Tíminn - 30.05.1991, Blaðsíða 1
Halldór vill efna
Vill Davíö svíkja?
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði á alþingi í
gær að ef í ijós kæmi að núverandi ríkisstjórn
væri bundin af stuðningsaðgerðaþætti hins nýja
búvörusamnings, þá yrði að taka upp viðræður
við bændur um að draga úr, eða fresta þeim
þætti samningsins. Halldór Blöndal hafði hins
vegar skömmu áður ítrekaö að hann vildi standa
við og framfýlgja búvörusamningnum. Sjálfstæö-
ismenn væru vanir að standa við gerða samn-
inga. Bæði Davíð og Hajldór héldu síðan fram við
blaðamann að ekki væri hægt að skilja orð þeirra
svo að þeir væru ósammála um búvörusamning-
inn. Jón Helgason, alþingismaður Framsóknar-
flokksins, sagði að ómögulegt væri að skilja orð
forsætisráðherra öðruvísi en svo að hann væri að
ómerkja ummæli landbúnaðarráðherra og sagði
síðan: „Fyrir bónda, sem á að minnka sinn bú-
stofn og draga úr sínum tekjum, þá er það auðvit-
að úrslitaatriði að hann geti haft nokkuð rök-
studda von eða vissu fýrir því að við fýrirheitin um
stuðning við leit að nýjum möguleikum verði stað-
ið.“ • Blaðsíða 2
ÞAÐ VAR HEITT í kolunum á alþingi í gær. Af myndinni gæti virst
sem Ólafur Ragnar Grímsson hefði rétt arftaka sínum í embætti flár-
málaráðherra kinnhest mikinn. En þótt mönnum værí heitt í hamsi þá
voru hendur ekki látnar skipta, enda alþingismenn fríðsemdarfólk.
Timamynd: Ami Bjama
í tengslum við útflutning á hvalkjöti
Ekkert kemur á óvart
meir frá þessu fólki
• Baksíöa og blaósíöa 2
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra segjast sammála,
en samkvæmt almennum málskilningi eru þeir ósammála um efndir búvörusamningsins: