Tíminn - 18.04.1991, Side 11
Fimmtudagur 18. apríl 1991
Tíminn 11
Norðurland eystra:
Átta flokkar bjóða
fram til Alþingis
Verölaunafhending á Keflavíkurflugvelli. Frá vinstrí talið: Thomas F.
Hall, yfímiaður Vamariiðsins, Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri og
James I. Munsterman, yfirmaður flotastöðvarínnar.
Keflavíkurflugvöllur:
SLÖKKVILIÐIÐ
FÆR VERÐLAUN
Kjósendur á Norðurlandi eystra
geta valið á milli átta lista í komandi
alþingiskosningum. Listarnir átta
eru: Alþýðuflokkur, Framsóknar-
flokkur, Sjálfstæðisflokkur, Frjáls-
lyndir, Alþýðubandalag, Samtök
jafnréttis og félagshyggju - Heima-
stjórnarsamtökin, Kvennalistinn og
Þjóðarflokkur - Flokkur mannsins.
Á kjörskrá í Norðurlandskjördæmi
eystra eru 18.434, og er það um
2,9% fjölgun frá síðustu alþingis-
kosningum. Utankjörstaðaatkvæða-
greiðsla er hafin, og hafa nokkrir
tugir kjósenda þegar greitt atkvæði.
Listarnir átta ásamt þremur efstu
mönnum hvers lista eru:
A-Alþýðuflokkur:
l.Sigbjörn Gunnarsson Akureyri.
2.Sigurður Arnórsson Akureyri.
3.Pálmi Ólason Þórshöfn.
B-Framsóknarflokkur:
l.Guðmundur Bjarnason Húsavík.
2.Valgerður Sverrisdóttir Lóma-
tjörn.
3.Jóhannes Geir Sigurgeirsson
Eyjafjarðarsveit.
D-Sjálfstæðisflokkun
1. Halldór Blöndal Akureyri.
2. Tómas Ingi Olrich Akureyri.
3.Svanhildur Árnadóttir Dalvík.
F-Fijálslyndir:
l.Ingjaldur Arnþórsson Akureyri.
2.Guðrún Stefánsdóttir Akureyri.
3Andri Gylfason Akureyri.
G-Alþýðubandalag:
l.Steingrímur Sigfússon Þistilfirði.
2.Stefanía Traustadóttir Reykjavík.
3.Björn Valur Gíslason Ólafsfirði.
H-Samtök jafnréttis og félags-
hyggju.
1. Benedikt Sigurðarson Akureyri.
2. Bjarni Guðleifsson Möðruvöllum.
3. Trausti Þorláksson Öxarfirði.
V-Kvennalistinn:
l.Málmfríður Sigurðardóttir
Reykjadal.
2.Sigurborg Daðadóttir Akureyri.
3.Elín Stephensen Akureyri.
Þ-Þjóðarflokkun '
1. Árni Steinar Jóhannsson Eyja-
fjarðarsveit.
2Aina Helgadóttir Kópaskeri.
3.Björgvin Leifsson Húsavík.
hiá-akureyri.
Nýlega afhenti Thomas F. Hall
flotaforingi, yfirmaður Varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli, yfirmanni
flotastöðvarinnar og slökkviliðinu
þar verðlaun sem liðið vann nýlega
til í samkeppni milli allra slökkviliða
bandaríska flotans og landgönguliða
hans.
Um er að ræða samkeppni á vegum
samtaka um brunavarnir innan alls
bandaríska flotans og landgöngu-
liðsins. Þátttakendur eru öll slökkvi-
lið flotans og landgönguliðsins.
Keppt er um besta viðbúnað og ár-
angur í brunavörnum mannvirkja í
flotastöðvum og á skipsfjöl. Hlaut
slökkvilið varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli þriðju verðlaun að þessu
sinni.
Slökkviliðið er eingöngu skipað ís-
lenskum starfsmönnum. Haraldur
Stefánsson, yfirmaður þess, veitti
verðlaununum viðtöku fyrir hönd
sinna manna.
Sjálfsbjörg kynnir:
Aðlögunarnámskeiö
fyrir fatlaða
Dagana 10.-12. maí nk. gengst
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
fyrir námskeiði fyrir hreyfihamlaða.
