Tíminn - 13.04.1991, Side 6

Tíminn - 13.04.1991, Side 6
6 Tíminn Laugardagur 13. apríl 1991 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin I Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gislason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Glslason Skrifstofur.Lyngháls 9,110 Reykjavik. Sími: 686300. Auglýslngasími: 680001. Kvöldsímar Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi h.f. Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um helgar. Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Ný byggóastefna Á næsta kjörtímabili verða byggðamál eitt brýnasta viðfangsefni stjórnvalda og atvinnulífsins. Þar verða ríkisstjórn og Alþingi að hafa meginforystu ásamt samtökum sveitarfélaga í góðu samstarfi við forystu atvinnuveganna og hagsmunasamtök fólksins í landinu. Um byggðamál verður að skapa víðtæka þjóðlega samstöðu áhrifamestu þjóðfélagsaflanna og viður- kenna byggðaþróun sem eitt af nauðsynlegustu úr- lausnarefnum þjóðar sem ætlar að halda yfirráðum alls síns lands. Þótt því megi ekki gleyma að byggðamálin hafa æt- íð verið eitt af stóru málunum í íslenskri meginpól- itík og oft hafa verið gerðar ráðstafanir í þeim efn- um, sem dugðu vel fyrir sinn tíma, þá á það við um byggðamál eins og öll önnur höfuðmálefni lifandi lýðræðisþjóðfélags, að þau verða aldrei leyst einu sinni íyrir allt. Að sjálfsögðu verður að haga aðgerð- um í byggðamálum eftir aðstæðum hvers tíma og hafa þær í jákvæðum skilningi samstiga óviðráðan- legum þjóðfélagsbreytingum. Það merkir ekki að láta undan með það aðalmarkmið byggðastefnunnar að byggð haldist í öllum landshlutum, heldur hitt að hver landshluti sé lífvænlegt atvinnu-, félags- og menningarsvæði, sem að sínu leyti heldur til jafns við aðra landshluta og stendur styrkum fótum í heildarskipan íslensks þjóðfélags. Að frumkvæði forsætisráðherra, Steingríms Her- mannssonar, voru fyrir nærri einu og hálfu ári skip- aðar tvær nefndir til að fjalla um byggðastefnu og aðgerðir í byggðamálum. Önnur þessara nefnda vann að hugmyndum um mótun almennrar byggða- stefnu, en hin nefndin undirbjó tillögur um skipu- lag Byggðastofnunar og fyrstu aðgerðir í byggða- málum. Formenn þessara nefnda voru Jón Helga- son, fyrrverandi ráðherra, og Stefán Guðmundsson alþingismaður. Nefndir þessar hafa þegar skilað áliti og tillögum, sem munu reynast mikilvægt framlag til þess átaks í byggðamálum sem óhjákvæmilegt er að ráðast í á næsta kjörtímabili. Athyglisvert er í þessum tillögum að endurvakin er með nýjum þrótti sú stefna að nauðsynlegt sé að gera markvissar byggðaáætlanir og tengja slíka áætlunargerð Alþingi með þvf að leggja byggðaáætl- anir fyrir þing hverju sinni, ræða þær þar og fá þannig á hverja byggðaáætlun stefnumótandi mark löggjafans. Af þessu tilefni skal á það minnt, að einn af ágöllum byggðastefnu í framkvæmd á liðnum tveimur áratugum er sá að hunsaðar hafa verið mót- aðar byggðaáætlanir eða anda þeirra vikið til hliðar af skammsýni og fordómum um gildi þeirra. Slíkt má ekki endurtaka sig þegar hafist verður handa um framkvæmd nýrrar byggðastefnu á komandi kjör- tímabili. Þótt um sinn hafi verið reynt að koma alls- herjaróorði á skipulegar áætlanir í þjóðarbúskap eft- ir því sem aðstæður krefjast og líta á þær sem anga af trénuðu miðstýringarkerfi, verða ráðamenn að hafa dómgreind til að þekkja mun góðs og ills í því efni. K 1 YOSNINGABARÁTTAN hefur að þessu sinni haft þungan skrið, án þess að um stór upphlaup hafi verið að ræða. Munar þar