Tíminn - 18.04.1991, Síða 20
AUGLYSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NÚTIMA FLUTNINGAR
Hatnorhusinu v Tryggvagolu.
_____S 28822____
MbK ^iC^ábriel / HÖGG- - DEYFAR . í ‘Verslió hiá faemönnum
Ókeypis auglýsingar fyrir eínstaklinga
POSTFAX 91-68-76-91 PM.IWM Hamarsböfða 1 - s. 67-6744 f
TVÖFALDUR1. vinningur
líniinn
FIMMTUDAGUR 18. APRlL 1991
Sala og afkoma dótturfyrirtækja SH og söluskrifstofa á síðasta ári:
Söluaukning í Evrópu
en samdráttur í BNA
Sjávarafurðasala Coldwater Seafood Corp. í BNA dróst saman
um 9% í magni talið og 3% í verðmætum miðað við 1989. Tæp-
lega 30% aukning varð í sölu dótturfyrirtækis SH í Bretlandi á
sama tíma, Icelandic Freezing Plants Ltd., og 29% magnaukn-
ing og 44% verðmætaaukning varð hjá VIK, dótturfyrirtæki SH
í Hamborg. Þetta kom fram í skýrslu stjórnar SH, sem Jón Ing-
varsson stjórnarformaður flutti á aðaifundi SH í gær.
Aukning í sölu verksmiðjufram-
leiddrar vöru var um 6% hjá Cold-
water, en flakasala dróst saman um
7%. Hagnaður af rekstri fyrirtækis-
ins eftir skatta nam um 1,8 milljón-
um dollara. Skortur á fiski frá ís-
landi, einkum þorskblokk, þorsk-
og ýsuflökum, háir mjög afurðasölu
Coldwater. Þetta hefur orsakað það
að fyrirtækið hefur keypt til vinnslu
ódýrari fisktegundir, eins ogAlaska-
ufsa og hoki frá Nýja-Sjálandi og
auk þess mikið af kanadískri þorsk-
blokk til að anna eftirspum við-
skiptavina. Síhækkandi verð á Evr-
ópumarkaði og léleg staða dollars
gagnvart Evrópumyntum hefur
dregið verulega úr útflutningi á
fiskafurðum til Bandaríkjanna und-
anfarin ár. í fyrra vom aðeins um
35% hráefnisins, sem unnið var hjá
Coldwater, frá íslandi. Búast má við
að framleiðslan kunni á ný að fara
að leita tii BNA í auknum mæli, þar
sem Bandaríkjadalur hefur hækkað
umtalsvert það sem af er þessu ári
gagnvart öðmm vestrænum gjald-
miðlum.
Hjá Icelandic Freezing Plants Ltd.
í Bretlandi varð tæplega 30% aukn-
ing í sölu sjávarafurða, en heildar-
salan var 44 milljónir sterlings-
punda. Mest var aukningin hjá
IFPL í verksmiðjuframleiddri vöm,
eða rúmlega 42%, og hagnaður af
rekstri var 228 þúsund pund. Mikil
breyting til batnaðar var á rekstrin-
um 1990 miðað við 1989, eða sem
nemur 1,9 milljónum punda.
Ástæða batans var bæði söluaukn-
ing á flökum og verksmiðjufram-
leiddum vömm sem og vemlegar
verðhækkanir. Samhliða þessari
þróun hefur fengist umtalsverð
framleiðniaukning og árangur hef-
ur orðið vemlegur í aðhaldi á
rekstrarkostnaði. Athyglisvert er að
meðan söluaukning átti sér stað hjá
IFPL hefur orðið mikill sölusam-
dráttur hjá helstu samkeppnisaðil-
um á breskum markaði.
VIK, dótturfyrirtæki SH í Ham-
borg, seldi á síðasta ári 16.500 tonn
að verðmæti 91 milljón marka, sem
er 29% magnaukning og 44% verð-
mætaaukning miðað við 1989.