Þar verður fjallað um félagslegar af-
leiðingar fötlunar. Fluttir verða
stuttir fyrirlestrar um viðhorf al-
mennings til fötlunar, viðbrögð vina
og vandamanna og viðbrögð ein-
staklingsins við breyttum aðstæð-
um. Á námskeiðinu verður einnig
fyrirlestur um tryggingamál og rétt-
indi fatlaðra, þjónustu og starfsemi
sem tengist fötluðum.
Á námskeiðinu verður mikið unnið
í litlum hópum. Þar verða rædd ým-
is mál sem snerta daglegt líf fatlaðs
fólks, bæði mál sem öllum eru sam-
eiginleg og svo sérstök vandamál
þátttakenda. Hópstjóri er í hverjum
hópi sem hefur menntun og reynslu
af vinnu með fötluðu fólki. Engin
líkamleg þjálfun fer fram á nám-
skeiðinu.
Námskeiðið er miðað við fólk eldra
en 16 ára, sem hefur fatlast á síðustu
árum. Dæmi um slíkt eru mænu-
sköddun, vöðva- og miðtaugakerfis-
sjúkdómar, klofinn hryggur, helftar-
lömun, útlimamissir og fleira. Auk
hreyfihamlaðra eru ættingjar, mak-
ar og vinir einnig boðnir velkomnir
á námskeiðið.
Námskeiðið verður í húsi Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra, Reykjadal
í Mosfellsbæ. Námskeiðsgjald er kr.
4.400. Landsbyggðarfólk er styrkt til
þátttöku. Fæði, gisting og nám-
skeiðsgögn eru innifalin.
Þátttaka tilkynnist fyrir 26. apríl til
Lilju Þorgeirsdóttur eða Ólafar Rík-
arðsdóttur á skrifstofutíma í síma
91-29133.
GÓÐ
DEKK
Á
GÓÐU
VERÐI
BÚMMímilSTOFMIf
RETTARHALS 2
84008 &. 84009 - SKIPHOLTI 35 31055
Nefnd um
landhreinsun
Víða um land getur að líta gömul
mannvirki, húsatóftir, bryggjur,
girðingar og fleira sem eru til lýta
í landslaginu og geta beinlínis ver-
ið hættuleg umhverfi sínu. Æski-
legt væri að hefja skipulegt átak til
að fjarlægja slík mannvirki um allt
land. Umhverfisráðherra hefur því
skipað sérstaka nefnd til að kanna
umfang þeirra mannvirkja, sem
æskilegt væri að fjarlægja og gera
framkvæmdaáætlun fyrir slíkar
hreinsunaraðgerðir.
Það sem verður sérstaklega at-
hugað eru eftirfarandi atriði:
Ónýtar byggingar á jörðum svo
sem íbúðarhús, útihús, gamlar
fjárborgir og mannvirki frá stríðs-
árunum. Gamlar bryggjur, bragg-
ar, skúrar og trönur, sem enginn
hefur lengur hag af og enginn ber
ábyrgð á. Bátsflök og annað drasl í
fjörum. Girðingar og margs konar
dót, sem skilið hefur verið eftir á
eyðijörðum.
í nefndinni eiga sæti: Hrafn Hall-
grímsson, arkitekt, umhverfis-
ráðuneyti, formaður, Gunnar M.
Jónasson, Stofnlánadeild landbún-
aðarins, Magnús Sigsteinsson,
landbúnaðarráðuneytinu, Gfsli
Einarsson oddviti, Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga, Sigtryggur
Stefánsson, tæknifræðingur, Akur-
eyri.
|
|
i
I
Í
I
Í
i
i
i
[
I
I
I
I
I
ERTU I BILAHUGLEIÐINGUM?
"|Ví)®íííN
VERÐ FRA
KR: 453.000.-
TIL
AFHENDINGAR
STRAX!
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HR
Ármúla 13108 Reykjavík Símar 68 12 00 & 312 36
I
I
■■
|
I
I
I
i
i
i
i
!
■■
|
i
i
I
I
i
i