Tíminn - 12.04.1991, Side 2
2 Tíminn
Föstudagur 12. apríl 1991
Ráðherraskipuð nefnd hefur tekið út íslenskan mjólkuriðnað:
Hægt að spara 5-6%
í mjólkuriðnaðinum
Nefnd, sem landbúnaðarráðuneytið skipaði til að fjalla um hagræð-
ingu og breytt skipulag í mjólkuriðnaði, telur að spara megi 165-
220 milljónir króna með fækkun mjólkurbúa um 3-5. Sparnaður-
inn samsvarar 5-6% af vinnslu- og flutningskostnaði mjólkur.
Nefndin var skipuö í janúar á síð-
asta ári, en verkefni hennar var að
endurskoða tillögur svokallaðrar
Afurðastöðvanefndar frá því í ágúst
1989. Sú nefnd gerði mjög ákveðn-
ar tillögur um fækkun mjólkurbúa
og reiknaði út arðsemi hvers bús
eftir reiknilíkani. Þessi seinni
nefnd, sem var að skila áliti í síð-
ustu viku, gerir ekki tillögu um
hvaða mjólkurbú eigi að leggja nið-
ur, en bendir á að ná megi fram
sparnaði með mismunandi fækk-
unarmynstri.
Niðurstaða nefndarinnar er að af-
kastageta greinarinnar sé umfram
þarfir og því sé hægt að lækka fast-
an kostnað með fækkun mjólkur-
búa. Sparnaðurinn sé á bilinu 5-6%
af vinnslu- og flutningskostnaði
mjólkur. Nefndin telur að ná megi
fram auknum sparnaði með auk-
inni verkaskiptingu milli mjólkur-
búa. Til þess þurfi sterkari yfir-
stjórn í mjólkuriðnaðinum og ýms-
ar skipulagsbreytingar. Hún bendir
einnig á að ástæða sé til að óttast að
á komandi árum verði leyfður auk-
inn innflutningur á mjólkurvörum
og þess vegna sé nauðsynlegt að
hagræða á þessu sviði. Slík hagræð-
ing náist því aðeins fram að gripið
verði til róttækra skipulagsbreyt-
inga.
Nefndin telur að heppilegasta leið-
in til að ná fram markmiðum um
hagræðingu sé að stofna eitt félag
og sameina öll mjólkurbú í land-
inu. Rétt sé að reyna svo viðamikla
skipulagsbreytingu, þrátt fyrir að
hún sé erfið í framkvæmd. Takist
ekki að stofna eitt félag telur nefnd-
in að næst besti kosturinn sé að efla
Samtök afúrðastöðva í mjólkuriðn-
aði og fá þeim félagsskap víðtækari
völd en þau hafa í dag. Við eflingu
SAM yrði að gæta þess að mjólkur-
framleiðendum yrði tryggð meiri
áhrif í stjórn samtakanna en nú er.
í nefndinni áttu sæti fulltrúar frá
Samtökum afurðastöðva, bændum,
Framleiðsluráði landbúnaðarins,
landbúnaðarráðuneytinu, Byggða-
stofnun og Sambandi íslenskra
sveitarfélaga. Formaður nefndar-
innar var Óskar Gunnarsson, for-
stjóri Osta- og smjörsölunnar.
-EÓ
Nokkrar stofn-
anir greiða sund-
kostnað fyrir
starfsmenn sína
Flugmálastjóm mun hafa sótt um
frían aðgang að sundstöðum borg-
arinnar fyrir slökkviliðsmenn á
Reykjavíkurflugvelli til fþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur, en lög-
reglan, strætisvagnastjórar og
slökkviliðið í Reykjavík munu njóta
slíkra hlunninda. Erlingur Jóhann-
esson hjá ÍTR segir að ekki sé um
að ræða að þessir starfsmenn fái
frían aðgang að sundstöðum, því
viðkomandi stofnun greiðir fyrir
starfsmenn sína.