mestu um þá afstöðu formanns Sjálf- stæðisflokksins, að vilja ekki fara að óskum Morgunblaðsins og koma með kosningasbombu eða yfirlýsta stefnu í einhverju af aðal- viðfangsefnum samfélagsins á sviði atvinnuvega. Davíð Oddsson hefur skirrst við að gefa út aðrar yfirlýsingar um stöðu atvinnu- veganna en þær, að þau mál verði athuguð að afloknum kosning- um. Þetta hefur þýtt að Sjálfstæð- isflokkurinn hefur verið yfirlýstur stefnulaus. Það hefur hins vegar ekki komið í veg fyrir að Davíð er samkvæmt skoðanakönnunum einn af allra vinsælustu mönnum þjóðarinnar. Stefnuleysi Sjálf- stæðisflokksins og vinsældir þær sem flokkurinn nýtur um þessar mundir benda til þess, að ekki þurfi sérstaklega að taka til hend- inni að afloknum kosningum, engra sérstakra endurbóta sé þörf að mati kjósenda Sjálfstæðis- flokksins, og hægt sé að óbreyttu að setjast í friðarhreiður það, sem núverandi ríkisstjóm undir for- ystu Steingríms Hermannssonar hefur búið þjóðinni. Þijár óskir í sjónvarpi hefur verið hægt að fylgjast með almennum kjósend- um í kjördæmum og óskum þeirra. Yfirleitt ber mest hjá þeim á óskum um öflugra atvinnulíf, breytingu á skattleysismörkum og bættar samgöngur. Þegar fólk talar um samgöngur vill það jarð- göng á erfiðum fjallvegum, brýr yfir firði til að stytta leiðir og fljótari lagningu slitlags. Bílaeign er mikil og því eðlilegt að krafa um varanlega vegi sé ofarlega á baugi. Atvinnulífið er þó þýðing- armest, því án eflingar þess þurfa margir um sárt að binda. Þegar ríkissstjórn Steingríms Her- mannssonar tók við völdum blasti við hrun atvinnuveganna, einkum við sjávarsíðuna. Gripið var til stórfelldra aðgerða til að bjarga fyrirtækjum í sjávarútvegi, sem í óðaverðbólgu liðinna ára og vaxtafári var að blæða út án þess nokkuð fengist að gert. Hefði sú þróun haldið áfram hefði atvinnuleysi í landinu orðið gífurlegt. Það tókst að bjarga mikiu fljótlega eftir að ríkiss- stjórn Steingríms tók við. Batinn sem fylgdi hinni nýju stjórn var síðan staðfestur með þjóðarsátt, sem verður að halda áfram eftir kosningar. Tunguhaft í stjómarandstöðu Það er kannski ekki að undra þótt stjórnarandstaða Sjálfstæð- isflokksins hafi ekki verið áber- andi á þingi. Stjórnartíminn hef- ur verið tíð lagfæringa, björgun- arstarfs og þjóðarsáttar. Menn hafa getað deilt um einstök atriði, en þar hefur yfirleitt alltaf verið um að ræða storm í vatnsglasi. Ekkert á stjórnartímanum gefur nú tilefni til stórra upphlaupa í kosningabaráttu. Það verður því að virða Sjálfstæðisflokknum það til vorkunnar að hann virðist sviptur málefnum. Hann gengur pólitískt skertur til kosninga og með tunguhaft, á þegar þjóðfélagið er í jafnvægi mest á ríður að þessu jafnvægi verði fylgt eftir næsta stjórnar- tímabil. En það verður ekki þrautalaus ganga. Þrátt fyrir sam- fellt jafnvægi í þjóðmálum lang- tímum saman hefur alltaf eitt- hvað komið upp á yfirborðið, svo átök og óreiða hefur hafist að nýju. Úrslit kosninganna nú geta ráðið miklu um hvort ávinningar síðustu ára setja svip sinn á næsta kjörtímabil. Undi aðferðum lýðræðis Samstarfsflokkar Framsóknar- flokksins í ríkisstjórn, Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag, hafa Iifað nokkurn óróa- og óvissu- tíma að undanförnu. Því hafa ekki ráðið átök i stjórnarsam- starfi, heldur gamlar syndir AI- þýðubandalagsins, þegar það gekk undir öðrum flokksheitum, og var fastbundið hugmynda- fræðilega séð við öfgaöfl í Austur- Evrópu. Eftir hrun heimskomm- únismans fór Alþýðubandalagið að gliðna