Tíminn - 12.04.1991, Page 4
4 Tíminn
Föstudagur 12. apríl 1991
Egyptar og Saudi-Arabar styðja svæðisbundna friðarráðstefnu:
Baker ræðir við
Sýrlandsforseta
James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur tekist að fá
stuðning Egypta og Saudi-Araba við svæðisbundna fríðarráðstefnu
um Miðausturlönd. Hann fór til Sýrlands í gær en þarlend stjóm-
völd hafa lýst yfir að þau vilji alþjóðlega fríðarráðstefnu og forsenda
fríðar sé að ísraelsmenn farí frá herteknu svæðunum.
Svæðisbundin friðarráðstefna úti-
lokar aðild nokkurra ríkja, s.s. Bret-
lands, Frakklands og Kína, sem
mundu annars taka þátt ef um alþjóð-
lega friðarráðstefnu væri að ræða. Sþ.
mundu heldur ekki taka þátt í svæðis-
bundinni friðarráðstefnu en fsraels-
menn telja að Sþ. taki málstað Palest-
ínuaraba. Sýrlendingar óttast hins
vegar að ef Sþ. verði ekki með verði
ályktanir samtakanna um brottför
ísraelsmanna frá herteknu svæðun-
um sniðgengnar.
En Baker þarf að gera meira en að
sannfæra Sýrlendinga. fsraelsmenn,
sem hafa samþykkt svæðisbundna
ffiðarráðstefnu, vilja ekki að Frelsis-
samtök Palestínu (PLO) taki þátt í
friðarráðstefnunni, hvorki á beinan
né óbeinan hátt. Palestínuarabar telja
hins vegar þátttöku PLO frumskilyrði
til að af einhverri ráðstefnu geti orðið.
Baker hefur farið þess á leit við ísra-
elsk stjórnvöld að þau stöðvi landnám
gyðinga á herteknu svæðunum en
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, sagði á miðvikudaginn að
landnám gyðinga á herteknu svæð-
unum komi friðarviðræðunum ekk-
ert við. Með þeim ummælum gaf
hann í skyn að ísraelsmenn mundu
ekki gefa herteknu svæðin eftir til að
tryggja frið.
Reuter-SÞJ
James Baker,
Bandaríkjanna.
utanríkisráðherra
Fullbúin hjólhýsi á tjaldvagnaverði
Sýnum Predom hjólhýsin og kerrumar laugardaginn 13. apríl kl.
10,00-16,00. Höfum fengið takmarkað magn afþessum sívinsælu hjól-
hýsum og kerrum sem selst hafa upp á skömmum tíma undanfarin ár.
Komið og kynnið ykkur þær nýjungar sem í boði eru og tryggið ykkur
hús eða kerru í tíma.
Innifalið ■ verði húsanna: Svefnpláss fyrir 2-4, tveggja hellna
gaseldavél, vaskur og vatnskútur m/rafmagnsdælu, inniljós, fataskáp-
ur, 1-2 borð, salemisaðstaða, gardínur fyrir öllum gluggum, tvöfaldar
rúður, stórt fortjald, sóllúga, burðarkassi fyrir gaskút og rafgeymi,
sjálfvirkar bremsur, stuðningstjakkar á öllum homum og mjög öflug
grind fyrir íslenskar aðstæður.
Allt þetta á verði frá kr. 370,000,- . Hver býður betur?
Predom hjólhýsi og kerrur
Vélar & þjónusta
Járnhálsi 2 ' Sími 83266
Ítalía:
139 FARÞEGAR LÁTA LÍFIÐ
BÆNDASKOLINN HOLUM I HJALTAOAL
STÚDENTAR — STÚDENTAR
Brautarskipt búfræðinám:
Bleikjueldi — Laxeldi — Eldi sjávarfiska — Vatnavistfræði —
Ræktun fisks í ám og vötnum — Hrossarækt — Tamningar —
Reiðmennska — Almenn búljárrækt — Sauðfjárrækt — Naut-
gríparækt
Valgreinar m.a.:
Skógrækt
Heimilisfræöi
Tölvunotkun
Sportveiöi
Garörækt
Rekstur smáfyrirtækja
Inntaka í vor, verknám í sumar, námslok næsta vor.
