Tíminn - 27.04.1991, Síða 9
Laugardagur 27. apríl 1991
HELGIN
17
Kvikmyndir
Óhætt er að segja að Cyrano sé eitt
metnaðarfyllsta verk sem sést hefur í
áraraðir, í alla staði vel unnið, kvik-
myndataka, sögusvið og leikur alveg
eins og best getur orðið.
Að lokum vil hvetja þig, lesandi góð-
ur, ef þú ert áhugamaður um góð-
ar kvikmyndir, til að láta ekki
þessa fram hjá þér fara! ÁHK.
Mo’ Better Blues ★★1/2
Aðalhlutverk: Denzel Washlngton
(The Mlghty Quinn, Glory, Heart
Condltlon), Spike Lee (Do the
Right Thing), Wesley Snipes,
Giancarlo Esposito, Cyndia Williams.
Leikstjóri: Spike Lee.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd I Laugarásbió.
Leikstjórinn Spike Lee skaust
upp á stjömuhimininn fyrir
tæpum tveimur árum þegar
hann gerði myndina Do the
Right Thing, sem þótti einstak-
lega vel gerð mynd um líf og
störf svartra í Brooklyn. Nú er
hann aftur farinn á stað með
nýja mynd og að þessu sinni er
leiksviðið líf trompetleikara,
sem hugsar fyrst og fremst um
sjálfan sig og lítið annað. Bleek
Gilliam (Denzel Washington) er
forsprakki vinsællrar djass-
hljómsveitar þar sem hann er
allt í öilu og ekkert fær skyggt á
hann. Sjálfumgleði einkennir
manninn og honum reynist erf-
itt að hleypa öðrum hlutum en
trompetnum nálægt sínu lífi.
Saman tvinnast svo samskipti
hans við veikara kynið, besta
vininn og trompetinn og úr
þessu öllu verður til stórt vanda-
mál sem ekki greiðist úr fyrr en í
lokin.
Spike Lee er þarna að fást við
efnivið sem hann'þekkir vel til,
nefnilega djass, því hann ólst
sjálfur upp á heimili þar sem
djassinn réð ríkjum og allt ann-
að varð ósjálfrátt númer tvö. Að
venju er ádeilan ekki langt frá
Spike og að þessu sinni er hann
að sanna fyrir þeldökkum fbúum
Bandaríkjanna að ofbeldi er ekki
rétta leiðin, jafnvel þó umhverf-
ið bjóði ekki upp á margt annað.
Denzel Washington, sem áður
hefur leikið í þó nokkrum mynd-
um, hefúr góð tök á hlutverkinu
og oft hefur maður séð þessa
persónu, sem hann túlkar, í dag-
legum samskiptum við vini og
vandamenn.
Spike Lee er þarna á ferðinni
með mynd sem höfðar frekar til
sannra Spike Lee aðdáenda og
djassista en hins almenna áhorf-
enda. Ég sjálfur skemmti mér
vel yfir fögrum tónum úr horni
Bradfords Marsalis og hljóm-
sveitar hans, enda mikill áhuga-
maður um djass. ÁHK.
Takmarkanir a umferb í
KVOSINNI
vegna gatnaframkvæmda
/ sumar veröa Vonarstrœti, Templarasund og noröurhluti Tjarnargötu endurgeröar þannig, aö
göturnar veröa steinlagöar og settar snjóbrœöslulagnir í þær. Jafnframt veröur noröurbakki
Tjarnarinnar endurbygcjöur. Nauösynlegt er aö loka götunum meöan á framkvœmd stendur.
Verkiö veröur unniö i áföngum. A meöfylgjandi mynd má sjá áfangaskipti. Eftirfarandi er
áœtlun um verktima einstakra áfanga.
o
0
Vonarstrœti austan nr. 10.................30. apríl - 15. ágúst.
Templarasund...............................S.júlí- 15. ágúst..
Vonarstrœti frá nr. 8 ab Tjarnargötu
og Tjarnargata frá Vonarstrœti aö nr. 4.1. júlí - 1. sept.
Tjarnargata frá nr. 4 aö Kirkjustrœti. 1. júní - 15. júlí.
Tjarnargata frá Vonarstrœti ab nr. 12..15. júií - 15. sept.
Á tímabilinu 30. apríl - 1. sept. veröur ekki unnt aö aka um Vonarstrœti frá Lœkjargötu aö
Suöurgötu. Þess í staö er ökumönnum bent á aö aka Skólabrú, Pósthússtrœti og Kirkjustrœti.
Framkvœmdum viö Tjarnargötu milli Vonarstrœtis oa Kirkjustrœtis veröur hagaö þannig,
aö aökoma veröur möguleg aö bílastœöi Alþingis.
30. apríl hefst l.áfangi verksins. Þá veröur Vonarstrœti austan nr. 10 lokaö. Einstefna á
vesturhluta Vonarstrœtis veröur þá afnumin.
Viö upphaf hvers áfanga veröur auglýst nánar um lokanir gatna og breytingar á umferö.
Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík