Tíminn - 13.04.1991, Síða 7

Tíminn - 13.04.1991, Síða 7
Laugardagur 13. apríl 1991 Tíminn 7 LAUGARDAGURINN 13. APRIL 1991 Frá síðasta flokksþingi framsóknarmanna. leitt af sér ný viðhorf, sem birtast í nær skefjalausri alþjóðahyggju. Þessi nýja hugsun tengist eink- um nánari aðild að Evrópu. Við erum Evrópuþjóð. Skyldleiki okkar við Evrópu er óumdeildur. Aftur á móti þýðir það ekki að við séum tilbúin til að játast undir einskonar samþjóðlegt evrópskt vald. Við getum ekki orðið eins og kýr á vori um leið og einangr- un lýkur og nýlendustaða okkar innan hins danska konungsríkis er að baki. Við þurfum mikið meiri tíma til að rækta með okk- ur sjálfsvitund innan samfélags þjóðanna, sem ríki er ræður ör- lögum sínum. Túlipanar frá Amsterdam Innri styrkur þjóðar byggir á menningu hennar, bæði í verk- legum og andlegum efnum. Til- hugalíf okkar nú við alþjóða- hyggjuna bendir ekki til þess að við séum í færum til að taka rétt- ar ákvarðanir um bindandi sam- neyti við ríkjabandalög, sem mynduð hafa verið til frambúðar. Talað hefur verið um þátttöku okkar í bandalagi Evrópuþjóða með skilyrðum. Arið 1262 bund- umst við Noregskonungi með skilyrðum um siglingar til lands- ins. Áður en varði vorum við komin undir erlent vald að fullu og öllu. Sérsamningar eru að engu hafandi. Framtíðin ekur yfir þá og notar þá í fjötra, sem aldir kostar að leysa. Saga landsins, eins og saga ann- arra landa, færir okkur heim sanninn um, að nauðsynlegt er að standa í fæturna gagnvart al- þjóðahyggjunni. Það er hin menningarlega afstaða. Svo dæmi sé tekið þá vaxa rósir á jarðhitasvæðum hér á norður- hjaranum. í Hollandi vaxa líka rósir. Þær eru ræktaðar við heppilegri skilyrði. Ef við göng- um evrópsku valdi á hönd verður að vísu ekkert rósastríð á milli Hollands og íslands. En sam- keppnin verður hörð. Þá getur orðið of seint að rétta fram gróð- urhúsahendur norðursins gegn túlipönum frá Amsterdam. Okkur er ekki markaður bás Þegar ísland er borið saman við aðrar eyjar í Atlantshafi, að Bret- landi undanskildu, fer ekki á milli mála, að við höfum náð lengst. Við höfum kunnað að tileinka okkur ýmislegt það besta í fari, framförum og verkmenningu annarra þjóða. Við getum haldið því áfram án þess að bindast stór- um heildum til að verða aftur smáir og framtakslitlir. Okkur er ekki markaður bás í viðskiptum. Við seljum vörur okkar um allan heim, og eigum viðskipti jafnt við Japani og Bandaríkin. Styrkur okkar í aðlögun að samtíma er fullvissan um mikilsvert framlag okkar til evrópskrar menningar. Þar skipar tungan stórt hlutverk; einnig sú staðreynd, að við vor- um ritþjóð á tíma þegar aðeins kirkjunnar menn skrifuðu bækur um vegsemd trúarinnar. Við skrifuðum á íslensku. Þegar byrj- að var að skrifa bækur á latínu dofnuðu ljósin á sviðinu. í stað frásagna af Noregskonungum og siglingum norrænna manna um heimskringluna komu frásagnir í hindurvitnastíl um Kaanans- menn, forfeður trölla. Þannig má oft ekki muna miklu, þótt illt sé að greina hver áhrifin eru innan mannsævinnar. Með því að horfa til baka yfir svið ald- anna kennist það hvað úrskeiðis fór. Þó vantaði ekki að við áttum lærða menn og eigum enn. En þeim getur förlast í grundvallar- efnum eins og öðrum dauðlegum mönnum. Það er menning þjóðar sem heildar, sem ekki má rofna. Því þegar rofar til eftir latínu, dönsku eða ensku samtímans er gott að vakna upp á landi móður- máls og verða aftur fólk með ræt- ur. Heimsskáld í leynum Það sýnir styrk okkar inn á við sem þjóðar, hvað fámennir staðir eru öflugir við margvíslega rækt menningar. Hér er enginn skort- ur á athöfnum á því sviði. Kannski veldur landslagið og hið hreina loft því að við leitum feg- urðar í því sem við tökum okkur fyrir hendur. Hér standa mál- verkasýningar listamanna. Hér