Góðrar starfsreynslu og færni krafist.
Takmarkaður nemendafjöldi. Umsóknarfrestur til 1. maí.
Umsóknarfrestur um 2ja ára búfræðinám til 10. júní.
Snjall leikurtil undirbúnings háskólanáms.
Hringið og fáið upplýsingar.
HÓLASKÓLI
Hólum í Hjaltadal. Sími 95-35962.
STÁLGRINDARHÚS
í Ólafsvík
Fiskveiðasjóður Islands auglýsir til sölu einlyft stál-
grindarhús, að Ennisbraut 36, Ólafsvík, ca. 335 m2.
Húsið selst í því ástandi sem það er nú í.
Tilboð óskast send á skrifstofu sjóðsins, Suðurlands-
braut 4, Reykjavík, fyrir 22. apríl nk.
Nánari upplýsingar veittar í síma 679100.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Fiskveiðasjóður íslands
Suðurlandsbraut 4 • 155 Reykjavík
ítölsk farþegafeija sigldi á ítalskt
rísaolfuskip skammt undan vestur-
strönd Ítalíu í fyrrinótt með þeim af-
leiðingum að 139 manns af þeim
140 sem voru í ferjunni Iétust. Feij-
an reif gat á síðu olíuskipsins og
neistamir sem urðu við áreksturinn
kveiktu í olíunni og ferjan varð alelda
á skömmum tíma. Áhöfn olíuskips-
ins sakaði ekki enda var olíuskipið
tæp 100 þúsund tonn en ferjan var
rúm 6 þúsund tonn.
Ferjan, sem heitir Moby Prince, var í
áætlunarsiglingu til eyjunnar Sardin-
íu frá bænum Livomo sem er rétt hjá
borginni Pisa á vesturströnd Ítalíu.
Mjög mikil þoka var á þessum tíma og
skyggnið var ekki nema fjórir til
fimm metrar að sögn hafnaryfirvalda
í Livomo. Einn maður úr áhöfninni
komst lífs af og sagði hann að margir
um borð hefðu verið að horfa á beina
útsendingu frá knattspymuleik milli
Barcelona og Juventus. Risaolíuskip-
ið sem ferjan keyrði á heitir Agip
Abmzzo og lá við ankeri rétt fyrir ut-
an höfnina í Livomo en það beið þess
að afferma um 82 þúsund tonn af ol-
íu. Skipið er í 21 hólfum og rann olía
úr einu þeirra við áreksturinn. Á olíu-
skipinu er 36 manna áhöfn og reyndi
hún í fyrstu að slökkva eldinn en réð
ekki við neitt svo hún forðaði sér
fljótlega í björgunarbát.
Óvenjufáir vom um borð í ferjunni.
Sextíu og átta manna áhöfn og sjötíu
og tveir farþegar. Um sumartímann
er ferjan oft fúll og geta þá verið allt
að fimmtán hundmð manns um
borð. Reuter-SÞJ
Geimferðir:
ÞRJATIU AR FRA
FERD GAGARÍNS
í dag eru nákvæmlega þrjátíu ár ferð enda hefur honum gefist lítill
síðan Sovétmaðurinn Júrí Gagarín
komst út í geiminn. Ferð hans, 12.
apríl 1961, markaði mikil tímamót
í sögu mannkynsins en hann var
fyrsti maðurinn sem afrekaði það
að komast út fyrir lofthjúpinn.
Hann var aðeins rúma eina
klukkustund í geimnum og flaug
einn hring í kringum jörðina.
Þetta var fyrst og fremst söguleg
tími til rannsókna.
Gagarín varð strax heimsfrægur
og fyrstu árin eftir geimferðina
vann hann sem nokkurs konar
andlit sovésks hátækniiðnaðar en
sneri sér síðan aftur að fluginu.
Hann lést í flugslysi árið 1968 þeg-
ar hann var að undirbúa sig undir
aðra geimferð.
