Tíminn - 16.05.1991, Page 8

Tíminn - 16.05.1991, Page 8
8 Tíminn Fimmtudagur 16. maí 1991 Tvelr ólíklr helmar eru á Kýpur og ekkl greiðfært á milll. Á tyrkneska hluta eyjarinnar ríkja enn gamlir búskaparhættir og þar ríkir stöðnun í efnahagsmálum. Hér er er ver- ið að tína ólífur á gamla mátann. KÝPUR ENN VINSÆL MEÐAL FERÐAMANNA EN TYRKNESKI HLUTINN ER ÞEIM LOKAÐUR Kýpur er enn á sínum stað og fyrir kemur að eyjan fagra í austanverðu Miðjarðarhafinu er nefnd í fréttum. En sjaldan er minnst á það óeðlilega pólitíska ástand sem rikt hefur á eynni allt frá árinu 1974 þegar tyrkneskt herlið gerði innrás og lagði um 40% eyjarinnar undir sig. Síðan hefur Kýpur verið skipt, 60%, suðurhlutinn, eru byggð Kýpverjum af grískum uppruna, sem þá voru um 80% íbúa eyjarinnar. Tyrkir frá meginlandinu hafa aftur á móti bæst í hóp tyrknesku Kýpvetjanna, sem búa afgirtir í norðurhlutanum. Höfuðborgin Níkósía er skipt borg, rétt eins og Berlín og Beirút fyrrum, en mun nú ein höfuðborga um þann heiður. Blaðamaður The Sunday Times, sem þekkti vel til á Kýpur fyrir skiptinguna, hefur nýlega farið aftur um eyna og lýsir viðbrögðum sínum. Miðað við venjulegt fjölbýlishús er nr. 11 við Agios Memnonos stræti í Dherinia álíka töfrandi og bæjar- blokk í Bretlandi byggð á sjöunda áratugnum. Engu að síður eru ferðamenn aftur farnir að flykkjast þangað, rétt eins og þeir gerðu áður en Persaflóastríðið braust út. Þeir koma með bflaleigubílum og leigu- bflum, beint af ströndinni og lykta sterkt af sólarolíu. Útsýnið af þaki hússins hefur öruggt aðdráttarafl í sólríkum suðurhluta Kýpur. Eigandinn, grískur Kýpurbúi, aug- lýsir þar „upplýsingaskála" og tekur 35 enskra pensa aðgangseyri af hverjum gesti fyrir að fá að góna yf- ir eyðilendi til norðurs þar sem sjá má vindmyllur snúast án nokkurs tilgangs, innan um illgresi og gaddavír. Fjær má sjá gegnum kíki sundurrofnar útlínur „draugaborg- arinnar Famagusta". ,Attila-línan“ klýfur landið í tvennt Nær komast ferðamennirnir ekki atburðunum á hinu heita sumri fyr- ir 17 árum, þegar tyrkneskt herlið gerði innrás, lagði undir sig Famag- usta og reisti það sem síðan hefur gengið undir nafninu Attila- línan. Hún klýfur eyjuna í tvennt, í aðeins nokkurra sentimetra fjarlægð frá Agios Memnonos stræti, lagði í rúst efnahag landsins, setti af stað skjálfta bæði í gríska og tyrkneska samfélaginu og bjó til tvö ríki á Kýp- ur, annað í norðurhlutanum og hitt í suðurhlutanum. Núna er það sem kallað er lýðveld- ið Kýpur í augum umheimsins gríski suðurhlutinn. í norðurhlut- anum er svæði undir yfirráðum tyrkneska hersins sem aðeins hefur fengið viðurkenningu Kóreu og tyrkneska móðurríkisins. Það er ógerlegt fyrir íbúana að fara á milli rfkjanna og mjög torsótt fyr- ir útlendinga. Reyndar hefur norð- urhluti landsins lítt eða ekkert kom- ist í heimsfréttir fyrr en frægasti tyrkneski Kýpurbúinn í heimi, fjár- málajöfurinn Asil Nadir, hrapaði á hlutabréfamarkaði. Þegar athyglin beindist aftur að svæðinu kom í Ijós efnahagslíf sem er algerlega komið í strand. Undir hernámi er það eins og lömuð fegurðardís, sem heimur- inn leiðir hjá sér, og er ófær um að leysa úr læðingi efnahagslega möguleika sína. Aftur á móti hefur gerst efnahags- legt undur í suðurhlutanum. Þegar tíminn stöðvaðist var þjónusta við sumarleyfisgesti sú atvinnugrein sem aflaði næstmests gjaldeyris í ríkinu og 265.000 gestir komu á ári. Það var þess vegna eðlilegt að fram- takssamir grískir Kýpurbúar sneru sér upp á líf og dauða að því að færa út kvíamar í ferðamannaþjónustu, þar sem það var eina aðferðin sem þeir kunnu til að koma sér út úr vandanum, þrátt fyrir að þeir höfðu