Tíminn - 30.05.1991, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 30. maí 1991
Tíminn 15
MINNING
Friðrik Runólfsson
málarameistari, Hólmavík
Fæddur 26. júní 1922
Dáinn 22. maí 1991
Sú fregn barst til Hólmavíkur
miðvikudaginn 22. maí að Friggi
væri dáinn. Það er höggvið skarð í
mannlífsmyndina hér á Hólmavík.
Friggi, eins og hann var jafnan
kallaður, fór til Reykjavíkur í
læknisrannsókn í byrjun febrúar-
mánaðar sl. og hefði engan grunað
að hann ætti ekki afturkvæmt til
Hólmavíkur.
Hann gekk á móti örlögum sín-
um með einstöku æðruleysi og
hugarfari hins trúaða manns.
í dag er útför hans gerð frá Lang-
holtskirkju.
Friggi fæddist að Gestsstöðum í
Kirkjuhólshreppi, sonur hjónanna
Vigdísar Aðalsteinsdóttur og Run-
ólfs Jónatanssonar. Hann var elst-
an til að herma eftir kynlegum
kvistum í samfélaginu.
Ég fór til Reykjavíkur um hvíta-
sunnuna og heimsótti Frigga þar
sem hann iá á heimili Mögnu syst-
ur sinnar sem annaðist bróður
sinn af alúð ásamt manni sínum.
Var mér þá ljóst að komið væri að
leiðarlokum hjá honum. Hann tal-
aði um það og var fullkomlega
sáttur. Hann lést á Borgarspítalan-
um í Reykjavík miðvikudaginn 22.
maí.
Mér er efst í huga á þessum tíma-
mótum þakklæti fyrir vináttu og
samstarf í gegnum árin. Votta ég
og fjölskylda mín aðstandendum
innilega samúð okkar. Guð blessi
minningu hans.
Gunnar Grímsson
ur þriggja systkina. Systur hans
eru Magna og Vigdís, búsettar í
Reykjavík.
Vigdís móðir þeirra lést er Friggi
var 6 ára gamall, en þá bjuggu þau
á Heiðarbæ í Kirkjubólshreppi.
Hann ólst síðan upp hjá föðurfólki
sínu í Naustavík í sömu sveit.
Hann var vinnumaður hjá afa mín-
um og ömmu á Kirkjubóli í nokk-
ur ár sem unglingur. Suður á
Akranes fór hann til sjós og síðar á
Suðurnesjum nokkur ár. Eftir það
keypti hann sér vörubíl og stund-
aði vegavinnu nokkur sumur. Það
var á þeim árum sem fyrstu vöru-
bílarnir komu hingað í sýsluna.
Síðan lá leiðin í Iðnskólann í
Reykjavík þar sem hann fór að
nema málaraiðn. Lauk hann
meistaraprófi 1964. Eftir það sett-
ist hann að á Hólmavík og stund-
aði þá iðn allt til loka sl. árs.
Hann bjó alla tíð einn, var lítillát-
ur og híédrægur maður og gerði
aldrei miklar kröfur sjálfum sér til
handa. Friggi hafði óskaplega
gaman af börnum og hændust þau
að honum. Hann var einn af þrem-
ur stofnfélögum Tafl- og bridgefé-
lags Hólmavíkur og var fyrsti for-
maður þess og gegndi því starfi í
mörg ár og vann markvisst að veg-
ferð þess og uppgangi.
Hann hefur verið einn af burðar-
ásum í Leikfélagi Hólmavfkur um
margra ára skeið og leikið í flest-
um uppfærslum félagsins, enda
var hann frábær Ieikari. Föstudag-
inn 17. maí sl. hélt Leikfélag
Hólmavíkur upp á 10 ára endur-
reisnarafmæli félagsins. Á þeirri
samkomu var hann gerður að
heiðursfélaga.
Frigga hef ég þekkt frá því ég var
krakki og þótti mér gaman þegar
hann kom að Kirkjubóli í heim-
sókn. Hann gaf sér tíma til að
spjalla og var léttur og skemmti-
Iegur. Ekki óraði mig fyrir því þá
að við ættum eftir að vinna saman
um árabil, en þannig var að ég hóf
nám í málaraiðn og fór ég á samn-
ing hjá honum. Hann var mjög
þægilegur húsbóndi og alltaf var
stutt í grínið hjá honum, átti jafn-
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför
Guðfinnu Guðmundsdóttur
frá Finnbogastöðum.
Sérstakar þakkirtil starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Seli, Akureyri,
fyrir einstaka elskusemi og umönnun síðustu æviárin og sveit-
unga hennar fyrir vináttu og virðingu á kveðjustund.
Hulda Þórarinsdóttir Halldór Arason
Gyða Þ. Halldórsdóttir Ari Halldórsson
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum
fyrir birtingardag.
Þœr þurfa að vera vélritaðar.
Happdrætti framsóknar-
félaganna í Hafnarfirði
Dregiö var I happdrættinu hjá Bæjarfógetanum I Hafnarfiröi þann 22.
aprll 1991 og voru vinningsnúmerin innsigluö.
Eftirfarandi númer hlutu vinning:
1. Utanlandsferð, flug og bill til Danmerkur meö ALlS 1281
2. Dagsferö til Vestmannaeyja ásamt skoöunarferð i tvo daga 1125
3. Vöruúttekt kr. 10.000 Fjaröarkaup 924
4. kr. 10.000 Fjaröarkaup 43
5. kr. 10.000 Fjarðarkaup 1136
6. Vöruúttekt kr. 5.000 Matvöruverslunin Austurveri 1262
7. kr. 5.000 Matvöruverslunin Austurveri 1277
8. kr. 5.000 Matvöruverslunin Austurveri 1000
9. kr. 5.000 Matvöruverslunin Austurveri 1069
10. kr. 5.000 Matvöruverslunin Austurveri 154
Vinningshafar ern beðnir aö snúa sér til Baldvins E. Albertssonar. Sími
651854.
FUF við Djúp
Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 31. maí kl. 20.30 ( hús-
næði Framsóknarflokksins á Isafiröi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Nýir félagar velkomnir.
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Hattahóf SUF
Suf-arar, komiö öll á Fóget- ann, efri hæö, laugardags- kvöldið 1. júnl kl. 20.00 1
«. IHt hatta-hóf SUF.
Enginn kemst hattlaus inn.
Hátíöarræöa: Gissur Pét-
ursson, fyrrv. formaöur
SUF. lí; 1
1. -Æf W Veislustjóri: Siv Friöleifs-
11« \i mk dóttir, formaður SUF. Wi
Dómnefnd velur hatt-mann
Gissur ársins. Vegleg verðlaun.
Frá 15. mai veröur skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III hæð, opin frá kl.
8:00-16:00 mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin.
Framsóknarflokkurinn
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu Framsóknarflokksins,
sími 624480 (Anna), fyrir fimmtudaginn 30. maí.
Mætum öll og endum vetrarstarf með stæl.
SUF