er skáldskapur fluttur og birtur. Minnst er skálda sem hafa verið í fararbroddi á svo til öllum öldum og haldið hita á þjóðinni. Orðfæri þeirra, ásláttur málsins og kvæði um nauð og sigra, hafa fært okk- ur heim sanninn um að taug andagiftar er sterk og óbrostin þótt allt taki breytingum í kring- um okkur og við breytumst sjálf. Þannig hefur línan frá Snorra Sturlusyni og allt til vorra daga komið við sögu heimsins án þess að við yrðum bandingjar hans. í listum er ekki leitað lengur að landsfrægð. Nú dugir ekkert minna en heimsfrægð, að minnsta kosti frægð á hinum Norðurlöndunum. Bólu-Hjálmar varð að una því að verða aðeins landsfrægur. Jafnvel Einar Bene- diktsson, sá mikli heimsreisandi, varð varla meira en landsfrægur. Jónas Hallgrímsson þekkist ekki utan íslands. Nú eru allir þessir menn stórskáld, hver á sína vísu. Þeir munu lifa áfram með þessari litlu þjóð. Okkur finnst að skór þeirra sé of bundinn jafn ágætir og þeir eru. Sannleikurinn er sá, að þeir eru jafningjar heims- skálda á borð við Robert Burns og Rudyard Kipling. Við erum ekk- ert óvön því að eiga okkur heims- skáld, þótt í leynum sé. Hvað um Snorra Sturluson til samanburð- ar við Cervantes? Að kunna að neita Okkar frægu menn eru sprottn- ir upp úr okkar menningu. Þeir urðu skáld og listamenn af því jarðvegurinn var hér. Þeir eru vitnisburður um samhengi menningar allt frá tímum Ara Þorgilssonar. Að vísu ætluðu er- lend yfirráð, vont tíðarfar og önn- ur óáran alveg að drepa okkur á tímabili. En menningin lifði og reis sfðan skínandi björt á ní- tjándu öld, þegar tími var kom- inn til að kveða kjark í freðnar þjóðir. Það fraus nefnilega aldrei íyrir skilningarvitin. Staða okkar nú í samskiptum við umheiminn krefst hins skarpa skilnings. Við viljum allt gott af þessum sam- skiptum læra. Oft á öldum áður lá við að þjóðin væri svipt lífsvið- urværi. Samningar nú, sem með einum eða öðrum hætti skerða viðurværi okkar, koma ekki til mála. Hægt er að segja sem svo að þeir séu ekki á döfinni. En hver og einn veit í hjarta sínu að okkur er beint með ýmsu móti í áttina að Evrópubandalaginu. Því á að neita strax í upphafi. Um- ræðurnar hafa þegar gengið of langt. Þess vegna skiptir máli að neitað verði 20. aprfl og eigi síðar. Blaðræksnið og menningarveran Þeir sem hlaða steinum í mann- virki íslensks mannlífs gera það með ýmsum hætti. Þeir beita við það lærdómi sínum og gáfum. Þeir byggja virkið líka með til- vist sinni einni saman - - með því að vera íslendingar. Þá villir ekki af leið. Þeir þurfa engar handbækur og engin leiðarkort. Tilfinningin ein vísar þeim veg. Sá sem þetta skrifar kom eitt sinn heim til manns, sem hafði lifað langa og atburðaríka ævi í fylkingarbrjósti þjóðmála, skrif- að íslandssögu handa skólafólki og fjöld annarra bóka, fyrir utan ótölulegar blaðagreinar. í stofu hans, sem hann kallaði vinnu- herbergi sitt, voru ljósir veggir og það var vor fyrir utan glugg- ana. Á miðju gólfi stóð kringlótt borðstofuborð. Hvergi sáust gögn, sem slíkur maður átti að hafa á svona stað. Hvergi voru bækur á veggjum. Þeir voru auð- ir. En á borðstofuborðinu lá gamalt ræksni af dagblaði. Það var allt og sumt. Ljóst var að efnivið í rit sín sótti gamli mað- urinn í sjálfan sig. Það heitir að vera menningarvera. Þannig er það og þannig hefur fólkið í þessu landi verið. Uppeldi við sögulegar hefðir, skólaganga og athafnir fullorðinsára, þar sem búið hefur verið að því sem land- ið veitir og hlunnindi þess, hafa gert lífið bærilegt. Við höfnum því geimferðum þjóðabandalaga, sem draga úr sjálfstæði okkar og setja okkur á meðaltalsbekk af- gangsstærða reiknimeistara peningahyggjunnar. í stað þess ganga íslendingar á kjörstað 20. apríl sem menningarverur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.