Tíminn - 13.04.1991, Blaðsíða 14

Tíminn - 13.04.1991, Blaðsíða 14
26 Tíminn Laugardagur 13. apríl 1991 Gunnar Rafn Birgisson, Ingjaldur Hannibalsson og Hermann Ottós- son frá Útflutningsráði fslands. Þeir urðu íslandsmeistarar í undan- úrslitakeppni fýrír Samnorrænu stjómunarkeppnina. Samnorræn stjórnunarkeppni fyrirtækja: Lið Útflutningsráðs og SPRON til Helsinki Hin árlega Samnorræna stjórnunarkeppni fyrirtækja fer fram í Helsinki í Finnlandi í dag, laugardaginn 13. apríl. Af íslands hálfu keppa þar lið frá Útflutningsráði íslands og SPRON. Tvö lið frá hverju Norðurland- anna taka þátt í þessari keppni, en hún felst í því að keppendur verða að stjórna ímynduðu fyr- irtæki og verða að skila sem mestum rekstrarhagnaði yfir samanlagt sex ára tímabil. Það lið sem nær mestri arðsemi í rekstrinum ber sigur úr bítum. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í dúkalagnir í ýmsum fast- eignum Reykjavíkurborgar. Um er að ræða annars vegar ca 3000 m2 fyrirfram skilgreind verk, sem vinna skal á þessu ári, og ca. 4000 m2 vegna íbúaskipta sem vinna skal á næstu 2 árum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 20.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 2. maí 1991, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegl 3 - Sfml 25800 Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Skólaskrifstofu Reykja- vikur, óskar eftir tilboðum í viðgerðir og viðhald á steinsteypu og tréverki á Hólabrekkuskóla. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miövikudaginn 24. apríl 1991, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Páll Pétursson Stefán Guömundss. Skagfirðingar og Húnvetningar Frambjoðendur FramsóknarflOKKsins f Reykjavík, Finnur Ingólfs- son, Ásta R. Jóhannesdóttir og Bolli Héðinsson, ásamt alþingis- mönnunum Páli Péturssyni og Stefáni Guðmundssyni, bjóða þér að koma í kaffispjall mánudaginn 15. apríl kl. 20:30, í kosninga- miðstöð Framsóknarflokksins að Borgartúni 22. Skemmtun og kaffiveitingar Steingrímur Hermannsson og frambjóðendur B-listans í Reykja- vík, Finnur, Ásta og Bolli, bjóða eldri borgurum til kaffiveitinga í Veitingahúsinu Glæsibæ, sunnudaginn 14. apríl kl. 15:00. Dagskráin verður: Frambjóðendur flytja stutt ávörp. Jóhannes Kristjánsson hermir eftir. Elín Sigurvinsdóttir syngur einsöng. Unnur Halldórsdóttir fer með gamanmál og Steingrímur Hermannsson flytur ræðu. MINNING Sigurður H. Valdimarsson Fæddur 17. september 1965 Dáinn 9. febrúar 1991 Kæri vinur. í gærkveldi töluðum við systurn- ar um að í dag ætluðum við að skrifa þér, nokkuð hafði hent aðra okkar sem minnti okkur á stríðn- isleg fyrirheit sem þú hafðir gefið okkur fyrir löngu síðan. En lánið er svo fallvalt — eftir símtal heim til íslands í morgun er það ekki glaðbeitt kort frá hinum stóra heimi sem við sitjum og skrifum, heldur hinsta kveðja til þín. Sem meira og minna föstum heimilismanni á heimili foreldra okkar síðastliðin tvö ár minnumst við margra stunda með þér og án allrar hræsni aðeins góðra stunda. Með ljúfmennsku þinni ávannstu þér vináttu og virðingu allra í fjöl- skyldunni. Víst vorum við oft grá- glettnar í þinn garð, og við höfum grun um að stríðni okkar hafi stundum sært meira en þú vildir vera láta. En þú varst þannig gerð- ur að gjalda aldrei rauðan belg fyr- ir gráan. Þú tókst öllu með spaugs- yrðum og bros á vör og kenndir okkur margt um þroska í mann- legum samskiptum, þó ungur vær- ir. Við áttum því láni að fagna að fá að eyða með þér ógleymanlegri dagstund í litlu veitingahúsi við Tjörnina daginn áður en við lögð- um af stað til Indlands. Við töluð- um um drauma okkar og framtíð- arvonir. Eins og alltaf var lær- dómsríkt að hlusta á þig, svo já- kvæður og bjartsýnn á framtíðina sem þú ert, en jafnframt svo lítil- látur. Við ræddum m.a. um þín áhugamál: hestamennskuna. Við spurðum hvort þig dreymdi um að slá í gegn, verða frægur sem hesta- maður. Þú bara brostir þolinmóð- ur að fávísi okkar. Nei, þig dreymdi ekki um frægð og frama, álit ann- arra var ekki það sem skipti mestu, heldur að þú sjálfur fyndir full- nægju í því sem þú tókst þér fyrir hendur. Þannig minnumst við þín. Þakkir fyrir allar stundirnar. Við söknum þín sárt. Sendum fjöl- skyldu þinni innilegustu samúðar- kveðjur. Hjördís