Tíminn - 12.04.1991, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Föstudagur 12. apríl 1991
Tíminn
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin (Reykjavlk
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason
Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Glslason
Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson v
Stefán Ásgrlmsson
Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason
SkrífstofurLyngháls 9,110 Reykjavlk. Slml: 686300.
Auglýslngasfml: 680001. Kvöldsfmar Áskrift og dreifing 686300,
rítstjóm, fréttastjórar 686306, fþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setnlng og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Oddi hf.
Mánaöaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um
helgar. Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Hreinskilni Sveins Andra
Einn af dyggustu stuðningsmönnum Davíðs Odds-
sonar, Sveinn Andri Sveinsson borgarfulltrúi, iýsir í
blaðagrein hrifningu sinni á þeirri hugsjón flokksfor-
mannsins að ísland verði komið í Evrópubandalagið
árið 2000.
Sveinn Andri tekur aldamótaspá Sjálfstæðisflokks-
ins alvarlega sem von er. Af máli hans er ljóst að hann
telur hamingju íslendinga komna undir aðild að Evr-
ópubandalaginu. Andstöðu gegn slíkri fyrirætlun
kallar borgarfulltrúinn framsóknarmennsku og vísar
þá til samþykktar flokksþings Framsóknarflokksins,
þar sem hafnað er skilyrðislaust hugmyndinni um
aðild að EB.
Þessi dyggi samherji Davíðs Oddssonar lýsir viðhorf-
um sínum þannig:
,Andstæðingar Evrópubandalagsins hafa einkum
beitt tveimur röksemdum gegn aðild. Annars vegar
komi ekki til greina að hleypa erlendum ríkjum inn í
fiskveiðilögsögu landsins og hins vegar sé ekki unnt
að fallast á það að íslendingar séu settir undir eitt-
hvert yfirþjóðlegt vald.“
En þessum röksemdum afneitar forystumaður
ungra sjálfstæðismanna m.a. á eftirfarandi hátt:
,Að mínu mati er síðara atriðið dæmigert fyrir kot-
ungshátt framsóknarmanna... Menn skyldu hafa í
huga eðli bandalagsins og markmið Rómarsáttmál-
ans. Til að styrkja Evrópu sem eina heild markaðslega
og auka hagvöxt í aðildarríkjunum eru allar við-
skiptalegar hindranir milli landanna fjarlægðar og
svæðið gert að einu markaðssvæði... stofnanir banda-
lagsins verða að vera sterkar til að tryggja framgang
markaðarins og tilgang Rómarsáttmálans... Andstaða
við yfirþjóðlegar stofnanir er í raun andstaða við
frelsið fjórþætta.“
Eftir þennan lofsöng um ágæti Rómarsáttmálans er
varla við öðru að búast en að lokaorð Sveins Andra
verði eftirfarandi: „Það er þ>ví ljóst að með aðild að
Evrópubandalaginu tækju Islendingar stórt skref inn
í nýja öld frjálsræðis og framfara. Það sem meira er,
aðild að Evrójiubandalaginu yrði banabiti framsókn-
armennsku á íslandi.“
Þessi grein Sveins Andra Sveinssonar, hins nána
samstarfsmanns Davíðs Oddssonar, lýsir skilmerki-
lega viðhorfum forystumanna Sjálfstæðisflokksins í
Evrópumálum. Hún er rétt túlkun á þeim tilfinning-
um, sem liggja til grundvallar hugsjóninni í alda-
mótaspá flokksins um að ísland verði aðili að Evrópu-
bandalaginu eftir 8-9 ár héðan í frá.
E.t.v. er ekki ástæða til að láta sér blöskra málflutn-
ingur Sveins Andra, allt eins mætti þakka honum
hreinskilnina. Hins vegar er grein borgarfulltrúans
áminning um að vara þjóðina við óhreinskilni Davíðs
Oddssonar í þessum málum í kosningabaráttunni.
Hann hefur að vísu sýnt sig að vera heldur slappur í
landsmálunum almennt, en fólk ætti að varast að
taka það sem sinnaskipti, þótt forysta íhaldsins sé af-
slepp og óhreinskilin í Evrópumálunum.
