Tíminn - 16.05.1991, Page 1
Hvað samþykkti Jón Baldvin í Brússel á mánudag? Stjórnarandstaðan kref-
ur ríkisstjórnina svara í dag. Jón Baldvin Hannibalsson verður spurður:
Verða utanstefnur
hlutskipti okkar?
Spumingin, sem brennur á ísiend-
ingum nú, er hvað það var sem Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra samþykkti í ráðherraviðræð-
unum í Brussel í byijun vikunnar.
Margir telja sig geta lesið úr sam-
þykkt ráðherrafundarins vísbending-
ar um að samningar um Evrópskt
efnahagssvæði muni fela í sér vem-
legt afsal á fullveldi EFTA-ríkjanna
og þar með á fullveldi íslands í hend-
ur yfirþjóðlegra valdastofnana í Evr-
ópu. Þannig geti æðsta dómsvald ís-
lendinga í mörgum atríðum færst úr
landi og til Lúxemborgar eða
Brussel. Steingrímur Hermannsson
sagði í gær að nauðsynlegt værí að
utanríkisráðherra gæfi Alþingi skýr-
ingar og svaraði þeim spumingum
semi þingmenn kynnu að vilja spyrja.
Og íslendingar hljóta að spyrja sig
sjálfa hvort þeir vilji hlíta utanstefrí-
um erlendra valdastofríana.
• Blaðsíða 3
HANN FER FRIIÐ