Tíminn - 12.04.1991, Side 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
c
Jl
NUTIMA FLUTNINGAR
Hatnarhusinu v Tryggvagotu,
S 28822
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
POSTFAX
91-68-76-91
HÖGG-
DEYFAR
íl Verslió hjá fagmönnum
Hamarsböfða 1 - s. 67-67-44
Tíiiiiiiu
Jóhannes Nordal, formaöur Lands- virkjunar og álviöræðunefndar:
Pe r safl lóastr íð ið
tef u ir el kki ler 19 ur
fyrir álmálinu
Jóhannes Nordal, formaður álviðræðunefndar, sagði í samtali
við Tímann að efnahagslíf heimsins væri að mestu búið að ná
sér eftir Persaflóastríðið. Hann sagði að þrátt fyrir það yrði út-
vegun fjármagns vegna byggingar álvers á Keilisnesi ekki lokið
fyrr en ella. Hann sagði að fjármögnun fyrirtækisins væri kom-
in skammt á veg og að lítið hefði verið búið að vinna að þeim
þætti málsins í j'anúar þegar talað var um að samningar væru á
lokastigi.
Jóhannes sagði engan vafa leika
á að Persaflóastríðið hefði tafið
fyrir framgangi álmálsins. Persa-
flóaátökin hefðu haft neikvæð
áhrif á peningakerfi heimsins
löngu áður en sjálf átökin hófust.
Auk þess hefði mikilvægum
fundum veriö aflýst vegna stríðs-
ins.
Jóhannes var spurður hvort
efnahagskerfi heimsins væri ekki
að komast í samt lag eftir að
Persaflóastríðinu lauk.
„Jú, það má segja að áhrifin af
styrjöldinni séu mikið til horfin.
Hins vegar hafa önnur vandamál
átt þátt í að tefja málið. Það hefur
verið efnahagslegur samdráttur í
Bandaríkjunum og Bretlandi. Af-
koma banka hefur versnað og
gert þá varkárari í útlánum."
Þrátt fyrir að slæm áhrif Persa-
flóastríðsins á efnahagslíf heims-
ins séu að hverfa telur Jóhannes
engar líkur á að Atlantsáls fyrir-
tækjunum takist að ljúka fjár-
mögnun álvers á Keilisnesi fýrr
en talið var. Fjármögnun verði
ekki lokið fyrr en í haust. Útveg-
un fjármagns sé komin frekar
skammt á veg og mikil vinna þar
óunnin.
Um áramót talaði iðnaðarráð-
herra um að málið væri að kom-
ast á lokastig og frá endanlegum
samningum yrði gengið á lyrsta
ársfjórðungi þessa árs. Jóhannes
sagði að fjármögnunin hefði ekki
verið komin mikið af stað í janúar
og þegar á reyndi hafi komið í Ijós
að útvegun fjármagns hafi tekið
mun lengri tíma en búist var við.
Jóhannes Nordal.
Jóhannes sagði að ekki væri bú-
ið að taka neina ákvörðun um
hvenær málið yrði lagt fyrir
stjórnir fyrirtækjanna þriggja.
Það færi allt eftir því hvernig mál
þróuðust í sumar og haust.
-EÓ
FÓSTUDAGUR 12. APRÍL 1991
Tilmæli sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi:
Burtmeð ein-
hverfu börnin
Meirihluti bæjarstjórnar Seltjarn-
arness samþykkti á fundi sínum í
fyrrakvöld að beina því til félags-
málaráðuneytisins aö meðferðar-
heimili fyrir einhverf börn að Sæ-
braut 2 þar í bæ skuli víkja. Þetta
er gert vegna kvartana íbúa við
götuna sem telja að frá heimilinu
stafi ónæði.