Sjálfstæðisflokkurinn stefnir að aðild að Evrópu-
bandalaginu. Um það vitnar m.a. grein Sveins Andra
Sveinssonar borgarfulltrúa.
ca » * * * m a *•. * * m f*. » e."rr n. g; e. «•' n n a \ ’i. i \ n *
Undarlegur felnlelkur hefur ein-
kennt }>að seœ af er þessarj kosn-
ingabaríftu, vegna þess að Sjálf-
stœóisflokkurlnn hefur neltað aó
væri sérstakur gestur f gamal-
kunnum þætti í ríkisútvarpinu,
„Kvöldstund f dúr og moll".
Þorsteini Pálssyni og Eggert
Nú er komið upp annað dæmi
um útrúlega pðiitíska lágkúru,
sem rök benda tfl að sé ættuð frá
einum varaborgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. Það erkrafa sem
komin er fram um að
að dæma, munu þeir ekki fá að
eiga kvöldslund með formanni
Sigrún er gift Páli Péturssyni
að góðgerðarstarfsemi. Auglýsing
um fund, sem Ðavíð hyggst halda
annað kvðld á Hútel Selfossi og
birtist í Morgunblaðinu í gær,
styður þessa kenningu. Þar er
ekki talað um að formaður Sjálf-
stæðisflokksins verði með al-
mennan stjómmáiafund vegna
komandi kosninga, eins og tíðkast
hjá formðnnum hinna stjóm-
málaflokkanna. Aldeiiis ekki. í
Morgunblaðinu er auglýst svona:
„Kvöldstund með Davíð Odds-
syni“. Ef ekki væri fyrir títið x-D í
homi auglýsingarinnar hefði mátt
halda að verið væri að auglýsa að
formaður Sjálfstæðisfiokksins
mannanna.
„Frétt“ í Frjálsri verslun á dög-
unum um að Steingrfrour Her-
mannsson forsætisráðherra hygð-
ist hætta i pólitfk strax að lokóum
kosningum er dæmi um þennan
undirróður. Geflð var í skyn að
Steingrimur væri aö afla flokki
sínum fylgis á fölskum forsend-
um. Steingrímur hefur bent á
og leyflsveitlttg Hagstofunnar er
dregfu í efa, og tilgangurinn vírð-
tagi, en það eru aðferðir kenndar
við Nixou, fyrrum Bandaríkjafor-
seta, en aðferðin er einfaldlega sú
að fá fúik tii að efast um heiiindi
manna með því að bera þá sökum
ieg fyrir það eitt að gifta sig og fá
innsigli þjóðkirkjunnar á sam-
band sitt, frekar en að búa saman
í synd, eins og sagt er.
Garri á erfitt með að trúa því að
Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur
standi að baki þessum undhróðri,
en hitt vlrðist Ijóst að f heríbúðum
hans eru aðflar sem telja að lág-
kúruleg pólitísk barátta sé betri en
cngin barátta.
VÍTT OG BREITT
Formyrkvun og ríki lióssins
Séra Árni Þórarinsson stóð í
ströngu að verja sóknarbörn sín
fyrir ásókn nýguðfræðinnar, Bran-
desaröldunnar og öðrum lymsku-
fullum klækjum og gildrum sem
sá í neðra lagði fyrir villuráfandi
sauði sem einatt áttu erfitt með að
greina á milli ríkis ljóssins og ríkis
myrkursins. Til að sýna hve lúmsk-
ur og undirförull kölski er, sagði
séra Árni eftirfarandi sögu, og þarf
ekki að taka fram að hún er alveg
sönn.
í árdaga þegar jörðin var ein-
göngu byggð guðsbörnum, sem
lifðu í sátt og samlyndi í ríki ljóss-
ins, var kölski þungt hugsi vegna
þess að hann fann hvergi leiðir ti!
að ná tökum á því fagra manniífi
sem þar þróaðist.
Þá hugkvæmdist honum að senda
þrjá klókustu púka sína til að
vinna mennina til fylgis við sig.
Þeir fóru um byggðir og kenndu
nýjar dyggðir.
Þegar sá fyrsti snéri til baka
spurði höfðingi myrkursins hvert
erindi hans hefði verið við menn-
ina.
„Ég kenndi þeim að stela,“ sagði
púkinn.
„Vel gerðir þú,“ sagði kölski, og
gakk til fögnuðar í ríki mínu.
Þegar næsti sendiherra kom
spurði kölski hins sama.
„Ég kenndi mönnunum að ljúga,“
svaraði sendipúki hróðugur.
„Enn betur gerðir þú en félagi
þinn sem á undan kom. Hér eftir
munt þú njóta allrar virðingar í
ríki mínu.“
Þegar þriðji árinn kom úr mann-
heimum gekk hann á fund kölska
til að tíunda afrek sín.
