Tíminn - 13.04.1991, Síða 15

Tíminn - 13.04.1991, Síða 15
Tíminn 27 Laugardagur 13. apríl 1991 Gífurlegur fögnuður í Njarðvík: NJarðvíkurbær fán- urra skrýddur í gær Frá Margréti Sanders fréttarítara Tímans á Suðumesjum: Það var mikið um dýrðir í Njarðvík í fyrrakvöld eftír að körfuboltalið bæj- arins hafði tryggt sér íslandsmeist- aratítilinn eftir fimm úrslitaleiki gegn grönnum sínum úr Keflavik. Eftir leikinn bauð Jón Sigurðs- son iðnaðarráðherra leikmönnum og stjórnarmönnum til veislu á Flughótelinu og síðan stóð gleðin fram á morgun. Mikið var um dýrðir og engu líkara en Njarðvík- ingar hefðu verið að vinna sinn fyrsta íslandsmeistaratitil, en ekki þann sjöunda. Hins vegar eru liðin þrjú ár síðan Njarðvík vann titil- inn síðast. Fánar blöktu við hún í bænum í gær og ekki var talað um annað en körfubolta. Svo hefur reyndar ver- Kampakátir Njarðvíkingar, íslandsmeistarar í körfuknattleik karía 1991, fagna sigrínum í fyrrakvöld. Mikið hef- ur veríð um dýrðir í bænum síðan og ekki sér fýrír endann á þeim fagnaðaríátum og veisluhöldum. ið undanfarnar tvær vikur, meðan á úrslitakeppninni hefur staðið. Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, og kona hans Anna voru vakin upp í gærmorgun með barnasöng og blómum. Þar voru á ferðinni krakkar af leikskólanum Gimli, en Anna er starfsmaður þar. Börnin sungu „Áfram Njarð- vík“ af mikilli innlifun, en þann söng verða allir Njarðvíkingar að kunna. í gærkvöld sátu leikmenn og frammámenn í körfuboltanum í Njarðvík veislu hjá bæjarstióra og í kvöld verður lokahóf KKI haldið í Veitingahúsinu Vesturbraut 17 í Keflavík. Þar verða afhent einstak- lingsverðlaun til handa körfu- boltamönnum og konum. BL Aðalfundur ólympíunefndar íslands: Styrkir að upphæð 4,8 milljónir veittir til níu sérsambanda Hreiðar Hreiðarsson tekur við hinum glæsilega íslandsbikar í köríu- knattleik úr hendi Kolbeins Pálssonar formanns KKÍ. Aðalfundur ólympíunefndar ís- lands var haldinn á miðvikudag- inn. Engar kosningar fóru fram á fundinum, þar sem nefndarmenn eru kosnir til fjögurra ára í senn. Kosið var í núverandi nefnd 1989. Forseti nefndarinnar er Gísli Halldórsson. Helstu mál sem til umfjöllunar voru á fundinum voru styrkveit- ingar til sérsambandanna, inn- ganga Glímusambandsins í ólympíunefndina, stuðningur við ólympíunefnd Litháens og þátt- taka íslands í smáþjóðaleikunum í Andorra í næsta mánuði. Alls var 4,8 milljónum króna veitt til níu sérsambanda. Styrk- irnir skiptust sem hér segir: Badmintonsambandið, Fimleika- sambandið og Handknattleikssam- bandið fenngu 200 þúsund hvert, Körfuknattleikssambandið og Knattspyrnusambandið 300 þúsund hvort, Júdósambandið 800 þúsund, Skíðasambandið og Sundsamband- ið 900 þúsund hvort og Frjáls- íþróttasambandið 1 milljón kr. Badminton- og júdómenn á faraldsfæti erlendis um helgina: Keppa í Hollandi og á opna breska mótinu Billiard: Þorbjörn vann óvæntan sigur á Gunnari Adam íslandsmót 16 ára og yngri í billiard fór fram í Fjarðarbilli- ard í Hafnarfirði um síðustu helgi Óvænt úrslit urðu á mótinu, Gunnar Adam Ing- varsson tapaði 1-4 fyrir Þor- birni Atla Sveinssyni. SÖmu helgi fór fram ísland- mót 40 ára og yngri í Snóker í Mjódd. íslandsmeistari varð Gunnar Hjartarson, en hann sigraði Óskar Kristinsson 4- 0. Um helgina verður íslandsd- mót BSSÍ og Tryggingamið- stöövarinnar í 1. flokki haldið í Ingólfsbíiliard og Billiard- stofunni Klöpp. Keppni hefst í dag kl. 9.45. BL Smáþjóðaleikarnir í íþróttum verða haldnir í Andorra 21.