Tíminn - 18.04.1991, Blaðsíða 6

Tíminn - 18.04.1991, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 18. apríl 1991 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin (Reykjavfk Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason SkrifetofunLyngháls 9,110 Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsfman Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Tilhæfulaus gróusaga Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra hefur mjög lagt sig fram um það að kynna fyrir sjávarút- vegsráðherrum Evrópulanda stefnu íslendinga í físk- veiðimálum og sölumálum fisks og fiskafurða. For- sætisráðherra hefur einnig haldið uppi slíkri kynn- ingarstarfsemi í viðræðum við leiðtoga Evrópuþjóða og utanríkisráðherra hefur að sjálfsögðu unnið að slíkri kynningu fyrir sitt leyti. Það hefur verið mjög eindregin afstaða ríkisstjórn- ar Steingríms Hermannssonar að gefa engan ádrátt um að veita veiðiheimildir innan fiskveiðilögsögu ís- lands gegn tollafríðindum í Evrópubandalaginu. Þessi afstaða er raunar jafngömul upphafi viðræðna um viðskiptamál milli EB og EFTA fyrir 18-19 árum (í miðju þorskastríðinu) allt til þessa dags og engin breyting þar á. Hér er um svo viðtekna stjórnarstefnu að ræða gegnum árin, að það þarf þó nokkra bíræfni til að skrökva því upp að nokkrum ráðherra á öllum þessum tíma hafi nokkru sinni dottið í hug að frá henni yrði vikið. Það hlýtur því að vekja furðu að utanríkisráðherr- ann sjálfur, Jón Baldvin Hannibalsson, lætur Morg- unblaðið hafa það eftir sér í gær að sjávarútvegsráð- herra hafi ýjað að slíku fráviki í viðræðum við Manú- el Marin, sjávarútvegsstjóra EB, í mars 1989. Þarna er utanríkisráðherra að vekja upp gróusögu sem hann sjálfur kvað drengilega niður á sínum tíma, en Morgunblaðið hafði búið til með aðstoð þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins. Gróusaga Morgun- blaðsins byggðist á útúrsnúningi á fundargerð frá fundi Marins og HalldórsÁsgrímssonar 7. mars 1989 og hefur legið dauð og ómerk í full tvö ár, þangað til utanríkisráðherrra vekur hana til lífsins með atbeina Morgunblaðsins í gær. Á sínum tfma var reynt að gera úr því sögu að utan- ríkisráðherra átti óformlegar viðræður við Marin í Briissel. Til þessa fundar var stofnað í fullu samráði við ríkisstjórnina og sjávarútvegsráðherra taldi sér skylt að gera ráðherrum og utanríkismálanefnd Ah þingis grein fyrir hvernig orð féllu í viðræðunum. Á þessum óformlega fundi var af hálfu EB-manna en ekki íslendinga vikið að gagnkvæmum veiðiheimild- um, sem sjávarútvegsráðherra gerði strax grein fyrir að væri óraunhæft umræðuefni, þótt svo vildi til að það bæri á góma og fundargerðin sýndi að svo hefði verið án þess að annað hefði gerst. En gróusögur spretta oft að tilefnislausu, eins og í þessu tilfelli. Morgunblaðið bar söguna út á sinni tíð, en svæfði hana síðan, enda átti Jón Baldvin mikils- verðan þátt í að gera öllum ljóst að söguburður sjálf- stæðismanna og Morgunblaðsins um að innan ríkis- stjórnar hefðu „kviknað“ hugmyndir um að skipta á veiðiheimildum og tollfríðindum væri ósannur. Fáum getum skal leitt að því hvað utanríkisráð- herra gengur til að grípa til gamallar gróusögu úr Morgunblaðinu og láta eins og hún sé sönn, þó að hann hafi sjálfur afsannað hana manna skýrast fyrir tveimur árum. Líklegast er þó að þetta sé pólitískt frumhlaup sem ekki hittir annan fyrir en utanríkis- ráðherrann sjálfan. Albaníu-sveifla Kins og ktmnugt et þá slgruðu kommúnistar í Albaníu lýöræðis- flokka í allsberjarkosningum þar í landi nýverið. Þessi Albaníusveifta kom á óvart, eftir aö afgangurinn af Austur-Evrópu hafði svipt af ser oki kommúnismans og orðið írels- inu feginn. Hér á landi svipar pól- itískri þróun sfðustu daga töiuvert til þróunarinnar í Albanfu og kem- ur það hvergi betur í ljós en í skoð- anakönnun Félagsvísindastofnun- ar HáskóJa íslands, sem Morgun- blaðið bírti í gær. Þessi skoðana- könnun sýnir mikla