Tíminn - 18.04.1991, Blaðsíða 2
2 Tímirin
I fjórum kjördæmum á
B-listinn möguleika
á að bæta við manni
í kosningunum, sem fram fara næst-
komandi laugardag, á Framsóknar-
flokkurinn góða möguleika á að bæta
við sig manni í fjórum kjördæmum:
Reykjavík, Vesturlandi, Vestfjörðum
og Norðurlandi eystra. Samkvæmt
skoðanakönnunum er flokkurinn í
mikilli sókn í þremur síðasttöldu
kjördæmunum. í Reykjavík er
flokknum spáð svipuðu fylgi og síð-
ast, en þá skorti flokkinn 1-2% at-
kvæða til að ná inn tveimur mönn-
um.
Framsóknarflokkurinn fékk 9,6% at-
kvæða í Reykjavík í síðustu kosning-
um. Það er ljóst að flokkurinn þarf
ekki að bæta við sig nema 1-2% at-
kvæða til að fá tvo menn kjöma.
Hvert einasta atkvæði getur því ráðið
úrslitum um það hvort Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir deildarstjóri
nær kjöri á þing. Framsóknarflokkur-
inn leggur gífurlega mikla áherslu á
að þetta markmið, sem er svo
skammt undan, náist. Engin leið er
að spá fyrir um útkomu annarra
flokka í kjördæminu.
Framsóknarflokkurinn vann mikinn
kosningasigur í Reykjaneskjördæmi í
síðustu kosningum og ekki skorti
mikið upp á að flokkurinn næði þar
inn þremur mönnum. Ljóst er að öll
áhersla er lögð á það af flokksins hálfu
að verja þennan sigur. Samkvæmt
skoðanakönnunum er viss hætta á að
Jóhann Einvarðsson alþingismaður
nái ekki kjöri, en hann skipar annað
sæti listans. Mjög mikilvægt er að
Steingrímur Hermannsson fái öflug-
an stuðning í kjördæminu. Engin leið
er að spá um útkomu annarra flokka.
I síðustu kosningum skorti Fram-
sóknarflokkinn aðeins 38 atkvæði til
að fá tvo menn kjöma í Vesturlands-
kjördæmi. Sigurður Þórólfsson bóndi
skipar þetta sæti nú, en hann er eini
bóndinn í kjördæminu sem á mögu-
leika á að ná kjöri. Samkvæmt skoð-
anakönnunum eru Framsóknarflokk-
urinn og Sjálfstæðisflokkurinn í mik-
ill sókn í kjördæminu, en Alþýðu-
flokkurinn og Kvennalistinn í lægð.
Efstu menn á listum Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks verða að teljast ömggir um að
ná kjöri. Fjórði maður mun ömgg-
lega koma annað hvort frá Framsókn-
ar- eða Sjálfstæðisflokki og þar mun
skipta mestu hvor listinn fær fleiri at-
kvæði, en fylgi flokkanna er svipað í
kjördæminu. Ef Sjálfstæðisflokkur
fær færri atkvæði en Framsókn munu
Kvennalisti, Alþýðubandalag og Sjálf-
stæðisflokkur berjast um uppbótar-
sætið.
Á Vestfjörðum á Framsóknarflokkur-
inn góða möguleika á að vinna tvo
menn, en flokkurinn hafði lengst af
tvo menn í kjördæminu en hefur nú
einn. Nýr þingmaður flokksins í kjör-
dæminu yrði þá Pétur Bjamason
fræðslustjóri. Nokkuð ömggt má telja
að Alþýðuflokkurinn tapi sínum upp-
bótarmanni. Kvennalistinn á mögu-
leika á að ná honum. Möguleikar
Sjálfstæðisflokksins á að fá þrjá
kjörna verða að teljast litlir.
Úrslit í Norðurlandskjördæmi vestra
virðast borðleggjandi. Yfirgnæfandi
líkur em á að Sjálfstæðisflokkurinn
vinni einn mann af Alþýðuflokknum.
Fylgi Framsóknarflokksins er traust í
kjördæminu og ftakkurinn hefur
fengið þar þrjá menn kjöma.
Norðurlandskjördæmi eystra er,
ásamt Norðurlandi vestra og Austur-
landi, sterkasta kjördæmi Framsókn-
arflokksins. Flokkurinn átti þar lengi
þrjá menn. Samkvæmt skoðanakönn-
unum er hann í mikilli sókn í kjör-
dæminu og ljóst er að ekki skortir
mikið á að Jóhannes Geir Sigurgeirs-
son bóndi nái kjöri á þing og taki þar
með sæti Stefáns Valgeirssonar, sem
lengi var þingmaður Framsóknar-
flokksins í kjördæminu.
