Tíminn - 12.04.1991, Side 5
Föstudagur 12. apríl 1991
Tíminn 5
Jón Baldvin kynnir nýjar reglur um saltfiskútflutning:
Stígur skref í átt til
afnáms einkaréttar SÍF
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hefur stigið fyrsta
skrefið í að afnema einokun SÍF á saltfiskútflutningi. Útflutningur
til Ameríku er gefínn frjáls og settur undir nýjar reglur. SÍF heldur
hins vegar einkarétti sínum á útflutningi til Evrópu þangað til sam-
ið hefur veríð um evrópska efnahagssvæðið.
í Suður- og Mið-Ameríku eru stórir áratugi hafa íslendingar lítið sem
markaðir fyrir saltfisk. Þangað eru ekkert flutt þangað, en látið Kanada-
seld um 45.000 tonn á ári. Síðustu mönnum og Norðmönnum markað-
inn eftir. Verðið hefur verið lágt, mun
lægra en í Evrópu. Það fer hækkandi.
Jón Baldvin Hannibalsson hefúr ít-
rekað iýst þeim ásetningi sínum að
afnema einkaleyfi SÍF á saltfiskút-
flutningi. Krafa tímans sé frelsi í við-
skiptum. Hann er hins vegar ekki bú-
inn til að afnema einkarétt SÍF á Evr-
ópumarkaði, fyrr en samningum um
evrópska efnahagssvæðið hefur verið
siglt í höfn. Með því að gefa útflutn-
ing til Ameríku frjálsan, fá menn tíma
til að búa sig undir að keppa á Evr-
ópumarkaðnum.
Til að fá leyfi til að flytja út saltfisk
þurfa menn þó, sem fyrr, að uppfylla
ströng skilyrði. Útflytjanda ber að
leggja fram skriflegan samning við þá
sem framleiða fyrir hann, starfsleyfi
og heilbrigðisvottorð vinnslustöðva.
Útflytjandi og framleiðendur hans
skuíu vera skuldlausir við aðra útflytj-
endur. Heimilt er að setja lágmarks-
mörk eiginfjárstöðu sem almennt
skilyrði fyrir leyfisveitingu. Söluverð
og söluskilmálar eru háðir samþykki
utanríkisráðuneytisins. -aá.
Þórður Guðjohnsen, Ránargötu 6 í
Reykjavík, hefur kært Sigrúnu Magn-
úsdóttur, borgarfulltrúa Framsókn-
arflokksins, til borgarráðs vegna kjör-
skrár. í kærubréfinu segir að þar sem
Sigrún sé gift Páli Péturssyni, alþing-
ismanni og bónda á Höllustöðum í
Húnavatnssýslu, beri henni sam-
kvæmt íslenskum lögum að eiga lög-
heimili á sama stað og Páll.
Sigrún og Páll gengu í hjónaband
síðastliðið sumar. Nokkmm mánuð-
um áður höfðu þau fengið úrskurð
frá Hagstofu íslands um að þeim væri
heimilt að halda óbreyttum lögheim-
ilum. Hagstofan byggði þennan úr-
skurð á þeirri forsendu að lögum
samkvæmt er alþingismönnum
heimilt að hafa lögheimili sitt skráð
annars staðar en í Reykjavík. Lang-
legusjúklingar, fangar og alþingis-
menn falla undir ákvæði þessa efnis.
Það em fordæmi fyrir því að hjón
hafi ekki sama lögheimili. Námsfólk
sem fer til náms í öðm landi eða öðr-
um landshluta en skilur maka sinn
eftir, hefur heimild til að skrá lög-
heimili sitt í sitt hvom lagi. Kæran,
sem verður tekin fyrir í borgarráði í
dag, fjallar um að Sigrún sé ekki lög-
leg á kjörskrá. Engar líkur em á að
hún verði tekin til greina vegna þess
að kæmfrestur rann út 1. mars. Hall-
grímur Snorrason hagstofustjóri
sagðist telja engan vafa leika á að Sig-
rún væri rétt skráð í kjörskrá.
Ef Sigrún skráir lögheimili sitt á
Höllustöðum verður hún að hætta
sem borgarfulltrúi. Páll getur aftur á
móti flutt lögheimili sitt til Reykja-
víkur án þess að hætta þingmennsku
fyrir sitt kjördæmi. Páll segist hins
vegar hafa löngun til að búa áfram í
kjördæminu innan um sína umbjóð-
endur, en hann hefur alla tíð átt
heima á Höllustöðum.
