Tíminn - 18.04.1991, Síða 19

Tíminn - 18.04.1991, Síða 19
Fimmtudagur 18.apríl 1991 Tíminn 1Ö IÞROTTIR . Körfuknattleikur—Landsliðið: Tólf áblaó þegar ísland vann Skota 84-61 í hinu glæsiiega íþróttahúsi Fjölbrauta- skólans í Breiðholti í gærkvöld Sterkur vamarleikur var í fyrirrúmi hjá landsliðum íslands og Skot- lands, er liðin mættust í fyrsta vin- áttulandsleiknum af þremur, en leikurinn fór fram í hinu nýja og stórglæsilega íþróttahúsi Fjöl- brautaskólans í Breiðholti í gær- kvöld. íslenska liðið vann öruggan sigur 84-61, eftir að staðan í leik- hléi var 39-25. Leikmönnum gekk ákaflega illa að finna Ieiðina í körfuna framan af leiknum, en það tekur tíma að venj- ast nýjum körfum. íslenska liðið lék pressuvörn, Maður á mann, allan leikinn og gekk sú leikaðferð ágæt- lega upp. Skotamir voru hreint ekki Úrslitin í gærkvöld! Handknattleikur- Úrslitakeppnin: Efri hluti Haukar-Stjarnan 24-25 Valur-FH 33-22 Víkingur-ÍBV 26-20 Neðri hluti ÍR-KA 19-16 KK-Fram 20-24 Selfoss-Grótta 24-26 Evrópukeppni landsliða í knattspymu: Ungverjaland-Sovétríkin 0-1 Holland-Finnland 2-0 Pólland-TVrkland 3-0 BL slæmir í vörninni, en sóknarleikur þeirra var fremur bágborinn. Þar er þó undanskilinn Jim Morrison sem hitti mjög vel í síðari hálfleik. Torfi Magnússon notaði alla 12 Ieik- menn sína í gær og komust þeir allir á blað. Byrjunarliðið Jón Kr., Falur, Teitur, Valur og Magnús voru síst meira áberandi en aðrir, enda liðið mjög jafnt. Páll Kolbeinsson komst vel frá leiknum og sömu sögu er segja um Kristin Einarsson, sem lék sérlega vel í vörninni. Einnig komst Axel Nikulásson vel frá leiknum, en baráttuhund eins og hann er gott að hafa í landsliðinu. Annars verður íslenska liðið vart dæmt af þessum leik; til þess er skoska Iiðið einfaldlega of slakt. Leikinn dæmdu þeir Kristinn AI- bertsson og Helgi Bragason. Dóm- gæsla þeirra, sem heldur var íslandi í vil, fór mjög í taugarnar á Skotun- um, sem fengu á sig ein 6 tæknivíti í leiknum. Stigin ísland: Páll Kolbeinsson 14, Valur Ingimundarson 9, Axel Niku- lásson 9, Guðni Guðnason 9, Jón Arnar Ingvarsson 8, Falur Harðarson 7, Kristinn Einarsson 6, Magnús Matthíasson 6, Teitur Örlygsson 5, Jón Kr. Gíslason 4, Guðjón Skúlason 3 og Sigurður Ingimundarson 3. Skotland: Morrison 21, Archibald 10, Kiddie 5, Mitchell 7, Murrhead 6, Ry- an 4, Smart 2 og Lamb 1. Liðin mætast á ný í Kaplakrika í kvöld kl. 20.00. BL Krístinn Einarsson Njarövíkingur reynir körfuskot í leiknum í gær. Til vamar er Alan Kiddie. Krístinn, sem á ný er kominn í landsliðiö eftir nokkurt hlé, átti góðan leik í leiknum. Tímamynd Pjetur íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastefna til ársins 2000: Ríkið í fyrsta sinn með stefnu í íþróttamálum Afreksmenn í íþróttum á launaskrá ríkisins Nýlega kynnti menntamálaráð- herra, Svavar Gestsson, skýrslu um stefnumótun í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum, en nefnd, sem ráðherra skipaði í desember 1988, vann að skýrsl- unni. Nokkuð er um liðið síðan menn fóru að ræða um þörf á heildarstefnumótun á þessu sviði og fyrir fáum árum sam- þykkti Alþlngi þingsályktunartil- lögu frá Finni Ingólfssyni um að ráðist skyldi í gerð slíkrar stefnu. Það kom fram í máli ráð- herra að hingað til hefur ekki verið til ákveðin stefna ríkisins í þessum málum. Ráðherra sagði ennfremur að mestur hluti þess- arar starfsemi væri í höndum frjálsra félagasamtaka og svo yrði áfram. Þrátt fyrir það væri nauðsynlegt að ríkið hefði mark- vissa stefnu í þessum yflrgrips- mikla málafloldd. í skýrslunni er komið inn á fjöl- marga þætti íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamála svo sem end- urskoðun íþróttalaga, ört vax- andi hlut almenningsíþrótta, íþróttamiðstöð íslands á Laugar- vatni, fjölgun íþrótta- og frjálsra tíma í skólum, eflingu kvenna- íþrótta og íþrótta fatlaðra, stofn- un afreksmannasjóðs, menntun íþróttakennara og leiðbeinenda, íþróttamannvirid og rannsóknir á íþróttum. í niðuriagi inngangs skýrslunn- ar segin „Nauðsyniegt er að styðja fjárhagslega vel við bakið á þeim aðilum er fást við íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf- semi án þess að taka frumkvæð- ið af þelm. Skapa þarf félags- starfsemi betri aðstöðu til að mæta aukinni þörf á komandi ár- um sem sérstaklega er fólgin í því að koma betur til móts við þarflr hvers og eins einstaklings. Slíkar kröfur kalla aftur á endur- uppbyggingu náms þeirra er sinna stjómunarhlutverkum f þessum málaflokkum.