„Flugmálastjórn fór fram á að
slökkviliðsmenn á Reykjavíkurflug-
velli nytu sömu kjara og slökkvilið
Reykjavíkur, en það er ekki um frían
aðgang að sundstöðum að ræða, það
verður hver stofnun að borga fyrir
sína starfsmenn; þannig að ákvörð-
‘un um þetta er í höndum Flugmála-
stjórnar," sagði Erlingur í samtali
við Tímann í gær. —GEÓ
Aukinn viðhaldskostnaður varðskipanna
setur Landhelgisgæsluna í vanda:
Samdráttur
í skipaferö-
um og flugi
Sigríöi Hallgrímsdóttur sigurvegara afhent verðlaunin af Einari Egilssyni, fbrmanni NVSV, og Örlygi Hálfdán-
arsyni bókaútgefanda. Lengst til hægrí er Ólafúr Sighvatsson, skipstjóri á Hafrúnu. Tímamynd: Pjetur
Náttúrufróðir verðlaunaðir
Landhelgisgæslan þarf að draga
verulega úr ferðum skipa og flugvéla
sinna á þessu árí, þrátt fyrir að fjár-
veitingar til gæslunnar hafi verið
auknar. Astæðan er sú að varðskipin
eru komin til ára sinna og viðhalds-
kostnaöur því orðinn verulegur. Þar
sem þetta hefur áhríf á heildarfjár-
hag stofnunarinnar hefur þetta einn-
ig í for með sér að draga verður úr
flugi flugvélar og þyrlna gæslunnar.
Að sögn Helga Hallvarðssonar, yfir-
manns gæsluframkvæmda, er ekki
hægt að mæta auknum viðhalds-
kostnaði nema með minna úthaldi
skipanna. „Skipin verða stöðvuð yfir
hásumarið og þá er hægt að hleypa
áhöfnum í sumarfrí. Líka er hægara
að gera við skipin að utan á sumrin,"
sagði Helgi í samtali við Tímann í
gær.
Fimm bíla árekstur í Kópa-
vogi í gær út af iélegrí
dagskrá útvarpsstöðva?
Skipti
um rás
og ók á
fjóra
Fimm bíla árekstur varð á
Kársnesbraut í fyrradag, vestan
víð gatnamót Nýbýlavegar og
Dalbrekku. Tveir voru fluttir á
slysadeild, en munu ekki vera
alvarlega siasaöir. Bílamir em
allir talsvert skemmdir.
Að sögn lögreglunnar í Kópa-
vogi mun ökumaður aftasta
bflsins hafa verið að skipta um
rás á útvarpstæki bflsins þegar
áreksturínn varð. Þegar hann
var að skipta leit hann af vegin-
um meö þeim afieiðingum að
hann ók aftan á bíl sem ók á
annan og svo koll af koili. Ekld
fékkst uppgefiö hvers vegna
maðurinn var að skipta um rás.
—SE
Gæslunni eru á þessu ári veittar 660
milljónir. Frá í fyrra er það 11% raun-
hækkun. í rauninni heldur gæslan
núna aðeins úti tveimur varðskipum,
Ægi og Tý. Yfir sumartímann annast
Óðinn aðallega eftirlit með baujum
og vitum. Vegna núverandi Ijárhags
gæslunnar verður aðeins hægt aö
halda öðru skipinu úti í sumar. Yfir
vetrartímann segir Helgi að stefnt
verði að því að gera öll skipin þrjú út.
„Viðhaldskostnaður á varðskipunum
er orðinn stór útgjaldaliður hjá gæsl-
unni, einkum vegna Óðins sem er
orðinn rúmlega 30 ára gamall. Raun-
ar voru öll skipin sigld sundur og
saman í þorskastríðunum og það hef-
ur dregið dilk á eftir sér.“
Helgi sagði að tími væri kominn til
að hefja smíði nýs varðskips, slíkt
hefði verið í umræðunni lengi. „Við
þurfúm að fá fullkomið varðskip, með
veititönkum, sem við getum haft úti á
200 mflunum þegar þannig stendur
á.“
Iðnaðarráðherra sagði óeðiilegt að
mikium fjármunum sé varið úr al-
mannasjóðum til að rannsaka hvort
háhiti eða verðmæt jarðefni finnist á
miklu dýpi undir bújörðum og
hagnaðurinn af uppgötvun varma
eða efna falli síðan til eigenda bú-
jarða. Nýjar aðstæður kalii á nýja
skilgreiningu á eignarrétti lands.
Ráðherra sagöist telja að háhiti á
ákveðnu dýpi og við ákveðið hitastig
í gær voru afhent verðlaun í get-
raun sem Náttúruvemdarfélag Suð-
vesturlands efndi til á dögunum á
umhverfisdögum í Kringlunni.