og Kristbjörg Leifsdætur frá Keldudal VEIÐIMÁL VEKHRETTINDII AFRÉTTARVÖTNUM Höfuðreglan er sú að veiðiréttur í ám og vötnum fylgir landi, þ.e. eigandi landsins sem liggur að viðkomandi veiðivatni á veiðiréttinn. í lögum um lax- og silungsveiði eru ákvæði sem banna að skilja veiðirétt frá landi. Hafi svo einhvem tíma verið gert er unnt fyrir landeiganda að leysa slíkan rétt til landsins. Um afréttarvötn gildir hið sama og fyrr var greint, séu vötnin í einkaeigu. Hins vegar gilda þau ákvæði um önn- ur vötn, eins og vötnin á Landmanna- og Holtamannaafrétti, að allir búend- ur sem upprekstur áttu á þessa afrétti eiga afnotarétt til veiða í þessum vötn- um. Allir eiga þar jafhan rétt til veiði, eins og gildir um almenning í stöðu- vatni, og er þeim óheimilt að ráðstafa veiði til annarra. Hins vegar getur veiðifélag, sem stofnað er um slík vötn, heimilað ráðstöfun veiði til annarra, eins og gert hefur verið í vötnum á fyrrgreindum afréttum upp af Rangár- vallasýslu. Ýmsir hafa haldið því fram að til séu vötn á afréttum, mjög fjarri byggð, sem séu eins konar einskismanns veiðivöm. Slík vötn eru ekki til hér á landi, svo vitað sé. Á sínum tíma urðu deilur út af veiði- rétti á Landmannaafrétti, sem lyktaði með því að Hæstiréttur dæmdi árið 1955 að afnotaréttur til veiða á afrétt- ingum fylgdi búendum, sem upprekst- ur áttu á afréttinn. Veiðiafhotin féllu þannig til jarða í Landmannahreppi og Holtahreppi, auk tveggja jarða í Rang- árvallahreppi; Næfurholts og Hóla. Hins vegar komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu síðar, að Alþingi þyrfti að setja lög um hver ætti sjálft land afréttarins. Slík lög hafa ekki ver- ið sett enn. í framhaldi af dómi Hæsta- réttar frá 1955 voru ákvæði laga um lax- og silungsveiði um afréttarvötn, sem ekki væru í einkaeigu, aðlöguð honum þegar lögin voru seinast end- urskoðuð og samþykkt 1970. Veiðifélag var stofnað um vötn á Landmannaafrétti 1965, en formaður þess er Kjartan Magnússon, bóndi í Hjallanesi í Landmannahreppi. Síðar kom svo annað félag um vötn á Holta- mannaafrétti með aðild allra ábúenda eða eiganda jarða sem upprekstur eiga á nefndan afrétt. Formaður í Veiðifé- lagi Holtamannaafréttar er Sveinn TVrfmgsson, bóndi í Lækjartúni í Ás- hreppi. Innan vébanda veiðifélaga Við Veiðivötn er náttúrufegurðin rómuð - myndin er tekin við Nýjavatn. þessara eru öll vötn á viðkomandi af- rétti. Vatn er skilgreint í lögum um lax- og silungsveiði sem straumvatn eða stöðuvatn. Á sínum tíma breytti landsvirkjun vatnsrennsli þannig að Köldukvísl var veitt inn í Þórisvatn vegna miðlunar á vatni til orkuframleiðslu. Vatnsborð var jafhframt hækkað í vatninu og stækkaði Þórisvatn úr 70 ferkm í 83 ferkm við þessar aðgerðir. Þórisvatn er innan vébanda Veiðifélags Holta- mannaafréttar. Síðar koma til sögunn- ar virkjanalónin á afréttinum sem eru eins konar veiðivötn sem hafa verið mynduð með gerð stíflu. Enda þótt að þessi nýju veiðivötn á grunni straum- vatna hafi þannig orðið til fyrir tilstilli Landsvirkjunar og mannvirki þeim tengd að sjálfsögðu í eigu hennar, verður að líta svo á að fiskigengdin sem þar er komin frá fiskstofni afrétt- arins og vegna fiskræktar veiðifélags- ins sé í höndum veiðifélags um afrétt- inn, lögum samkvæmt. Orkufram- leiðslan er hins vegar í höndum Landsvirkjunar, einnig lögum sam- kvæmL Skylt er að stofha veiðifélag um allar ár og vötn á landinu. Eins og alkunna er er það hlutverk veiðifélags að stjóma veiðimálum á sínu svæði og ráðstafa veiði. Það hefur verið gert bæði á Holtamannaafrétti og Landmannaafrétti með því m.a. að gefa stangaveiðimönnum kost á að kaupa veiðileyfi í vötnin og netaleyfi hafa einnig verið seld. Jafnframt hefúr þeim tekjum, sem inn hafa komið, ver- ið varið til að búa í haginn fyrir veiði- menn með byggingu veiðihúsa og fi- skrækt, auk þess sem áburður hefur verið borinn á landið og geesla og veiðieftirlit hefur verið á svæðinu. eh. Sigurður fimmtugur Sigurður Kristjánsson, kaupfé- lagsstjóri Kaupfélags Árnesinga á Selfossi, verður fimmtugur þriðjudaginn 16. aprfi. Hann mun taka á móti gestum á afmælisdaginn milli klukkan 18 og 22 á Hótel Selfossi. Sigurður Kristjánsson kaupfélagsstjóri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.