Tíminn - 30.05.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Kosningabaráttan á Indlandi:
Rao valinn leiðtogi
Kongressflokksins
Forysta Kongressflokksins á Indlandi ákvað í gær einróma að skipa
Narasimha Rao, fyrrum utanríkisráðherra, leiðtoga flokksins. Rao
er þar með falið að leiða flokkinn í seinni umferðum kosninganna,
sem fram fara 12. og 15. júní. Um 40% þingmanna voru kosnir 21.
maí síðastliðinn í fyrstu umferð kosninganna. Rao var í gær skipað-
ur formaður flokksins til bráðabirgða, en eftir sex mánuði verður
framtíðarleiðtogi valinn.
Sjö daga þjóðarsorg vegna morðs-
ins á Rajiv Gandhi, fyrrum leiðtoga
flokksins og forsætisráðherra Ind-
lands, lauk í gær.
Rao er 69 ára gamall og heilsutæp-
ur. Pólitísk staða hans er veik og er
almennt talið að val hans í for-
mannsembættið sé bráðabirgða-
lausn. Hann naut trausts stuðnings
Indiru og Rajivs Gandhis, en hefur
nú enga valdamikla menn á bak við
sig og því er talið líklegt að auðvelt
verði að bola honum frá að kosning-
um loknum. En hann hefur langa
reynslu í indverskum stjórnmálum
og ávallt haldið tryggð við Kon-
gressflokkinn. Hann hefur einnig
Um 200 manns hafa beðið bana í kosningabaráttunni á Indlandi, sem er
sú mannskæðasta firá upphafi. Myndin er tekin á kosningafundi.
meirihluta eins og oft hefur orðið. flokksins og vonuðust þeir til að fá
Flokksforysta Kongressflokksins mikið af samúðaratkvæðum út á
lagði fyrst til að Sonja, ekkja Rajivs hana, en hún hafði ekki áhuga.
Gandhi, tæki við formennsku Reuter-SÞJ
komist hjá illdeilum við aðra með-
limi flokksins og það er einkum þess
vegna sem samstaða náðist um
hann, að sögn stjórnmálafræðinga.
Rao varð utanrikisráðherra þegar
Indira Gandhi varð forsætisráðherra
árið 1980.
Helsti keppinautur Kongress-
flokksins í kosningunum er hinn
hægrisinnaði Bharatiya Janata-
flokkur, en honum hefur gengið vel
fram að þessu. Raos bíður því erfitt
verkefni. í skoðanakönnunum, sem
gerðar voru rétt áður en Rajiv Gand-
hi var myrtur, fékk Kongressflokk-
urinn mest fylgi allra flokka, eins og
hann hefur ávallt fengið, en ekki
EUTZ-FAHR
LLUBINDIVÉIAR
MED SÖXUNARBÚNAÐI
Enn einu sinni kemur deutz-fahr á óvart meö merkilegri
nýjung: OptiCut söxunarbúnaöinum. Söxunarbúnaöurinn saman-
stendur af 14 hnífum, sem taka viö hevinu beint af sópvindunni
og skila heyinu fínsöxuöu í baggahólf rúllubindivélarinnar.
Helstu kostir söxunarbúnaöarins eru: ■ 10-20% meiri péttleiki í
rúlluböggunum en áöur ■ auðveldara aö losa rúllur f sundur viö
gjöf ■ betri verkun ■ færri rúllur ■ minni vinna ■ lægri
pökkunarkostnaöur.
ÁRMÚLA 11 - SÍMI S1-6B1500
Vopna-
sölu
til Mið-
austur-
landa
stjórnað
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, tilkynnti í gær áætlun um að
stöðva sölu stórvirkra vopna til Mið-
austurlanda og koma í veg fyrir her-
væðingu á borð við þá sem varð í ír-
ak.
í áætluninni er gert ráð fyrir að
koma í veg fyrir útbreiðslu kjarn-
orku- og efnavopna, svo og eldflauga
sem geta borið slfk vopn. Bush
hvatti til fundar fimm helstu vopna-
framleiðsluríkja heims til að móta
reglur sem komi í veg fyrir of mikla
útbreiðslu hefðbundinna vopna,
sem og gereyðingarvopna og búnaði
tengdum þeim. Fimm helstu vopna-
framleiðendur heims eru Bandarík-
in, Sovétríkin, Kína, Bretland og
Frakkland, en þetta eru einmitt þau
fimm ríki sem hafa neitunarvald í
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Bush sagði að Frakkar hefðu boðist
til að halda fyrsta fundinn.