uppsveiflu hjá Sjálfsteðisflokknum, en um hana var vitað. Borgaraflokkurinn hefur skflað sér aftur heim í herbúöirn- ar, enda er hann genginn til grafar og nær ekki hálfu prúsenti f könn- uninni. Hin uppsveiflan er hjá Al- þýðubandalaginu. I sams konar könnun síöast féldí bandaJagíö rétt rúm 10% en hefur bætt við sig 5%. Þetta sýnir að iengi lifir í gömium kommagiæðum og skyid- leikinn við Albaníu er augljós. Kveinstafamaöur á hrakhólum Þessi skyndilega fylgisaukning Alþýðubandalagsins vekur undr- un, þegar horft ertil Nýs vettvangs og klofningsins, sem varð fyrir borgarstjómarkosningamar. Þá er Össur Skarphéðinsson í þriðja sæti á lista Alþýðuflokksins í Reylqavík og talar digurt « kosn- ingablaði ungkrata, þar sem hann segist vllja láta verlrin tala. Þá hef- ur pólitískur kveinstafamaður úr röðum allabafla, Páfl Hafldórsson, formaður BHMR, bvatt hið mcnntaða lið, sem lengi hefur leg- ið á brjóstum Alþýðubandalagsins, tfl að kjósa Kvennaiista. Svo afsið- aður er kveinstafamaðurinn orð- inn, að hann segist ekki reyna að beita sér gegn straumi kjósenda tfl vSjálfstæðisflokksins. BHMR er sem sagt á faraldsfæti samkvæmt Páli Halldórssyni, en samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar hafa þeir BHMR-menn allir skilað sér aftur heim í Alþýðubandaiagið tii að sfyrkja endurreisn kommún- ismans samkvæmt fyrirmyndlnni frá Albaníu. Alveg er jjóst að þeir hjá BHMR þurfa meira en þref um samnlnga 111 að hætta að greiða Aþýðubandalaginu atkvæðL Þeir vita sem er að yfirráð bandalagsins á sviöi mennta- og menningarmáia eru slík, að það jaðrár við atvinnu- leysi, að ætla að ganga gegn bandaiaginu í kosningum. Þess vegna hafa þeir hjá BHMR snúið „heim“ eftir jaml og japl og fuður og stóra kveinstafi. Föðurbetrungur Þegar kommúnisminn hrundi alls staðar nema á íslandi og i Albaníu héh Aiþýðuflokkurinn að nú væri tækifærið tfl að hefha fyrir undir- róður og klofningsstarfsemi kommúnista innan Alþýðuflokks- ins. Fyrstu klufu þeir flokkinn 1930. Næst gekk Héðinn Valdi- marsson úr Alþýðuflokknum og tfl liðs við kommúnista. Og nú sfðast kom Hannibal Valdimarsson og gerðist gistivinur þeirra um skeíð. 1 þessí þrjú skipti fylgdi nýtt nafn á kommúnistum. Til enn frekari samlikingar má geta þess að Kommúnistaflokkur Albaníu hef- ur Iflca skipt um nafn. Jón Baldvin, sem gerst hafði föðurbetrungur og fylgdi eklri Alþýðubandalaginu lengur, beittí sér fyrir því að Al- þýðuflokkurinn opnaði faðminn fyrir þelm, sem hugðust yfirgefa komrnúnista, og freista þess þó miðaidra væru að reyna að ná pól- itískum þroska. Eitthvað gengu þær vendingar brösuiega. Kratar borgarstjúm og einn hlaupa- komma í framboði. Fylgi jókst ekkert við kratana. Skoðanakönn- un sýnti að þeti eru að tapa. Göml- um fylgismönnum krata ægti að eíga að fara að kjósa össur Skaip- héðinsson. Hlaupakommi í öndvegi Fátt mun koma á óvart í kosning- unum á laugardaginn. Spádótnar og skoðanakannanir em þegar búnar að greina helsta sveíflumar í kosningunum. Sjálfstæðisflofck- urinn vinnur Borgaraflokksfyjgið aftur og Alþýðubandalagið nær inn þeim slaka, sem kominn var á fylgi þess. Tflraunir Alþýöuflokksins til að ná árangri Í kosningunum virð- ast ekki ætla að bera árangur. Ai- baníu- sveiflan ætlar að sjá tfl þess að loka röðum kommúntsta. Al- þýðuflokknum hefur eldri teldst að Wjúfa kommana, en tilraunir flokksins hafa þó lettt einn hlaupa- komma til öndvegis á framhoðs- listanum í Reykjavfk, Hann gerir þar það eitt gagn að gera gömlum og tryggum Aiþýðuflokksmönnum erfitt fyrir með að kjósa listann. Til að kóróna skommina skrifa svo sagnfræðingar kommúnista grein- ar til að sanna, að það hafi ekld verið þeti, scm reyndu í þrigang að eyðileggja Alþýöufiokkinn. Það var Alþýðaflokkurinn sem Jdauf, segja þeir, m.a. af þvf hann vfldi ekki meötaka medisín Stalíns. Garri VÍTT OG BREITT .... .... .. . . 