misst Famagusta og Kyrenia, þar sem meira en tveir þriðju útlendu gestanna höfðu dvalist. Nú, þegar aðeins 60% eyjarinnar eru talin grísk, hafa þeir brugðist við þeirri brýnu þörf að koma upp húsaskjóli fyrir 144.000 flóttamenn frá norð- urhlutanum og draga til sín sex sinnum fleiri gesti á ári en fyrir stríðið. Þar til tíminn stöðvaðist aftur vegna Saddams Hussein, voru það Bretar - 550.000 á ári - sem þar voru fremstir í flokki. Nú þegar Persaflóastríðinu er lokið hafa er- lendar ferðaskrifstofur aftur tekið upp áætlanir sínar til Kýpur og grískir Kýpverjar hafa hleypt af stokkunum fimm milljón sterlings- punda auglýsingaherferð til að laða aftur að sér viðskiptavini til eyjar- innar sinnar, þar sem verðlag er hagstætt, landslag fagurt, sólríkt og vinsamlegt andrúmsloft. Kýpur er enn Kýpur. Fjöldaferðamennska leikur nú lausum hala En það er ekki meira en svo. Hótel- rými stækkar meira en þrisvar sinn- um hraðar en áætlað var og getur núna hýst 2,6 milljónir gesta á ári. Gífurlegar mannvirkjahugmyndir liggja á teikniborðum í Níkosíu á sama tíma og 900 rúma hótel rísa í fyrrum fiskimannaþorpum, þar sem samgöngu- og annað þjónustukerfi fyrirfmnst ekki. Fjöldaferða- mennska, sem nú leikur lausum hala, hefur fært íbúunum auð - og geysilegt félagslegt, menningarlegt og umhverfislegt uppnám. Engin önnur tvö orð eru betra dæmi um breytinguna í suðurhlut- anum en staðarnafnið Ayia Napa. Fyrir nokkrum árum var það lítið þorp, íbúarnir voru um 800 fátækir grískir Kýpverjar. Þar voru kaffistof- ur, örþröngar götur og fábrotin gömul hús. Þar var aðeins eitt hótel við stórfallegan flóa og strendurnar sólríkar og mannlausar. Skjaldbök- ur komu þá þangað til að losa sig við eggin sín á hljóðum nóttum. Nú, þegar hömlulaus útþensla hef- ur átt sér stað í 13 ár, tekur Ayia Napa á móti um hálfri milljón ferða- manna á ári. Ferðamannaþjónustan hefur afmáð sérhvern vott af staðar- einkennum og dreift forljótum steinsteypuháhýsum umhverfis fló- ann. Nærliggjandi þorp eru því sem næst mannlaus á daginn þegar íbú- arnir hafa tekið sér far með áætlun- arbflum til Ayia Napa til að vinna þar sem þjónar, kokkar eða þernur á hótelunum. í augum sumra er þetta líkast par- adfs. í augum annarra er innrás diskótekanna - þau eru 13 hvert of- an í öðru - auk gnýsins af mótor- hjólum um kvöld og nætur, nektar gestanna, ölvunarláta og tilhneig- ingar sumra til að eðla sig beint fyr- ir framan augun á íbúunum, of mik- ið af því góða, reyndar svo mikið um of að allir upphaflegu íbúarnir eru farnir. Þeir flúðu upp í hlíðarnar þar sem þeir hafa byggt nýtt þorp og reyna þar að byggja aftur upp þann lífsstfl sem ferðamennskan hafði eyðilegt. Ömurleg lexía sem aðrir grískir Kýpverjar hafa lært eitthvað af? Varla. Alls staðar eru eftirlitslausar braskbyggingaframkvæmdir í gangi. Röð járna á hráum nýjum bygging- um - sem skilin hafa verið eftir upp úr flötum þökunum, tilbúin að taka á móti einni hæðinni enn þegar peningaráð leyfa - eru að eyðileggja gamla samræmið í lágum múr- steinshúsum og litlum húsum um- vöfðum þríburablómum, rétt eins og risastóru hótelin sem breiða úr sér í austurátt frá Limassol og Kato Paphos. Síðarnefndi staðurinn er líka nú að verða enn ein ruglings- lega blandan af börum, diskótekum og hamborgarastöðum. Sonur Ya- manis fursta ætlar að gera Ódys- seifs-garð við hliðina á kletti Afród- ítu, fæðingarstað frægustu dóttur eyjarinnar. Aðeins einn ósnortinn staður eftir Nú er einungis einn ósnortinn staður eftir, Akamas-nesið á vest- asta odda eyjarinnar, þar sem lífs- takturinn hefur ekki breyst. Þangað

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.