Söluskrifstofur SH í París seldu á
sama tíma 18 þúsund tonn fyrir 330
milljónir franskra franka, sem er
umtalsverð aukning frá fyrra ári,
eða 32% í magni og 74% í verð-
mætum. Það sem af er þessu ári
hefur orðið bæði magn- og verð-
mætaaukning á meginlandinu hjá
þessum söluskrifstofum.
Samdráttur varð í sölu til Austur-
Asíulanda, úr 24 þúsund tonnum
1989 í rétt rúmlega 18 þúsund tonn
í fyrra. Það sem af er þessu ári hefur
magnaukning fyrir þennan markað
numið 92% og verðmætaaukning
210%.
Útflutningur á skelflettri rækju var
rúmlega tvö þúsund tonn, sem var
75% meira magn en 1989, þrátt fyr-
ir að erfíðleikar voru í markaðsmál-
um vegna lækkandi söluverðs og
sölutregðu. Hörpudiskútflutningur
var 600 tonn, sem er svipað magn
og 1989, og eru Frakkar nú stærstu
kaupendur að þessari afurð. Hum-
arútflutningur varð 250 tonn og var
helmingi meiri framleiðsla á heil-
um humri en humarhölum í fyrra.
Stærstu kaupendumir vom Danir
og Spánverjar. Mikil aukning varð í
sölu á eldisfiski, en hún jókst úr 225
tonnum 1989 í 1.280 tonn 1990.
—SE
Banaslys á
Laugavegi
Banaslys varð á efri hluta Lauga-
vegar laust fyrir klukkan fímm í
gær og var honum lokað um tíma
vegna þess. Slysið varð meö þeim
hætti að bifreið ók í veg fyrir bif-
hjól og iést ökumaður bifhjóls-
ins.
Bifreiðin, sem ók í veg fyrir
hjólið, ók í vestur eftir Laugaveg-
inum og beygði upp að Hekluhús-
inu. ók hún þá í veg fyrir áður-
nefnt bifhjól og sendibfí. Bflstjóri
sendibflsins náði að stöðva, en
ökumaður bifhjólsins ekld.
Þá varð árekstur á gatnamótum
Laugavegs og Kringlumýrar-
brautar skömmu eftir klukkan
fimm síðdegis í gær. Farþegi úr
öðrum bflnum var fluttur á slysa-
deild, en bflamir vom báðir
dregnir í burtu mikið skemmdir.
—SE
Steingrímur Hermannsson kaupir fyrstu gullboltana fýrir rikisstjómina. Timamynd: Pjetur
Frá Handknattleikssambandinu:
Sala gullboltans
HSÍ hefur sölu gullboltans, merkis
HSÍ, núna um kosningahelgina.
Hún markar upphaf að Iokaundir-
búningi fyrir heimsmeistarakeppn-
ina hér á landi 1995. HM 95 verður
haldin hér í lok næsta kjörtímabils,
innan fjögurra ára. Ekki veitir af
tímanum ef við ætlum að standa
okkur í hlutverki gestgjafa stærsta
íþróttamóts, sem kannski verður
nokkru sinni haldið á íslandi.
Ekki þarf síður að huga að upp-
byggingu keppnismanna, svo að við
getum staðið öðrum þjóðum á
sporði í heimsmeistarakeppninni
sjálfri sem og í heimsmeistara-
keppninni í Svíþjóð 1993.
Sala merkisins um helgina og þá
sérstaklega á kjördag er beiðni
handboltamanna um stuðning við
þennan undirbúning. Tekist hefur
að fá íþróttafólk í nánast hverju
sveitarfélagi landsins til sölu merk-
isins og skipulögð hefur verið sala
merkisins við kjörstaði. Þá verður
gengið í hús víðast hvar og merkið
einnig selt á mannamótum. Lang-
flestum ætti því að gefast tækifæri
til að sýna stuðning sinn í verki.
Gullboltinn kostar 400 kr. Kostnaði
við sölu merkisins er haldið í lág-
marki, nema sölulaunin sem renna
fyrst og fremst til starfsemi íþrótta-
félaganna, sem sjá um söluna. And-
virði merkjanna mun því skila sér
vel.