Tíminn - 13.03.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 13. mars 1991
Miðvikudagur 13. mars 1991
Tíminn 9
Grfðarstór loðdýraskáli skiptir um hiIutverk nyrð
„Aðstaðan verður engu lík, “
segja forsvarsmenn hestamanna
Á Ytra-Holti í Svarfaðardal er nú unnið
af krafti við að innrétta fyrrum refaskála.
Hestamannafélagið Hringur í Svarfaðar-
dal og á Dalvík keypti þennan 4500 fer-
metra skála úr þrotabúi Pólarpels, og í
framtíðinni mun skálinn verða hesthús
fyrir Dalvíkinga, auk þess sem þar verður
reiðgerði og ýmiss konar aðstaða fyrir
hestamenn. Skálinn er 160 metra langur
og 28 metra breiður, og opnar hesta-
mönnum mikla möguleika. Þá hefur Dal-
víkurbær keypt jörðin Ytra-Holt, og
verður hún leigð hestamönnum undir
starfsemi sína.
Að sögn Ingva Baldvinssonar, formanns
Hrings, var kaupverð skálans 8,5 millj-
ónir, og voru kaupin fjármögnuð þannig
að einstaklingum var seldur stærstur
hluti skálans undir hesthús. Afgangur-
inn af húsinu verður sameiginleg að-
staða í eigu Hrings. Þegar er í húsinu
kaffistofa og hreinlætisaðstaða, en hesta-
menn gera ráð fyrir að innrétta fundar-
sal, og ætlunin er að útbúa þvottaað-
stöðu fyrir hrossin. Þá á Hringur einnig
svæði í húsinu sem ætlað er undir reið-
gerði (20x60m), með aðstöðu fyrir áhorf-
endur til hliðanna. Ingvi sagði að þetta
innanhúss reiðgerði opnaði hestamönn-
um mikla möguleika, sérstaklega yfir
vetrartímann, því hægt verður að stunda
þjálfun, tamningu, hafa sýningar og reka
reiðskóla hvernig sem viðrar.
Nýtist fleirum en
hestamönnum
Ingvi sagði að til að byrja með yrði höf-
uðáherslan lögð á að koma gerðinu í
gagnið, en önnur félagsaðstaða látin
sitja á hakanum. Breyta þarf þaki skálans
yfir gerðinu og setja kraftsperrur, og
samkvæmt fjárhagsáætlun kostar sú
framkvæmd ein um 3 milljónir króna.
Þótt gerðið sé einkum ætlað hestamönn-
um, hafa önnur félagasamtök og trimm-
fíklar rennt til þess hýru auga. Knatt-
spyrnumenn, stangveiðimenn, kylfingar
og „frístundaskokkarar“ hafa spurst fyrir
um hugsanleg afnot af aðstöðunni. Þau
mál eru á umræðustigi, en öllum mögu-
leikum haldið opnum.
29 hesthús undir sama þaki
í þeim hluta hússins sem einstaklingar
keyptu er nú unnið að því að innrétta 29
hesthús. Hesthúsin eru misstór, allt frá
50- 200 fermetrum, og er ráðgert að þar
verði hægt að hýsa 300-400 hross. Eftir
endilöngu húsinu er vélgengur gangur
með eldvarnarveggjum til beggja hliða.
Sitt hvorum megin við gangin eru hest-
húsin, með hlöðum, hnakkageymslum
og tilheyrandi. Þá eru niðurgrafin haug-
hús, ýmist undir hesthúsunum sjálfum
eða utandyra. Hestamennirnir eru mis-
langt komnir með að innrétta aðstöðu
sína. Árni Óskarsson, sem sæti á í hús-
nefnd, segir að stefnt sé að því að eld-
varnarveggirnir og hlöðurnar verði til-
búnar fyrir haustið, svo hestamenn geti
sett eitthvert hey þar inn. Samkvæmt
ákvörðun Dalvíkurbæjar þurfa hesta-
menn að flytja sig úr núverandi hest-
húsahverfum fyrir næstu áramót, og því
þurfa hesthúsin að vera tilbúin fyrir
þann tíma.
Eins og áður sagði var öll aðstaða fyrir
hesthúsin seld einstaklingum. Árni segir
að í framtíðinni sé hugsanlegt að Hring-
ur kaupi síðan aftur aðstöðu fyrir nokkra
hesta, með það fyrir augum að geta t.d.
leigt unglingum bása. Slíkt myndi efla
áhuga unglinga á hestamennsku, og gera
þá virkari í félagsstarfinu.