Þremur einstaklingum vom veitt
verðlaun, en spurt var um lífríki
fjömnnar og íslensk húsdýr.
NVSV stóð að getrauninni í sam-
vinnu við Upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins. Spurningarnar vom
eigi að teljast þjóðareign.
Orkustofnun undirbýr nú áætlun
um rannsókn íslensku háhitasvæð-
anna og miðar við að hægt verði að
virkja á háhitasvæðum í byrjun
næstu aldar. Árið 2030 gæti raforku-
vinnsla frá jarðhita verið um fjórð-
ungur heildarraforkuframleiðsl-
unnar.
Iðnaðarráðherra telur nauðsynlegt
að gera átak í vatnsorkurannsókn-
um lífríki fjörunnar og grunnsævis-
ins, en einnig var spurt um húsdýr,
þ.e. heiti karlkyns, kvenkyns og af-
kvæmisins. Að sögn Einars Egils-
sonar, formanns félagsins, gátu
flestir sér rétt til um húsdýrin, en
spurningarnar um fjöruna, grunn-
sævið og lífríki þess vöfðust fyrir
mörgum. Sagði Einar góða þátttöku
hafa verið í getrauninni og hygðist
um á næstu árum til að ónógur und-
irbúningur tefji ekki áframhaldandi
nýtingu vatnsorkunnar á íslandi eft-
ir aö lokið er við álver á Keilisnesi.
Orkustofnun mun verja 36 milljón-
um til þessa átaks á þessu ári.
Á biaðamannafundi, sem iðnaðar-
ráðherra hélt til að kynna verkefni
sem iðnaðarráðuneytið er að vinna
að á sviði hagnýtingar orkulinda og
landgrunns, kom einnig fram að
hugsanlegt er að tífalda orkufram-
leiðsluna á næstu 40 árum og yrði
orkan þá bæði unnin úr vatnsorku
og jarðhita. Hreinar tekjur þjóðar-
búsins á orkusölu gætu numið 30-
40 milljörðum króna á ári á núver-
andi verðlagi þegar kemur fram á
síðari hlúta 21. aldar. -EÓ
félagið efna til hliðstæðrar uppá-
komu en með öðru sniði.
Sigríður Hallgrímsdóttir úr
Reykjavík hlaut fýrstu verðlaun, ís-
lensku alfræðiorðabókina frá Erni
og Örlygi. Önnur verðlaun var bókin
íslenskar fjörur og þau þriðju sjó-
ferð að eigin vali með Breiðafjarðar-
bátnum Hafrúnu.
-sbs.
Frá viðskiptaráðuneytlnu:
Aukið jafn-
rétti kynj-
anna í starfs-
liði ríkisbanka
Hinn 26. fébrúar sl. sendi Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra
bréf til bankaráða rikisbankanna
og mæltist tfl að gerð verði, í sam-
vinnu við Samband íslenskra
bankamanna, áætiun tfl að auka
hhit kvenna í stjómunar- og trún-
aðarstörfum innan Landsbanka
og Búnaðarbanka. Viðskiptaráð-
herra ræddi þessi mál við banka-
rað og bankastjómir beggja bank-
anna á nýafstöðnum ársfundum
þeirra. Undirtektir vom góðar.
Samband íslenskra bankamanna
hefúr fagnað þessu frumkvæði
wðskiptaráðherra og iýst vflja sm-
um til að leggja fram krafta sína
til stuðnings og samstarfs um að
koma fram þessu jafnréttismáU.
-sbs.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra kynnir verkefni ráðuneytisins:
Eyða verður óvissunni um
eignarrétt á orkulindum
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra telur afar brýnt að eyða þeirri
réttaróvissu sem nú ríkir um eignarrétt á orkulindum og verðmæt-
um jarðefnum á almenningum og í iðrum jarðar. Hann segir að
þessi óvissa geti hindrað rannsóknir og nýtingu auðiindanna. í vet-
ur fékk iðnaðarnefnd neðri deildar til meðferðar frumvarp til laga
um eignarrétt á orkulindum. Ekki var samstaða um málið í nefnd-
inni og fékk það þess vegna ekki afgreiðslu á síðasta þingi.
\