegar gamla B-17 vélin var í sinni
seinustu ferð var eins og maður
væri sjálfur kominn um borð, slíkt
var handbragð hans. Sannfærandi
leikur og skemmtileg leikstjórn
Michaels Caton-Jones ásamt fanta-
góðum flugatriðum eiga heiðurinn
af kvöldstund sem þessari og bíð ég
spenntur eftir hans næstu mynd.
ÁHK.
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka i
Roykjavík 1. til 7. mars er í Arbæjarapóteki, og
Laugamesapóteki. Það apótek sem fyrr er
netht annast eitt vörsluna fra kl. 2Z00 aö kvöidi
til kl. 9.00 að morgnl virka daga en kl. 22.00 á
sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfja-
þjónustu eru gefnar í sima18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Sim-
svari 681041.
Hafnarfjörður Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar í sfmsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek
eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apó-
tekin skiptast á sína vikuna hvorl að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opiö í þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. A helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar í
síma 22445.
Apótek Keflavikur Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna fri-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokaö í hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins eropið virka daga til
kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabæn Apótekið er opið rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt
Læknavakt fýrir Reykjavík, Seitjamames og
Kópavog er í Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, simaráðleggingar og timapant-
anir i sima 21230. Bongarspitalinn vaktfrá kl. 08-
17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuöum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (simi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og læknaþjónustu erugefnar i sim-
svara 18888.
Ónæmisaögenöir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöö Roykjavikur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskirteini.
Sdtjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og
20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Simi
612070.
Garóabæn Heilsugæslustööin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er í
sima 51100.
Hafriarflötður Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, sími 53722. Læknavakt simi 51100.
Kópavogur. Heilsugæslan er opin 8 00-18.00
virka daga. Sími 40400.
Keflavik: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöð Suðumesja. Sími: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf i sál-
fræðilegum efnum. Slmi 687075.
Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartimi fyrirfeður kl. 19.30-20.30.
Bamaspitali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunariækningadeild Landspítalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartími
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Botg-
arspítalinn i Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30til 19.30 og eftir samkomulagi. Álaug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafharbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvita-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Hcilsuvcmdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspitall: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16ogkl. 18.30 til kl. 13.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshæliö: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vífilsstaðaspítali: Heimsóknar-
timi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspitali Hafnarfiröi: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhlíð hjúkrunarheimili i Kópavogi: Heim-
sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavíkuriæknishéraös og heilsu-
gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Slmi 14000. Keflavík-sjúkrahúsið: Heim-
sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgarog á hátlöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartimi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. A
barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusimi frá kl.
22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Slökkvilið - Lögregla
Reykjavík: Seltjamames: Lögreglan sími
611166, slökkviliö og sjúkrabifreið sími 11100.
Kópavogur. Lögreglan simi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreiö sími 11100.
Hafnarljörðun Lögreglan sími 51166, slökkviliö
og sjúkrabifreið sími 51100.
Kefiavík: Lögreglan sími 15500, slökkviliö og
sjúkrabíll sími 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar. Lögreglan, sími 11666,
slökkviliö sími 12222 og sjúkrahúsið sími
11955.
Akureyri: Lögreglan simar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreiö sími 22222.
fsaQöröur: Lögreglan simi 4222, slökkviliö sími
3300, brunasími og sjúkrabifreiö sími 3333.