Mikhail Chemyshov - SÞJ
Fréttayfirlit
Damascus - Talsmenn upp-
reisnarmanna Kúrda sögöu aö
fraskl stjómarherinn hefði ( gær
ráölst á svæði sem væru undir
stjóm uppreisnarmanna í norð-
urhéruðunum og heföi stjómar-
herínn beHt stórskotaliði, skrið-
drekum og þyrium í árásinni.
Tehran - Mjög mikið er um
jarösprengjur við landamæri ír-
aks og Tyrklands og íraks og ír-
ans. Margir flóttamenn hafa
særst eða látist eftir að hafa stig-
iðáslíkarsprengjur.
Genf - Yfirmaður flóttamanna-
nefndar Sameinuöu þjóöanna i
Genf sagði i gær að hjálparsam-
tök Sþ. þyrftu aðstoö sem næmí
rúmum 20 milljöröum króna á
næstu þremur mánuðum ef tak-
ast ætti að veita Kúrdum sæmi-
iega aðstoð.
NikÓSÍa - Heilbrigðismálaráð-
herra fraks sagði i gær að upp-
relsnarmenn hefðu eyðilagt eða
stolið lyfjum og læknistækjum að
jafnviröi 320 milljóna dollara. Er-
lendir læknar sem hafa kynnt sér
ástandið í irak segja að farsóttir
eigi eftir aö gjósa upp í landinu.
Damascus - James Baker, ut-
anríkisráðhema Bandaríkjanna,
fór fra Egyptalandi til Sýrlands í
gær. Egypsk stjómvöld sam-
þykktu með fýrirvara svæðis-
bundna friðarráðstefnu um Mið-
austuríönd. Sýríensk stjómvöld
lýstu yfir áður en Baker kom tíl
landsins aö ísraelsmenn yrðu að
fara að ályktunum Sþ. um að
skila aftur herteknu svæðunum.
Livomo, Ítalíu - itölsk áætiun-
arferja keyrði á ítalskt risaolíu-
skip sem lá við ankeri réttfyrír ut-
an höfríina f Livomo í gær. Olía
lak úr olíuskipínu og kviknaði f
henni og feijan varö alelda á
skömmum tíma. 139 manns af
140 sem voru í féijunni létust en
áhöfn olíuskipsins sakaði ekki.
Genúa, Ítalíu - Sprenging
varð (gær i tæplega 110 þúsund
tonna kýpversku risaotíuskipi
skammt norövestur af ftölsku
borginni Genúa. A.m.k. þrír létu
lifió.
Lome - Talsverðar óeirðir hafa
geisað í Lome, höfuðborg vest-
urafríkuríkisins Togo. Talið er að
allt aö 20 manns hafi látist (átök-
um mótmælenda við her og lög-
reglu en fólkið krefst aukins iýð-
ræóis.
Moskva - Verkamenn í Minsk,
höfuöborg Hvíta Rússlands,
hófti störf að nýju i gær en leið-
togar verkamannanna aflýstu
verkfallínu eftir að leiðtogar lýð-
veldisins samþykktu að ræða við
þá um efnahags- og stjómmála-
kröfur þeirra. Viðræðumar he§-
ast í dag.
Jerúsaiem - u.þ.b. miiijón sov-
éskra gyðinga, sem fengið hafa
leyfi til að flytjast búféríum tíl
(sraels, hafá frestað för sinni
þangað vegna miklls atvinnu-
leysis f landinu, að sögn ísra-
elsks embættismanns.
Bliíssel - Helstu yfirmenn Atl-
antshafsbandalagsíns (NATO)
hófti í gær tveggja daga fund um
framtiðarhlutverk bandalagsins.
Edwardsflugstöðin, Kali-
fomíu - Geimfeijan Atíantís
lenti í gær á Edwardsflugvellin-
um í Kaiifomíu eftir sex daga
leiðangur. Hún áttí að lenda i
gær en fresta varð lendingunni
vegna mikflla vinda
Reuter-SÞJ