Framsóknarflokkurinn hefur, þegar
fylgi flokksins hefur verið mest, feng-
ið þrjá þingmenn kjöma á Austur-
landi. Flokkurinn fékk 38,5% í kjör-
dæminu í síðustu kosningum. Tiilað
hefur verið um að í þessum kosning-
um eigi Alþýðuflokkurinn í fyrsta
skipti raunhæfa möguleika á að koma
manni frá Austurlandi á þing. Þann
mann myndu þeir væntanlega taka
frá Sjálfstæðisflokknum. Miðað við
það fýlgi, sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur fengið í skoðanakönnunum,
verður að teljast ólíklegt að krötum
Þau eiga góöa möguleika á að ná kjöri í kosningunum:
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
skipar annað sæti Framsóknar-
flokksins í Reykjavík.
Pétur Bjamason skipar annað
sæti Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum.
takist að stela manni af íhaldinu.
í Suðurlandskjördæmi em horfur á
spennandi kosningu. Baráttan stend-
ur um hver fær það þingsæti sem
Borgaraflokkurinn skipaði í síðustu
kosningum, en fullvíst má telja að
hann tapi því. Baráttan stendur milli
Sigurður Þórólfsson skipar annað
sæti Framsóknarflokksins á
Vesturlandi.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
skipar þriðja sæti Framsóknar-
flokksins á Norðuriandi eystra.
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks. Al-
þýðubandalagið er alls ekki ömggt
um að halda sínum manni. Fylgi
Framsóknarflokksins er traust í kjör-
dæminu og samkvæmt skoðana-
könnunum er flokkurinn í sókn.
-EÓ
Islenskur sjávarútvegur ekki á flæðiskeri staddur þótt Island gerist ekki aðili að EES:
Aðild að EES ekki nauðsyn
Jón Ingvarsson, stjómarformaður Sölumiðstöðvar Hraðfrystihús-
anna, sagði á aðalfundi félagsins sem hófst í gær, að íslenskur sjáv-
arútvegur væri alls ekki á flæðiskeri staddur, þó svo að ísland gerð-
ist ekki aðili að Evrópsku efnahagssvæði. Jón sagði að fríverslunar-
samningur íslands og EB tryggði tollfrjálsan aðgang að bandalag-
inu fyrir flestar frystar sjávarafurðir.
.Almennt má segja að íslenskar
sjávarafurðir hafi í dag sterka stöðu á
flestum mörkuðum vestan hafs og
austan, þótt frekari tollaívilnanir
innan Evrópubandalagsins myndu
að sjálfsögðu styrkja stöðuna enn
frekar,“ sagði Jón.
Jón sagði að svo virtist sem langt
væri í land að samningar um EES
næðust. Þar væm sjávarútvegsmálin
m.a. einn helsti Þrándur í Götu. Jón
taldi ólíklegt að þjóðir EB myndu
fallast á kröfúr íslendinga um algjöra
fríverslun með sjávarafurðir. Jón
sagði að það væm einkum Spánverj-
ar og Portúgalar sem héldu fast við
kröfur bandalagsins um aðgang að
fiskimiðum íslendinga og annarra
EFTA-ríkja. Hins vegar væm það
ekki aðeins einstök EB- ríki, sem
stæðu í vegi íslendinga í viðræðum
EFTA og EB, heldur væru frændur
okkar Norðmenn ófáanlegir til að
viðurkenna sérstöðu íslendinga og
þeir krefjist sömu tollalækkana og ís-
lendingar.
Jón vék einnig að því að árið 1990
hefði verið hraðfrystiiðnaðinum á
margan hátt hagstætt. Verð á fryst-
um fiski hafi stöðugt farið hækkandi
og þjóðarsáttarsamningarnir, sem
gerðir vom í febrúar í fyrra, hefðu
lagt gmndvöll að hjöðnun verðbólgu
og meiri stöðugleika í efnahagslífinu
en verið hefði undanfarin ár og þá
hefði fjármagnskostnaður einnig
lækkað verulega.
í skýrslu stjórnar, sem Jón flutti,
kom fram að afkoma SH var góð á
síðasta ári. Af heildarútflutningi nam
hlutur SH 94 þúsund tonnum, að
verðmæti 17,6 milljarðar króna, sem
er um helmingur útflutnings frystra
fiskafurða og um fjórðungur af öllum
útfluttum sjávarafurðum. Hjá SH var
2% samdráttur í magni í fyrra, en
27% aukning í krónum talið, miðað
við árið 1989. Heildarframleiðsla
frystihúsa og frystitogara innan vé-
banda SH var 87.300 tonn, sem er
6,2% minni framleiðsla en 1989.