1n Það sem máli skiptir Stefnuleysi Sjálfstæðisflokksins í öllum helstu málum sem uppi eru í kosningabaráttunni setur sinn svip, eða öllu heldur svipleysi, á stjóm- málaumræðuna. Það er varla hægt að eiga orðastað við frambjóðendur íhaldsins vegna þess að þeir hafa enga skoðun að verja og engan mál- stað að sækja. Setji einhver fambjóöandi Sjálf- stæðisflokksins fram stefnumörkun í einhverju máli kemur annar í öðru kjördæmi og heldur stíft fram gagn- stæðri skoðun. Svona veltast þeir áfram í kosningahríðinni og múgur manns skrifar í íhaldsmálgögnin um hinar fjölbreyttustu sérþarfir og býður upp á svo margvísleg úr- lausnarefni að maður er farinn að halda að Sjálfstæðisflokkurinn sé það allragagn sem tekur við öllu því sem flokksmenn þurfa að létta af sér En þótt hvergi bóli á markmiðum óskar íhaldið eftir að einn flokkur sé kosinn til ábyrgðar, eins og þaö er orðað, en með hvaða hætti á að bera ábyrgð á þjóðarskútunni frægu er einkamál fjölskyldnanna fjórtán sem eiga Sjálfstæðisflokkinn og verða háttvirtir kjósendur upp- fræddir um það í fyllingu tímans, það er að segja eftir kosningar. Úrelt kosningamál Þar sem hin umfangsmikla stjóm- arandstaða með allt sitt fjölmiðla- veldi hefur ekki döngun í sér til að útskýra hver eru markmið og leiðir sem stefnt skal að, veltist það að vonum fyrir mörgum um hvað á að fara að kjósa.Þessi kosningabarátta er ólík flestum þeim sem menn muna. Nú lofar enginn flokkur eða stjórnmálamaður því, að ná verð- bóigunni niður á næsta kjörtíma- bili. Það er búið að ná henni niður fyrir það stig sem flestar nágranna- þjóðimar verða við að una. Það gerði ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. í kosningahríðinni sem nú stend- ur hvað hæst er ekki minnst einu orði á varnarliðið og vem þess á ís- lenskri gmnd. Atlantshafsbandalag- ið er ekki einu sinni nefnt á nafn, hvað þá að deilt sé um hvort íslend- ingar eiga að vera í því eða ekki. Varsjárbandalagið er ekki lengur til og allaballar hafa ekkert lengur út á Nató að setja. Þess vegna geta þeir sem best skriðið upp í hjóna- sængina til íhaldsins eftir kosningar og uppfyllt hinar „sögulegu sættir" sem Morgunblaðið hefur svo lengi látið sig dreyma um. Það mál sem mestum hita veldur í kosningabar- áttunni er afstaöan til Evrópu- bandalagsins og þeir flokkar sem helst hafa daðrað við aðild íslands aö samtökunum rembast nú við eins og rjúpa við staur að sýna og sanna að aðildin sé ekki kosninga- mál, og vilja helst ekki um annaö tala. Varðveitum stöðug leikann Þar sem hin eiginlegu kosninga- mál em lítið rædd, vegna þess að umræðu um þau er drepið á dreif, er rétt að ítreka, að í stað þess að berjast við að kveða verðbólgu- drauginn niður, verður það helsta verkefni næstu ríkisstjómar að við- halda því efnahagslega jafnvægi sem náðst hefur. Að sjá svo um að þjóðarsáttin verði ekki sprengd í loft upp með hörmulegum afleiðingum. Það er hinn efnahagslegi stöðug- leiki sem þarf að varðveita og takist það munu mörg önnur vandamál hverfa eins og dögg fyrir sólu. Fjár- hagslegt sjálfstæði fyrirtækja og einstaklinga er forsenda fyrir fögm mannlífi og grósku í menntum og mannrækt. Basl og öryggisleysi veldur sundr- ungu og rótleysi fjölskyldna og þar með heilu þjóðfélagshópanna. Ekk- ert er betur til þess fallið að auka til- trú manna á sjálfum sér og getu til að ráða fram úr vandamálum sínum en stöðugleiki og styrk stjóm efna- hagsmála sem gerir fólki kleift að hafa stjórn á eigin fjármálum og þar með sjálfstæði sínu Ásættanlegt verðbólgustig og stöðugleiki er því miklu meira og afdrifaríkara mál en virðast kann í fljótu bragði. Sjálf- stæð þjóð í eigin landi er kjörorð sem vert er að hafa í huga í kjörklef- anum og gleyma heldur ekki hve mikils virði efnahagslegur stöðug- leiki er. Kosningabaráttan stendur því um stefnufestu eða stefnuleysi, eða öllu heldur stefnu sem fjöl- skyldurnar 14 láta ekki uppi fyrr en eftir kosningamar. Og þá verður of seint að iðrast ef illa fer. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.