Meðferðarheimilið við Sæbraut
var sett á fót síðla árs 1989. Að sögn
Sigurgeirs Sigurðssonar, bæjar-
stjóra á Seltjarnarnesi, fór strax að
bera á kvörtunum vegna heimilis-
ins þ.e. vegna ýmissa hátta og venja
barnanna. í júní á síðasta ári var
stofnuð nefnd um þetta mál skipuð
fulltrúum frá félagsmálaráðuneyt-
inu og meirihluta sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn Seltjarnar-
ness. Nefndinni bar ekki saman.
Fulltrúar félagsmálaráðuneytisins
vildu að börnunum yrði fækkað úr
6 í 4, breyta því þannig í sambýli og
gera ráðstafanir svo einhverfu
börnin öngruðu ekki nágrannana.
Meirihluti sjálfstæðismanna í bæj-
arstjórn lagði hins vegar til að
heimilið fengi ekki að starfa og
skyldi rekstrarleyfi þess numið úr
gildi. Siv Friðleifsdóttir, bæjarfull-
trúi framsóknarmanna á Seltjarn-
arnesi, segir þessa bókun meiri-
hlutans hafa verið út í bláinn. Bæj-
aryfirvöld hafi ekkert með starfs-
leyfið að gera.
Síðan um áramót hafa kvartanir
frá nágrönnum haldið áfram að
berast. Sagði Sigurgeir bæjarstjóri
að með tilmælum sinni hefði bæj-
arstjórnin í raun aðeins verið að
framfylgja vilja þeirra sem búa í ná-
grenni heimilisins og vilja fá það
burt.
Fulltrúar minnihluta bæjarstjórn-
ar Seltjarnarness sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna í fyrrakvöld. Siv
Fiðleifsdóttir sagði að sér þætti nei-
kvætt að heimilið skyldi víkja,
stefnan hefði verið að fatlaðir lifðu
sem mest í venjulegu umhverfi eins
og reynt hefði verið að gera á Sæ-
brautinni. Nágrannar meðferðar-
heimilisins hefðu hins vegar verið
neikvæðir gagnvart staðsetningu
þess og neitað alfarið öllum mála-
miðlunartillögum.
-sbs.
Sjúkraliðafélag íslands:
Stéttarfélag verður
stofnað 11. maí nk.
Sjúkraliðafélag íslands undirbýr nú
stofnun stéttarfélags, en það mun
verða stofnað formlega á aðalfundi
félagsins þann 11. maí nk. Kristín
Guðmundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélags íslands, segir að
nú sé verið að senda inntökubeiðni
í félagið til félagsmanna og stefnt sé
Leifur Guðjónsson sér um verðlagsaðhald hjá verkalýðsfélögunum:
Sveitarfélög og bankar
hækka gjöld þrátt fyrir aöhald
Sveitarfélögin, bankar og trygg-
ingafélög eru meðal þeirra sem
hækka sín gjöld þrátt fyrir verð-
lagseftirlit og annað aðhald og
taka þar með lítinn sem engan þátt
í þjóðarsátt, að mati Leifs Guð-
jónssonar hjá verðlagseftiriiti
verkalýðsfélaganna. Stærsti ár-
angurinn sem náðst hefur í þvf að
viðhalda stöðugu verðlagi er Bón-
us verslunin og sú staðreynd að
stórmarkaöir hafi getað lækkað
verð á fjölda vörutegunda, segir
Lelfur.
Verkalýðsfélögin hafa staðið fyrir
verðlagsaðhaldi í um eitt ár, en í
síðustu samningum varð sam-
komulag milli verkalýðsfélaganna
og heiidarsamtaka þeirra, ASÍ og
BSRB, að ráðið yrði í stöðu til
þess að fylgjast með verðlagshaldi
og var Leifur Guðjónson fenginn
til þess á vegum verkalýðsfélag-
anna.
„Sveitarfélögln virðast hafa un-
dalega tilhneigingu til þess að
skýla sér alltaf á bak við fasteigna-
mat og hafa staðiö fyrir gífurleg-
um hækkunum á fasteignagjöld-
um og ýmsum þjónustugjöldum.
