Tíminn - 12.04.1991, Síða 13
Föstudagur 12. apríl 1991
Tíminn
ffffl Tilkynning frá
I S | Bílastæðasjóði
'I' Reykjavíkur
Samkvæmt ákvörðun borgarráðs frá 15. janúar
er gjaldskylda í stöðumæla frá kl. 10.00 til 16.00,
mánud.-föstud. til nk. áramóta. Sama gildir um
númeruð stæði, þar sem fjölmælar eru.
Tímamörk eru hins vegar óbreytt í bílageymslu-
húsum, Bakkastæði og Tjarnargötustæði.
Gatnamálastjóri.
Sumarhjólbarðar
Hágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
Á lágu verði.
Mjög mjúkir
og sterkir.
Hraðar
hjólbarðaskiptingar.
Barðinn h.f., Skútuvogi 2
Sími: 30501 og 84844
Bændur
Tvöfaldir plastvaskar á
löppum kr. 15.280,-
með botnstykki, tilvaldir
í mjólkurhúsin. Einnig
járn í grindur undir
skepnur 1,6x1,6 sm.
Þakstál á 800 kr. m2 og
margt fleira.
LINDIN H/F BÍLDSHÖFÐA 18
Sími 82422 (Gunnar)
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Traustir hlekkir
I sveiganlegri keðju
hringinn í kringuin landið
Bflaleiga nieö útibú
allt í kringum landiö,
gera þér möguiegt að leigja bíl
á cinum staö
og skita honum á öðrum.
Nvjustu
MITSUBISHI
bílarnir alltaf til taks
-rr
Reykjavík: 91-686915
Akurejri: 96-21715
Borgarnes: 93-71618
ísafjörður: 94-3574
Blönduós: 95-24350
Sauðárkrókur: 95-35828
Egilsstaðir: 97-11623
Vopnafjöröur: 97-31145
Höfn í Hornaf.: 97-81303
ÓDÝRIR
HELGARPAKKAR
George Harrison og Olivia
ættleiða rúmenskan dreng
Oliviu Harrison rann svo til rifla aðbúnaður rúmenskra bama á mun-
aðarieysingjahælum að hún ákvað að gera eitthvað í málinu. Og
hún hefur látið hendur standa fram úr ermum síðan, með dyggum
stuðningi manns síns.
Oiivia Harrison, kona bítilsins
George, fór til Rúmeníu
skömmu eftir aö landið opnaðist
til að kynna sér aðbúnað rúm-
enskra bama og er skemmst frá
því að segja að hún varð svo mið-
ur sín vegna þess sem hún sá að
hún hefur síðan verið önnum
kafin við að vekja athygli á hög-
um þessara bama og safna fé til
að bæta hag þeirra.
En Olivia sýnir líka hug sinn í
þessum málum á nærtækari hátt.
Hún og maður hennar eru nú
sögð hafa ákveðið að ættleiða sjö
ára gamlan rúmenskan, heyrnar-
lausan dreng, Vasile Gamman, og
ala hann upp á heimili sínu, Friar
Park í Henley-on Thames. Þau
trúa nefnilega því að ást sé allra
meina bót og Vasile hefur svo
sannarlega farið á mis við ást sína
stuttu ævi.
Vasile hefur flækst frá einu
munaðarleysingjahælinu á annað
frá fæðingu þegar bláfátæk móðir
hans neyddist til að skilja hann
eftir þar sem hann var kominn.
Hún á tvö önnur börn, 5 ára dótt-
ur og 11 ára son, og er sögð hafa
fallist á ættleiðinguna, sem Olivia
og George eiga að hafa sótt um í
Cimpina, þar sem Vasiie var í 3 ár
á einu hælinu.
Góðgerðafélagið Áskorun vegna
rúmenskra barna, sem Olivia er
hvatamanneskja að og í forsvari
fyrir, var stofnað í aprfl í fyrra.
Hún var ekki ein að verki því að
til liðs við sig fékk hún konur
hinna bítlanna, Lindu McCartn-
ey, Yoko Ono og Barböru Bach —
auk Eltons John. Markmið félags-
ins er að endurbæta munaðar-
leysingjahælin í Rúmeníu og þau
leggja öll hönd á plóg til fjáröfl-
unar.
Olivia varð skelfingu lostin þeg-
ar hún sá með eigin augum
hvernig farið var með þessa varn-
arlausu einstaklinga í ríki Ceaus-
escus og segir að það sem fyrir
augu bar hafi verið sambland „af
brotum úr hryllingssögu og yfir-
gefnum foreldraleysingjum".
„Ég er móðir og húsmóðir fyrst
og fremst og það var hörmulegt
að sjá þaö sem er að gerast í
Rúmeníu. Það er hræðilegt að sjá
að þjáningar geta rist svo djúpt,
að mannlegt afskiptaleysi geti
náð svo langt. Þessi börn hafa
enga hugmynd um hvar þau eru.
Ég vildi að hvert einasta þeirra
eignaðist fjölskyldu," segir Olivia.
Þegar Vasile kemur til Bretlands
eignast hann líka bróður, Dhani,
12 ára son þeirra Oliviu og Ge-
orges.
Vasile Gamman hefur komið til Bretlands áður og er sjónvarpsáhorfendum þar vel kunnur. Hann kom
þangað fýrir ári til að vekja athygli á vanræktum rúmenskum munaðarieysingjum og vann hjörtu allra
þeirra sem sáu hann og heyrðu.