-25. maí nk. Þar munu 110-115 ís- lenskir íþróttamenn, ásamt þjálf- urum, keppa fyrir íslands hönd í frjálsum íþróttum, sundi, júdó, körfuknattleik, blaki, skotfimi og tennis. BL Þrír badmintonmenn, þeir Broddi Kristjánsson, Arni Þór Haligrímsson og Guð- mundur Adolfsson, taka þátt í alþjóölegu móti sem fram fer f Groningen ( Hollandi um helgina. Mótið gefur stig til ólympíulelka. Þá munu sex júdómenn taka þátt í opna breska meistaramótinu sem fram fer í Crystal Palace höllinni í íþróttir helgarinnar: London um helgina. Þetta eru þeir Eiríkur Kristinsson og Karl Erlingsson, sem keppa í -71 kg flokki. Hall- dór Hafsteinsson, sem kepp- ir í -86 kg flokki, Þórir Rún- arsson og Bjarni Friðriks- son, sem keppa í -95 kg flokki og Sigurður Berg- mann, sem keppir í +95 kg flokkí. BL Bikarúrslitaleiki í blaki Aðalþróttaviðburðir helgarinnar verða bikarúrslitaleikimir í blaki karla og kvenna sem fram fara í Digmesi í dag. Til úrslita í karla- flokki leika HK og KA, en UBK og Víkingur leika til úrslita í kvenna- flokki. KA-menn tryggðu sér á dögunum íslandsmeistaratitilinn í blaki karla, en þeir urðu einnig meistar- ar 1989. KA-menn hafa aldrei orðið bikarmeistarar og sömu sögu er að segja um HK-menn. Það verða því krýndir nýir bikarmeistarar í Digranesi í dag. Þá er það athyglis- vert að þetta er í fyrsta sinn sem ÍS eða Þróttur leika ekki til úrslita um bikarinn. Víkingur hefur þegar tryggt sér ís- landsmeistaratitilinn í kvennaflokki - ber hæst í íþróttalífinu og getur orðið tvöfaldur meistari með sigri í dag. Þessi lið hafa marga hildi háð á undanförnum árum, enda verið bæði í fremstu röð. Leikur HK og KA hefst í Digranesi kl. 16.30 og verð.ur leikurinn sýnd- ur beint í ríkissjónvarpinu. Leikur UBK og Víkings verður leikinn á undan eða um kl.15.15. Glíma Af öðrum íþróttaviðburðum helg- arinnar má nefna Sveitaglímu Is- lands sem háð verður á Laugum í Þingeyjarsýslu í dag og hefst hún kl. 14.00. Badminton Deildakeppni BSÍ1991 fer fram un helgina í Laugardalshöll. Keppt verður í 1., 2. og 3. deild. Keppni hófst í gærkvöld og verður fram- haldið í dag kl. 10.00 og á sama tíma á morgun. Síðasta umferðin í 1. og 2. deild hefst kl. 15.00 á morg- un. Knattspyma Tveir leikir verða á Reykjavíkur- mótinu í knattspyrnu um helgina. í dag leika Leiknir og KR kl. 17.00 og á morgun mætast Þróttur og Ár- mann á sama tíma. Báðir leikirnir verða leiknir á gervigrasvellinum í Laugardal. Skíöi Iceland Cup skíðamótið verður haldið á Akureyri strax eftir helgina, á mánudag og þriðjudag. Hér er á ferðinni stórmót á skíðum og eru Norðlendingar hvattir til þess að mæta á staðinn og fylgjast með. BL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.