Tíminn - 01.05.1991, Síða 5
Miðvikudagur 1. maí 1991
Tíminn 5
Húsnæðisstofnun skuldar 1,8 milljarð í Seðlabankanum, en stefnir að því að borga skuldina fyrir árslok:
Skuld Húsnæðisstofnunar
í Seðlabanka vex stöðugt
Vegna slæmrar fjárhagsstöðu Byggingarsjóðs ríkisins
hefur Húsnæðisstofnun ríkisins orðið að taka víxillán
hjá Seðlabanka íslands upp á samtals um 1,8 milljarð
króna. Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjórí
Húsnæðisstofnunar, segir að stofnunin stefni að því að
greiða þessi lán upp fyrir árslok.
í fréttatilkynningu frá fjármála-
ráðuneytinu, sem gefm var út til að
útskýra aukinn halla á ríkissjóði, er
þess m.a. getið að gjalddagi víxils
upp á 300 milljónir sé 30. aprfl 1991
og að Húsnæðisstofnun hafi haft
góð orð um að geta greitt þennan
víxil á gjalddaga. Sigurður sagði að
ekki hefði tekist að greiða þennan
víxil og að semja yrði um nýjan
gjalddaga.
Víxillán upp á 1,2 milljarð, sem
Húsnæðisstofnun tók í Seðlabanka
með ríkisábyrgð, gjaldféll 21. janúar
síðastliðinn og var það gjaldfært á
viðskiptareikning ríkissjóðs. Síðan
hefur Húsnæðisstofnun tvisvar
sinnum fengið 300 milljóna króna
lán hjá Seðlabanka. Stofnunin
skuldar því ríkissjóði í dag 1,5 millj-
arð króna og Seðlabankanum 300
milljónir. Sigurður sagði að af hálfu
Húsnæðisstofnunar hefði engu ver-
ið slegið föstu um hvenær yrði unnt
að greiða upp öll víxillánin, en stofn-
unin legði mikla áherslu á að greiða
lánin upp fyrir lok þessa árs. Sigurð-
ur sagði að í ágúst á síðasta ári hefði
Húsnæðisstofnun bent stjórnvöld-
um á að fjármál Byggingarsjóðs rík-
isins stefndi í óefni. Ekki hefði verið
tekið á þeim málum og því hefði
stofnunin neyðst til að taka skamm-
tímalán til að geta staðið við skuld-
bindingar sínar.
Engum fjármunum var veitt til
Páfi sæmir Torfa Ólafsson riddarakrossi Silvesters
Jóhannes Páll páfi II hefursæmtTorfa Ólafsson, formann Félags kaþólskra leikmanna, ríddarakrossi heilags
Silvesters páfa L fýrírstörf í þágu kaþólsku kirkjunnar. Alfred Jolson, biskup kaþólskra, afhenti Torfa orðuna í
fýrradag. Torfi Ólafsson er annar islendingurínn sem hlýtur orðu frá páfa. Áríð 1925 var Gunnar Einarsson
sæmdur ríddarakrossi heilags Gregoríusar fýrír að vera eini kaþólikkinn á íslandi. Auk þess að vera formað-
ur kaþólskra leikmanna hefur Torfi unnið að þýðingum og ritstörfum fýrír kaþólsku kirkjuna. Hann hefúr einn-
ig tekið mikinn þátt í samstarfi kaþólskra manna á Norðuríöndum. Timamynd: Ami Bjama
Byggingarsjóðsins á fjárlögum. greiða háar upphæðir í vexti vegna
Ljóst er að Húsnæðisstofnun þarf að umræddra skammtímalána. -EÓ
Forseti Ítalíu hér
á landi um helgina
Francesco Cossiga, forseti Ítalíu,
kemur í opinbera heimsókn hingað
til lands á laugardaginn og dvelur
fram á sunnudag. í fylgd með for-
setanum verður Cianni de Michelis
utanríkisráðherra og ýmsir emb-
ættismenn.
Flugvél forsetans lendir á Reykja-
víkurflugvelli klukkan 11 á laugar-
dagsmorgun. Móttökuathöfn verður
á flugvellinum en þaðan verður farið
á Hótel Sögu þar sem forsetinn og
fylgarlið hans mun búa á meðan á
heimsókninni stendur. Forseti Ítalíu
snæðir hádegisverð í boði forseta ís-
lands, en þar verða einnig stuttar
viðræður að viðstöddum utanríkis-
ráðherrum landanna og embættis-
mönnum.
Utanríkisráðherrarnir hittast síðan
og efna til sameiginlegs blaða-
mannafundar eftir hádegi þennan
dag. Síðdegis heimsækir forseti ít-
alíu Stofnun Árna Magnússonar og
Háskóla íslands. Loks tekur borgar-
stjórinn í Reykjavík á móti forsetan-
um í Höfða. Um kvöldið býður for-
seti íslands til hátíðarkvöldverðar í
Höfða.
Að morgni sunnudags verður ekið
að Kárastöðum og þar gróðursett tré
í Vinaskógi. Síðan verður ekið til
Þingvalla og gengið niður Almanna-
gjá ef veður leyfir. Forsætisráðherra-
hjónin bjóða síðan til hádegisverðar
á Hótel Holti, en heimsókninni lýk-
ur síðdegis þegar forsetinn heldur af
landi brott frá Keflavíkurflugvelli.
Frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu:
Lára Halla Maack yfir-
læknir réttargeðdeildar
Guðmundur Bjamason, heilbrígð-
is- og tryggingamálaráðherra, hefur
skipað Láru Höllu Maack yfirlækni
nýrrar réttargeðdeildar.
Þar verða vistaðir þeir sem dæmdir
eru ósakhæfir og verður ekki refsað
skv. 15. og 16. gr. almennra hegn-
ingarlaga nr. 19/1940, en eru vegna
réttaröryggis dæmdir skv. 62. gr.
laganna til að sæta ótímabundinni
vistun á viðeigandi hæli.
Deildin skal annast geðlæknisþjón-
ustu í fangelsum landsins og fram-
kvæma geðrannsóknir á þeim sem
gert hefur verið að sæta slíku, vegna
rannsóknar mála. Hún skal leggja
mat á beiðni fanga um reynslulausn
og hvort fangar skuli afplána refs-
ingu utan fangelsa.
Ráðgert er að 22 milljónir fari í
þetta verkefni á árinu. Heimilt er að
kaupa húsnæði fyrir geðsjúka af-
brotamenn. Ráðherra leggur
áherslu á að kannað verði til hlítar
hvort mögulegt er að hafa hana inn-
an Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri.
-aá.
Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja
sendir félagsmönnum sínum og
íslenskri alþýðu baráttukveðjur
á hátíðisdegi launafólks