Félag hrossabænda íhugar
að fá aðstöðu í húsinu
Félag hrossabænda, eða sú deild sem
nær yfir Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjar-
sýslu, hefur sýnt áhuga á að kaupa eða
leigja aðstöðu í húsinu. Málið var til um-
ræðu á fundi félagsins nýverið, en
ákvörðun ekki tekin. Baldvin Baldvins-
son, formaður félagsins, segir að þessi
mál séu í skoðun. Endanleg ákvörðun
hafi ekki verið tekin, en stjórn félagsins
muni fylgjast grannt með þróun mála í
Hestamiðstöðinni, en þar sem aðstaða
þar verði ekki fyrir hendi strax, muni Fé-
lag hrossabænda reyna fyrir sér í leigu-
húsnæði fyrst um sinn. Baldvin segir að
f.o.f. sé haft í huga að koma upp aðstöðu
fyrir dýralækna, þ.e. til röntgenmynda-
töku og blóðsýnatöku vegna skoðunar á
útflutningshrossum, og jafnvel aðstöðu
Hestamannafélagið Hringur í Svarfaðardal og é Dalvík hefur keypt 4500 fermetra loðdýraskála að Ytra-Holti og breytt honum í eins konar félagsmiðstöð hesta og manna.
Eftir
Halldór Inga
Ásgeirsson
Akureyri
Mynd: Baldur Þórartnsson
fyrir sölu- og sýningarhross. Baldvin
segir það stórt hagsmunamál fyrir
hrossabændur að koma upp skoðunarað-
stöðu og útflutningsmiðstöð á Norður-
landi. í því sambandi hljóti Hestamið-
stöðin í Ytra-Holti að vera efst á blaði,
því hliðstæð aðstaða finnist ekki. Eins og
staðan er nú, þurfa norðlenskir hrossa-
bændur að kosta flutning á öllum sölu-
hrossum til Reykjavíkur, og ef þau ein-
hverra hluta vegna fá ekki skoðun til út-
flutnings, þarf að kosta þau norður aftur.
í framtíðinni væri jafnvel hægt að flytja
beint út frá Norðurlandi.
Dalvíkurbær mun styðja
við bakið á hestamönnum
Dalvíkurbær keypti jörðina Ytra-Holt
sem skálinn stendur á. Kaupverðið var
um 10 milljónir króna, og segir Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Dalvík, að
jörðin hafi verið keypt með það fyrir aug-
um að skapa hestamönnum aðstöðu íyrir
starfsemi sína, svo og að tryggja Dalvík-
urbæ aukið landrými. Jörðin er um 90
hektarar, þar af um þriðjungur ræktað
land, og mun í framtíðinni verða leigð
hestamönnum. Kristján segir að það sé
yfirlýst stefna bæjarstjórnar að styðja við
bakið á hestamönnum við að koma sér
upp aðstöðu. Kristján segir að á fjárhags-
áætlun Dalvíkurbæjar sé gert ráð fyrir
800 þúsund króna framlagi til hesta-
manna. Varðandi frekari stuðning sagði
Kristján að málefni hestamanna ættu
eftir að fá nánari umfjöllun í bæjar-
stjórn, og því lítið hægt að segja meira á
þessu stigi. Aðspurður um aukafjárveit-
ingar vegna hugsanlegrar aðstöðu fyrir
önnur félagasamtök í Hestamiðstöðinni
sagði Kristján að slíkt hefði ekki komið
til tals. Hins vegar fengju umrædd félög
styrk frá Dalvíkurbæ og ráðstöfuðu hon-
um að vild.
Framtíðarsýn hestamanna
Þótt framkvæmdir séu komnar í fullan
gang, er enn mikið verk óunnið. Ingvi
Baldvinsson, formaður Hrings, segir að
horft sé fram á veginn, og í framtíðinni
verði þarna aðstaða fyrir hestamenn eins
og hún gerist best. Á skipulagi er gert
ráð fyrir akbraut kringum skálann. Utan
hennar verða reiðgerði. Norðan hússins
var búið að undirbyggja fyrir annan refa-
skála. Þar er gert ráð fyrir beinni braut
og hringvelli til þjálfunar, en svæði
Hrings á Flötutungum mun áfram verða
aðal sýningarsvæðið. Framkvæmdahrað-
inn mun að sjálfsögðu ráðast af því
hversu vel gengur að útvega fjármagn.
En hestamenn eru bjartsýnir og segir
Ingvi Baldvinsson að þarna skapist að-
staða sem verði engu lík hérlendis, og
verði af því að Félag hrossabænda verði
með aðstöðu í húsinu, mun það verða
gífurleg lyftistöng fyrir hrossarækt og
hestamennsku almennt á Norðurlandi.
hiá-akureyri.
H
R»i6hoII
g»rfli 2OK<.0m
s — l
H H
' K
E d = H ■ Hi I | J ' 1
iizL
e
r, rs' R _ —B — n.i 1 j—^ r 1 T —i Fog R ! !M jH H
r
■cp M
ti_r±a_rta m_rd
TF
JL
1 ^
r:
rr
irrLn
R og F H
i y E 3 r 1
1 | -
lr rl . J LJ
ti!
Fundc- og ,eicgsafls*oðo
ir 'fcX
Hohahjrto |
trí
tA
L r
t r
f
0 fi I
TZU
IJ ~r
U________lí
1
r
Grunnteikning af einu stærsta hesthúsi Norðurálfu.
44-
T - H
i w s RB :H 3
I K Lel
J
r