Tíminn - 18.04.1991, Page 1
STÖÐUGLEIKI
MEÐ STEINGRÍMI
ninimi
Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra um horfumar eftir hvalveiðiráðstefnuna hér á landi
Fullviss um hval-
veiðar sumarið '92
Full samstaða varð með fulltrú-
um hvalveiðiþjóða á fjórðu al-
þjóðlegu ráðstefnunni um skyn-
samlega nýtingu sjávarspendýra,
sem lauk í gær í Reykjavík. Full-
trúar Norðmanna lýstu því yfir á
ráðstefnunni að þeir myndu hefja
hrefnuveiðar að ári og Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra segir að með yfirlýsingunni
hafi verið mörkuð stefna sem
aðrar hvalveiðiþjóðir muni fylgja.
„Við höfum þó ekki leyst hvala-
málið, en náð mikilsverðum
áfanga,“ sagði Halldór í gær. í
ályktunum ráðstefnunnar kemur
m.a. fram hörð gagnrýni á störf
vísindanefndar Alþjóða hvalveiði-
ráðsins. Um það efni segir að
nefndin hafi hvað eftir annað
brugðist þeirri skyldu sinni að
setja fram hagnýtar reglur um
stjóm og eftirlit með hvalveiðum
samkvæmt ákvæðum alþjóða-
sáttmála um stjóm hvalveiða.
• Blaðsíða 5
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra ásamt Karsten Klepsvik, fráfarandi fonnanni N-Atlantshafsnefrídar-
innar. Timamynd: Pjetur
Ungt fólk til
ábyrgðar XB