„Mér finnst verra að fjölskylda
manns skuli vera dregin inn í kosn-
ingabaráttuna með þessum hætti,“
sagði Páll þegar hann var spurður
álits á kæmnni. Hann sagðist telja
kæmna til þess gerða að skaða þau
hjón pólitískt og vera mnna undan
rifjum eins af varaborgarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins, en hann hefði í
vetur hótað kjörskrárkæm vegna Sig-
rúnar.
„Mér þætti að sjálfsögðu gott að fá
Sigrúnu hingað norður til að kjósa
mig, en ég vil ekki að það verði til að
svipta hana rétti til að vera borgarfúll-
trúi,“ sagði Páll.
Sigrún Magnúsdóttir sagði að hún
hefði Iöngun til að halda áfram því
starfi sem hún hefði verið að vinna í
borgarstjóm Reykjavíkur og myndi
ekki láta hrekja sig þaðan. Hún sagði
að sér þætti miður ef draga ætti
einkalíf stjórnmálamanna inn í kosn-
ingabaráttuna. Sigrún sagði að þetta
mál hefði þegar valdið sér og sinni
fjölskyldu óþægindum.
Sigrún sagði að þetta mál sýndi að
fjölskyldan og hjónabandið stæði að
ýmsu leyti höllum fæti í samfélaginu.
Fólk vildi jafnvel ekki gifta sig vegna
þess að það teldi sig tapa réttindum
við það. „Við Páll hefðum getað forð-
ast þessi óþægindi með því að gifta
okkur ekki. Við vildum hins vegar
gifta okkur. Sú ákvörðun veldur því
að við eigum nú í erfiðleikum með að
gegna þeim störfum sem við emm
kosin til að gegna.“ Sigrún benti á að
hægt hefði verið að kippa algjörlega
gmndvelli undan kæmnni ef þau Páll
skildu af borð og sæng, en byggju
saman án lögskilnaðar.
Þórður Guðjohnsen sagði í samtali
við Tímann að hann vildi með kær-
unni vekja athygli á því að það væm
ekki allir jafnir fyrir lögunum. Kunn-
ingi sinn hefði farið að vinna úti á
landi og hefði neyðst til að flytja lög-
heimili sitt frá Reykjavík. Fyrir fáum
dögum hefði annar kunningi sinn
vakið athygli hans á því að Sigrún
Magnúsdóttir hefði ekki þurft að flytja
lögheimili sitt þrátt fyrir að henni
bæri að gera það lögum samkvæmt.
Þórður vildi ekki nafngreina þennan
kunningja sinn.
Þórður tók fram að honum væri á
engan hátt í nöp við Sigrúnu eða Pál,
en hann vildi að allir væm jafnir fyrir
lögunum. Hann tók jafhframt fram
að þetta mál tengdist á engan hátt
þeirri kosningabaráttu sem nú stend-
ur yfir. Þórður kom sér undan að
svara því hvort hann myndi halda
þessu máli áfram ef borgarráð hafnaði
kröfu hans.
Mál þetta verður tekið fyrir í borgar-
ráði í dag. Þar situr Sigrún sem vara-
maður Sigurjóns Péturssonar, en
hann er erlendis. Sigrún mun ekki
sitja fundinn þegar þetta mál kemur á
dagskrá og þess vegna munu einung-
is sjálfstæðismenn taka afstöðu til
þess. -EÓ
Páll Pétursson og Sigrún Magnúsdótta'r
:j:j:j:j- .yx.
•;j:j:: .</ ’ *" :j:j:j:j:j
Gífurligtúrvat/Verð fré 100 kr.til 400
Leikhúsið
til sýnis
A laugardaginn milli klukkan
14 og 17 verður Þjóðleikhúsið
opið almenningi. Þar gefst
mönnum kostur á að skoða þær
breytingar sem gerðar hafa verið
á húsinu.
Starfsmenn leikhússins munu
taka á móti gestum og skýra
breytingar og lagfæringar. Einn-
ig gefur að líta.sýningu á teikn-
ingum húsameistara ríkisins
vegna seinni áfanga fram-
kvæmda við húsið. -sbs.
Reynt að kæra Sigrúnu Magnúsdóttur borgarfulltrúa út
af kjörskrá í Reykjavík. Páll Pétursson, alþingismaður:
„Verið er að draga
fjölskyldu mína inn í
kosningabaráttuna“