á saumum hér á landi. Alþýðuflokkurinn neytti nú færis til að hefna gamalla harma, þegar kommúnistar gengu hvað eftir annað í skrokk á krötum og klufu þá í herðar niður. Alþýðubanda- Íaginu vildi til láns í hörmungum að til Iiðs við þá hafði gengið maður, sem aldrei hafði verið kenndur við gamlar syndir kommúnismans, og svo hitt, að bandalagið sat í virðingarverðri umbótastjórn og undi þar aðferð- um lýðræðis. Strandhögg Al- þýðuflokksins varð helst í kring- um borgarstjórnarkosningar, án þess að umtalsverður árangur sæist á auknu fylgi flokksins. Gerð var ný aðför að Alþýðu- bandalaginu fyrír þingkosning- arnar. Árangurinn varð sá að fyrr- yerandi ritstjóri Þjóðviljans lenti í þriðja sæti hjá krötum í Reykja- vík. Engin merki eru þess að þessi þriðji maður auki fylgi krata. Þannig sitja báðir flokkarn- ir við minnkandi fylgi eftir allt bramboltið; kannski orðnir of gamlir í hettunni til að geta blandast að nokkru gagni. Eftir stendur sú staðreynd, að eftir að Alþýðubandalagið hefur verið svipt pólitísku föðurlandi sínu er orðið mikið rólegra andrúmsloft í landinu. Hatrið er ekki eins áber- andi í Þjóðviljanum og var og sæmilegur stéttarfriður ríkir. Snillingur að verki Flokkaskipan og kosningatil- högun ráða mestu um, að hér starfa samsteypustjórnir. Að vísu er hægt að hugsa sér að einhver einn flokkur fái það mikið fylgi að hann geti myndað meirihluta- stjórn, en heldur er það ólíklegt. Um þessar mundir gerir Sjálf- stæðisflokkurinn sér einhverjar vonir um slíkt. Það er þó lang- sótt, flokkurinn hefur verið að tapa fylgi að undanförnu, miðað við skoðanakannanir. í landi sam- steypustjórna þarf sérstaka hæfni til að hafa forystu fyrir stjórnum. Þegar þær samanstanda af fjórum flokkum, eins og stjórn Stein- gríms Hermannssonar, er með ólíkindum að hægt skuli að halda þeim í samstarfi út ákveðið tíma- bil. Hæfni Steingríms sem for- sætisráðherra er alveg ótvíræð, en stjórn hans hefur verið óvenjulega samstíga allan tím- ann. Helst hefur borið á ágrein- ingi út af álverssamningum, sem iðnaðarráðherra hefur kosið að halda fyrir sig, eins og hann kynni ekki til verka, þótt menn vilji frekar kenna það óvana. Ál- verssamningar eru það stórt mál, að þeir geta varla verið á færi eins manns. Verið getur að langvar- andi ósætti á milli Alþýðubanda- Iags og Alþýðufiokks eigi ein- hverja sök á þessum hvimleiða einleik. Þá hefur nokkur ágrein- ingur orðið út af Efnahagsbanda- lagi Evrópu. Sem betur fer fá kjósendur nú tækifæri til að taka af skarið í því máli. Kjörorð Framsóknarflokksins fyrir þessar kosningar eru: Öflug þjóð í eigin landi. Þessi orð vísa beint til af- stöðu flokksins til EB. Undir þessu kjörorði vill flokkurinn tryggja þann stöðugleika, sem tekist hefur að skapa í efnahags- málum. Flokkurinn leggur áherslu á full yfirráð yfir landinu og auðlindum þess. Með þessi mál og önnur, sem byggja má bjarta framtíð á, leitar fiokkurinn til kjósenda um liðveislu. Nýlendustaða a ny? Nútíminn á íslandi við lok tutt- ugustu aldar er ekki endilega að tenga sig við þann hluta sögunn- ar sem fjærstur er, heldur vill hann eiga nýja sögu og er raunar að skapa hana, þótt margt þyki nú fremur í ætt við mýrarljós en Ieiðarljós. Um þessar mundir er- um við haldin mikillæti um stór- an virðingarveg meðal annarra þjóða. Það gerir löngunin til að sýna, að þrátt fyrir langa einangr- un þá séum við ansi góð. Mikil og ör framþróun í sam- skiptum við aðrar þjóðir hefur

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.