Bandarísk stjórnvöld settu á mánu-
daginn hömlur á útflutning á banda-
rískum hátæknivörum til Kína
vegna meintrar vopnasölu Kínverja
til vanþróaðra ríkja eins og Pakist-
ans. Sú spurning brennur nú á
mönnum hvort stjórnin í Peking sé
tilbúin að taka undir þessar aðgerðir
Bandaríkjaforseta.
Fimmtudagur 30. maí 1991
Fréttayfirlit
VARSJÁ - Pólsk stjömvöld
sögðu í gær að efnahags- og
stjómmálaástandið í Sovétríkj-
unum ógnaði stöðugleika efna-
hags- og stjómmálalifsins í allri
Austur- Evrópu og skoruðu á
vestræn stjómvöld að koma
Sovétmönnum tafartaust tii
hjálpar.
ADDIS ABABA - Skæruliöar
Lýðræðis- og byltingarhreyfing-
ar eþiópsku þjóðarinnar
(EPRDF), sem tóku völdin í
höfuðborginni Addis Ababa á
þriðjudag, settu í gær á nætur-
utgöngubann i borginni, eftirað
Bl mótmæla kom fyrir utan
bandariska sendiráðið. Skæru-
liðar Frelsishreyfingar Eritreu
(EPLF), héraðs í norðaustur-
hluta iandsins, sögðust f gær
hafa myndaö bráðabirgða-
stjóm, sem mundi stjóma hér-
aðinu þar til atkvæðagreiösla
færi fram um sjálfstæði héraðs-
ins.
KHARTOUM - Súdönsk
stjórnvöld, sem glima við fá-
tækt og hungur ríkisborgara
sinna, óskuðu eftir hjálp frá al-
þjóölegum hjálparsamtökum í
gær tii þess að sjá fyrir 15.000
eþiópskum flóttamönnum, sem
hafa sest að i austurhluta Súd-
an, og 150.000 sem eru á leið-
ínni.
PEKING - Stúdentar við Pek-
Íngháskólahn efndu til mót-
mæla gegn stjómvöldum f gær.
Þann 4. júní eru tvö ár liðin síð-
an harmleikurinn átti sér staö á
Torgi hins himneska friöar, þeg-
ar stjómvöid bæidu niður lýð-
ræðishreyfingu með því að
drepa fjölda fólks.
BANGKOK - Skyldmenni
þeirra 223 manna, sem létust
þegar farþegafiugvél frá
Lauda-Air flugfélaginu fórst yfir
Tælandi á sunnudag, komu til
landsins í gær til að bera
kennsl á líkamsleifar ættingja
sinna. Flugvélin var að ná fullri
flughæð, 31.000 fetum, þegar
hún sprakk í tætiur, að sögn
flugumferðarstjóra f Tæiandi.
Orsakir slyssins eru óljósar.
PARÍS - Frönsk stjómvöld
ætia að krefjast brottfarar sýr-
lenska hersins frá Libanon og
aö haldnar verði frjálsar kosn-
ingar í iandinu, að sögn tais-
manns Francois Mitterrand
Frakkiandsforseta.
TIRANA - Fimmtíu þúsund
manns söfnuðust saman í mið-
borg Tirana, höfuöborgar Al-
baniu, í gær tll þess að lýsa
stuðningi sinum við allsheijar-
verkfall, sem hefur lamað allt
atvinnulif f Albanfu siðastliðnar
tværvikur. Lögreglan skautvið-
vörunarskotum yfir hópinn og
greip loks til táragass og há-
þrýstivatnsdælna til að dreifa
mannfjöldanum.
BREMEN - Sósialdemókratar
(SPD) völdu í gær leiðtoga á
landsvisu. Fyrir valinu varð
Bjöm Engholm, fórsætisráð-
herra Slésvikur-Holtsetalands.
KATMANDU - Ný ríkisstjóm
sór embættiseið f Nepal (morg-
un í kjölfar fyrstu lýðræðislegu
þingkosninganna i landinu í
meira en þrjá árafugi.
LONDON - Jarðgangamenn,
sem eru að grafa göngin undir
Ermarsund, fóndu f gær stein-
gerving af lindýri sem er, að
sögn jarðfræðinga, stærsti
steingervingur sinnar tegundar
sem fóndist hefur. Steingerv-
ingurinn vó u.þ.b. 25 kíló og er
a.m.k. 30 sentimetrar f þver-
mál. Reuter-SÞJ
Reuter-SÞJ