“ í skýrsiunni segir í kafla 2.2.14 um afreksíþróttir. „Kröfur til einstaldinga sem stunda keppnisfþróttir aukast með bættum árangri. Til þess að keppnisfólk í íþróttum geti tekið þátt í alþjóðlegri keppni fyrir hönd þjóðarinnar þarf að gera því klelft að æfa og keppa við svipað- ar aðstæður og aðrir keppendur. Til þess að svo megi verða þarf að endurskoða þær reglur sem í gfldi eru um afreksmannasjóð íþróttasambands íslands og auka fjármagn í sjóðinn svo launa megi íþróttamönnum sem skara fram úr fyrir vinnu sína og framlag til íþrótta. Vinna þarf að ítariegrí stefnumótun um þetta mál og setja um það lög og reglu- gerð.“ Hér em nokkur atriði til efling- ar afreksíþróttum á íslandi: 1. Semja þarf reglugerð um það hver telst afreksmaður. 2. Veita þarf árlega ákveðnu flár- magni til afreksíþrótta úr ríkis- sjóði. Árlegt framlag fer eftir því hve marga afreksmenn við eig- um í hvert skipti. 3. Afreksmenn skulu vera á launaskrá ríkisins eitt ár í einu eöa á meðan þeir teljast afreks- menn. 4. Hver sá sem telst afreksmað- ur í íþróttum skal hafa ákveðnar vinnuskyldur gagnvart íþrótta- starfsemi í landinu á meðan hann nýtur iauna úr afreks- mannasjóði. Nefndin hefur lagt mikla vinnu í gerð skýrslunnar, sem vonandi sldlar sér út í íþróttalífið. For- maður nefndarinnar var Ámí Guðmundsson æskulýðsfulltrúi I Hafnarfírði. BL Skíði: Kristján og Árni urðu bikarmeistarar í göngu Síðasta bikarmót vetrarins í skíða- göngu var haldið í Hlíðarfjalli við Ak- ureyri um síðustu helgi. Keppt var í flokkum 17-19 ára og 20 og eldri. Þeir yngri gengu 10 km en þeir eldri 15 kin. Hefðbundinni aðferð var beitt í báð- um flokkum. Brautin var 5 km lang- ur hringur, mjög erfiður, sem síðan var tví- og þrígenginn. Besta veður var og gott færi. Sigurvegarar í göng- unni urðu Kristján Ólafur Ólafsson frá Akureyri í yngri flokknum og Sig- urgeir Svavarsson Ólafsfirði í eldri flokknum. Þeir höfðu báðir nokkra yfirburði og var sigur þeirra fljótlega nokkuð vís. Úrslitin urðu sem hér segir: Flokkur 17-19 ára 1. Kristján Ól. Ólafsson Ak 32,01 2. Kristján Hauksson ÓL 33,31 3. Kári Jóhannesson AK 34,06 Flokkur 20 ára og eldri l.SigurgeirSvavarssonÓL 47,07 2. Árni Freyr Antonsson AK 51,07 3. Sigurður Aðalsteinsson AK 52,29 Úrslitin í bikarkeppni vetrarins Iágu fyrir eftir þessa keppni. í flokki 17-19 ára varð Kristján Ólafur Ólafs- son bikarmeistari 1991, en í flokki 20 ára og eldri var það Árni Freyr Antonsson sem hreppti bikarinn. BL Haglabyssuskotfimi: Einar kvaddi með sigri Vertíð haglabyssumanna (skeet) er nú hafin og um helgina fór fram fyrsta mót ársins á velli Skotfélags Reykjavflcur í Leirdal. Skotsambandið sá um móts- hald og til leiks mætti 21 keppandi frá 4 skotfélögum, frá Reykjavflc, Hafnarfirði, Suðurlandi og Keflavflc. Þrátt fyrir 27 hnúta vind og mikla slyddu fór mótið allsæmilega fram. Sveinn Sigurjónsson úr Skotfélagi Reykjavíkur var einn þeirra mörgu kepp- enda sem nú kepptu í fyrsta skipti. Hann gerði sér lítið fyrir og náði næstbesta ár- angrinum á mótinu og sigraði f 3. flokki. í 2. flokki sigraði Hreimur Garðarsson úr Skotfélagi Suðurlands. Ævar Österby formaður Skotfélags Suðurlands sigraði í 1. flokki. Á mótinu tilkynnti Einar P. Garðarsson úr Skotfélagi Reykjavíkur að hann hygð- ist taka sér frí frá æfingum um óákveð- inn tíma, en Einar er einn af okkar bestu skotmönnum og er handhafi bikarmeist- aratitils, ásamt því að hafa oftast sigrað á skotmótum í haglabyssuskotfimi sl. 2 ár. Hann er einn örfárra manna sem komist hafa í meistaraflokk Skotsamabands ís- lands, en sá árangur er til jafns við að ná viðmiðun til vals á Ólympíuleika. Einar sigraði í meistaraflokki á mótinu. Urslitin á mótinu urðu sem hér segir: Meistaraflokkur 1. Einar P. Garðarsson SR 23 17 40 1. flokkur 1. Ævar Österby SFS 18 18 36 2. Rafn Halldórsson SÍH 17 17 34 2. Björn Halldórsson SR 16 18 34 2. flokkur 1. Hreimur Garðarsson SFS 17 19 36 2. Jóhannes Jensson SR 15 15 30 3. Cuðbrandur Einarss. SFS 11 16 27 3. flokkur 1. Sveinn Sigurjónsson SR 21 18 39 2. Eyjólfur Oskarsson SR 19 16 35 3. Jón Ámi Þórisson SR 17 14 31 BL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.