Tíminn - 13.04.1991, Side 16

Tíminn - 13.04.1991, Side 16
AUGLÝSINGASÉMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhusinu v Tryggvagotu, g 28822 Ókeypis auglýsingar fyrlr einstakllnga PÓSTFAX 91-68-76-91 23 Ií niinn LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1991 Sölusamband lagmetis: Tekst að selja síldina fyrir tilstilli Búlgara? Miklar líkur eru á að Sölusambandi lagmetis takist að selja sfldarvörumar sem ætlaðar voru Rússum, en þeir gátu ekki keypt. Búlgarskir aðilar, sem Sölusambandið hefur lengi átt skipti við, em að kanna möguleika á að koma þeim út í Austur-Evrópu og jafnvel víðar. Staðfesting hefur ekki fengist, en flest bendir til að af sölunni verði. Það er ekki seinna vænna, geymsluþol sfldarinnar er að renna út. í rammasamningi íslendinga aðri og niðurlagðri síld. Þau og Rússa er kveðið á um kaup hafa verið mörgum lagmetis- þeirra á ákveðnu magni af salt- verksmiðjum mikil búbót. í ár hafa Rússarnir hins vegar ekki getað staðið við samning- inn vegna gjaldeyrisskorts. Sölusamband lagmetis reyndi þá fyrir sér hjá búlgörskum að- ilum, sem það hefur skipt við á liðnum árum. Upphaflega ætl- uðu þeir að reyna að koma síld- inni inn um bakdyr Rússlands í vöruskiptum. Nú hafa þeir hins vegar fundið henni markað í Austur-Evrópu og jafnvel víðar. „Búlgarskir aðilar, sem við höfum skipt við á liðnum árum, hafa kannað hvort þeir gætu komið síldinni til Rússlands í skiptum fyrir aðrar vörur. Þetta var upphaflega hugmyndin. Þeir létu mig svo nýlega vita að möguleikar væru á að selja síld- ina í löndunum þarna í kring- um þá, og jafnvel til ísrael. Við erum þá að tala um vörur fyrir 25 millj. kr. Það er nú allt og sumt. En það er þó allt magnið sem Rússarnir gátu ekki keypt, vegna gjaldeyris- skortsins, þrátt fyrir alla rammasamninga. Þá vöru er nú að bresta geymsluþol. Þetta hefur ekki fengist stað- fest, en ég er mjög vongóður," segir Garðar Sverrisson, fram- kvæmdastjóri Sölusambands lagmetis. -aá. Sendinefndin frá Kamtsjatkja sem nú er stödd hér á landi. Tímamynd: Pjetur. Amarfjörður: Vélbátur strandaði Einn maður bjargaðist þegar Strengfell, 8 tonna vélbátur frá Bíldudal, strandaði við Verdali við utanverðan Arnarfjörð síðdegis í gær. Varðskipið Ægir kom á vett- vang og bjargaði manninum. Það var um klukkan 15 í gær sem neyðarkall barst frá bátnum. Varð- skipið heyrði það en ekki var gefið upp hvar báturinn var. Flugvél sem var á þessum slóðum var beint til leitar og fann hún bátinn. Varðskipið fór á staðinn og þegar þangað var maðurinn kominn í gúmmíbát. Strengfellið var gert út frá Bíldu- dal og stundaði línuveiðar á Arn- arfirði. Báturinn var smíðaður ár- ið 1961 og hét áður Gunnvör ÍS. Hann er talinn ónýtur. Ekki er vitað um tildrög strands- ins. -sbs. Aðalfundur Kaupmannasamtakanna: Tillaga um nýja formenn Sendinefnd frá Kamtsjatka stödd hér á landi: Svipaðar aðstæður hér og þar Þessa dagana er stödd hér á landi, í boði forsætisráðuneyt- isins, sendinefnd frá Kamt- sjatka. Kamtsjatka er austast í Sovétríkjunum, við strendur Kyrrahafs. Heimsóknin stend- ur fram á þriðjudag. Að sögn Jóns Sveinssonar, að- stoðarmanns forsætisráðherra, eru landfræðilegar aðstæður í Kamtsjatka og hér á landi um margt svipaðar. Sendinefndin kom hingað aðallega til að kynna sér nýtingu jarðhita, fiskveiðar, sjávarútveg, ferða- þjónustu, landgræðslu og fleira. „Áhugasvið þeirra liggur þess vegna ísvipuðum slóðum og meðal okkar,“ sagði Jón. Kamtsjatka er mikill skagi í Sovétríkjunum sem gengur út úr Síberíu og skilur að Ok- hotskahaf og Beringshaf. ís- land og Kamtsjatka eru svipuð lönd m.a. hvað varðar veðurfar og eins eru fiskveiðar þar stór hluti atvinnulífsins. -sbs. Aðalfundur Kaupmannasamtak- anna er í dag. Guðjón Oddsson, sem verið hefur formaður um 4 ára skeið, gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Bjarni Finnsson vara- formaður býður sig fram í for- mannsembættið. Sigrún Magnúsdóttir borgarfull- trúi er tilnefnd til embættis vara- formanns. Það er til vitnis um nýja tíma, sem nú eru upprunnir í Kaupmannasambandinu, eins og víðar. Áður fyrr gátu menn ekki gert sér vonir um frama þar, nema því aðeins að þeir væru í -aá. Dagbjartur Elnarsson um afnám á einkaleyfi SÍF: Um 96% framleiðenda vilja að SÍF sjái um saltfisksölu „Það stendur sem við höfum sagt, að 96% framleiðenda vildu fá að hafa þetta eins og það hefur verið, viðhalda einkaleyfi SÍF. Það liggur ljóst fyrir. Nú hafa 281 af 310 framleið- endum skrifað undir aðild sína að SÍF. Við fórum í það í haust að senda framleiðendum bréf til undirskriftar um að þeir ætluðu að vera í SÍF. Það hafði ekld ver- ið gert í fjöldamörg ár. Við réð- umst í þá herferð til þess að fá að vita hvar við stæðum. Þetta er nlðurstaðan, 96% framleiðenda eru í SÍF og vilja óbreytt kerfi. Miðað við það sem hefur gengið á undanfarin 2 ár, erum við til- tölulega ánægðir með niðurstöð- una. Hafi mönnum fundist sem það þyrfti að breyta einhveiju í þessu kerfi, erum við tiltölulega sáttir við að það skyldi þó ekki vera stærri breyting en þetta. Ameríkumarkaðurinn skiptir ekki svo miklu máli. Við höfum ekki selt mikið þangað undanfar- in ár. Mér sýnast skilyrðin, sem menn þurfa að uppfylla til að fá leyfi til útflutnings, vera nokkuð ströng. Ég geri ekki athugasemd við þau. En menn verða þá líka að fylgja þeim. Framkvæmdin er oft ekki í samræmi við yfirlýsingamar. Vilji þeirra manna, sem eru og hafa verið f þessu alla sína hunds- og kattartíð, er að fá að hafa þetta eins og það var. Þann- ig telja menn sínum hagsmunum og hagsmunum þjóðarinnar best borgið,“ segir Dagbjartur Ein- arsson saltfiskframleiðandi. -aá.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.