Einnig hefur bankaveldið staöið
fyrir miklum hækkunum, svo og
tryggingafélög," sagði Leifur. „Við
höfum líka fengið fjölda kvartana
yfir stöðugum hækkunum á farm-
gjöldum hjá fiutningsfyrirtækjum
og þykir undarlegt að þrátt fyrir að
þessi fyrirtæki sýni milljóna hagn-
að hækka þau sífellt gjöldin.“
Leifur segir að Bónus verslun-
inni hafi tekist vel upp við að nýta
sér þann stöðugleika sem verið
hefur í þjóðfélaginu á undanfömu
ári. „Þetta er meginatriði fyrir
okkur sem höfum verið að reyna
að hamla á móti hækkun vöru-
verðs. Þama em tveir, þrír aðilar
sem takast á þannig að sá árangur
er kannski ekki beint okkar, en
kannski eigum við ákveðinn þátt í
því að menn em farair að hugsa
öðruvísi,“ sagði Leifur einnig.
í síðustu samningum var ákveðið
að verðlagsaðhaldi yrði viðhaidið
a.m.k. út þetta samningstímabil
og er því óvíst um framhaldið.
Leifur telur þó að í Ijósi þess ár-
angurs og jákvæðra viðbragða
fólks við þessu verði örugglega
framhaid á, þótt það gæti orðið
með öðmm hætti. „Mér heyrist á
fólki almennt að þessi Ulraun
verkalýðshreyfingarinnar til þess
að hamla á móti hækkun verðlags
og þjónustu hafi mælst mjög vel
fyrir,“ sagði Leifur.
„Sem dæmi um viðbrögð á
vinnumarkaðinum þá sendi t.d.
ÍSAL kröfu, sem var undirrituð af
416 starfsmönnum þar, til margra
sveitarfélaga þar sem þeir mót-
mæltu hækkunum þeirra á fast-
eignagjöldum og öðmm gjöldum
og minntu á að þeir hefðu átt að
vera þátttakendur í þjóðarsáttinni
svonefndri. Ég tel þetta stórkost-
legt framtak hjá þessum starfs-
mönnum.
Ég tel þó að það þurfi að efia verð-
lagseftirlitið hjá okkur meira, það
þarf að gera ákveðnari og tíðari
verðlagskannanir og fylgja þeim
vel eftir,“ sagði Leifur einnig í
samtali við Tímann í gær. —GEÓ
að því að félagið verði komið með
samningsrétt fyrir haustið.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum lýstu 75% félaga í Sjúkra-
liðafélagi ísland sig samþykka því að
stéttarfélag yrði stofnað í kosning-
um sem fóru fram í mars. Tveir
þriðju skráðra félagsmanna þurfa að
taka afstöðu til stofnunar félagsins
til þess að það öðlist samningsrétt.
„Við erum að skoða túlkun á samn-
ingsréttarlögunum núna, því það er
álitamál hvort við höfum ekki öðlast
samningrétt nú þegar," sagði Krist-
ín.
,A aðalfundinum verða lögð fram
drög að nýjum lögum fyrir þetta ný-
stofnaða félag og þá verður það
formlega stofnað," sagði Kristín.
„Við erum þegar búnar að sækja um
aðild að BSRB og viljum, með því
komast inn á bandalagsþingið sem
verður núna síðast í maí.“
Bandalagsþing BSRB mun þá lík-
lega taka afstöðu til inngöngu
SJúkraliðafélagsins sem stéttarfé-
Iags, en að sögn Kristínar eru for-
dæmi fyrir því að félög hafi fengið
aðild að BSRB án þess að vera með
samning.
—GEÓ
Sendiherra
í Luxemborg
í gær afhenti Hannes Hafstein Jean
stórhertoga af Luxemborg trúnaðar-
bréf sitt sem sendiherra Islands þar.
Aðsetur hans verður í Brússel.
-sbs.