„Hvað gast þú svo sem kennt
mönnunum, rýjan mín?“ sagði
Satan, því hann gat ekki ímyndað
sér að hann gæti tekið hinum fyrri
fram í klókskap og kennt mönnun-
um þarfari ódyggðir en þeir.
„Ég sagði þeim að þú værir ekki
til,“ svaraði skrattakollur sá er síð-
astur kom.
Þegar djöfullinn hafði náð sér eft-
|^j
Jón Baldvln Stelngrímur
ir fögnuðinn sem greip hann,
sagði hann:
„Þú hefur gert betur en báðir
púkarnir til samans sem á undan
þér komu, og mun ég setja þig hið
næsta mér og skalt þú virður af
öllum í ríki mínu.“
Er aukaaðild til?
í öllum þeim könnunar- og samn-
ingaviðræðum sem íslendingar
hafa tekið þátt í vegna afstöðu til
Evrópubandalagsins hefúr því ver-
ið haldið til streitu að aukaaðild að
EB sé ekki til. Því sé tómt mál að
tala um að þótt íslendingar taki
þátt í stofnun evrópsks efnahags-
svæðis með EFTA og Evrópu-
bandalagsríkjum, sé alls ekki um
að ræða neins konar aðild að sjálfu
EB.
Jón Baldvin utanríkisráðherra
hefur lýst þessu svo oft yfir að eng-
in ástæða er til að tíunda það. Síð-
ast í gær endurtók hann þetta í
nokkrum blöðum og m.a. í Tíman-
um í opnu bréfi til Steingríms
Hermannssonar, þar sem hann
mótmælir þeirri skoðun forsætis-
ráðherra að aðild aö EB sé kosn-
ingamál. í bréfi utanríkisráðherra
segir: „Við höfum útskýrt það
vandlega að aðild að evrópska efna-
hagssvæðinu sé alls óskyld aðild að
Evrópubandalaginu. Að í þessum
samningum felist ekkert framsal á
löggjafarvaldi Alþingis né fram-
kvæmdavaldi ríkisstjórnar í hend-
ur samþjóðlegu valdi.“
Frekari vitna þarf ekki við.
Um hvað er samið?
Dr. Gunnar Helgi Kristinsson,
lektor í stjórnmálafræði, hefur
kynnt sér EB vandlega, skrifað bók
um samtökin, fjölda greina og er
ráðgjafi um þau málefni. f gær
hrekur hann í Moggagrein þá
skoðun eða misskilning Jóns Bald-
vins að ekkert sé til sem heiti auka-
aðild að EB.
Dr. Gunnar bendir á að tiltekin
grein Rómarsáttmálans geri ráð
fyrir aukaaðild. Og sérfræðingur-
inn um Evrópubandalagið kveður
enn sterkara að orði þegar hann
segir, að það sé einmitt þessi grein
sem er grundvöllur samningavið-
ræðna um evrópska efnahags-
svæðið og er niðurstaða hans ein-
föld:
,Aukaaðild er til og íslendingar
eru nú að semja um slíka aðild.“
Hér stendur staðhæfing á móti
staðhæfingu og á þjóðin heimt-
ingu á að fá að vita hvað evrópska
efnahagssvæðið er og hvort það er
yfirleitt til nema sem orðaleppur,
sem þýðir aukaaðild að EB, og
hvort aukaaðild að EB sé raun-
veruleg eða óraunveruleg.
Ef ekki er hægt að gefa skýr og
skiljanleg svör við grundvallar-
spurningum um hvort ísland er að
ganga inn í EB eða ekki, verður að
álíta að þeir sem eru að fjalla um
þessi mál fyrir hönd þjóðarinnar
skilji ekki sjálfir hvað þeir eru að
gera.
Ef verið er að ljúga því að evr-
ópska efnahagssvæðið sé ekki
aukaaðild að Evrópubandalaginu,
vegna þess að aukaaðild er ekki
til, verður að leggja þau spil á
borðið.
Ef dr. Gunnar Helgi hefur aftur á
móti rangt fyrir sér, verður það
líka að koma í ljós á óyggjandi
hátt.
Hér er á ferðinni svo hrikalegur
misskilningur á annan hvorn veg-
inn að öll undanbrögð eru ósæmi-
leg.
Er evrópska efnahagssvæðið
aukaaðild að EB eða ekki og er
aukaaðild til eða er hún ekki til?
OÓ