Heildarútflutningur frystra sjávaraf-
urða frá íslandi á sl. ári var 189 þús-
und tonn að verðmæti 37.6 milljarð-
ar íslenskra króna, reiknað í fob-
verðmætum.
Alls fóru 85.500 tonn, eða 91% af
heildarframleiðslu SH, til sex landa í
þremur heimsálfum. Til BNA fóru
21.300 tonn, Frakklands 17.100, Jap-
ans 15.500, Þýskalands 14.200, Bret-
lands 12.700 og Sovétríkjanna 4.700
tonn. Helstu breytingar á síðasta ári
voru þær að útflutningur til V-Evr-
ópu jókst verulega, en samdráttur
varð á öðrum mörkuðum. Aukningin
til Þýskalands nam 51% og útflutn-
ingur til Frakklands og Bretlands
jókst um 29% á hvorum stað. Sam-
dráttur í útflutningi til BNA nam
22%, til Japans 18% og útflutningur
til Sovétríkjanna dróst saman um
31%.
Jón Ingvarsson sagði að afkoma SH
hérlendis hefði verið góð á síðasta
ári. Arður til félagsmanna í formi
endurgreiðslu nemur tæplega 144
milljónum króna, sem svarar til
0,85% af útflutningsverðmætum
1990. Hagnaður var einnig af dóttur-
fyrirtækjunum Jöklum hf. og Um-
búðamiðstöðinni hf. Heildarhagnað-
ur, að meðaltalinni afkomu erlendu
dótturfélaganna, nemur 302 milljón-
um króna, en var tæplega 70 milljón-
ir árið 1989. —SE
‘ XJ- ‘ ; r> • i' lO'iíPltff!'’!!-'
Fimmtudagur 18. apríl 1991
Iðunn Steinsdóttir með verð-
launin. Timamynd: Aml Bjanna
Iðunn Steinsdóttir
hlaut bamabókaverö-
launin 1991. Ármann
Kr. Einarsson:
Iðunn er
jafnoki
Astrid
Lindgren
Úrslit í samkeppni Verðlauna-
sjóðs íslenskra barnabóka voru
kunngerð hjá Vöku-Helgafelli í
gærdag að viðstÖddum mennta-
málaráðherra og fjölda gesta.
Hlaut verðlaunin Iðunn Steins-
dóttir fyrir bók sína „Gegnum
þymigerðið“, en hún hefur tví-
vegis áður hlotið verðlaun iyrir
bamabækur sínar og er þetta
tólfta bók hennar.
Liðlega 30 handrit bámst í
keppnina að þessu sinni, en
bamabókaverðiaunin em nú
veitt í sjötta sinni. Nema verð-
launin 200 þúsund krónum og
ritlaunum að auki, en verð-
launasagan kom út hjá Vöku-
Helgafelli í gær.
Olafur Ragnarsson, forstjóri
Vöku- Helgafells, ávarpaði gesti
og kom fram í máli hans að
„Gegnum þymigerðið“ sé ný-
stárleg og spennandi ævintýra-
saga, sem gerist fyrir Ianga
löngu. Álit dómnefndar er sem
hér segir: „Efnið skírskotar
engu að síður á áhrifamikinn
hátt til samtíðar okkar og þeirra
breytinga sem em að verða á
meginlandi Evrópu. Veridð
geislar af frásagnargleði og per-
sónur verða Ijóslifandi fyrir
hugskotssjónum lesenda.“
Þá tók til máls Ármann Kr.
Einarsson rithöfundur, en Verð-
launasjóður íslenskra bamabóka
var stofnaður á sjötugsafmæli
hans 1985. Ármann fyllyrtl að
sjóðurinn hefði orðið bamabók-
menntum til óvíræðrar eflingar
og minnti á að Iðunn er fyrsti
kunni höfundurinn er verðlaun-
in hlýtur, en allir fyrri verð-
launahafamir flmm hefðu verið
að þreyta fmmraun sína. Hann
kvaðst hafa lesið handrit bókar
Iðunnar oftar en eínu sinni og
líkti henni við Astrid Lindgren
að hugmyndaríki og vönduðum
vinnubrögðum. Fór hann fleiri
fógmm orðum um verkið.
Loks ávarpaði menntamálaráð-
herra verðlaunahöfundinn og
viðstadda, en menntamálaráð-
neytið hefur styrkt verðlauna-
sjóðinn. Hljómsveit Tónlistar-
skóla Reykjavíkur lék við at-
höfnina undir stjóm Sæbjöms
Jónssonar.